Hermes - 01.12.1971, Side 2
hermes
útgefandi:
NSS
1971-12. árg. - 3. tbl.
ritstjóri:
GUÐMUNDUR R. JÓHANNSSON
ritnefnd:
JÓNAS FR. GUÐNASON
RÚNAR B. JÓHANNSSON
filmusetning og prentun:
LITHOPRENT HF.
ljósmyndari:
GUÐMUNDUR BOGASON
káputeikning:
HAUKUR HARALDSSON
Við biðjumst afsökunar á þessum
drætti á útkomu blaðsins,
en ástæðan er prentaraverkfallið.
Nú eru Hamragarðar teknir til starfa og skapast þar með sú aðstaða
sem okkur hefur algerlega vantað fyrir félagsstarfsemi. Það hefur þegar
sýnt sig að staðurinn á vinsældum að fagna, en það er líka tvennt að koma
einu sinni og láta í ljós ánægju sína eða stuðla að einhverri starfsemi.
Það háir mjög öllu félagsstarfi bæði í N.S.S. og annars staðar hvað áhugi
félagsmanna er lítill. Á vegum N.S.S. eru í vetur tveir íþróttasalir en líkur
eru á að öðrum verð sleppt vegna lítillar þátttöku. í skákmótinu og bridge
mótinu voru þátttakendur fáir. Hinsvegar eru leikhúsferðirnar íjölsóttar,
félagsvistin hefur fallið í góðan jarðveg og bekkjarkvöldin heppnast með
ágætum.
Það er ekki hægt að búast við að allir hafi sömu áhugamál og tími margra
okkar er takmarkaður. Hinsvegar er ekki fráleitt að ætlast til þess af fólki
að það reyni að notfæra sér innan síns félags það sem liggur áhugamálum
þess næst. Hamragarðar bjóða líka upp á heilsurækt þar sem eru gufu-
baðið og trimmæfmgarnar sem unnt er að stunda í sambandi við það.
Það var því gleðilegt að heyra að Bifrastarkonur ætluðu að gangast
fyrir fundahaldi um stöðu konunnar innan samvinnuhreyfingarinnar. Að
ætlast til þess af stjórn N.S.S. að hún standi fyrir öllum framkvæmdum
er alger óþarfi og nær fráleitt. Allir þeir sem einhverju vilja hrinda í fram-
kvæmd eru velkomnir og stjórn og fulltrúaráð er boðið og búið til að-
stoðar. Það er fólk innan N.S.S. sem virðist líta á það sem hlutverk sitt að
nöldra en fæst svo alls ekki til að tjá sig á fundum eða mæta neins staðar
til að túlka skoðanir sínar. Ég sagði nöldra því það getur ekki talizt annað
en nöldur að hafa allt á hornum sér en vilja sjálfur ekkert til málanna leggja.
Það sem þetta fólk hefur fram að færa er svo oft síður en svo meiningarlaust.
Stjórn og fulltrúaráð getur þrátt fyrir góðan vilja ekki gert svo öllum líki
og beinlínis skylda allra félagsmanna að gagnrýna þau störf og benda á
aðrar leiðir. Slíka gagnrýni á hins vegar að bera fram við rétta aðilja og
standa við hana, og jafnvel taka frumkvæðið í sínar hendur við skipu-
lagningu ýmissa mála. Stjórnin mundi síður en svo taka það illa upp.
Það er samt ekki hægt að krefjast of mikils því þetta fólk vinnur að fram-
gangi N.S.S. eingöngu í frístundum og leggur þar oft fram mikið starf,
þó sumir vildu eflaust gera meira ef þeir gætu. Okkur skortir bæði fjár-
magn og þjóðfélagsaðstöðu til að framkvæma margt sem nauðsynlegt
væri.
Framgangur N.S.S. byggist eingöngu á samstarfi félaganna sjálfra og
því eiga þeir að leggja sóma sinn í að vinna samtökunum eftir því sem
tími og aðstæður þeirra leyfa.
Gudnnmdur R. Jóhcmnsson.
2