Fréttatíminn - 17.01.2014, Side 8
… um 14.000 manns gerðust stofnfélagar þegar fyrirtækið
var stofnað 17. janúar 1914, fyrir réttum 100 árum. Það
voru um 15 prósent þjóðarinnar.
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Sigríður Dögg
Auðuns dóttir sigridur@frettatiminn.is. Fréttastjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@
frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
A Að koma vöru- og farþegaflutningum milli landa á íslenskar hendur var veigamikill þáttur í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga. Það skýrir gríðarlegan áhuga landsmanna á stofnun Eimskipafélags Íslands, sem kallað
var óskabarn þjóðarinnar, en um 14.000
manns gerðust stofnfélagar þegar fyrirtæk-
ið var stofnað 17. janúar 1914, fyrir réttum
100 árum. Það voru um 15 prósent þjóðar-
innar. Félagið lét smíða tvö
skip, Gullfoss og Goðafoss,
og hóf reglulegar siglingar
ári síðar og hefur haldið þeim
áfram óslitið síðan.
Félagið fagnar þessum
tímamótum í dag – og mun
gera það með margvíslegum
hætti á afmælisárinu. Það er
að vonum enda tíðindi að fyrir-
tæki nái svo háum aldri. Eim-
skipafélag Íslands hefur því
verið samofið íslenskri sögu
allan þennan tíma, burðarás í samgöngum,
farþegaflutningum milli landa fyrir tíð
flugferða, vöruflutningum milli landa og
strandsiglingum um langa hríð - og síðari ár
landflutningum eftir að úr þeim dró.
Ekki þarf að hafa mörg orð um mikilvægi
vöruflutninga til og frá eyþjóð. Flytja þarf
inn fjölmargar nauðsynjar og út framleiðslu-
vöru landsmanna. Reglubundnar siglingar
til og frá landinu eru því nauðsyn. Þeirri
þjónustu hefur Eimskipafélagið sinnt frá
stofnun. Það hafa önnur skipafélög raunar
einnig gert síðustu áratugi, í lengri eða
skemmri tíma, enda er samkeppni nauðsyn-
leg og öllum holl á þessum markaði eins og
öðrum. Eimskipafélagið, eða Eimskip eins
og félagið kallast nú, hefur þó notið stærðar
sinnar og umfangs alla tíð.
Eimskipafélag Íslands varð með tímanum
mjög umsvifamikið á íslenskum fyrirtækja-
markaði og tengdist öðrum fyrirtækjum
eignaböndum, jafnvel svo mjög að talað
var um kolkrabba þegar vísað var til þeirra
tengsla. Skipafélagið sjálft hélt sig engu
að síður að sinni kjarnastarfsemi, vöru-
flutningum allt þar til á útrásartímanum
svokallaða – sem eftir bankahrun hefur
fremur verið kenndur við bólu – en Avion
Group keypti félagið árið 2005 og sameinaði
flugrekstri sínum. Íslenskir athafnamenn
fóru geyst, meðal annars þeir eigendur sem
á þeim tíma réðu Eimskipafélaginu, Björg-
ólfsfeðgar í gegnum fjárfestingafélag sitt og
viðskiptafélagi þeirra, Magnús Þorsteins-
son.
Félagið óx svo hratt á þessum tíma með
miklum uppkaupum á öðrum fyrirtækjum,
einkum á árinu 2007, að það var orðið stórt
alþjóðlegt fyrirtæki í upphafi ársins 2008.
Þá störfuðu hjá því og dótturfélögum þess
yfir fjórtán þúsund manns víða um lönd.
Þegar flugið var sem mest státaði félagið af
því að vera stærsta kæli- og frystigeymslu-
fyrirtæki á heimsvísu. Það var hins vegar
afar skuldsett svo hin stórtæku uppkaup og
misráðnar fjárfestingar ytra færðu flest til
verri vegar hjá Eimskipafélaginu. Fallið var
því bratt sem leiddi til þess að félagið varð í
raun „tæknilega ógjaldfært“, eins og Arnór
Gísli Ólafsson sýndi í meistaraprófsritgerð
sinni um þessa örlagadaga félagsins.
