Morgunblaðið - 18.11.2011, Blaðsíða 16
Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2011
KORTIÐ GILDIR TIL
31.01.2012
MOGGAKLÚBBURINN
– MEIRA FYRIR ÁSKRIFENDUR
Allir fastir áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa félagar í Moggaklúbbnum
og njóta ýmissa fríðinda og tilboða.
Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á mbl.is/moggaklubburinn.
Hafðu samband í síma 569 1122 hafi Moggaklúbbskortið ekki borist þér.
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á MBL.IS/ASKRIFT
EÐA Í SÍMA 569 1122
AFSLÁTTUR Á LEIKRITIÐ
„EFTIR LOKIN“ SEM SÝNT
ER Í TJARNARBÍÓI
SuðSuðVestur í samstarfi við Tjarnarbíó sýnir leikritið
„Eftir lokin“ eftir Dennis Kelly. Dennis Kelly er eitt
fremsta nútímaleikskáld Breta. Leikrit hans hafa verið
sýnd víða um heim. Verk hans „Elsku barn“ var t.d.
sýnt við fádæma undirtektir í Borgarleikhúsinu.
Eftir lokin segir frá tveimur einstaklingum, Markúsi og
Lísu, vinnufélögum sem eru innilokuð í sprengjubyrgi
eftir kjarnorkuárás. Samskipti þeirra einkennast af tog-
streitu og spennu, ástandið er eldfimt og spurningin er:
Þau lifðu hörmungarnar af, en lifa þau hvort annað af?
Leikarar: Lilja Nótt Þórarinsdóttir
og Sveinn Ólafur Gunnarsson.
Leikstjóri: Stefán Hallur Stefánsson
Sýningar í boði:
17. nóvember
18. nóvember
25. nóvember
26. nóvember
Sýningin hefst kl. 20:00
Almennt verð á sýningu: 3.200 kr.
MOGGAKLÚBBSVERÐ 2.200 kr.
Miðasala Tjarnarbíós er opin alla virka daga frá kl. 13:00 til 15:00
og klukkutíma fyrir viðburði. Símanúmer 527 2102. Einnig má senda
póst á midasala@tjarnarbio.is
MOGGAKLÚBBUR
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Þúsundir námsmanna efndu til mót-
mæla á götum borga á Ítalíu í gær
eftir að nýr forsætisráðherra lands-
ins, Mario Monti, lýsti áformum sín-
um um aðgerðir til að leysa efna-
hagsvanda landsins og minnka
skuldir ríkisins.
Monti sagði í ræðu á þinginu að
nýja stjórnin hygðist stuðla að hag-
vexti og félagslegu réttlæti með ráð-
stöfunum sem ættu að vega á móti
erfiðum sparnaðaraðgerðum og
skattahækkunum.
Monti sagði að gera þyrfti gagn-
gerar breytingar á lífeyriskerfinu
sem hann sagði „veita ákveðnum
geirum óréttlætanleg forréttindi“.
Hann boðaði ennfremur breytingar
á skattakerfinu og sagði að stjórnin
hygðist gera ráðstafanir til að hvetja
fyrirtæki til að ráða fleiri konur og
ungt fólk.
Monti sagði að stefnt yrði að því
að fjárlagahallanum yrði eytt ekki
síðar en árið 2013. „Framtíð evrunn-
ar ræðst einnig af því sem Ítalía ger-
ir á næstu vikum,“ sagði hann.
Hótar að „taka stjórnina
úr sambandi“
Nýja ríkisstjórnin er skipuð
frammámönnum í viðskiptalífinu og
fleiri sérfræðingum. Nýjar skoðana-
kannanir benda til þess að rúmur
helmingur Ítala styðji stjórnina.
Stóru stjórnmálaflokkarnir á Ítalíu
hafa lýst yfir stuðningi við nýju
stjórnina, að Norðursambandinu
undanskildu.
