Morgunblaðið - 18.11.2011, Side 2

Morgunblaðið - 18.11.2011, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2011 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Líflegt hefur verið á síldarmiðunum á Breiða- firði síðustu daga og skipin verið fljót að fylla sig. Á myndinni er Hákon EA í hafnarmynninu í Stykkishólmi, rétt fyrir framan Súgandisey, en þetta er fjórða haustið sem síldin gengur svona langt inn í Breiðafjörðinn. Í ár var tvö þúsund tonnum af síld ráðstafað í leigukvóta til minni báta og hafa þeir verið á miðunum með stóru uppsjávarskipunum. Meðan minni bátarnir hafa fengið 1-2 tonn í netin á dag hafa stóru skipin oft fengið 500-1000 tonn í nótina og talsvert verið dælt á milli stóru skipanna. Síðustu daga hafa m.a. Faxi, Börkur, Beitir, Álsey, Júpiter, Ás- grímur Halldórsson, Jóna Eðvalds og Víkingur verið á íslensku sumargotssíldinni, auk Hákons. Mest af aflanum hefur farið í vinnslu til mann- eldis og sést sýkingin í síldinni ekki í flökunum. Kvótinn í ár er samtals 45 þús. tonn. aij@mbl.is Líflegt á síldinni við Súgandisey Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Litlir bátar og stærri skip hafa aflað vel á miðunum í Breiðafirði Skúli Hansen skulih@mbl.is Framtakssjóður Íslands hefur selt starfsemi Ice- landic Group í Bandaríkjunum og tengda innkaupa- og framleiðslustarfsemi í Asíu. Kaupandi var kan- adíska sjávarútvegsfyrirtækið High Liner Foods sem keypti starfsemina á samtals 230 milljónir bandaríkjadollara, jafnvirði um 26,9 milljarða ís- lenskra króna. Greitt var með reiðufé. Á blaðamannafundi í gær kom fram að vöru- merkið „Icelandic Seafood“ verður áfram í eigu Ice- landic Group. Þá hafi verið gerður langtímasamn- ingur á milli Icelandic Group og High Liner Foods um kaup og dreifingu á íslenskum sjávarafurðum á mörkuðum í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó til þess að að tryggja að aðgangur íslenskra framleið- enda að þessum mörkuðum skerðist ekki. High Lin- er Foods mun þó hafa rétt til notkunar á vörumerk- inu á umræddum mörkuðum næstu sjö árin. Á blaðamannafundinum í gær sagði Þorkell Sig- urlaugsson, stjórnarformaður Framtakssjóðsins, að salan styrkti íslenskan sjávarútveg og að staða Icelandic Group væri nú góð. Það hefði á hinn bóg- inn haft slæm áhrif á íslenskan sjávarútveg ef Ice- landic hefði farið í þrot. Framtakssjóðurinn eignaðist Icelandic Group þegar hann keypti Vestia, eignarhaldsfélag Lands- bankans, árið 2010. Sjóðurinn greiddi 19,5 milljarða fyrir Vestia en Landsbankinn eignaðist jafnframt 30% hlut í sjóðnum. Með kaupunum eignast Fram- takssjóðurinn Icelandic, Húsasmiðjuna, Plastprent og Teymi. „Landsbankinn hefði aldrei gert þessi verðmæti úr Icelandic sem Framtakssjóðurinn er að gera,“ sagði Finnbogi Jónsson, framkvæmda- stjóri sjóðsins, á blaðamannafundinum í gær. Fá 26,9 milljarða í reiðufé Selt Finnbogi Jónsson, Þorkell Sigurlaugsson og Herdís Fjeldsted, stjórnarformaður Icelandic.  Framtakssjóður Íslands selur starfsemi Icelandic Group í Bandaríkjunum  Vörumerkið „Icelandic Seafood“ áfram í þeirra eigu  Leigt til sjö ára Skiptum er lokið í þrotabúi fyrir- tækisins Nábítar, böðlar og illir andar ehf. í Hafnarfirði. Fyrirtækið var úrskurðað gjald- þrota með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness 4. júlí í sumar. Lauk skiptunum 25. október sl. Fram kemur í tilkynningu skipta- stjóra í Lögbirtingablaðinu að búið hafi reynst eignalaust. Alls var lýst kröfum að upphæð tæpar 55 milljónir króna. Þar af námu almennar kröfur 54,8 millj- ónum. sisi@mbl.is Nábítarnir eignalausir Icelandic Group er alþjóðlegt fyrirtæki sem hefur starfað í íslenskum