Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1959, Side 15

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1959, Side 15
SVEITARSTJÓRNARMÁL 13 ins og byggðarlaganna, og efla samstarf þeirra í milli. Hér á landi er svo mikið af félögum og samtökum, sem vinna að því bæði beint og óbeint að skapa deilur og togstreitu milli einstaklinga og félagsheilda, þar sem er svo lítið víðsýni og svo lág sjónarmið, að sífelldir árekstrar eiga sér stað, stundum jafnvel alveg að þarflausu. Þess vegna er ekki vanþörf á því, að ein- hver samtök séu til, sem stefna í aðra átt. Samtök, sem hafa það sjónarmið að jafna misklíðina í stað þess að auka hana og skapa samhug meðal manna með ólík sjón- armið í stað sundrungar. Það er einmitt í þá átt, sem Samband íslenzkra sveitarfélaga vill stefna. Engir ættu hægra með það en við, að finna sér ágreiningsmál, sem á svipstundu gætu eyðilagt þessi samtök. Við vitum öll, að slík mál eru til, en við vitum líka, að eltir þeirri leið fáum við engu áorkað öðru en því, að eyðileggja samtökin. Ef við hins vegar tökum þau málefni, sein við getum sameiginlega unnið að og viðurkennum allir, að sveitafélögunum og þjóðinni í lieild er vinningur að, að leyst verði með samkomulagi, munum við geta varðveitt þetta samband, sem okkur öllum er trúað fyrir, og þá mun það verða landi og þjóð til blessunar. En í þessu sambandi verðum við að gera okkur það fullkomlega ljóst, að það tekur oft langan tíma að fá hinum þörfustu mál- um þokað áfram. Það eru nú t. d. fjórtán ár síðan þetta samband gerði fyrst ákveðna kröfu til Alþingis og ríkisstjórnar um heild- arendurskoðun og samræmingu sveitar- stjórnarlöggjafarinnar, en það var fyrst í fyrra, sem hið opinbera sinnti málinu og setti nefnd til að undirbúa það. Af innri málefnum sambandsins vil ég aðeins minnast á eitt atriði og þakka það sérstaklega, og það er sá skilningur, sem þingið hefur sýnt á því að tryggja fjárhag sambandsins. Engum er það ljósara en odd- vitum, bæjarstjórum og bæjarfulltrúum, hverja þýðingu það hefur fyrir sambandið, að fjárhagur þess sé nægilega traustur. * Ég skal taka það fram hér, að ég mun hlutast til um að stjórn og fulltrúaráð taki til rækilegrar athugunar, hvernig má létta þeim sveitarfélögum, sem enn eru utan sam- bandsins, að gerast aðilar að því. * Að lokum vil ég þakka öllum, sem mætt hafa til þessa þings, komu þeirra. Vorum norrænu gestum vil ég þakka komu þeirra og ávörp og þá góðu gjöf, sem fulltrúar Finnlands hafa fært oss, og bið þá að bera samböndum sínum kveðju héðan og beztu óskir. * Ég óska ykkur öllum góðrar heimferðar og heimkomu og segi nú þessu 6. lands- þingi Sambands íslenzkra sveitarfélaga slitið.

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.