Fréttatíminn - 17.01.2014, Side 42
42 fjölskyldan Helgin 17.-19. janúar 2014
Mikilvægi útivistar
Börnum líður best í reglusömu umhverfi
Þ á er nýtt ár hafið hjá barnafjölskyldum landsins, að baki eru hátíðirnar með allri þeirri góðu en líka grábölvuðu óreglu sem þeim fylgir. Að baki er sem sagt gleði jólanna og fjör áramótanna en líka dagar úfnu og úrillu barnanna sem
sváfu til hádegis og vöknuðu með sykurlöngunina tifandi í æðunum. Nú er bara að
sofna snemma, vakna tímanlega, borða hollan morgunverð og kemba mannskapnum
eftir morgunþvottinn.
Nánast öllum börnum líður best í reglusömu umhverfi. Þau fara fúslega eftir reglum
sem eru fyrir hendi, þ.e. ef þær eru sanngjarnar og ræddar af fjölskyldunni. Þau þrífast
afleitlega þar sem reglur eru ekki fyrir hendi heldur fer heimilislífið eftir skapi foreldr-
anna hverju sinni. Þau þola ekki heldur óljósar reglur þar sem hvorki börn né fullorðnir
vita í raun og veru til hvers er ætlast. Þaðan af síður virkar fyrir börn að reglur séu
fyrir hendi en að þær séu brotnar eins og ekkert sé, bæði af þeim sjálfum af því að
enginn fullorðinn hjálpar þeim til að fylgja reglunni eða þá að fullorðnir fylgi regl-
unum stundum og stundum ekki.
„En þú sagðir …“ er setning sem foreldrar kannast við því að börn vilja vita
reglurnar og þau vilja vita nákvæmlega hvað á að gerast hverju sinni. Hugtök eins
og „kannski“ eða „seinna“ eru ekki að virka. Þá er betra að setja skýrt jáið eða
neiið og útskýra að þú munir lesa með barninu þínu þegar búið er að brjóta saman
allan þvottinn eða hvað það sem er að taka tíma foreldranna þegar barnið kallar
eftir ást og athygli. Þá virkar heldur ekki að plönum sé breytt eftir hentugleikum.
Ef kósíkvöldi er lofað að morgni, verður það að standa 10 klukkutímum síðar þótt
svo að síminn hringi. Kósíheitin snúast nefnilega um að hafa pabbana og mömm-
urnar með sér í sófanum yfir fjölskyldumyndinni og snakkinu en ekki í símanum
eða uppvaskinu. Orð skulu standa.
Ef reglurnar eru ljósar og þekktar og ræddar af alvöru innan fjölskyldunnar,
munu börn sjaldnast brjóta þær viljandi. Auðvitað geta þau ruglast í ríminu en þá
er bara að hjálpa þeim á rétta braut, ekki með skömmum heldur með uppörvandi
hjálp því að börn sem eru að æfa hegðun, eru rétt eins og börn sem eru að byrja
að ganga eða tala. Við skömmum þau ekki fyrir að fallbeygja rangt eða detta á
borðshornið þegar þau valda ekki jafnvægi. Þvert á móti hjálpum við og leiðbeinum af
tómum elskulegheitum. Mesta hættan er að foreldrarnir sjálfir ruglist og þar með er
reglan fokin. Það dugar nefnilega ekki að segja börnum að kvöldi að þau þurfi að vakna
snemma til að borða morgunverð og vera ekki of sein í skólann nema foreldrarnir sjálfir
sleppi „snúsinu“, drífi sig framúr og veki börnin. Þaðan af síður virkar að segja nei við
nammibeiðni í búðinni og segja svo þreytulega: „Jæja þá – en það er bara núna“. Með
fullorðinsbrotum á reglum læra börn að okkur sé ekki alvara með því sem við segjum
og þar með er ó-reglan gengin í garð. Þau reyna aftur og aftur á mörkin okkar því
að þau skilja ekki undantekninguna. Þess vegna eru R-reglurnar góðu; röð, regla og
rútína, gulls ígildi og kenna börnum að 99 prósentum jákvæðan og kærleiksríkan aga,
einmitt það sem mun best gagnast þeim til framtíðar horft.
