Morgunblaðið - 15.11.2011, Blaðsíða 27
DAGBÓK 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 2011
Sudoku
Frumstig
4
3 9
8 6 2
2 3
4 2 6
9 1 7 8
3 2 6 4 1
4 8 7
8 9 4
9 3
6 1 2
7 8 6 2 9
3 8 9
7 6
5 1
1 7 8
3 9 6
2 3
4 7
8
2 6 8
5
4 7 6
1 9
1 2 3
7 1
5 3 1 8
7 8 9 5 4 1 6 2 3
3 6 5 9 8 2 1 4 7
2 4 1 3 6 7 9 5 8
4 9 2 8 5 3 7 6 1
6 7 3 1 2 9 4 8 5
5 1 8 6 7 4 2 3 9
9 3 4 2 1 8 5 7 6
1 2 6 7 3 5 8 9 4
8 5 7 4 9 6 3 1 2
8 1 5 2 9 6 4 7 3
6 9 2 3 7 4 5 1 8
4 7 3 5 1 8 2 9 6
2 4 8 1 6 5 7 3 9
7 3 6 9 4 2 8 5 1
1 5 9 8 3 7 6 2 4
5 2 1 6 8 3 9 4 7
9 8 7 4 5 1 3 6 2
3 6 4 7 2 9 1 8 5
3 4 2 5 7 8 6 1 9
7 6 5 3 1 9 8 2 4
1 9 8 4 2 6 5 7 3
5 2 7 8 3 1 4 9 6
6 8 1 9 5 4 2 3 7
9 3 4 2 6 7 1 5 8
4 5 9 1 8 3 7 6 2
8 1 6 7 9 2 3 4 5
2 7 3 6 4 5 9 8 1
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er þriðjudagur 15. nóvember,
319. dagur ársins 2011
Orð dagsins: Ég er Drottinn, það er
nafn mitt, og dýrð mína gef ég eigi öðr-
um né lof mitt úthöggnum líkneskjum.
(Jesaja 42, 8)
Víkverji fer annað slagið í Kola-portið til að kíkja á mannlífið.
Segja má að þetta sé staður með al-
þjóðlegum blæ, þar sem mætast
ólíkir menningarheimar. Innflytj-
endur og aðrir útlendingar eru áber-
andi, bæði meðal gesta og þeirra
sem eru að selja alls kyns varning.
Skemmtileg götumarkaðsstemning
myndast í Kolaportinu, innandyra í
íslenskri veðráttu og í ætt við marga
markaði sem sjá má erlendis úti
undir berum himni.
Víkverji getur ekki sagt beint að
hann versli mikið í Kolaportinu eða
prútti, laumast í einstaka harðfisk
og flatbrauð, en þó kemur fyrir að
kostakaup eru gerð á ýmissi nauð-
synjavöru. Þetta er nauðsynlegur
hluti af menningunni og gaman að
sjá þarna kynlega kvisti á ferð.
x x x
Síðast er Víkverji átti leið þarnaum var einn sölumaður sem
skar sig dálítið úr. Vöðvastæltur
karlmaður í stuttermabol, vel „tan-
aður“, talaði með hreim og var óneit-
anlega dálítið grunsamlegur. Minnti
Víkverja á lífvörð, sem var að reyna
að vera á frívakt. Fljótlega kom upp
sá grunur að í básnum væri verið að
selja þýfi. Þarna gat að líta leikja-
tölvur, úr, farsíma, merkjavöru í föt-
um og ýmislegt fleira. Vonandi var
þetta bara venjulegur gaur, kannski
nýskilinn að reyna að losa um eigur
til að fá skotsilfur í vasann.
Víkverji treystir því að lögreglan
fylgist vel með Kolaportinu eins og
öðrum stöðum í borginni. Lögreglan
og tollgæslan hafa sýnt það að und-
anförnu að Íslendingar eiga rann-
sakendur á heimsmælikvarða, það
hafa nýleg mál sýnt eins og úraránið
á Laugaveginum og stóra fíkniefna-
smyglið í gegnum Straumsvík. Búið
er að sýna erlendum sem innlendum
glæpamönnum í tvo heimana og
ánægjulegt að vita til þess að vinna
þeirra hefur verið gerð mun erfiðari
en áður, með aukinni þekkingu og
reynslu lögreglu og tollgæslu, svo
ekki sé nú minnst á björgunar-
sveitir. Með þessa vitneskju í huga
gengur Víkverji rólegri til náða á
hverju kvöldi – og vaknar enn kát-
ari. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 gutlreið, 4 tilfinn-
ing, 7 fótaskjögrið, 8 höndin,
9 þæg, 11 groms, 13 ljúka,
14 mynnið, 15 hrúgaði upp,
17 nota, 20 sár, 22 hásan, 23
klaufdýrið, 24 ræktuð lönd,
25 þreyttar.
