Morgunblaðið - 18.11.2011, Síða 11

Morgunblaðið - 18.11.2011, Síða 11
Lopapeysufeðgar Hermann og sonur hans Þórarinn Karl heilsa hér upp á kálfana í fjósinu sem eru heldur hissa. „Þetta eru tæki sem bændur nota til að létta sér verkin, bæði til að moka undan og gefa hey. Þetta eru litlar gröfur og lyftarar. Fjórða greinin var svo fjárrag, en í henni var liðakeppni. Liðin voru fjögur, eitt frá hverjum landshluta. Þar voru liðin látin skilja tvær ákveðnar kindur úr hópi og reka þær inn í sérstakt hólf, án þess að nota hendur. Okkur norðanliðinu gekk ágætlega þar, þótt við værum ekki efst,“ segir Hermann og bætir við að ungu bændurnir passi vel upp á jafnréttismálin. „Það er skylda í þess- ari keppni að hafa jafnmargar konur og karla.“ Ungir bændur sletta úr klauf- unum á Sauðamessunni Hermann segir að keppnin sé fyrst og fremst til að fá ungu bænd- urna til að hittast og kynnast milli landsfélaga. „Meginmarkmið Sam- taka ungra bænda er að tengja saman þetta fólk sem hefur sameiginlegan áhuga á landbúnaði, og auk þess vinna að hag okkar fyrir greinina.“ Þetta er í þriðja sinn sem keppnin er haldin og hann segir hana vera að sækja í sig veðrið. „Það er fjöldi fólks í þessum samtökum og við stefnum að því að fjölga enn frekar, en það virðist vera mikill áhugi fyrir landbúnaði núna hjá ungu fólki, sem er ánægju- legt,“ segir Hermann, sem er í stjórn ungra bænda á Norðurlandi. „Það er fjölmargt í umræðunni hjá okkur og margir hafa mjög sterk- ar skoðanir á þessum hlutum. Maður finnur það á svona samkomu hvað það er nauðsynlegt að fólk komi sam- an og skemmti sér vel. Það var mikið dansað á Sauðamessunni. Ungir bændur, sem komast lítið frá, nýta þetta tækifæri til að sletta úr klauf- unum og sumir næla sér í maka.“ Nældi í heimasætuna á nágrannabænum Hermann er í sambúð með Ingi- björgu Leifsdóttur og eiga þau sam- an soninn Þórarinn Karl. „Við búum á bænum Klauf í Eyjafjarðarsveit, sem er hennar æskuheimili, og við stund- um búskapinn með tengdaforeldrum mínum. Við erum með 40 kýr, geld- neyti og 13 kindur. Ég er í fjarnámi í búvísindum við háskólann á Hvann- eyri og við sjáum til hvað framtíðin ber í skauti sér. Við erum með korn- rækt og erum með tilraunarækt með repju og fengum fyrstu uppskeruna í haust. Það eru gríðarlegir mögu- leikar í landbúnaði,“ segir Hermann sem er fæddur og uppalinn á bænum Svertingsstöðum, sem er aðeins þrjá kílómetra frá Klauf. Hann leitaði því ekki langt yfir skammt eftir konu sinni. „Ég kom að Klauf sem vinnu- maður fyrir tíu árum og náði í heima- sætuna á bænum fyrir þremur árum, rétt eins og í rómantískri skáldsögu.“ Gæfar Hermann og Þórarinn Karl kíkja á búsældarlegar kindurnar. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2011 Það verður nóg að gera þessa helgina hjá skylminga- köppunum Gunnhildi Garð- arsdóttur, Gunnari Agli Ágústssyni og Hilmari Erni Jónssyni, en þau héldu í gær- morgun á heimsbikarmót í skylmingum ungmenna sem fram fer í Sosnowiec í Pól- landi. Ungmennin þrjú eru á aldr- inum 17 til 19 ára og eru þrátt fyrir ungan aldur öll marg- verðlaunaðir skylmingamenn bæði hérlendis og erlendis. Hér eru bæði Íslandsmeist- arar og Norðurlandameist- arar á ferð. Gunnhildur keppir 19. nóvember í einstaklingskeppni í