Hús & Búnaður - 01.05.1968, Blaðsíða 17
Smelti, eða emalering, er eldgömul listgrein, sem barst
frá Austurlöndum með krossförunum til Evrópu. Hún
er aðallega fólgin í eftirfarandi:
1. Gerð glerefnis til þess að festa við málm, og þarf það
S M E LTI
við kælingu að dragast jafn mikið saman og málm-
urinn.
2. Litun glerefnisins með mismunandi litum.
3. Undirbúningsvinna við málminn fyrir emaleringuna.
4. Emaleringin borin á málminn.
5. Brennsla.
6. Fínpússning.
7. Málun á emaleringuna.
Emalering er glerefni, sem getur verið mismunandi að
gerð og litun. Það fæst a.m.k. erlendis framleitt af sér-
stökum verksmiðjum. Sem undirlag er venjulega notaður
kopar, brons, silfur eða gull.
Ekki vitum við hversu margir hér á landi hafa lagt
stund á þessa iðju, en okkur er kunnugt um þýzka stúlku,
sem setzt hefur að hér á landi og gert þetta að listgrein
sinni. Hún heitir Anne Liese Schmandt. Einkanlega hefur
hún fengizt við smáa hluti svo sem öskubakka, nælur,
festar, hnappa og öskjur. Mótar hún á þetta hinar list-
rænustu myndir og munstur. Ekki munu launin samt vera
í réttu hlutfalli við fyrirhöfnina, sem er ótrúlega mikil
nákvæmnisvinna. Anna Liese vinnur sinn fulla vinnu-
dag, en hverfur til þessa áhugaverks síns þegar frístundir
gefast. Nokkuð hefur hún þó selt af þessum munum sín-
um, og munu þeir vera til sýnis og sölu hjá íslenzkum
heimilisiðnaði, Laufásvegi 2.
Meðfylgjandi myndir eru teknar af nokkrum verka
hennar.