Morgunblaðið - 15.11.2011, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 15.11.2011, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 2011 BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Það sem af er þessum mánuði hafa hlýindi verið flesta daga miðað við árstíma. Trausti Jónsson, veðurfræð- ingur, segir að enn vanti talsvert upp á svo met verði slegin. Sem stendur er nóvember í ár í fjórða sæti í höf- uðborginni frá árinu 1945, en þá var mánuðurinn einstaklega hlýr. Rauðar tölur og þægilegt veður stytta vet- urinn og auðvelda útistörfin og þær Oddný Þórðardóttir, bóndi og oddviti á Krossnesi í Árneshreppi, og Ásdís Bjarnadóttir, bóndi í Auðsholti í Hrunamannahreppi, fagna báðar tíð- arfarinu og vona að hlýindin standi sem lengst. Trausti hefur reiknað meðalhita það sem af er mánuðinum í Reykja- vík og er hann 6,3 stig. Meðalhiti sömu daga 1945 var 8,0 stig, 7,2 stig 1956 og 6,6 stig 1964. Á Akureyri er hitastig það sem af er mánuðinum í 10. sæti á sama tíma. Þar hefur með- alhitinn verið 4,5 stig, en var mest 6,7 stig á sama tíma 1956. Samkvæmt daglegum tölum frá Stykkishómi allt frá 1846 er þessi fyrri helmingur mánaðarins í 14. sæti, en litlu munar á sætum 10 til 14. „En eru hlýindin í fyrri hluta þessa mánaðar óvenjuleg?“ spyr Trausti á bloggsíðu sinni. „Svarið er já (en þó með nokkrum semingi sagt). Það eru allmargir nóvembermánuðir sem hafa byrjað ámóta vel og þessi, en hafa síðan sprungið á hlaupinu og hrapað.“ Trausti bendir á að fyrstu tvo daga þessa mánaðar var hiti und- ir meðallagi og kunni það að reynast dýrt á endasprettinum. Nóvember 1945 var mjög hlýr framan af, en hann „átti afleitan endasprett þar sem hiti var varla í meðallagi“. Enn eru tvær vikur eftir af mán- uðinum og því ekki ljóst hvort nóv- ember í ár keppir um sæti á verð- launapalli, eins og Trausti orðar það. Hins vegar er útlit fyrir hlýtt veður að minnsta kosti fram yfir næstu helgi. Í dag er spáð 7-14 stiga hita og að smám saman dragi úr vindi. Mest- ur mældist hitinn 17,6 gráður á Öræf- um og 16,7 í Skaftafelli í gær. Nánast aldrei næturfrost Í Auðsholti í Hrunamannahreppi vann fólk við að taka upp gulrætur í síðustu viku. „Tíðin er búin að vera góð í haust og nánast aldrei næt- urfrost,“ segir Ásdís Bjarnadóttir. „Það er sumarhiti núna og þær gul- rætur sem enn eru í jörð eru alger- lega óskemmdar, eiginlega bara spriklandi ferskar og fínar. Það er ekki einsdæmi að taka upp svona seint, en tíðarfarið núna skemmir alls ekki fyrir.“ Þrjár fjölskyldur vinna saman að búskapnum í Auðsholti I og III og uppskeran af gulrótum í ár er 70-80 tonn. Mörg handtök fylgja vinnu við gulræturnar. Eftir upptöku og þvott er hver einasta gulrót snyrt, upp- skeran flokkuð og síðan er hand- pakkað og gulræturnar settar í kalda geymslu þar til kemur að flutningi á markað. Íslenskar gulrætur komu í verslanir um verslunarmannahelgi og endast fram í mars - apríl. Auk garð- yrkjunnar er fjölskyldan í Auðsholti með hefðbundinn kúa- og sauð- Rauðar tölur auðvelda útistörfin Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Mörg handtök Unnið við gulrætur í Auðsholti. Bjarni Jónsson, Kristín Jónsdóttir, Harpa Vignisdóttir, Bjarney Vignisdóttir og Ásdís Bjarnadóttir.  Nóvember í ár sá fjórði hlýjasti í Reykjavík frá 1945  Enn vantar talsvert upp á svo hitamet verði slegin í mánuðinum  Gulrætur teknar upp í Auðsholti  Sumarblíða í Árneshreppi á Ströndum Hiti í Stykkishólmi kl. 9 að morgni 14° 12° 10° 8° 6° 4° 2° 0° -2° -4° -6° °C Dagur 2 4 6 8 10 12 14 16 18 20 22 24 26 28 30 1945 1956 1987 2011 Meðaltal Í Árneshreppi á Ströndum fagna menn góðri tíð. Oddný Þórðar- dóttir á Krossnesi segir að vorið hafi verið kalt og sum- arið komið seint. Í september hafi verið einstaklega gott veður um tíma, en síðan hefði október verið erfiður. Það sem af er hausti hefur vegurinn norður í Árneshrepp nokkrum sinnum lokast vegna snjóa og á sama tíma hefur verið erfitt með flug á Gjög- ur. Mikil úrkoma hafi verið og það skapi hættu á grjóthruni. „Svo er allt í einu komin sum- arblíða hérna, það er ótrúlegt hvernig veðurfarið er að verða,“ segir Oddný. „Sumir bændur hér hafa verið að moka úr fjárhúsum og bera á tún og vinna þessi hefð- bundu hauststörf sem ekki var hægt að sinna fyrr vegna veðurs. Í síðustu viku sóttu bændur fé sem var fyrir sunnan Djúpuvík, en enn þá eru kindur norður í Ófeigsfirði og við erum með kindur norður að Felli. Þær eru mest í fjörunni, en þegar svona hlýtt er í veðri sækja þær ofar.