Nýir stjórnendur, sem enn halda um
stjórnartauma félagsins, og stærstu kröfu-
hafar voru hins vegar reiðubúnir að leggja
í endurskipulagningu þess í stað þess að
ganga að því. Félagið var losað úr frysti- og
kæligeymslustarfseminni og einbeitti sér
þess í stað að flutningastarfseminni og fór
með þeim hætti til baka til upphafsins.
Það var heillaskref enda skynsamlegt að
sníða stakk eftir vexti. Endurskipulagt Eim-
skipafélag skilaði hagnaði af rekstri árið
2010, eftir hin erfiðu ár sem á undan fóru,
og nokkru síðar var ákveðið að skrá félagið
á hlutabréfamarkað.
Nú sinnir Eimskip alhliða flutningaþjón-
ustu, rekur skrifstofur í 19 löndum og er
með umboðsmenn í fjölmörgum löndum að
auki. Þá á félagið von á tveimur nýsmíðuð-
um skipum á árinu. Hjá Eimskip starfa nú
um 1350 manns, þar af um 780 manns hér á
landi. Þótt það sé einungis tíundi hluti þess
sem var þegar atgangurinn var sem mestur
fyrir örfáum árum er starfsemin á öðrum
og heilbrigðari nótum.
Afmælisbarninu og starfsmönnum þess
er óskað til hamingju með hinn merka
áfanga og jafnframt velfarnaðar.
Eimskipafélag Íslands fagnar tímamótum í dag
Aldargamalt óskabarn
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Ljós í myrkri
Ég kem daglega í vinnu í Efstaleiti
1 og bið menn að láta nýja fallega
ljósaskiltið þar sem stendur
RÚV í friði. Það lýsir vel í
myrkrinu.
Skammstöfunin RÚV fer
verulega í taugar sumra en
Egill Helgason hefur ekki
yfir neinu að kvarta í þeim
efnum.
Næstum því
Maður getur ekki gert alla ánægða.
Fyrirsætan Ásdís Rán Gunnars-
dóttir fékk bágt fyrir að auglýsa
eftir húsmæðrum sem eru til í að fara í
fegrunaraðgerð í sjónvarpsþætti. Hún er
þó óbuguð.
Laun heimsins eru vanþakklæti
Ég er alveg sjúklega bitur og veit ekki
alveg hvers vegna ég er að fá þetta.
Mugison var ekkert of hress með þriggja
mánaða listamannalaun sín í samtali
við vestfirska fréttamiðilinn BB.is en var
víst að grínast.
Ómengað íslenskt grín
Ég á að sjá um kvöldvökur og
íslenskan húmor.
Guðni Ágústsson, gæslu-
maður íslenska rjómans,
fyrrverandi alþingismaður
og landbúnaðarráðherra,
hefur tekið að sér fararstjórn á
Kanarí.
Nei, Ármann er þar
Ég er ekki út í kuldanum. Við erum
ósammála í þessu eina máli. Það hefur
ekkert með meirihlutasamstarfið að
gera. Það heldur bara áfram.
Gunnar I. Birgisson, fyrrverandi bæjar-
stjóri í Kópavogi, er að hrella flokks-
bróður sinn og núverandi bæjarstjóra,
Ármann Kr. Ólafsson, með því að greiða
atkvæði með minnihlutanum.
Hinn vanginn
Við erum búin að biðja fyrir mönnunum
sem brutust hérna inn.
Einar Friðjónsson, verslunarstjóri
nytjamarkaðirns Hertex á Akureyri sem
Hjálpræðisherinn rekur, tók innbroti þar
með stóískri ró.
Girl Power!
Munum að ungar konur og já, kon-
ur á miðjum aldri eru meira en
stelpur – þær búa yfir gríðarlegri
reynslu, þekkingu og menntun sem
samfélagið hefur ekki efni á að nýta
ekki.
