Fréttatíminn - 17.01.2014, Síða 4
Löður er með Rain-X
á allan bílinn
Við erum á sex stöðum á höfuðborgarsvæðinu
www.lodur.is - Sími 544 4540
Rain-X býður upp á fullkomna yfirborðsvörn
Rain-X verndar bílinn, eykur útsýni og öryggi
Hreinn bíll eyðir allt að 7% minna eldsneyti
400 mjúkdýr á Barnaspítalann
Viðskiptavinir Ikea á Íslandi hafa safnað 2.105.000 krónum fyrir Barnaheill–Save the
Children og Unicef. Verkefnið er samstarfsverkefni IKEA, UNICEF og Barnaheilla. Allt
söfnunarféð rennur til byggingar skóla í Asíu, Afríku og Mið-og Austur-Evrópu, full-
búnum og með þjálfuðum kennurum fyrir öll börn. Samstarfsverkefnið hefur safnað
tíu milljónum evra á heimsvísu en fyrir hvert mjúkdýr sem keypt var í einum af 330
verslunum IKEA um heiminn, á tímabilinu 10. nóvember til 4. janúar, fór ein evra í
söfnunina. Á Íslandi hefur auk þess verið hægt að kaupa mjúkdýr og gefa til Barna-
spítala Hringsins og nú í vikunni voru 400 mjúkdýr afhent spítalanum. -hh
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
Hiti rétt ofan frostmarks á láglendi
og víða úrkoma með köflum.
HöfuðBorgarsvæðið: HæglÁtt
og Að MEStU þUrrt og FroStlAUSt.
Hæglátt veður á landinu og kólnar lítið
eitt. snjók. a-lands, annars þurrt.
HöfuðBorgarsvæðið: lÁg VEtrArSól og HItI
UM EðA oFAN FroStMArKS.
áfram meinlítið veður, en snjókoma
nv-til og eins s-til.
HöfuðBorgarsvæðið: BAKKI NÁlgSt
MEð dÁlÍtIllI SlyddU EðA SNjóKoMU.
litlar breytingar,
en fremur hæglátt
Framhald verður á þessu undarlega tíðar-
fari með fremur mildu lofti sem kemur úr
austri og norðaustri. reyndar lægir mikið
á laugardag og þá frystir víða á láglendi.
Úrkomusamt verður A- og eink-
um SA-lands. rigning í byggð,
en snjókoma ofar. Ekki verður
alveg þurrt annars staðar. líkur
eru á snjókomu og NA-átt á
Vestfjörðum á sunnudag og
mugga eða slydda suðvestan-
til. Breytingar eru líklegar í
næstu viku.
2
1 2
3
3
3
1 -1 0
1
1
0 -2 1
1
einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
Við afhendingu mjúkdýranna á Barnaspítala Hringsins.
Tillögur að nýju hverfi
við Elliðavog kynntar
Almenningi gefst nú kostur á að kynna
sér vinningstillögurnar fimm sem koma
til greina sem skipulag Vogabyggðar, en
Vogabyggð er nýtt hverfi sem mun rísa
á landsvæðinu við Elliðavog. Hugmynda-
samkeppnin snerist um að útfæra til-
lögur að skipulagi svæðisins, í samræmi
við markmið Aðalskipulags reykjavíkur
2010-2030, en þar er gert ráð fyrir
blandaðri byggð íbúa og atvinnurekst-
urs. tillögurnar sem kynntar eru koma
frá teiknistofunni tröð, Arkís, tHg Arki-
tektum, Stúdíó granda og jvasntpitkjer
+ Felix frá Hollandi, og eru afrakstur úr
hugmyndasamkeppni sem reykjavíkur-
borg hélt í samstarfi við Arkitektafélag
Íslands og Hömlur ehf. Enn sem komið er
hvílir nafnleynd yfir tillögunum en þegar
dómnefnd hefur lokið störfum verður
haldin sýning þar sem verkin munu
birtast undir nafni höfunda.
tillögurnar eru til sýnis í þjónustuveri
reykjavíkur, Borgartúni 12-14, þangað
til dómnefnd hefur lokið störfum en auk
þess er hægt að nálgast tillögurnar á
heimasíðu: vogabyggð.hugmyndasam-
keppni.is -hh
Vogabyggð er nýtt hverfi sem rísa mun við
Elliðavog.
s onur minn var á leið heim frá vini sínum um klukkan sex á föstudags-kvöldi þegar ökumaður bíls keyrir
upp að honum og spyr hvort hann vilji
koma inn. Hann afþakkaði og gekk áfram
en þá sneri ökumaðurinn bílnum við, steig
út úr honum og opnaði skottið þar sem
hann geymdi sælgæti, og spurði drenginn
hvort hann væri alveg viss. Sonur minn
tók þá til fótanna og hljóp heim,“ segir
Ársæll Níelsson, faðir drengs í 2. bekk
Háaleitisskóla við Álftamýri. Syni hans
var mjög brugðið og haft var samband við
lögreglu sem brást mjög skjótt við. „Þeir
voru komnir hingað korteri seinna og tóku
skýrslu af honum,“ segir Ársæll en syni
hans hefur gengið vel að jafna sig eftir
atvikið. „Hann sagði líka að það væri gott
að mamma og pabbi hefðu sagt sér hvernig
ætti að bregðast við í svona aðstæðum. Það
er mjög stutt síðan við töluðum síðast við
hann um þessi mál,“ segir hann.
