Morgunblaðið - 18.11.2011, Qupperneq 1
F Ö S T U D A G U R 1 8. N Ó V E M B E R 2 0 1 1
Stofnað 1913 271. tölublað 99. árgangur
GEKK VEL Í SLÁTUR-
GERÐINNI EN ILLA Í
SVIÐAÁTINU
SÆÐINGUR,
KELDUSVÍN OG
LÆKJAKRÁKA
KLASSÍSK
TÓNLISTARMENNTUN
OG POPP
FUGLANÖFN 12 NÝR DISKUR TODMOBILE 32UNGI BÓNDI ÁRSINS 10
Lögreglan á Vestfjörðum skilaði
fíkniefnaleitarhundi sínum, Doll-
ar, suður til embættis ríkislög-
reglustjóra fyrir tveimur dögum.
Önundur Jónsson, yfir-
lögregluþjónn á Vest-
fjörðum, staðfestir
þetta. Hann segir ein-
faldlega of dýrt að halda
hundinn. Hann þurfi að
hafa manninn með sér og
fyrir það þurfi að greiða
aukaþóknun, enda mikil
vinna falin í umsjánni.
Önnur embætti á lands-
byggðinni hafa haldið sín-
um hundum og þar eru
nú sjö fíkniefnaleitar-
hundar: í Borgarnesi, á Blöndu-
ósi, Akureyri, Eskifirði, Selfossi,
Suðurnesjum, Vestfjörðum og
Vestmannaeyjum.
Guðmundur Guðjónsson, yfir-
lögregluþjónn hjá ríkislög-
reglustjóra, segir að lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu hafi hætt
með fíkniefnaleitarhunda
fyrir nokkrum árum og sé
í samstarfi við tollgæsl-
una.
Þá sé fíkniefnaleitar-
hundur hjá fangelsinu
á Litla-Hrauni í sam-
starfi við lögregluna.
sigrunrosa@mbl.isFluttur Dollar
hefur verið skilað.
Lögreglan á Vestfjörðum skilaði fíkniefna-
leitarhundinum vegna fjárskorts
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Konur eru farnar að nýta sér athvarf fyrir konur
á leið úr vændi og mansali sem var opnað í
Reykjavík í byrjun september. Þörfin á þessu
úrræði hefur sýnt sig að sögn Steinunnar Gyðu-
og Guðjónsdóttur,
verkefnisstýru at-
hvarfsins. „Athvarf-
ið er komið í fulla
notkun. Konur eru
farnar að koma en
það er mismunandi
hvað þær staldra
lengi við,“ segir
Steinunn. „Við erum
ennþá í starthol-
unum að mörgu
leyti. Eftir að konur
fóru að nýta úrræð-
ið er lítill tími eftir
fyrir annað. Kynn-
ingarvinnan hefur
aðeins setið á hak-
anum en við erum
að vinna að því jafnt
og þétt að koma
upplýsingum um það sem við höfum upp á bjóða
fyrir konur í þessari stöðu til fagaðila og í al-
menna umræðu.“
Konur utan af landi þurfa athvarf
Í athvarfinu geta dvalið sjö konur, allar í sér-
herbergi, og eru nú mörg þeirra skipuð. Stein-
unn segir konurnar sem hafi sótt í athvarfið vera
fjölbreyttan hóp, íslenskar og erlendar, ungar og
eldri. Í athvarfinu hafa ekki eingöngu dvalið kon-
ur tengdar vændi og mansali. „Við höfum líka
farið að nýta athvarfið aðeins fyrir konur sem
koma í viðtöl á Stígamót og þurfa stað til að búa
á. Við höfum tekið inn konur sem búa við ofbeld-
isfullar aðstæður, þar sem þær eru beittar kyn-
ferðisofbeldi. Eins höfum við getað boðið konum
sem búa úti á landi að koma og búa í viku eða
tvær á meðan þær fara í viðtöl hjá Stígamótum.“
Athvarf
í fullri
notkun
Fórnarlömb mansals
Flýja ofbeldi á heimilum
Skjól
» Tvær erlendar
konur, fórnarlömb
mansals, hafa leitað
skjóls í athvarfinu.
