Fréttatíminn - 17.01.2014, Side 66
Það væri
eitthvað
skrítið ef
maður
væri bara
pollró-
legur.
TENNIS
er skemmtileg hreyfing
Nú er rétti tíminn til að
panta fastan tíma í tennis.
Eigum nokkra tíma lausa.
Skemmtilegu byrjendanámskeiðin
fyrir fullorðna eru að hefjast.
Skráning og upplýsingar í síma 564 4030 eða á tennishollin.is
Ásdís Sif er
heldur betur
lukkuleg enda
á leiðinni
til Parísar
þar sem hún
verður með
gjörning í
Pompidou í lok
janúar.
Ljósmynd/Hari.
Ásdís sif sýnir í PomPidou
Þetta verður ekkert flottara
Mynd- og gjörningalistakonan Ásdís Sif Gunnarsdóttir sýnir myndbandsverk í Pompidou-menn-
ingarmiðstöðinni í lok mánaðarins. Hún er að vonum alsæl með að hafa fengið þar inni enda
ekki á hverjum degi sem Íslendingur, eða listafólk almennt, fær tækifæri til að troða þar upp.
Á sdís Sif Gunnarsdóttir, mynd- og gjörningalistakona, sýnir gjörning í Pompidou-safninu í París þann 29.
janúar. „Þetta er rosalega flott og spenn-
andi,“ sagði Ásdís Sif, hláturmild og kampa-
kát, þegar Fréttatíminn heyrði í henni.
„Ég sótti um að fá að sýna á ótrúlega
flottri kvikmynda- og gjörningahátíð sem
er haldin þarna og verkefnið stækkaði út frá
umsókninni og varð að þessari sýningu.“
Hátíðin gengur þannig fyrir sig að á hverju
kvöldi treður einn listamaður upp með verk
sín í sýningarsal.
Ásdís Sif segir verk hennar í raun vera
„eitt stórt vídeólistaverk“ og sér til halds og
trausts hefur hún tvær franskar leikkonur.
„Ég ætla að spila vídeó og svo er ég með
gjörning. Ég er búin að láta þýða alla text-
ana yfir á frönsku og er með tvær franskar
leikkonur. Þetta þarf eiginlega allt að vera
á frönsku vegna þess að það þýðir lítið að
ætla að bjóða Frökkum upp á ensku.“
Leikkonunum kynntist Ásdís Sif fyrir til-
viljun. „Ég var í vinnustofu í París 2008 og
var að gera svona verk í leikhúsinu þar og
svo hitti ég leikkonu úti á götu og bað hana
um að vera í vídeói hjá mér. Þannig að þetta
gerðist svolítið bara af sjálfu sér. Ég kynnt-
ist síðan hinni leikkonunni í gegnum þessa
sem ég hitti á förnum vegi.“
Ásdís Sif fer til Frakklands nokkrum
dögum fyrir sýninguna en segist þó síður
en svo bíða hérna í rólegheitum eftir stóru
stundinni. „Þetta er heilmikið mál og þegar
allt á að gerast á einu kvöldi er dálítið stress
yfir að allt gangi upp. Þannig að ég er
heima í rosastressi. En það er kannski eins
gott og það væri eitthvað skrítið ef maður
væri bara pollrólegur. Þetta er ótrúlega flott
og skemmtilegt prógramm og það er eigin-
lega ekki hægt að setja neitt flottara á ferils-
skrána en að hafa sýnt í Pompidou,“ segir
hún og hlær.
Ásdís Sif segir meira en nóg vera að gera
í gjörningunum og hún verður með gjörn-
ing í Mengi við Óðinsgötu þann 31. janúar,
strax í framhaldinu af Frakklandsheim-
sókninni. „Það er heldur betur nóg að gera
og þetta virðist alveg ætla að halda áfram.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
LÁrus ÞórhaLLsson skrifar rafbækur um bibLíuna
Heiminum verður ekki bjargað
s agnfræðineminn Lárus Þórhalls-son hefur mikið velt fyrir sér heil-agri ritningu út frá siðferðislegu
sjónarmiði. Hann lét sér þó ekki nægja
að hugsa bara og hefur skrifað þrjár
rafbækur um Biblíuna, auk bókar um
siðagildi og ráð gegn ranghugmyndum
og geðsjúkdómum og aðra bók sem er
full af dæmisögum um dýr.
Bækurnar eru á ensku og aðgangur
að þeim er ókeypis á vefnum http://
www.moralessence.com. En hvað
rekur ungan mann út í að skrifa langar
bækur um þessi efni án þess að fá
nokkuð fyrir sinn snúð?