Lóðrétt | 1 viðarbútur, 2
minnist á, 3 ær, 4 höfuð, 5
ber, 6 dútla, 10 kappnógur,
12 væn, 13 bókstafur, 15 af-
skræmi, 16 óður, 18 fylginn
sér, 19 korns, 20 sættir sig
við, 21 bauja.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 kjánalegt, 8 tófur, 9 ótukt, 10 rós, 11 terta, 13 tunna,
15 kepps,
18 sakna, 21 kóp, 22 pilla, 23 arann, 24 kampakáta.
Lóðrétt: 2 jöfur, 3 narra, 4 ljóst, 5 grunn, 6 stút, 7 Etna, 12 tap,
14 Una, 15 kopp, 16 pilta, 17 skaup, 18 spark, 19 kraft, 20 asni.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Fullseint. N-Allir.
Norður
♠3
♥K96542
♦5
♣Á10853
Vestur Austur
♠DG865 ♠Á742
♥G10873 ♥--
♦D7 ♦KG8632
♣4 ♣DG2
Suður
♠K109
♥ÁD
♦Á1094
♣K976
Suður spilar 4♥ dobluð.
Eins og aðrir BR-ingar í sömu
sporum fór Björn Eysteinsson niður
á 4♥ dobluðum. „En ég hafði tilfinn-
ingu fyrir því við borðið að til væri
vinningsleið og hún kom til mín í
draumi um nóttina,“ skrifar Björn í
tölvupósti. Björn varð sagnhafi í suð-
ur eftir opnun norðurs á multi 2♦ og
innákomu austurs á 3♦. Björn stökk í
4♥ (leitandi) og vestur doblaði. Út
kom ♦D.
Lausnin felst í því að ná þremur
stungum í blindum. Tígull er strax
trompaður, ♣K tekinn og laufi spilað
á ás (sem vestur má ekki trompa).
Síðan kemur spaði úr borði. Austur
drepur, tekur væntanlega á ♣D og
spilar spaða. Suður tekur á ♠K,
trompar spaða, fer heim á ♥Á, spilar
tígli og … vestur getur pakkað sam-
an, því trompbragðið verður ekki
umflúið.
15. nóvember 1923
Þórbergur Þórðarson rithöf-
undur byrjaði, að eigin sögn,
að skrifa bréf til Láru Ólafs-
dóttur. Bréfið var birt í sam-
nefndri bók, Bréf til Láru, ári
síðar og vakti mikla athygli.
Stefán Einarsson prófessor
sagði að bréfið hefði verið
„ritað í glæsilega snjöllum
stíl“.
15. nóvember 1951
Útvarpsstöð Varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli, Radio
Station TSK, hóf útsendingar.
Útvarpað var „fréttum,
hljómlist og þar fram eftir
götunum,“ að sögn Dags.
15. nóvember 1978
Mesta slys íslenskrar flugsögu
varð þegar 197 manns fórust
er þota sem var í eigu Flug-
leiða hf. hrapaði í lendingu á
Colombo á Srí Lanka. Flug-
vélin var í pílagrímaflugi.
Átta íslenskir flugliðar létust
en fimm komust lífs af.
15. nóvember 1999
Guðjón Þórðarson tók við
starfi knattspyrnustjóra hjá
Stoke City. Nokkrum dögum
áður höfðu íslenskir fjár-
festar keypt meirihluta í
þessu enska annarrardeild-
arliði.
15. nóvember 2008
Sex til átta þúsund manns
komu saman á Austurvelli og
kröfðust afsagnar banka-
stjórnar Seðlabankans og að
kosið yrði til Alþingis vorið
2009. „Það er friður yfir öll-
um,“ sagði lögregluþjónn við
Mbl.is.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
„Ég hef næstum því aldrei haldið upp á afmælið
mitt, ekki heldur þegar ég var barn,“ segir afmæl-
isbarn dagsins, Elín Hannibalsdóttir, kennari á
Flúðum, sem fagnar 75 ára afmæli sínu í dag. Elín
er Ísfirðingur, hún gekk þar í barna- og gagn-
fræðaskóla og fór síðan í kennaranám á fullorðins-
árum.
