Vikublaðið Gestur - 13.11.1955, Blaðsíða 13

Vikublaðið Gestur - 13.11.1955, Blaðsíða 13
G E S T U R 13 „Jeppi á Fjalli“ á Akranesi Leikfélag Akraness varð fyrst leikfélaga ut- an Reykjavíkur til að hefja vetrarstarfsemi sína. Leiklistin hefur staðið þar með miklum blóma undanfarin ár, og mörg viðfangsefni og stór tekin til meðferðar. Að þessu sinni sýnir leikfélagið gamlan kunningja og góðan, gaman- leikinn Jeppa á Fjalli eftir Holberg. Leikstjóri var fenginn norðan af Akureyri, Jón Norðfjörð, sem um margra ára skeið hef- ur verið í röð fremstu leikara og leikstjóra utan Reykjavíkur, smekkvís og hugmyndarík- ur. Því miður hefur mér ekki gefizt þess kost- ur að sjá leikritið, sem hefur verið sýnt bæði á Akranesi og Borgamesi, en að sögn kunn- ingja, sem vit hafa á, svo og blaðaummælum, er augljóst, að það er hin bezta skemmtun. Hans Jörgensson leikur Jeppa karlinn og Ás- gerður Gísladóttir Nillu. Jakob skómakara leik- ur Karl Ragnarsson, og mun meðferð þessara þriggja í aðalhlutverkum leiksins vera hin prýðilegasta. Alfred Einarsson leikur baróninn. Eirík skrifara hans leikur Óðinn Geirdal. Þjóna tvo leika þeir Hafsteinn Elíasson og Bent Jóns- Framh. á ncestu siðu. manni finnst við lauslega yfirvegun, og þar við bætist, að rödd hennar lætur óþægilega í eyr- um. En jafn ágæt leikkona og Gerður á það skilið, að túlkun hennar sé brotin til mergjar, enda kemur í Ijós, að hún er rétt. Jill er sú eina, sem frá upphafi leiks veit hvað hún vill. En flókin örlög og meinleg setja annarlegustu hindranir í veg fyrir, að vilji hennar nái fram að ganga. Það er því eðlilegt, að sálarró henn- ar raskist, og spermtum taugum fylgir spennt rödd. Gerður skilur þetta bersýnilega, og því „leggur" hún röddina hátt. Þótt maður hafi því átt erfitt með að fella sig við rödd leik- konunnar, hlýtur maður að viðurkenna réttan skilning hennar á hlutverkinu við nánari yfir- vegun. Sverrir Thoroddsen hefur snúið leikritinu á prýðilega lipurt talmál, svo að eftirtektarvert er. Það er eftirtektarvert atriði hjá öllum leikur- unum, hversu skýr og eðlileg' framsögn þeirra er. Það er ánægjulegt að heyra skemmtilegar setningar á lipru máli sagðar svo skýrt og áheyrilega, að hvergi fellur orð niður. Þetta gæti margur lært af þessum unga leikflokki. Eg þakka leikflokknum í Austurbæjarbíó prýðisgóða skemmtun og óska þeim velgengni í framtíðinni. Af þeim má mikils vænta og til þeirra verða gerðar miklar kröfur. En það er trúa mín, að þær kröfur og þær vonir verði uppfylltar — og það með ágætum. Jeppi og Jaltob skómakari. Jeppi i höll barónsins. Jeppi (hengdur) og Nilla.

x

Vikublaðið Gestur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið Gestur
https://timarit.is/publication/1067

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.