Hermt er þó að Berlusconi hafi
sagt að hann myndi „taka stjórnina
úr sambandi“ ef fyrstu aðgerðir
hennar dygðu ekki til að binda enda
á umrótið á mörkuðunum.
„Ríkisstjórnir þurfa að vera
kosnar af þjóðinni, einkum á erfiðum
tímum þegar stjórnmálamenn þurfa
að finna lausnir,“ sagði Roberto
Cota, einn forystumanna Norður-
sambandsins, sem átti aðild að ríkis-
stjórn Berlusconis.
Franco Pavoncello, prófessor í
stjórnnmálafræði við John Cabot-
háskóla í Róm, telur þó rangt að
halda því fram að slíkar sérfræð-
ingastjórnir séu ólýðræðislegar.
Hann bendir á að þingið þurfi að lýsa
yfir stuðningi við stjórnina og stjórn-
málaflokkarnir eigi að hafa áhrif á
stefnu hennar.
Reuters
Ólga Lögreglumenn og mótmæl-
endur takast á í Mílanó.
Áformum Montis
mótmælt á götunum
Nýr forsætisráðherra Ítalíu kynnir aðgerðir til að leysa
efnahagsvandann Rúmur helmingur Ítala styður stjórnina
Stjarnvísindamenn í Bandaríkj-
unum hafa fundið bestu vísbend-
inguna til þessa um að mikið magn
af vatni sé að finna undir yfirborði
eins af fylgitunglum Júpíters,
Evrópu.
Rannsóknir vísindamannanna
benda til þess að á yfirborði Evrópu
sé um það bil tíu kílómetra þykk ís-
skorpa og inni í henni séu vötn á
stærð við Vötnin miklu á landamær-
um Bandaríkjanna og Kanada. Vís-
indamennirnir telja að vötnin geti
hugsanlega verið um það bil þrjá
kílómetra undir yfirborðinu. Þeir
telja að vatn seytli upp frá vötnunum
og verði til þess að sprungur mynd-
ist í ísnum þannig að hann hrynji. Að
sögn fréttavefjar The Telegraph er
talið að aðstæðurnar í ísskorpunni
séu svipaðar og undir jöklum sem
liggja yfir virkum eldstöðvum á Ís-
landi.
Evrópa er fjórða stærsta tungl
Júpíters, stærstu reikistjörnu sól-
kerfisins. Vísindamenn hafa lengi
talið að risastórt haf, um 160 kíló-
metra djúpt, kunni að vera um það
bil 10-30 kílómetra undir ísskorp-
unni.
Talin geta flutt
næringarefni
Rannsókn vísindamannanna
bendir til þess að vötnin séu nógu
nálægt yfirborði Evrópu til að vatn-
ið, sem seytlar upp frá þeim, geti
flutt næringarefni milli vatnanna og
yfirborðsins.
Fréttavefur BBC hefur eftir vís-
indamanninum Britney Schmidt,
sem stjórnaði rannsókninni, að þetta
auki líkurnar á því að lífverur geti
þrifist á fylgitunglinu.
Skýrt er frá rannsóknunum í vís-
indatímaritinu Nature. bogi@mbl.is
Fundu vísbendingu um
stór vötn á tungli Júpíters
Talin liggja nógu grunnt til að lífverur geti þrifist
Reuters
Vötn Teikning listamanns af hugs-
anlegum vötnum undir ísnum á einu
tungla Júpíters, Evrópu.
Til átaka kom milli mótmælenda og lögreglumanna
þegar um þúsund manns söfnuðust saman á Wall Street
í New York í gær til að mótmæla efnahagslegri mis-
skiptingu. Lögreglan handtók tugi mótmælenda. „Wall
Street er lokuð!“ hrópuðu mótmælendur þegar þeir
reyndu að loka innganginum í kauphöllina í New York.
Til ryskinga kom milli þeirra og manna sem reyndu að
komast inn í bygginguna.
Reuters
Tugir manna handteknir á Wall Street