Ef reglurnar eru ljósar og þekktar og ræddar af alvöru
innan fjölskyldunnar, munu börn sjaldnast brjóta þær
viljandi.
Regla eða ó-regla
Margrét
Pála
Ólafsdóttir
ritstjórn@
frettatiminn.is
heiMur barna
Skírnartertur
að hætti Jóa Fel
– undurfagrar og bragðgóðar
Kíktu á úrvalið á www.joifel.is.
Holtagarðar & Smáralind & Kringlan & Garðabær & Hringbraut
15% afsláttur af öllum skírnartertum
www.fi.is
Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
Toppaðu öræ
fatindana
Alla leið!
Skráðu þig in
n – drífðu þig
út
Alla leið! Toppaðu öræfatindana með FÍ
Ferðafélag Íslands býður nú upp á metnaðarfulla æfingaráætlun
sem byrjar í febrúar og endar á því að ganga á Hvannadalshnúk
eða Hrútsfjallstinda í lok maí eða byrjun júní.
Akrafjall, Móskarðahnjúkar, Hekla, Fimmvörðuháls,
Hvannadalshnjúkur eða Hrútfjallstindar og átta önnur fjöll.
Tólf fjallgöngur, sex æfingatímar í Elliðaárdalnum og ganga á
annaðhvort Hvannadalshnjúk eða Hrútsfjallstinda.
Tveir mögulegir tindar í lokin og tvær helgar til að velja til að toppa.
Kynningarfundur í sal Ferðafélags Íslands í Mörkinni 6
kl. 20.00, 3. febrúar n.k.
Sjá nánar um „Alla leið“ á www.fi.is
Nánast öllum
börnum líður
best í reglusömu
umhverfi. Þau
fara fúslega eftir
reglum sem eru
fyrir hendi, þ.e. ef
þær eru sann-
gjarnar og ræddar
af fjölskyldunni
Ákvað í dag að nota birtuna til úti-
veru og sótti Írisi aðeins fyrr. Sleði,
englar í snjónum, eltingarleikur og
leit að elgsporum voru á okkar dag-
skrá. Ég slökkti á símanum.....Þegar
við komum heim teiknuðum við það
sem við gerðum úti á blað. Ég tékk-
aði ekki á tölvupóstinum á meðan.....
Þarna áttum við nú orðið skilið heitt
kakó og gátum leyst stærðfræði
heimalærdóminn örlítið ferskari en
ella. Ég reyndi að gera stærðfræðina
áhugaverða.....Kjúklingaborgara að
hætti Sollu grænu græjuðum við í
kvöldmatinn, kveiktum á kertum,
settum rólega tónlist á og spjöll-
uðum. Ég hlustaði......Enduðum
sáttar daginn á poppi og sítrónuvatni.
Síminn, tölvan, vinnan og þrifin geta
beðið rétt á milli 16:00-20:00. Æska
barnsins þíns gerir það ekki!,“ skrif-
aði Pálína Ósk Hraundal á heimasíðu
sinni nýlega en hún stundaði fram-
haldsnám í náttúrutengdri ferðaþjón-
ustu og sérhæfði sig í upplifun og
útilífi fyrir börn og unglinga.
Nú stundar hún nám við Lista-
ljósmyndaskólann í Osló meðfram
því að starfa sem leiðsögumaður og
háskólakennari á Hólum þar sem
hún kennir útivistarfög. Pálína Ósk,
ásamt Vilborgu Önnu Gissurardóttur
pólfara, stefnir að því að gefa út bók-
ina „Útilífsbók barnanna“ á þessu ári
en undirbúningur er í fullum gangi.
Pálína segir að Íslendingar hafi
sýnt skandínavískum aðferðum
áhuga með tilliti til útivistar og finn-
ist það spennandi. Pálína og Vilborg
eru með Facebooksíðuna Útilífsbók
barnanna sem hefur fengið mjög
jákvæð viðbrögð. Hugmyndin að
bókinni kviknaði vegna sameigin-
legs áhuga Pálínu og Vilborgar á úti-
lífi. En þær hafa báðar mjög mikinn
og ólíkan áhuga á útivist sem kemur
sér vel við gerð bókarinnar.
María Elísabet Pallé
maria@frettatiminn.is
Æska barnsins þíns bíður ekki
Mynd/ Pálína Ósk Hraundal