Sveitarstjórnarmál - 01.03.2004, Page 8
EES-samningurinn og sveitarfélögin
Aukin áhrif nauðsynleg
Starfshópur, sem fjallaði um stöðu sveitarstjórnarstigsins gagnvart EES-samningnum, leggur áherslu á
aukin áhrif þess á þau mál sem snerta sveitarfélögin.
Út er komin skýrsla starfshóps á vegum ut-
anríkisráðuneytisins er nefnist EES og hags-
munir íslenskra sveitarfélaga - staða - horfur
- tillögur. Aðild að starfshópnum áttu, auk
utanríkisráðuneytisins, iðnaðar- og við-
skiptaráðuneytið, félagsmálaráðuneytið,
menntamálaráðuneytið, umhverfisráðuneyt-
ið og Samband íslenskra sveitarfélaga. Árni
Magnússon, fyrrverandi varaformaður Sam-
bands fslenskra sveitarfélaga og þáverandi
formaður EES-nefndar sambandsins, Anna
G. Björnsdóttir, sviðsstjóri þróunar- og
alþjóðasviðs sambandsins og Árni Þór Sig-
urðsson, forseti borgarstjórnar Reykjavíkur,
voru fulltrúar sambandsins í starfshópnum.
Eftir að Árni Magnússon tók við starfi fé-
lagsmálaráðherra tók Árni Þór Sigurðsson
við formennsku í EES-nefndinni og Gísli
Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi, kom inn í
starfshópinn í stað Árna Magnússonar. Formaður starfshópsins var
Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir frá utanríkisráðuneytinu. Sveitar-
stjórnarmál ræddu við Árna Þór Sigurðsson um skýrsluna, tilurð
hennar og efni.
EES-samningurinn tíu ára
Árni Þór segir aðdragandann að skýrslunni þann að nú séu tíu ár
liðin frá því EES-samningurinn öðlaðist gildi. Við gerð hans hafi
ekki verið gert ráð fyrir neinni aðkomu sveitarfélaganna að mál-
efnum sem falla undir samninginn og því hafi sveitarstjórnarstigið
ekki haft nein tök á að hafa áhrif á hvernig unnið er eftir honum.
Hins vegar hafi komið á daginn að samningurinn hefur með
ýmsum hætti áhrif á starfsemi sveitarfélaganna auk þess sem
vægi sveitarstjórnarstigsins hafi aukist mikið innan Evrópusam-
bandsins, ekki síst með tilkomu héraðanefndar ESB. Því hafi verið
ráðist í gerð þessarar skýrslu með hliðsjón af þessum tímamótum
og þeirri reynslu sem fengin er af framkvæmd EES-samningsins
hér á landi.
Staöa sveitarfélaganna gagnvart EES
„Hlutverk okkar í starfshópnum fólst fyrst og fremst í því að fjalla
um stöðu sveitarfélaganna
gagnvart EES-samningnum.
Markmiðið með skýrslunni var
fyrst og fremst að gera tillögur
um hvernig samráði ríkisins og
sveitarfélaganna skuli háttað
svo þau geti á sem bestan hátt
gætt hagsmuna sinna að því er
EES-samninginn varðar og hver aðkoma sveitarstjórnarstigsins eigi
að vera að þeim málum sem snerta það." Árni Þór segir þetta
hlutverk starfshópsins felast nokkuð í heiti
skýrslunnar EES og hagsmunir íslenskra
sveitarfélaga - staða - horfur - tillögur. Okk-
ur var ætlað að meta núverandi stöðu,
horfa til framtíðar og vinna tillögur um
hvernig sveitarstjórnarstigið geti tryggt hags-
muni sína. Til þess var nauðsynlegt að taka
saman heildstætt yfirlit um EES-samninginn
og sveitarfélögin auk lýsingar á stöðu sveit-
arstjórnarstigsins innan Evrópusambandsins
annars vegar og stöðu íslenskra sveitarfé-
laga gagnvart EES-samningnum hins vegar.
Þá þurfti einnig að taka saman yfirlit um
hvernig hagsmunagæslu fyrir íslensk sveit-
arfélög hefur verið háttað hingað til þegar
ákvæði EES-samningsins eru annars vegar.
Ekki fjallað um ESB-aöild
Starf starfshópsins hefur eingöngu snúið að
stöðu sveitarfélaganna gagnvart EES-samningnum og þeim skuld-
bindingum sem ísland er aðili að gagnvart Evrópusambandinu
með honum en ekki að hugsanlegri aðild Islands að ESB á ein-
hverjum tímapunkti. „Ég tel rétt að árétta það til þess að fyrir-
byggja allan misskilning að starfshópurinn fjallaði eingöngu um
stöðu sveitarfélaganna gagnvart EES-samningnum en ekki hver
staða þeirra kynni að verða gerðist ísland aðili að Evrópusam-
bandinu. Skiptar skoðanir eru um aðild Islands að ESB eins og
menn þekkja og sveitarstjórnarmenn skiptast í hópa og taka ef-
laust afstöðu í því máli að verulegu leyti út frá sjónarmiðum inn-
an þeirra stjórnmálaflokka sem þeir starfa fyrir. Við vorum ekki að
fjalla um skoðanir fólks og skýrslan fjallar því að engu leyti um
hugsanlega aðild íslands að ESB né hvernig málum sveitarfélaga
yrði háttað ef slík aðild yrði á dagskrá. Hins vegar er gerður sam-
anburður á stöðu sveitarfélaga gagnvart ESB í aðildarríkjum þess
og síðan stöðu sveitarfélaganna hér á landi gagnvart EES-samn-
ingnum sem við erum aðilar að."
Álitsgjöf og umsagnarréttur eðlileg
Árni Þór segir starfsmenn utanríkisráðuneytisins og Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga hafa unnið að umfangsmikilli öflun upplýs-
inga vegna starfs starfshópsins.
„Það er eðlilegt að stofnun á
borð við Samband íslenskra
sveitarfélaga eigi aðkomu að
og geti látið í Ijós álit á eða
hafi umsagnarrétt um mál sem
tengjast Evrópska efnahags-
svæðinu og varða sveitar-
stjórnarstigið og sveitarfélögin í landinu miklu þótt með óbeinum
hætti sé. Við ræddum því ýtarlega um á hvern hátt unnt væri að
Árni Þór Sigurðsson, formaour EES-nefndar Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga.
„Við leggjum til að skipaður verði starfshópur á
vegum utanríkisráðuneytisins með aðild þeirra
ráðuneyta sem unnu að skýrslunni og Sambands
íslenskra sveitarfélaga."
<g>
8