Fréttatíminn - 03.01.2014, Qupperneq 37
Helgin 3.-5. janúar 2014 heilsa 37
40 kíló fokin
með Zumba
og bættu
mataræði
Nýr framkvæmdastjóri hjá Reebok Fitness
G uðríður Erla Torfadóttir var nýlega ráðin framkvæmdastjóri Reebok Fitness og leggst starfið
gríðarlega vel í hana. „Hérna er frábær
hópur starfsfólks og við ætlum okkur
stóra hluti,“ segir hún. Guðríður er
einkaþjálfari, jógakennari og viðskipta-
fræðingur að mennt og hefur starfað við
líkamsrækt frá árinu 2000. Núna í haust
var hún þjálfari í sjónvarpsþáttunum
Biggest Loser Ísland sem verða sýndir á
Skjá Einum í lok mánaðarins. Guðríður
er gift og á þrjá syni sem eru 16, 11 og 5
ára. Sjálf er hún 34 ára svo hún var ekki
nema 18 ára þegar sá elsti fæddist. Áður
var Guðríður sölustjóri hjá Reebok á Ís-
landi og bjó svo í Sviss í tvö ár þar sem
hún vann við þjálfun en flutti aftur til Ís-
lands í október.
Engin binding
Reebok Fitness býður upp á mánaðakort
á góðu verði sem fela ekki í sér neina
bindingu. „Fólk skráir sig í áskrift hjá
okkur og getur sagt henni upp hvenær
sem er og tekur uppsögnin þá gildi strax
um næstu mánaðamót. Þetta er mjög
einfalt en mikilvægt fyrir fólk að muna
að það þarf alltaf sjálft að segja áskrift-
inni upp. Viðskiptavinir okkar kunna
að meta að þurfa ekki margra mánaða
uppsagnarfrest og að hafa frelsi til að
ákveða hvenær þeir vilji hætta,“ segir
Guðríður.
Barnagæsla í janúar
Á morgun opnar í fyrsta sinn barnagæsla
hjá Reebok Fitness og kostar hún 1.500
krónur fyrir hverja fjölskyldu á mán-
uði, óháð því hversu mörg börnin eru.
„Á laugardögum ætlum við svo að bjóða
upp á krakkajóga og krakkazumba fyrir
börn sem eiga kort í barnagæslunni. Þá
getur öll fjölskyldan farið á æfingu á sama
tíma.“
Gott úrval námskeiða
Að sögn Guðríðar eru margir spenn-
andi hópatímar hjá Reebok Fitness
og er Zumba vinsælast þessa dagana.
„Svo eru tímar eins og Hotyoga, hjól og
CardioFit líka mjög vinsælir. Í CardioFit
er verið að vinna með þol og styrk til
skiptis. Það er mjög vinsælt, sérstaklega
hjá körlum.“
Reebok Fitness verður með skólakort
á sérstöku tilboði nú í byrjun árs fyrir
fólk á aldrinum 16 til 20 ára. Einnig eru
að hefjast sex vikna aðhaldsnámskeið.
„Eitt námskeiðið er sérsniðið fyrir karla
og annað fyrir konur og vinsælustu og
reyndustu þjálfararnir okkar sjá um
þessi lokuðu námskeið.“ Einnig verður
boðið upp á námskeið fyrir fólk í mikilli
ofþyngd og mun Guðríður sjálf hafa um-
sjón með því. „Við ætlum að gera það
sem virkar og vera með þol- og styrktar-
þjálfun í bland og bæta líka jóga og
Foamflex inn í námskeiðið en það bygg-
ist á æfingum með rúllur og bolta sem
mýkja upp líkamann og eru mjög góðar
fyrir fólk með vöðvabólgu og stoðkerfis-
vandamál. Iðkendur á námskeiðunum
fá fræðslu og mjög góðar leiðbeiningar
um mataræði og mikið og gott aðhald,“
segir hún.
Bókunarkerfi í alla tíma
Hjá Reebok Fitness er fullkomið netbók-
unarkerfi fyrir alla hóptíma, barnagæslu
og námskeið sem þýðir að engin þarf að
slást um pláss eða bíða í röð eftir númeri
til að komast í tíma. „Fólk einfaldlega
skráir sig á netinu og á sitt pláss. Þetta
er líka góður kostur í barnagæslunni en
með bókunarkerfinu getum við fylgst
með hve mörg börn eru hjá okkur á
hverjum tíma.“
Hjá Reebok Fitness verður boðið upp
á ýmsar nýjungar núna í byrjun árs.
Á morgun opnar þar barnagæsla í
fyrsta sinn og á laugardögum verður
barnajóga og zumba. Þrjú aðhalds-
námskeið hefja göngu sína á næstu
dögum þar sem reyndustu þjálfarar
stöðvarinnar miðla af reynslu sinni
og þekkingu.
Vala Björk Gunnarsdóttir er
þrítugur leikskólakennari sem
stundar Zumba af miklum krafti. Í
mars 2012 var hún 119 kg en með
því að stunda Zumba í Reebok
Fitness og breyta mataræðinu
til hins betra er hún nú tæplega
fjörutíu kílóum léttari. „Zumba
hefur verið mín aðal hreyfing í
gegnum þetta ferli og svo ein-
staka göngutúrar,“ segir Vala
Björk sem mætir í Zumbatíma
tvisvar til þrisvar sinnum í viku.
Fyrir þá sem ekki þekkja
Zumba má geta þess að það eru
æfingar í dansstíl sem gerðar eru
undir leiðsögn kennara í hópa-
tíma. „Zumba er alveg afskaplega
skemmtileg hreyfing og tónlistin
er ótrúlega góð. Ég er alveg heill-
uð af Zumba. Maður kemur glaður
úr hverjum tíma og þetta lyftir
andanum. Svo eru Zumba kennar-
arnir í Reebok Fitness æðislegir
og virkilega færir,“ segir hún.
Að sögn Völu Bjarkar er andinn
í Reebok Fitness afskaplega
góður. „Stöðin er mjög opin og
björt og þó það séu margir þar þá
finn ég aldrei fyrir því. Svo eru
allir svo kátir og glaðir og tilbúnir
að hjálpa. Það er yndislegt að æfa
í Reebok Fitness.“
Reyndir þjálfarar, frábært verð og engin binding í Reebok Fitness
Guðríður Erla Torfadóttir hefur starfað við
líkamsrækt frá árinu 2000.