Anna Björnsdóttir er móður stúlku í
sama árgangi Háaleitisskóla sem karlmað-
ur reyndi að lokka upp í bíl til sín fyrir um
mánuði. „Hún var að labba heim frá vin-
konu sinni, um 400 metra leið um klukkan
sex á miðvikudagskvöldi, þegar einhver
stoppaði bíl sinn og reyndi að lokka hana
með sér. Hún varð bara hrædd og hljóp í
burtu. Við höfðum strax samband við lög-
regluna en fengum heldur dræm viðbrögð
og sagt að það væri lítið hægt að gera,“
segir hún.
Dóttir Helgu Margrétar Marzellíusar-
dóttur er einnig í 2. bekk Háaleitisskóla.
Helga segir mikla umræðu um öryggi
barnanna eiga sér stað meðal foreldra á
svæðinu og í raun séu bæði börn og for-
eldrar orðin óttaslegin vegna fjölda atvika
þar sem reynt er að tæla börn. „Dóttir
mín var á skólaplaninu Safamýrarmegin
utan skólatíma þegar ökumaður kallar eða
flautar á hana. Hún varð hrædd og hljóp
heim. Hún hefur verið mjög óttaslegin eftir
þetta,“ segir Helga. Á síðasta ári fengu for-
eldrar minnst þrjár tilkynningar frá skól-
anum um að grunur léki á að reynt hefði
verið að tæla börn í nágrenni hans.
Guðni Kjartansson aðstoðarskólastjóri
segir tekið á því að mikilli alvöru þegar
grunur leikur á að reynt hafi verið að
lokka börn. „Við höfum alltaf samband
við lögregluna ef minnsti grunur vaknar.
Í skólanum er einnig öflug fræðsla,“ segir
Guðni. Þrátt fyrir áhyggjur foreldra kann-
ast Guðni ekki við að fleiri atvik á borð við
þessi eigi sér stað í þessu hverfi en annars
staðar, og það gerir lögreglan á höfuðborg-
arsvæðinu ekki heldur. Samkvæmt upp-
lýsingum frá lögreglu berast að meðaltali
um tvær til þrjár tilkynningar í hverjum
mánuði þar sem tilkynnt er um tælingu
barns. Haldið er vel utan um allar tilkynn-
ingarnar og málin rannsökuð. Í hluta mál-
anna kemur í ljós að um misskilning var
að ræða, til að mynda menn sem ætluðu að
spyrja til vegar eða veifuðu til að vera vin-
gjarnlegir. Hins vegar séu skýr dæmi um
að menn reyni að tæla börn til fylgilags við
sig. Vegna þess að börn geta yfirleitt gefið
litlar upplýsingar um viðkomandi menn
eða bílana þeirra er rannsókn torveld.
Ársæll segist vilja hvetja menn sem
reyna að tæla börn til að leita sér aðstoðar.
„Ég vil bara hvetja þessa veiku einstak-
linga til að leita sér hjálpar við að snúa af
þessari braut,“ segir hann og Helga Mar-
grét tekur í sama streng: „Ég vona að þeir
fái aðstoð til að skilja hvers konar hræðslu
og vanlíðan þeir geta valdið börnum.“
erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
lögreglumál erFitt er að rannsaka tælingarmál
Reyndi að tæla
dreng með sælgæti
Karlmaður reyndi að tæla 7 ára gamlan dreng upp í bifreið sína í nágrenni Háaleitisskóla við
Álftamýri fyrir viku og var málið tilkynnt til lögreglu. Fleiri tilvik hafa verið tilkynnt að undan-
förnu. Foreldrar barna við skólann eru áhyggjufullir og brýna fyrir börnum sínum að fara ekki
upp í bíla með ókunnugum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu
koma að meðaltali tvær til þrjár tilkynningar í mánuði um að reynt hafi verið að tæla börn.
Börnin sem
um ræðir eru
nemendur í 2.
bekk Háa-
leitisskóla við
Álftamýri, sam-
einuðum skóla
Álftamýrarskóla
og Hvassaleitis-
skóla.
Ljósmynd/Hari
Ég vil bara
hvetja
þessa
veiku ein-
staklinga
til að leita
sér hjálpar
við að
snúa af
þessari
braut.
4 fréttir Helgin 17.-19. janúar 2014