Vikublaðið Gestur - 13.11.1955, Blaðsíða 23
G E S T U R
Fleygði hækjunum og
dansaði í brúðkaupi
dóttur sinnar!
Árið 1947 varð frú Rosina
Crabtree fyrir bifreiðarslysi,
mjaðmarbrotnaði, og sögðu lækn-
ar henni, að hún myndi aldrei
ganga hjálparlaust framar.
Fjórir meiri háttar uppskurðir
voru gerðir á henni, en báru
engan sýnilegan árangur. Fyrir
nokkrum dögum var henni ýtt í
hjólastól til að vera viðstödd
brúðkaup dóttur sinnar, Beryl.
Eftir kirkjuathöfnina var dansað
á heimili nýju hjónanna, þar
sem 100 gestir voru samankomn-
ir.
Skyndilega stóð frú Crabtree á
fætur, fleygði hækjunum, sem
hún hafði hökt við, frá sér og
tók að dansa með hinu fólkinu.
Eftir dansinn lét hún hækj-
urnar liggja og gekk eðlilega um
meðal gestanna, eins og ekkert
hefði í skorizt.
„Ég get ekki útskýrt þetta“,
segir frúin. „Ég fann eitthvað
bresta innan í mér. Mér fannst
ég verða að dansa. En þetta var
dásamlegt — alveg dásamlegt".
Vaggaði sér í lendunum!
Nýlega var ung stúlka í Alex-
andríu sýknuð í undirrétti af
ákæru fyrir að hafa truflað ró
borgarinnar með því að ganga
um göturnar eins og Marilyn
Monroe. Ákaeruvaldið hefur skot-
ið dómnum til hæstaréttar.
=0^|:a3o=nfc||=
Vill fá hana í kvennabúrið sitt.
Á hóteli i London býr tvitug prínsessa af persneshum œtt-
um, Aza Omar. í siðastliðinni viku barst henni geysistór
blómiföndur og þiisund króna virði súkkulaðiaskja.
„Nei, er hann byrjaður aftur?“ andvarpaði aumingja prin-
sessan.
„Ég hélt ég hefði hrist hann af mér“.
Þessi „hann“ er raunar enginn
annar en emírinn af Pakistan,
einn auðugasti maður í heimi,
betur þekktur sem Aly Khan,
sem eitt sinn gekk að eiga hana
Ritu okkar Hayworth — en allir
vita, hvernig það fór. Karlinn er
nú fimmtugur að aldri, en prin-
sessan segir, að hann sé æstur
í að fá sig í kvennabúrið sitt.
Hann eigi hins vegar þrjár eig-
inkonur fyrir.
„En ég vil ekki giftast honum.
Ég vil eignast eiginmann með
vestrænan hugsunarhátt. Ég vil
ekki skipta eiginmanni við þrjár
konur aðrar“.
Aly var kynntur fyrir Aza i
júlí 1953, og sama kvöldið bað
hann hennar. Hún fór öll hjá
sér, en hafði rænu á að hafna
honum. Skömmu síðar fór hann
í ferðalag um meginlandið. Aly
var undir eins kominn á hæla
hennar og bað hennar í Kaup-
mannahöfn, Stokkhólmi og Osló.
Auk þessa hefur hann ausið
yfir hana gimsteinum og pels-
kápum, sem hún segist hafa skil-
að. Nokkru síðar varð Aly að
snúa heim til Pakistan, en það-
an sendi hann henni eldheit ást-
arbréf og eyddi offjár í símtöl
við hana — allt í sama tilgang-
inum, og allt bar sama árangur.
„Hann á gríðarstóra höll með
gosbrunn í forstofunni, en það
hefur ekkert að segja fyrir mig“.
Árið 1953 var hún skorin upp
við botnlangabólgu, og þeyttist
Aly 5 þúsund mílna leið til að
vera við hlið hennar. En heim
fór hann jafnnær aftur.
Aftur hóf hann persónuleg
bónorð í júní þ. á. og er nýfar-
inn heim. „Ég var orðin dauð-
þreytt á þessum ásóknum hans,
og ég sagði honum hvað eftir
annað, að ég vildi ekki sjá að
giftast honum og búa í kvenna-
búri. Nú er hann nýfarinn heim,
og ég vonaði að ég þyrfti aldrei
að sjá hann framar".
Þá koma blómin og súkkulað-
ið, og aumingja prinsessan er
alveg í öngum sínum.
Rithöfundurinn
í dauðaklefanum.
Eins og kunnugt er, kom bók
Garyl Chessman, Klefi 2455 í
dauðadeild út á íslenzku fyrir
nokkru, og hefur vakið mikla
eftirtekt.
Höfundurinn var dæmdur til
dauða árið 1948 fyrir hverskonar
misgjörðir, sem hann telur sig
síður en svo sýknan af. Lýsir
23
Rouge et Noir!
Frægasta leikkona Mexíkó,
Kathy Jurade, sem hér sást í
kvikmyndinni „12 á hádegi", hef-
ur hlotið lof fyrir að vera bezt
klædda konan í París. Hún vakti
athygli með því að ganga inn
til Dior, Fath o. fl. og velja kjóla
sína — og borga út í hönd, sem
vakti enn meiri athygli.
Kathy var á kvikmyndahátíð-
inni í Feneyjum, og gekk hún
þá alltaf — undantekningarlaust
— í rauðu. f París gengur hún
hins vegar eingöngu í klæðnaði
úr svörtu efni.
Tveir frægir kvik-
myndaleikarar látnir.
Þær fregnir hafa borizt frá
Bandaríkjunum, að nýlega hafi
einn hinna yngri leikara, sem
hvað mestar vonir voru tengdar
við, James Dean, 23 ára að aldri,
farizt í bifreiðarslysi. Hann hafði
þegar leikið nokkur hlutverk og
getið sér góðan orðstír.
All-hljótt hefur undanfarið
verið um nafn John Hodiak, sem
var meðal fremstu leikara
Bandaríkjanna á styrjaldarárun-
um og nokkur næstu árin; nú
fyrir skemmstu var andlát hans
tilkynnt, og var banamein hans
hjartaslag.
John Hodiak var 41 árs að
aldri, hann var góðkunnur hér
á landi fyrir leik sinn í fjöl-
mörgum kvikmyndum. Kvæntur
var hann leikkonunni Ann Bax-
ter, en hjónaband þeirra fór út
um þúfur fyrir þrem árum.
hann glæpaævi sinni í bókinni,
og sé eitthvað dregið undan, þá
er vissulega nóg eftir til að koma
hálfum tug í rafmagnsstólinn.
Síðan dauðadómurinn var kveð-
inn upp, hefur hann setið í klefa
sínum í San Quentin fangelsinu,
og eftir að verjandi hans gafst
upp við mál hans, hefur hann
varið sig sjálfur. Lögfræði nam
hann í fangelsisverunni, og hef-
ur honum tekizt að fá aftökunni
frestað æ ofan í æ. I síðastlið-
inni viku var ekkert útlit fyrir
annað en aftakan yrði látin fara
fram, en á síðustu stundu gaf
hæstiréttur Bandaríkjanna út til-
kynningu um, að málið skyldi
tekið fyrir að nýju.