Fréttatíminn


Fréttatíminn - 17.01.2014, Side 14

Fréttatíminn - 17.01.2014, Side 14
kvöld í félagsheimilinu í desember og reyndar annað milli jóla og nýárs en þar sem veðrið var svo vont komust mjög fáir. Svo var auðvitað jólaball fyrir börnin. Einu dýrin í Trékyllisvík, fyrir utan smalahundana, eru kindur. Anna segir fjölskylduna hafa gaman af því að taka þátt í bú- skapnum með sveitungunum, það sé gefandi fyrir börnin að sjá hvernig búskapurinn virki. „Við tókum aðeins þátt í smalamennsk- unni í haust þar sem Óli var mjög liðtækur, hlaupandi upp um fjöll og firnindi með heimamönnum. Svo fékk hann að aðstoða við slátrunina og ég gerði lifrarpylsu í fyrsta sinn. Mér finnst gott að krakkarnir fái að sjá hvað landið gefur af sér. Þetta er soldið eins og að fara aftur í tímann fyrir okkur borgarbörnin og maður veit ekkert hvort það verði hægt að upplifa þetta líf eftir nokkur ár þar sem allt breytist svo hratt.“ Einangrun yfir veturinn Spurð út í stemninguna í sveitinni og framtíðarsýn fólksins segir Anna sveitungana mjög jákvæða enda glaðlynt fólk yfir höfuð sem búi þarna. En það hái sveitinni auð- vitað að vera svona afskekkt. „Það var til dæmis auglýst staða kaup- félagsstjóra í Norðurfirði um dag- inn og enginn sótti um starfið. Það er búið að redda þessu tímabundið en svo veit enginn hvað gerist. Samgöngur á svæðin eru auðvitað mjög erfiðar. Það er bara rutt einn dag í janúar og svo er hann ekki opnaður aftur fyrr en í lok mars. Vegum úti á landi er skipt í flokka og þar sem vegurinn okkar er í D flokki er honum eiginlega ekkert sinnt. Afleiðingin er sama og engin þjónusta í janúar, febrúar og mars. Það bíða bara allir eftir að Vega- gerðin ákveði hvenær er rutt og þá er farið í erindagjörðir. Ef það er snjóþungt þá verður að stóla á flug, sem er tvisvar í viku á Gjögur, en það er alls ekki alltaf veður til þess. Trékyllisvík liggur að sjó svo snjó- inn blæs oft í burtu, en þó enginn snjór sé í víkinni er oft engin leið út úr henni því fjallaskörðin í kring eru full af snjó.“ En þrátt fyrir erfiðar aðstæður yfir háveturinn mælir Anna með þessu lífi og hvetur borgarbúa til að drífa sig út á land. „Ég mæli hiklaust með því eftir þessa reynslu að fólk drífi sig út á land ef því býðst starf og upplifi þetta líf. Sérstaklega ef það á börn sem geta notið þess. Það þarf ekkert endilega að vera draumastarfið eða starf sem þú ert menntaður til að vinna við. Svo er lífið auðvitað allt annað á sumrin þegar ferðamennskan og útgerðin setja svip sinn á sveitina. Sum- arið er tími strandveiðanna og þó nokkrir bátar gera út frá Norður- firði. Ferðamennskan er sívaxandi atvinnugrein á svæðinu, bæði af innlendum og erlendum ferða- mönnum, en takmarkast auðvitað af samgöngunum sem ekki er hægt að stóla á allt árið. Það er stór hópur sem kemur hérna við á leið sinni til Hornstranda en hópur fólks sem kemur gagngert til að vera í sveit- inni er líka sístækkandi. Það er svo margt að sjá og gera, sérstaklega mæli ég með sundlauginni í Kross- nesi sem liggur í fjöruborðinu og er algjörlega æðisleg. Þetta er svo ósnortið og fallegt svæði.“ Ekkert stress „Það besta við þetta ævintýri fyrir mig persónulega er að fá að upp- lifa svona ólíkan takt í lífinu. Það eru ákveðin forréttindi að fá að lifa svona lífi úti á landi þar sem maður hugsar bara um að njóta fjöl- skyldunnar og vinnunnar sinnar. Þetta er einfalt líf sem stjórnast af náttúrunni og veðrinu. Eftir vinnu kem ég heim og bara nýt þess að vera með manninum og börnunum. Stundum spilum við eða förum í sund og svo er náttúran líka stór hluti af lífinu sem ég er þakklát fyrir. Ég get ekki sagt að ég sakni hraðans og stressins, öllu skutlinu og því sem fylgir að búa í stórborg. Auðvitað finnst mér gaman að fara í bæinn en það er alltaf svo gott að koma aftur í rólegheitin. Hlusta á sjóinn í stað bílanna. Það eina sem þú getur mögulega stressað þig yfir er að ná ekki í Kaupfélagið á Norðurfirði ef klukkan er korter í lokun.“ Anna þyrfti samt kannski að byrja að stressa sig yfir færðinni í vor því þá á hún von á sínu þriðja barni og vegurinn er oft ófær langt fram í apríl. Hún er þó bjartsýn á að allt gangi vel og stólar á að Landhelgisgæslan bjargi sér ef allt verður ófært. Með fæðingu þriðja barnsins í fjölskyldunni mun íbúatala sveitarinnar hækka á ný svo það er full ástæða til að taka sér Árnesinga til fyrirmyndar og líta jákvæðum og glaðlyndum augum til framtíðarinnar. Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Heilsuborg ehf. • Faxafeni 14 • 108 Reykjavík Sími 560 1010 • www.heilsuborg.is Ætlar þú að breyta um lífsstíl? Heilsulausnir Henta einstaklingum sem glíma við offitu, hjartasjúkdóma og/eða sykursýki. Námskeiðin hefjast mánudaginn 20. janúar. Mánud., miðvikud. og föstud. kl. 06:20, 10:00 eða 14:00 (uppselt kl. 19:30) Á rneshreppur er nyrsta sveitarfélag Strandasýslu og það fámennasta á landinu. Á svæðinu varð til vísir að þéttbýli snemma á 20. öld í Kúvíkum, Gjögri og Djúpuvík í tengslum við hákarla- og síldveiðar en eftir það blómaskeið hefur fólki fækkað hægt og þétt. Nú búa þar rúmlega fimmtíu manns allt árið sem hafa sitt lifibrauð af búskap, veiðum eða ferðaþjónustu. Ferða- þjónustan er vaxandi á svæðinu og fólki fjölgar talsvert yfir sumar- tímann. Þrátt fyrir takmarkaða atvinnumöguleika hafa þó nokkrir lagt leið sína þangað í leit að öðru- vísi lífi. Kannski vegna þess að þessi fagra sveit, með sínum fallegu fjörum fullum af rekaviði, hefur að geyma eitthvert dulmagn sem fáir geta útskýrt. Sveitarómantíkin heillar Garðbæingurinn Anna S. Sigurðar- dóttir er ein af þessum ævintýra- þyrstu sálum. Hún er menntuð í spænsku og heimspeki og hefur starfað sem spænskukennari undanfarin ár. Hún er hálfgerður flakkari í eðli sínu og eyddi hluta af námsárum sínum meðal annars á Spáni þar sem hún kenndi í barna- skóla. Hún segir algjöra tilviljun hafa ráðið því að þau skötuhjú ákváðu að flytjast með barn og buru í eina afskekktustu og fámenn- ustu sveit landsins. Löngunin til að breyta til hafði þó verið lengi til staðar hjá henni og það hjálpaði til að barnsföður hennar, Ólaf Stefáns- son, sem er gullsmiður og alinn upp í Hafnarfirði, langaði líka á vit nýrra ævintýra. „Það var nú bara skemmtileg til- viljun hvernig þetta kom til. Ég var heima eitt laugardagskvöldið og fór að fletta í gegnum atvinnuauglýs- ingar, meira fyrir manninn minn en fyrir sjálfa mig, og rakst þá á þessa auglýsingu. Umsóknarfresturinn var fram á mánudag og mér fannst þetta bara ótrúlega spennandi. Við höfðum stuttu áður heimsótt Flateyri þar sem vinir okkar búa, og heilluðumst þar af sveitalífinu. Ég hafði oft komið þangað áður en Óli var að koma í fyrsta sinn. Okkur fannst æðislegt að vera þar og þá kom þessi hugmynd upp, að prófa bara að flytja út á land, hvað það gæti nú verið gaman og mikil lífsreynsla og þá sérstaklega fyrir börnin. Það er svo miklu auðveldara að flytjast með börn þegar þau eru lítil. Við Óli ræddum þetta fram og til baka alla helgina og ákváðum svo á endanum að sækja um. Á fimmtudeginum var ég svo ráðin í starfið.“ Börnin eru þungamiðja sveitar- innar Anna segir mikil viðbrigði að fara úr framhaldsskóla í Reykjavík yfir í barnaskóla úti á landi. „Ég kenni allt nema smíði og leikfimi sem maður- inn minn kennir. Það eru fimm börn í skólanum og við skiptum þeim í tvo hópa. Elísa Ösp skólastjóri er mest með þau þrjú yngstu, sjö, átta og níu ára stelpur, en ég er mest með þau tvö eldri sem eru tólf og þrettán ára. Það er ótrúlega gaman að sjá að það er hægt að gera mikið með einstaklingsmiðað nám. Börn- in eru úr Trékyllisvík og geta því öll gengið í skólann á innan við 10 mín- útum. Sjálf búum við í skólanum svo þetta er allt mjög þægilegt.“ Anna segir skólann sjálfan vera þungamiðju lífsins í sveitinni. „Ég mæli hiklaust með því, eftir þessa reynslu, að fólk drífi sig út á land ef því býðst starf og upplifi þetta líf. Sér- staklega ef það á börn sem geta notið þess. Það þarf ekkert endi- lega að vera drauma- starfið eða starf sem þú ert menntaður til að vinna við.“ Ævintýraþrá dró hana í fámennasta sveitarfélag landsins Veðráttan og stopular samgöngur setja sitt mark á gang lífsins í Trékyllisvík, þangað sem Anna S. Sigurðardóttir flutt- ist búferlum með börn og buru fyrir ári til að gerast kennari í Finnbogastaðaskóla. „Þetta er fámennasta sveit landsins en þó hefur orðið fólksaukning síð- ustu ár. Elísa Ösp er úr sveitinni en flutti í bæinn til að mennta sig. Hún kom til baka með mann í farteskinu og þau hafa nú tekið við búi foreldra hennar. Svo er annað ungt par ný- tekið við fjárbúskap í víkinni og þau eiga tvö börn. Svo lengi sem börn eru skólanum gengur samfélagið betur því þá þarf ákveðin þjónusta að vera til staðar.“ Tími fyrir fjölskylduna Anna segir dagana óneitanlega vera einfaldari en í bænum. Þó félagslífið sé minna hefur það sína kosti því fjölskyldan eyðir mun meiri tíma saman en áður. „Á haustin er auðvi- tað mjög mikið að gera hjá bænd- unum við að smala, rýja og slátra og öll verkin sem tengjast því ná langt fram í nóvember. Svo þegar líða fer að jólum eykst félagslífið á svæðinu. Það voru til dæmis tvö félagsvistar- 14 viðtal Helgin 10.-12. janúar 2014

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.