Hús & Búnaður - 01.05.1968, Side 11

Hús & Búnaður - 01.05.1968, Side 11
Ekki þarf alltaf mikið til þess að skapa lieimili. Aðalatriðið er, að þið séuð ánæsrð með það sem þið hafið Erert, það falli við ykkar hæfi. Óþarft er að láta sér til hugrar koma, að ekki þurfi að srreiða fyrir margrbrotna og efnismikla innanstokksmuni, svo áþreifanlegt sem það er. Og auknar vinnustundir draga ykkur burt frá þægindunum heima. Hér eru líka mikl- ir möguleikar til að breyta og auka við síðar, ef á þarf að halda. þessi stóll sé fallegri en hinn o. s. frv. Ef við köstum teningnum getur svo farið, að upp komi sex. En veru- lega góðum árangri við skipulagningu á heimili er ekki hægt að ná nema með því að þekkja þau lögmál, sem hún lýtur, og fylgja þeim. Fyrsta skilyrðið er því að skipuleggja heimilið eða gera áætlun fyrir það. Að sjálf- sögðu væri bezt að teikna íbúðina, að minnsta kosti í aðalatriðum, á blað. Auðvelt er að gera það í réttum hlutföllum, ef notaður er rúðustrikaður pappír. Við þurf- um að finna samræmi hinna ýmsu hluta, við þurfum að fella þá að viðfangsefnum heimilisins, og við þurfum að láta þennan uppdrátt samræmast háttum þess fólks, sem þar býr og því lífi sem það kann að lifa þar. Ekki einungis í dag og á morgun, heldur alla daga, allar stundir sem við og húsið eigum að vera eitt. Naumast er um það að ræða, að tvær fjölskyldur lifi sama lífi. Sama húsnæði og skipulagning þess hent- ar þeim því ekki heldur. Munurinn getur verið misjafn- lega mikill. Með aukinni verkaskiptingu í þjóðfélaginu og breytilegum aðstæðum eykst þessi munur. Við þurf- um því að gera ráð fyrir að geta síðar gert æskilegar breytingar, ef á þarf að halda. En því meiri húsgögn sem fyrir eru í íbúðinni verður þetta erfiðara, og þeim mun minna frjálst athafnasvæði fæst. Börnin þurfa einnig sitt svæði. Betra er að úthluta þeim ákveðnum stað þar sem þau eiga auðveldara með að finna sig heima og eru ekki eins háð ströngustu kröfum varð- andi fingraför og bletti. Þess skyldi líka gætt, að efnis- valið fari eftir þeim viðfangsefnum, sem um er að ræða á hverjum stað. Annað hentar t.d. barnmörgum fjöl- skyldum en einhleypu fólki. í nútíma þjóðfélagi eiga margvísleg viðskipti sér stað og munu fara í vöxt. Á flestum heimilum er því nauðsynlegt að hafa ákveðinn stað, þar sem hægt er að sinna viðskiptamálum heim- ilisins og jafnvel einhverjum af þeim störfum, sem við stundum. Slíkt venur fólk á að fylgjast betur með út- gjöldum og áætlunum sínum og svarar í flestum tilfell- um kostnaði. Við skulum minnast þess, að heimilið er fyrst og fremst staður til þess að sinna málefnum þess, og sú mun líka verða raunin, að gestir okkar dást engu síður að því heimili sem þannig er úr garði gert, en hinu sem aðeins er sýnishlutur. Umgangur um húsið fer mikið eftir þeim áhugamál- Jafnvægi og festa. Veitið athygli hversu uppröðunin er í miklu jafnvægi. Það cr að vísu ekki nauðsynlegt að allt sé svona slétt og fellt, en við verðum samt að gæta þess að ringulreið skapist ekki við uppröðunina. Ekki líti út eins og húsgögnunum hafi verið kastað af hendi á eftir eigin- manninum þegar hann kom kenndur heim.

x

Hús & Búnaður

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hús & Búnaður
https://timarit.is/publication/1071

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.