Þórey Vilhjálmsdóttir,
aðstoðarmaður innan-
ríkisráðherra, tuktaði
ónefndan vinnufélaga
sinn í ráðuneytinu fyrir
að kalla sig „stelpuna“
og smætta þannig hæfi-
leika hennar og reynslu.
Verði þinn vilji
Það yrði aðildarsinnum líklega mjög til
framdráttar ef hörðustu ESB-andstæð-
ingar landsins mættu til Brussel í þeim
tilgangi að semja um hvernig aðlögun
næstu ára verði háttað.
Ásmundur Einar Daðason, þing-
maður Framsóknarflokksins, hefur
fundið krók á móti bragði fari svo
að áframhaldandi aðildarviðræður
við ESB yrðu samþykktar í þjóðar-
atkvæðagreiðslu.
VikAn sem VAr
LOKSINS
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
0
8
2
2
BL Sævarhöfða 2 110 Reykjavík 525 8000
GE bílar / Reykjanesbæ / 420 0400 – Bílasalan Bílás / Akranesi / 431 2622 – Bílasala Akureyrar
/ Akureyri / 461 2533 – Bílaverkstæði Austurlands / Egilsstöðum / 470 5070 – IB ehf. / Selfossi / 480 8080
SEM GÆTI BORGAÐ
SIG AÐ TAKA
BÍLALÁN
Nýi Nissan Note – Verð: 2.890.000 kr.
Bensín, beinskiptur / 4,7 l/100 km*
Innborgun 60% / Gamli bíllinn þinn og eða reiðufé: 1.734.000 kr.
NÚLLVEXTIR BL: 1.156.000 kr. til 36 mánaða.
Vaxtalaus afborgun: 32.111 kr. á mán.
Renault Megane Sport Tourer – Verð 3.890.000 kr.
Dísil, sjálfskiptur / 4,2 l/100km*
Innborgun 60% / Gamli bíllinn þinn og eða reiðufé: 2.334.000 kr.
NÚLLVEXTIR BL: 1.556.000 kr. til 36 mánaða.
Vaxtalaus afborgun: 43.222 kr. á mán.
Renault Kangoo II – Verð: 2.541.000 kr. án VSK.
Dísil, beinskiptur / 4,3 l/100 km*
Innborgun 60% / Gamli bíllinn þinn og eða reiðufé: 1.524.600 kr.
NÚLLVEXTIR BL: 1.016.400 kr. án VSK til 36 mánaða.
Vaxtalaus afborgun: 28.233 kr. án VSK á mán.
HAFÐU SAMBAND VIÐ SÖLUMENN Í SÍMA 525 8000 EÐA SENDU
OKKUR FYRIRSPURN Á bl@bl.is. NÁNARI UPPLÝSINGAR UM
NÚLLVEXTI BL ER AÐ FINNA Á www.bl.is
*M
ið
að
v
ið
u
pp
ge
fn
ar
tö
lu
r f
ra
m
le
ið
an
da
u
m
e
ld
sn
ey
tis
no
tk
un
í
bl
ön
du
ðu
m
a
ks
tr
i.
/
N
úl
lv
ex
tir
B
L
gi
ld
a
ek
ki
m
eð
ö
ðr
um
ti
lb
oð
um
.
Með nýju núllvaxtaláni BL getur þú fengið allt að 40% af verði bílsins að
láni vaxtalaust til allt að 36 mánaða. Engir vextir, engin verðtrygging, enginn
þinglýsingarkostnaður og ekkert smátt letur. Sem sagt, engin óvissa og það
sem meira er – þú ekur um á nýjum bíl í fullri ábyrgð. Farðu á bl.is og kynntu
þér frábæran möguleika til að kaupa nýjan bíl.
NÚLLVEXTIR BL – loksins bílalán sem gæti borgað sig að taka.
8 viðhorf Helgin 17.-19. janúar 2014