Fréttatíminn


Fréttatíminn - 17.01.2014, Side 45

Fréttatíminn - 17.01.2014, Side 45
heilsa 45Helgin 17.-19. janúar 2014 KAUPTU FJÓRAR OG FÁÐU SEX FERNUR HLEðSLA Í FERNU MEð SÚKKULAðIBRAGðI ER KJÖRIN EFTIR GÓðA ÆFINGU EðA BARA Í DAGSINS ÖNN. HÚN ER GÓðUR KOSTUR MILLI MÁLA OG ER RÍK AF PRÓTEINUM. HENTAR FLESTUM ÞEIM SEM HAFA MJÓLKURSYKURSÓÞOL. F erðaskrifstofan Óríental.is býður upp á adrenalín ferð til Krabi í Taílandi í mars þar sem ferðalangar reyna á sig líkamlega flesta daga við klettaklifur, hjólreiðar, fjallgöngur, kajaksiglingar, fjórhjólaakstur, raf- ting, köfun og fleira. Heimshornaf- lakkarinn og einkaþjálfarinn Skúli Pálmason verður leiðsögumaður í ferðinni en hann hefur ferðast mikið um Taíland og stundað ævintýraferðamennsku í mörg ár. „Fólk sem stundar líkamsrækt reglulega ætti vel að ráða við dag- skrána í ferðinni. Hljómar ekki vel að koma heim úr fríinu í betra formi en áður en lagt var af stað?“ segir hann. Krabi er þekkt fyrir mikla nátt- úrufegurð og Tonsai ströndin er heimsþekkt klifurparadís þar sem allir geta fundið klifurleiðir við hæfi og segir Skúli sjóinn við Krabi ævintýri út af fyrir sig. „Þar eru vinalegir hákarlar, skjald- bökur og litríkir fiskar. Við róum í kringum paradísareyjar á kajak og stökkvum í sjóinn með snorkl og gleraugu og könnum lífríkið.“ Ferðalangarnir skoða einnig Phanom Bencha þjóðgarðinn bæði á hjóli og tveimur jafnfljótum. Í garðinum er verndað svæði með skógi og fallegum fossum, klettum og fjölbreyttu dýralífi og verða tveggja daga strembnar hjólreiðar og tveggja daga fjallganga upp á hæsta tind garðsins meðal há- punkta ferðarinnar. Adrena- línferð til Taílands Krabi er heimsþekkt klifurparadís þar sem allir geta fundið klifurleiðir við hæfi. Í adrenalín ferðinni taka ferðalangar hressilega á því í fjölbreyttum ævintýrum og koma að öllum líkindum heim í betra formi en áður en lagt var af stað. Ljósmynd/GettyImages/NordicPhotos Skúli Pálmason, leiðsögu- maður Tannþráður fyrir heilann Góð dagleg umhirða tanna, með burstun og notkun á tannþræði, er ekki aðeins nauðsynleg fyrir tennur og góma, heldur hún hefur einnig góð áhrif á hreysti heilans. Ástæðan er sú bólga og sýkingar geta myndast í tönnum og haft skaðleg áhrif á heilann sem og aðra líkamsparta og hafa rannsóknir sýnt fram að líkur séu á að tannholdssjúkdómar geti aukið líkur á Alzheimers.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.