“ Oddný segir mannlífið vera í venjulegum takti í Árneshreppi og nú séu fjórir nemendur í grunn- skólanum í Trékyllisvík. Eftir ára- mót taki klúbbarnir síðan til starfa, en þá hittast allir sem eru heima við, jafnt konur sem karlar, eina kvöldsstund á tveggja vikna fresti og skiptast heimilin á um að bjóða heim. Allt í einu sumarblíða BÆNDUR SINNA HAUSTSTÖRFUM Í ÁRNESHREPPI Reykjanesbæjar, sagði að sveitarfé- lagið hefði keypt landið og jarðhita- réttindin fyrir tæpum tveimur árum til þess að þetta lenti ekki í eigu einkaaðila sem var að eignast meiri- hluta í HS Orku hf. „Fyrir vikið greiðum við niður skuldir sem nema 1.230 milljónum,“ sagði Árni. Hann sagði að skatta- skuldin sem gerð verði upp sé fjár- magnstekjuskattur sem var lagður á vegna sölu á hlut bæjarins í HS Orku hf. 2009. Sveitarfélög sem seldu t.d. hlut sinn í Landsvirkjun eða orku- fyrirtæki á Norðurlandi hafi sloppið við slíkan skatt. Skýringin sem gefin er sé sú að HS Orka sé hlutafélag. Árni sagði að Hafnarfjörður hafi mótmælt þessari mismunun í skatt- lagningu og ætli að leita réttar síns. Engu að síður geri Reykjanesbær upp skuldina. Vinni Hafnarfjörður málið komi það öðrum sveitarfélög- um í sömu stöðu til góða. Árni sagði að með þessari sölu muni Reykjanesbæ takast að greiða alls yfir fjögurra milljarða skuldir á þessu ári og bæta skuldahlutfall sveitarfélagsins talsvert. „Við ætlum ekki að stoppa þarna,“ sagði Árni. Hann sagði að Magma Energy hafi lýst áhuga á að greiða upp 5,8 milljarða skuldabréf, sem bærinn á, fyrir gjalddaga 2015. Það geti mögulega orðið á þessu ári. Verði af því muni skuldir Reykjanes- bæjar minnka enn meira. Seljanlegar eignir listaðar upp Bæjarráð Árborgar samþykkti samhljóða 10. nóvember s.l. „að kort- leggja hvaða eignir, lönd og/eða lóðir og fasteignir í eigu Svf. Árborgar kemur til greina að selja.“ Skila á niðurstöðum og tillögum til bæjar- stjórnar fyrir 1. janúar 2012. Eyþór Arnalds, formaður bæjar- ráðs, sagði að nú væri fyrst og fremst verið að kanna hvaða eignir komi til greina að selja. Meðal ann- ars á Árborg fjölda íbúða og taldi Eyþór að 83 þeirra gætu verið selj- anlegar. „Í sumum tilvikum hafa íbúar getað keypt húsnæði í stað þess að leigja það,“ sagði hann. Sveitarfélagið Árborg skuld- ar nú rúma 9 milljarða. Ey- þór sagði vonast til þess að skuldahlutfall Árborgar fari undir 200% þegar á þessu ári, en hæst var það 209%. „Við ætlum okkur að kom- ast undir 150%,“ sagði Ey- þór. Til þess þarf að greiða um 1,5 millj- arða skuldir. Sveitarfélög selja eignir sínar  Reykjanesbær selur land og jarðhitaréttindi fyrir 1.230 milljónir  Árborg gerir lista yfir seljanlegar eignir  Andvirðið notað til að létta á skuldabyrðinni Gunnlaugur Júlíusson, sviðs- stjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, sagði það ekki nýtt að sveitarfélög selji eignir og noti andvirðið til fjárfestinga eða til að greiða skuldir. Ekkert sé að því. Hitt sé verra, raunar bannað í sumum nágrannalönd- um, að nota andvirðið í rekst- urinn. Reglur um eftirlit með fjár- málum sveitarfélaga eru víða strangari en hér. Norsk sveitarfélög sem komin eru á athug- unarlista eftirlitsnefndar sveitarfélaga fá t.d. ekki að taka ný lán nema með leyfi nefndarinnar. Víða strang- ari reglur FJÁRMÁL SVEITARFÉLAGA Gunnlaugur Júlíusson Morgunblaðið/RAX Reykjanesvirkjun Reykjanesbær selur land og jarðhitaréttindi. FRÉTTASKÝRING Guðni Einarsson gudni@mbl.is Tveir alþingismenn Sjálfstæðis- flokksins, Árni Johnsen og Ragn- heiður E. Árnadóttir, ein stjórnar- andstöðuþingmanna, greiddu því atkvæði á Alþingi í gær að ríkissjóð- ur fái heimild til að kaupa land og jarðhitaauðlind jarðanna Kalmans- tjarnar og Junkaragerðis á Reykja- nesi sem eru í eigu Reykjanesbæjar. Heimildin var samþykkt og málinu vísað til 3. umræðu. Jarðhitaauðlindin er nýtt af Reykjanesvirkjun HS Orku hf. og verður með þessu öll í eigu ríkisins. Kaupverðið er 1.230 milljónir og greiðist að hluta með skuldajöfnun á tæplega 900 milljóna króna skuld við innheimtumann ríkissjóðs. Afgang- urinn, tæpar 300 milljónir, verður greiddur út. Árni Sigfússon, bæjarstjóri

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.