Morgunblaðið - 18.11.2011, Page 8

Morgunblaðið - 18.11.2011, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2011 Borgarstjórinn hefur það markmiðhelst að losa höfuðborgina við aspirnar. Það er jafnvel talið enn brýnna en að losna við flugvöllinn og er það þó talið eitt allra mesta þjóðþrifa- mál síðari tíma.    Besti flokkurinn ogSamfylkingin eru búin að eyða í það tíu milljónum króna að grafa upp prýðilega fallegar aspir í mið- borg Reykjavíkur til þess eins að þjóna þess- um duttlungum borg- arstjóra.    Og varaformaðurSamfylkingarinnar lætur eins og þetta sé allt saman sjálfsagt mál og að með þessu sé peningum borgarbúa vel varið.    Samhliða þessum kostnaðarsömuskemmdarverkum á trjágróðri borgarinnar vinna þeir félagar Jón og Dagur í því að koma í veg fyrir að dag- heimili borgarinnar verði fullnýtt.    Rökin eru þau að nýting dagvistar-plássanna sé dýr, en hvernig má vera að hægt sé að finna fé til að rífa niður tré sem valda engum nema borgarstjóra vandræðum en ekki til að tryggja næg dagvistarrými í borginni?    Er það svo að besta nýting fjár-muna borgarbúa felist í því að rífa upp trjágróðurinn í borgarland- inu?    Eða getur verið að fjármununumværi betur varið í dagvistar- rými?    Og þá er ekki verið að tala um dag-vistarrýmið í ráðhúsinu. Þar mætti hæglega fækka um eitt rými. Jón Gnarr Kristinsson Fækkum um eitt dagvistarrými STAKSTEINAR Dagur B. Eggertsson Veður víða um heim 17.11., kl. 18.00 Reykjavík 8 rigning Bolungarvík 4 skýjað Akureyri 9 alskýjað Kirkjubæjarkl. 7 rigning Vestmannaeyjar 7 alskýjað Nuuk -1 skýjað Þórshöfn 8 skúrir Ósló -2 léttskýjað Kaupmannahöfn 2 skýjað Stokkhólmur 2 heiðskírt Helsinki 5 skýjað Lúxemborg 3 þoka Brussel 7 léttskýjað Dublin 12 skýjað Glasgow 10 skúrir London 13 léttskýjað París 12 skýjað Amsterdam 5 þoka Hamborg 2 heiðskírt Berlín 0 þoka Vín 0 þoka Moskva 2 súld Algarve 17 heiðskírt Madríd 13 léttskýjað Barcelona 17 léttskýjað Mallorca 17 léttskýjað Róm 15 heiðskírt Aþena 11 skýjað Winnipeg -11 snjóél Montreal 5 skýjað New York 7 alskýjað Chicago -1 léttskýjað Orlando 22 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 18. nóvember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 10:06 16:21 ÍSAFJÖRÐUR 10:32 16:05 SIGLUFJÖRÐUR 10:15 15:47 DJÚPIVOGUR 9:40 15:45 Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is Húsafriðunarnefnd og mennta- og menningarmálaráðuneytið greinir á um með hvaða hætti eigi að túlka lög um húsafriðun. Nefndin tók þá ákvörðun fyrr í þessum mánuði að skyndifriða Skálholtskirkju, Skál- holtsskóla og nánasta umhverfi og koma þannig í veg fyrir að svonefnd Þorláksbúð yrði reist á rústum sem fundist hafa rétt við kirkjuna. Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, sagði í sam- tali við Morgunblaðið í gær að húsa- friðunarnefnd hefði tveggja vikna frest til þess að leggja fram formlega tillögu til ráðherra um að umræddar byggingar verði friðaðar. Hún tæki síðan ákvörðun um það hvort hún samþykkti þá tillögu eftir að frestur- inn rennur út. „Þannig að ég hef í raun ekkert til að taka ákvörðun um fyrr en þá,“ sagði Katrín, en hún heimsótti Skálholt í gær til þess að kynna sér aðstæður á staðnum. Nikulás Úlfar Másson, arkitekt og formaður húsafriðunarnefndar, lítur nokkuð öðruvísi á málið. „Þetta er einhver túlkun sem við höfum aldrei heyrt áður í rauninni,“ segir hann og vísar í lög um húsafriðun þar sem segi að ráðherra ákveði, að fengnum til- lögum húsafriðunarnefndar, hvort friða skuli hús áður en skyndifriðun ljúki en hún vari í tvær vikur frá því að nefndin tilkynni öllum hlutaðeig- andi aðilum um ákvörðun sína. Tillaga um skyndifriðun eigi að duga. Nikulás segir aðspurður að þegar hafi öllum hlutaðeigandi verið til- kynnt um ákvörðunina og tillagan verið send til ráðherra. Hins vegar ætli nefndin að funda í dag í mennta- og menningarmálaráðuneytinu með fulltrúum ráðuneytisins um þessa ólíku túlkun laganna auk þess sem formleg tillaga verði aftur lögð fram til öryggis. Lögin túlkuð á ólíkan hátt  Skiptar skoðanir eru á milli húsafriðunarnefndar og menntamálaráðuneytisins um túlkun laga um húsafriðun Friðun Tölvugerð mynd af Þorláksbúð eins og hún er hugsuð. „Skyndifriðun tekur gildi þegar húsafriðunarnefnd hefur til- kynnt með tryggilegum hætti öllum hlutaðeigandi aðilum, sbr. 7. gr., ákvörðun sína og gildir hún í tvær vikur. Skyndi- friðun þarf ekki að þinglýsa. Meðan á skyndifriðun stend- ur gilda að öðru leyti allar reglur um friðun. Ráðherra ákveður að fengnum tillögum húsafriðunarnefndar hvort friða skuli við- komandi hús áður en skyndifriðun lýkur.“ Úr 8. grein laga br. 104/ 2001 um húsa- friðun. Ákveður innan frests LÖG UM HÚSAFRIÐUN Katrín Jakobsdóttir Andlátsfrétt um Esther Munro í Morgunblaðinu í gær þarf leiðrétt- ingar við. Hið rétta er að foreldrar Estherar bjuggu á Klapparstíg 29. Verslunin sem faðir hennar stofnaði hét Vald Poulsen. Esther starfaði um tíma hjá versluninni Ringelberg. Beðist er velvirðingar á mistök- unum. LEIÐRÉTT TÓNLEIKAR Í LANGHOLTSKIRKJU LAUGARDAGINN 19. NÓV. 2011 KL. 16.00 KIRKJAN ÓMAR ÖLL MIÐASALA: MIDI.IS / HJÁ KÓRFÉLÖGUM / Í SÖNGSKÓLANUM 552 7366 / VIÐ INNGANGINN SÆNSKA SENDIRÁÐIÐ Á ÍSLANDI STYRKIR ÓPERUKÓRINN TIL TÓNLEIKAHALDSINS Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á tæplega 60 grömm af amfetamíni, rúmlega 100 grömm af maríjúana og stera við húsleit í íbúð í fjölbýlishúsi í Árbæ í fyrradag. Tveir karlmenn voru handteknir. Á öðrum þeirra fundust tæplega 40 grömm af amfetamíni og rúmlega 30 grömm af maríjúana. Mikið af fíkniefnum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.