» Athvarfið hefur
hlotið nafnið Krist-
ínarhús, til minn-
ingar um konu sem
var Stígamótakonum
mikill innblástur.
» Starfsmenn eru
að mestu í sjálfboða-
vinnu.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í setningarræðu á landsfundi í gær að mik-
il barátta væri framundan „fyrir því að koma núverandi vinstristjórn frá völdum og stefnumálum
okkar sjálfstæðismanna til framkvæmda.“ Hann lagði áherslu á samstöðu og að upphaf baráttunnar
væri á þessum fundi. »4
Morgunblaðið/Ómar
Barátta framundan um að koma
stefnumálum til framkvæmda
Gunnar Gunnarsson rithöfundur
skrifaði langa grein skömmu fyrir
andlát sitt þar sem hann gagnrýndi
Halldór Laxness fyrir að gera lítið
úr sínum hlut við að koma honum á
framfæri. Kemur þetta fram í ævi-
sögu skáldsins sem Jón Yngvi Jó-
hannsson bókmenntafræðingur hef-
ur skrifað.
Fram kemur að Gunnar hafði
mikið álit á Halldóri Laxness sem
listamanni og var illa við að þeir
væru kallaðir keppinautar um vin-
sældir og áhrif. Þó liggur fyrir að
honum sárnaði að fá ekki Nóbels-
verðlaunin þegar þau komu í hlut
Halldórs.
Gunnar lést 1975. Í greininni sem
hann skrifaði árið fyrir andlát sitt,
Gert að gleymni, kemur fram að
honum fannst að Halldór hafi í
Skáldatíma gert heldur lítið úr sín-
um hlut við að koma honum á fram-
færi í Danmörku á sínum tíma. Jón
Yngvi segir að Gunnar hafi lagt á sig
mikla vinnu við að fá danska for-
leggjara til að taka Halldór upp á
sína arma. Þá hafi Halldór ekki sagt
frá því að Gunnar stakk upp á titl-
inum á Sölku Völku. »14
Gagnrýndi nóbelsskáldið
Gunnari Gunnarssyni fannst lítið gert úr sínum hlut
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Skáld Gunnar Gunnarsson hafði
mikið álit á Halldóri Laxness.
Sveitarstjórn Rangárþings eystra,
almannavarnanefnd og fleiri hafa
farið þess á leit við Umhverfis-
stofnun og Siglingastofnun að hætt
verði við að mjókka námaveg á
Hamragarðaheiði.
Vegurinn var lagður 12 til 14
metra breiður vegna efnisflutninga
við gerð Landeyjahafnar. Leyfi fyrir
veginum fékkst með því skilyrði að
hann yrði mjókkaður í sjö metra að
framkvæmdum loknum. »6
Morgunblaðið/RAX
Grjót Vegur að námum á Seljalandsheiði.
Vilja halda námavegi
á Hamragörðum
Forsvarsmenn
Icelandair segj-
ast hafa áhyggj-
ur af því að
Keflavíkur-
flugvöllur ráði
ekki við þá
auknu umferð
um völlinn sem
fyrirséð er í
framtíðinni.
Friðþór Eydal upplýsingafulltrúi
Isavia segir völlinn ráða við umferð
næsta árs en ein lausnin felist í
betri nýtingu. Engin áform séu um
stækkun. »18
Þröngt á þingi á
Keflavíkurflugvelli
Ríkissjóður gæti bætt stöðu sína
verulega, strax á næsta ári, ef við-
skiptabönkum yrði leyft að greiða
út arð, segir Daníel Svavarsson,
forstöðumaður hagdeildar Lands-
bankans, sem bendir á að þrátt
fyrir arðgreiðslur yrði eiginfjár-
staða bankanna enn sterk. Of hátt
eiginfjárhlutfall gæti verið íþyngj-
andi. »15
Arðgreiðslur gætu
bætt stöðu ríkisins