„Ætli hugmyndin hafi ekki bara
verið að klára þessi mál fyrir fullt og
allt hvað sjálfan mig varðar,“ segir
Lárus. „Fjöldi fólks er alltaf að mistúlka
Biblíuna og margir sem eiga að heita
kristnir eru slæmar fyrirmyndir í sam-
félaginu. Með þessu hef ég þá gert hið
rétta af minni hálfu,“ segir Lárus sem
segist vera trúaður þótt hann tilheyri
engu trúfélagi.
Í þessum bókum túlka ég Biblíuna
út frá siðferðislegu sjónarmiði. Menn
halda að þetta snúist fyrst og fremst
um einhverja hjátrú og kraftaverk og
þannig dæmi en fyrir mér gengur þetta
út á að sýna fram á að Biblían geti gert
fólk að betri manneskjum. Ég get varla
sagt að það sé hægt að bjarga heim-
inum svona með beinum hætti en þetta
er gert fyrir þá einstaklinga sem vilja
hjálpa sjálfum sér. Sjá möguleika til að
breyta eigin lífi.“
Lárus segist hafa verið í um það bil
tvö ár að skrifa bækurnar um Biblíuna
en áður hafði hann skrifað tvær bækur
um mannsandann sem hann hefur betr-
umbætt og endurskrifað. Hann segist
skrifa á ensku bæði til þess að ná til
fleiri lesenda auk þess sem honum þyki
betra að tjá hugsanir sínar á ensku. -þþ
Lárus Þórhallsson er á þriðja ári í sagnfræði við HÍ. Hann hefur
skrifað þrjár bækur um Biblíuna og ætlar að láta staðar numið og
skrifa frekar um sagnfræðileg efni í framtíðinni. Ljósmynd/Hari
Listamaðurinn Curver Thoroddsen ætlar
að loka sig af í mánuð í Ketilshúsinu á
Akureyri og vera þar nakinn í mánuð
að flokka alls konar pappíra. Þessi
raunveruleikagjörningur er í anda fyrri
verka Curvers þar sem daglegt líf hans
og listsköpun skarast. Sýningin heitir
Verk að vinna/Paperwork og hefst á
laugardaginn klukkan 17.
Í Ketilshúsinu ætlar hann að fara alls-
nakinn og berskjaldaður í gegnum tugi
ára af uppsöfnuðum blöðum, pappír,
bréfsefni, skjölum og öðru tilfallandi
efni og grisja úr glundroðanum. Á efri
hæð Ketilhússins verður samhliða gjörn-
ingnum sýning á úrvali filmugjörninga
og vídeóverka Curvers frá síðastliðnum
árum. Þá verður einnig hægt að gægjast
inn í þetta mánaðarlanga verkefni
listamannsins á samfélagsmiðlum þar
sem hann mun setja inn stöðufærslur
á Instagram og á Facebooksíðu sinni:
www.facebook.com/curverthoroddsen.
Sýningin stendur til 16. febrúar og er
opin kl. 12-17 alla daga nema mánudaga.
Aðgangur er ókeypis.
Umfangsmikil
söngvakeppni RÚV
Hópuppsagnir hjá Ríkisútvarpinu hleyptu
illu blóði í landann og starfsfólk RÚV í
nóvember og bægslagangurinn sem varð
í kjölfarið varð til þess að Páll Magnússon
hætti sem útvarpsstjóri. Meðal þess
sem fundið var að við blóðugan niður-
skurðinn var að reyndu frétta- og dag-
skrárgerðarfólki var sagt upp án þess að
hreyft væri við drjúgu fitulagi stjórnenda
hjá stofnuninni. Svigrúmið í þeirri deild
virðist enn vera þó nokkuð og þannig eru
fjölmiðlum farnir að berast tölvupóstar um
Söngvakeppni Sjónvarpsins frá sérstökum
aðstoðarmanni „framkvæmdastjóra
Söngvakeppninnar 2014“. Sá hlýtur að
hafa í mörg horn að líta.
Kristín Vala í Nature
Í nýjasta hefti vísindatímaritisins Nature er
að finna grein eftir Kristínu Völu Ragnars-
dóttur, prófessor við Háskóla Íslands,
og samstarfsfólk hennar þar sem hvatt
er til þess að aðrir mælikvarðar en verg
landsframleiðsla verði nýttir til að meta
hagsæld þjóða.
Kristín Vala og samstarfsfólk hennar hafa
meðal annars unnið með ríkisstjórn Bútan
í Asíu við að þróa nýja framtíðarsýn fyrir
heiminn sem byggist ekki á vergri lands-
framleiðslu heldur vellíðan og hamingju
þjóðfélagsþegna.
„Það hefur verið ótrúlega skemmtilegt
og gefandi ferli að vera með í þessari
stefnumótun og ég mun aldrei gleyma
heimsókn minni til Bútan sl. vetur,“ er haft
eftir Kristínu Völu á vef Háskólans.
Curver stripplast í mánuð
66 dægurmál Helgin 17.-19. janúar 2014