Hús & Búnaður - 01.05.1968, Blaðsíða 1
Hús&lÉI
Búnaður
2. árg. 1968 3-4
Sumargjöf — Hi-Fi-stereo — Garðyrkjufél. ísl.
— Fjölskylduráð íslands — Ibúðin okkar —
Ljósmyndaþáttur — Saumaklúbburinn —
Skákþátturinn o. m. fl.
SUMARGJOF
Við lifum naumast á brauði einu saman. Sem betur
fer leitum við stöðugt að meiri fegurð og yndi til fyll-
ingar í lífi okkar. En þessi leit þarf engan veginn að
vera iðjuleysi eða makráðir dagar, heldur þvert á móti
lifandi starf. Ekki þrotlaus barátta um yfirvinnu eða
aurasnap, heldur tilbreytni við þroskandi iðju án tillits
til fjárhagslegra launa. Ég hygg að við getum öll verið
sammála um að það sé þetta sem við viljum kenna
þörnum okkar að láta verða númer eitt í lífi sínu. Við
viljum kenna þeim að njóta lífsins og bera virðingu fyrir
því. En því miður gerum við okkur of litla grein fyrir
því, að einnig það krefst fyrirhafnar og starfs. [ þessu
riti hefur áður verið minnzt á íslenzka leikvelli. Leikvell-
ir eru þarfar og raunar, að okkur finnst nú, ómissandi
stofnanir. Það sem okkur þótti á vanta var að nægilega
hentugum leiktækjum væri úr að velja. Við erum næm
fyrir að líkamlegum þörfum barnsins sé fullnægt, þau
skorti ekki föt eða fæði, en um hina andlegu þörf
barnsins erum við oft furðu sljó.
Barnavinafélagið Sumargjöf og fleiri slík félög, er
síðar hafa verið stofnuð víðsvegar um land, hafa unnið
mikið og gott verk í þágu barnamálefna. Margir hafa
þar lagt hönd að verki og unnið óeigingjarnt brautryðj-
endastarf. Slíkum félögum má fyrst og fremst þakka
hvað gert hefur verið í þessum efnum, beint eða óbeint.
öll hafa þessi félög átt við ýmsa örðugleika að etja og
viljað gera betur en framkvæmanlegt var. En erfiðleik-
arnir eru ekki skráðir eins skýrum stöfum og verk þau
er félögin hafa hrundið í framkvæmd. Ástæða er fyrir
okkur sem utanvið höfum staðið að minnast þessa.
Nú hefur Barnavinafélagið Sumargjöf í undirbúningi
nýja framkvæmd. Er það uppbygging leiksvæðis í landi
Steinahlíðar við Elliðaár. Ef vel tekst til verður hér
um algjörlega tímamótamarkandi framkvæmd að ræða.
►
„Því sá sem hræðist fjallið oe: einlægt aftur snýr
fær aldrei leyst þá gátu, hvað hinumegin býr.
En þeim, sem eina lífið er bjarta brúðar myndin,
þeir brjótast upp á fjallið og upp á hæsta tindinn.“
Þorsteinn Erlingsson.