sjávarútvegi í hjartnær sjötíu ár. Fyrirtækið hét áður Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna en skipti um nafn árið 2005. Icelandic Group starfar á smásölumarkaði en jafn- framt á markaði fyrir stofn- anir, mötuneyti og veitinga- hús. Með sölunni nú var fisk- réttaverksmiðja Icelandic í Virginíuríki seld ásamt tengdri innkaupa- og fram- leiðslustarfsemi í Asíu. Sjötíu ára fiskisaga ICELANDIC GROUP Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Starfsmönnum Mjólkárvirkjunar tókst í gær að ræsa nýja vatnsvél sem reyndist biluð þegar hefja átti framleiðslu um helgina, eftir stutt hlé. Orsakir bilunar- innar liggja enn ekki fyrir. Vélin var tekin í notkun í Mjólká II í lok september og hafði gengið vel allan októ- bermánuð. Hún var stöðvuð í síðustu viku vegna frágangs á húsnæði. Hún stöðvað- ist hins vegar í miðju ræsingarferli á sunnudagskvöld. Starfsmenn Orkubús Vestfjarða óskuðu eftir því að fá tækni- mann frá framleiðanda vélarinnar til að líta á legur í rafal vegna þess að þeir höfðu orðið varir við olíusmit frá þeim. Vélin er í ábyrgð. Í samráði við framleiðandann var tjakk- ur notaður til að losa festuna og þegar vél- in var ræst á ný eftir hádegið í gær gekk vel að koma henni á fulla ferð. Hún fram- leiðir nú það rafmagn sem ætlast er til. Kom á besta tíma Ekki hefur komið í ljós hvað valdið hef- ur biluninni. Tæknimaður frá framleið- andanum er væntanlegur til að líta á vél- ina. Sölvi Sólbergsson, framkvæmdastjóri orkusviðs Orkubúsins, segir að sérstak- lega vel verði fylgst með vélinni þangað til. Sölvi neitar því ekki að stjórnendum og starfsfólki hafi létt þegar vélin komst aft- ur í gang. Hann segir þó að bilunin hafi komið á besta tíma. „Það er gott veður og lítið álag á raforkukerfinu, engar bilanir annars staðar og nóg orka til í landinu,“ segir hann. Tókst að koma nýju vélinni í Mjólká í gang  Enn hefur ekki tekist að finna orsakir bilunarinnar Mjólká Nýi rafallinn virkar. Ekki stóð til að tendra ljósin á jóla- trénu sem komið var fyrir við Heilsuverndarstöðina í gær, en þar sem fólk dreif að meðan verið var að koma trénu fyrir var ákveðið að standa undir væntingum um ljósin. Þetta er í fyrsta sinn í fimm ár sem jólatré rís á túninu en frá árinu 1954 til ársins 2006 stóð þar reisu- legt jólatré hver jól. Jólaljósin tendruð fyrr en til stóð Mikil sorg ríkir í Fjallabyggð eftir alvarlegt umferðarslys á miðviku- dagskvöld, þar sem þrettán ára stúlka lést og jafnaldra hennar slas- aðist alvarlega en er ekki í lífshættu. Þriðja stúlkan, einnig þrettán ára, fékk að fara heim að lokinni skoðun á Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar. Stúlkurnar, sem voru að koma frá félagsheimilinu á Ólafsfirði, gengu aftur fyrir rútubifreið sem þær voru farþegar í, yfir Langeyrarveg á Siglufirði, þegar þær urðu fyrir bif- reið sem kom úr gagnstæðri átt mið- að við akstursstefnu rútunnar. Ökumaður bílsins var 18 ára pilt- ur. Tildrög slyssins eru til rannsókn- ar hjá rannsóknarlögreglunni á Ak- ureyri. Áfallateymi sýslumannsins á Akureyri fundaði í gær vegna hins hörmulega slyss. Magnús G. Gunn- arsson, sóknarprestur á Dalvík, sat fundinn en öllum sem á þurfa að halda verður veitt áfallahjálp. Hann sagði að margir þyrftu stuðning enda tengdust margir ungu stúlkun- um og piltinum sem ók bílnum. Sóknarpresturinn á Siglufirði hitti skólasystkini stúlknanna í grunn- skólanum í gærmorgun. Fjölmenn bænastund var haldin í Siglufjarð- arkirkju í gærkvöldi. Íbúar á Siglufirði harmi slegnir  Ung stúlka látin og önnur illa slösuð Morgunblaðið/Sigurður Ægisson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.