flokki 20 ára og yngri, en Gunnar Egill og Hilmar Örn þann 20. nóvember í einstaklings- keppni í flokki 20 ára og yngri. Heimsbikarmót í skylmingum Skylmingafólk Gunnhildur Garðarsdóttir (t.v.) og Hilmar Örn Jónsson etja kappi. Þrjú íslensk ungmenni keppa Ígær vaknaði ég, leit á dagatal-ið og hugsaði með mér að þaðværi farið að styttast í jólin,kominn sautjándi nóvember. Ég velti þessu svo sem ekkert mikið meira fyrir mér heldur fór að hafa mig til fyrir vinnuna. Ég klæddi mig, borðaði morgunmat, hellti í mig kaffibolla og rölti af stað út á Hlemm. Ég var ekki kominn langt á leið þegar mig var farið að gruna að ég hefði kannski klætt mig helst til mikið, tók ofan húfuna og vett- lingana, stakk þeim ofan í tösku og hélt áfram göngunni. Þegar um þriðjungur leiðarinnar var að baki var ég aftur farinn að svitna. Hvern- ig má þetta vera, hugsaði ég, það er miður vetur, það á ekki að vera svona heitt. Ég renndi niður úlpunni og hélt áfram göngunni. Mér var orðið jafn heitt í hamsi og mér var orðið á baki þegar ég hugsaði veðrinu þegjandi þörf- ina. Bráðum kemur vondi, vondi stormurinn og nær þér, þú þarna hitabylgja, og ef hann nær þér ekki þá kemur páskahretið og étur þig. Ég var kominn úr úlpunni og hún hékk á töskunni, peysan bundin utan um mittið og gegn- drepa bolurinn þorn- aði í hlýrri golunni. En ég var þó kominn vel rúmlega hálfa leið; ekki nema tvær mínútur eftir. Í þessu rifjuðust upp fyrir mér æskuminningar þegar við krakkarnir söfnuðumst saman og vorum að grafa okkur tuga fermetra snjóhús. Einnig mundi ég eftir því þegar rafmagnið fór trekk í trekk í stórstormunum og bílar fest- ust unnvörpum, týndust jafnvel og sáust ekki aftur fyrr en að vori. Vissulega eru þessar minningar svolítið ýktar en það var þó þannig að þegar ég var yngri voru veturnir mun harðari. Ekki þetta eilífa miðju- moð heldur varð í alvöru kalt og svo var bara kalt og snjór þangað til það varð aftur hlýtt. Þetta var ekkert spurning um hvít eða rauð jól, þetta var spurning hvort við kæmumst yfirhöf- uð í jólaboðið. Eftir þessar hugleiðingar mínar var ég kominn á áfangastað og hugsaði með mér hvort það væri kannski hentugra að not- ast frekar við hitamælinn en dagatalið þegar ég ákvæði hversu vel ég ætti að klæða mig. »Ég var kominn úr úlp-unni og hún hékk á töskunni, peysan bundin ut- an um mittið og gegndrepa bolurinn þornaði í hlýrri gol- unni en ég var þó kominn vel rúmlega hálfa leið; ekki nema tvær mínútur eftir. HeimurHjalta Hjalti St. Kristjánsson hjaltistef@mbl.is G l æ s i b æ | Á l f h e i m u m 7 4 | 1 0 4 R e y k j a v í k | Þ j ó n u s t a á l a n d s b y g g ð i n n i | S í m i 5 6 8 6 8 8 0 | w w w. h e y r n a r t æ k n i . i s Bókaðu tíma í fría heyrnarmælingu í síma 568 6880 og fáðu Intiga til prufu í vikutíma Intiga eru ofurnett heyrnartæki og hönnuð með það fyrir augum að gera aðlögun að notkun heyrnartækja eins auðvelda og hægt er. Hljóðvinnslan er einstaklega mjúk og talmál verður skýrara en þú hefur áður upplifað. Með Intiga verður minna mál að heyra betur í öllum aðstæðum! *Í flokki bak við eyra heyrnartækja sem búa yfir þráðlausri tækni og hljóðstreymingu Heyrnartækni kynnir ... Minnstu heyrnartæki í heimi*

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.