Hún starfaði sem grunnskóla- og sérkennari á
Flúðum frá 1971 til 2007. „Ég kenndi allt mögu-
legt, þetta var sveitaskóli og maður gerði það sem
þurfti að gera og kenndi öllum aldurshópum.“
Miklar breytingar urðu á grunnskólastarfi á þeim tíma sem Elín
sinnti kennslustörfum. „Það sem stendur upp úr er aðallega breytt
framkoma barnanna og viðhorf þeirra til skólans. Börnin í dag eru
miklu frjálsari og opnari en áður var og það er jákvætt. En stundum
vill það verða of mikið.“
Afmælisbarnið segist ekki vera undir pressu frá ættingjum sínum
að halda upp á aldarfjórðungana þrjá, en hún segist eiga 25 börn,
þegar allir afkomendur hennar eru taldir. „Ég bý við mikið ríki-
dæmi,“ segir Elín. annalilja@mbl.is
Elín Hannibalsdóttir er 75 ára í dag
„Bý við mikið ríkidæmi“
Flóðogfjara
15. nóvember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 2.29 0,8 8.42 3,8 15.02 0,9 21.05 3,4 9.56 16.30
Ísafjörður 4.34 0,4 10.37 2,0 17.13 0,4 23.04 1,6 10.20 16.15
Siglufjörður 1.09 1,1 6.51 0,4 12.59 1,2 19.27 0,2 10.04 15.57
Djúpivogur 5.56 2,0 12.17 0,6 18.07 1,7 9.30 15.54
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú nýtur þess að vera í hópum þar
sem samfélagsleg norm halda ekki aftur af
þér eða stjórna. Vertu óhrædd/ur við að
kynna þér framandi hluti.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Einhverjir draugar úr fortíðinni gera
þér lífið leitt. Þeir sem halda að þú gleymir
auðveldlega ættu að passa sig.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Vertu opin/n gagnvart tillögum
samstarfsmanna þinna og leyfðu þeim að
velta upp sem flestum flötum þeim til stuðn-
ings. Slökun er þér nauðsynleg.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Einhver kemur þér til aðstoðar án
þess þú hafir óskað eftir því. Farðu í mat eða
kaffi með vini þínum.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Vinátta þarfnast kannski meiri fyrir-
hafnar en þú ert til í að leggja á þig. Leggðu
áherslu á að þér líði sem best og þeim sem í
kringum þig eru.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Viltu skera þig úr? Sendu skilaboð á
pappír, ekki tölvupóst. Sparaðu kraftana ef
ske kynni að eitthvað óvænt kæmi upp á.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Láttu ekki erfiðar minningar úr fortíð-
inni standa í vegi fyrir þér, þegar þú hefst
aftur handa. Fólk kann að meta góða fé-
lagslega hæfni þína.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Orka þín og einbeiting er mikil í
augnablikinu, beindu henni í einn farveg.
Hálfnað er verk þá hafið er.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú þarft að taka upp nýtt og
betra vinnulag og forðast að vera með allt á
síðustu stundu. Gefðu þér tíma til þess að
ræða málin við rétta aðila.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Kímnigáfa þín og rausnarskapur
gera að verkum að flestum líkar vel við þig.
Ekki taka við öllu sem þér er rétt, og haltu
þinni venjulegu fjarlægð.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú mátt í engu slaka á viljirðu
búa við áframhaldandi velgengni. Tíminn
vinnur með þér, geymdu alla gagnrýni þar til
síðar.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Biddu afsökunar á því sem kann að
særa aðra. Þú slærð í gegn í boði sem þú
verður boðin/n í. Þú skalt halda þig á mott-
unni í búðunum.
Stjörnuspá
1. d4 e6 2. c4 Rf6 3. Rc3 Bb4 4. Rf3 c5 5. e3
Rc6 6. Be2 Bxc3+ 7. bxc3 d6 8. 0-0 e5 9.
Dc2 0-0 10. Hd1 De7 11. dxc5 dxc5 12. e4
Bg4 13. h3 Bxf3 14. Bxf3 h6 15. Be3 b6 16.
Hd2 Hfd8 17. Had1 Hxd2 18. Hxd2 Hd8
19. Be2 Hxd2 20. Bxd2 Ra5 21. Dd3 Kf8
22. f3 Ke8 23. Bd1 Dd7 24. Dxd7+ Kxd7
25. Ba4+ Ke7 26. Bb3 Re8 27. Kf1 Rd6 28.
Ke2 Rdxc4 29. Be1 Rxb3 30. axb3 Ra5 31.
b4 cxb4 32. cxb4 Rc6 33. Kd3 b5 34. Kc3
a6 35. Bf2 Rd8 36. g3 Re6 37. h4 h5 38.
Be3 g6 39. f4 exf4 40. gxf4 f5 41. Kd3 Kd6
42. Bd2 fxe4+ 43. Kxe4 Rg7 44. Be1 Rf5
45. Bf2 Ke6 46. Be1 Rd6+ 47. Kd4 Kf5 48.
Kc5 Rc4 49. Kc6 Kxf4 50. Kb7
Staðan kom upp í Evrópukeppni tafl-
félaga í Rogaska Slatina í Slóveníu. Stór-
meistarinn Petr Haba (2.502) hafði svart
gegn Tommy Clausen (2.071). 50. … g5!
51. hxg5 Kxg5 52. Kxa6 Ra3! 53. Bd2+
Kg4 54. Bc1 h4 55. Bxa3 h3 og svartur
vann skömmu síðar.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is