Morgunblaðið - 18.11.2011, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2011
gott að vita af því að þegar hún fór
þá var hún umkringd ástvinum og
vil ég þakka starfsfólki Markar
kærlega fyrir þjónustulund þeirra.
Það er gífurlega sárt að missa þig,
elsku amma mín, og þakka þér fyr-
ir öll árin.
Kristinn Friðberg
Einarsson.
Takk fyrir allar samverustund-
irnar, elsku systir. Minning þín lif-
ir í hjörtum okkar.
Mér tregt er um orð til að þakka þér,
hvað þú hefur alla tíð verið mér.
Í munann fram myndir streyma.
Hver einasta minning er björt og blíð,
og bros þitt mun fylgja mér alla tíð,
unz hittumst við aftur heima.
(Hugrún.)
Með ástarþökk ertu kvödd í hinsta sinni
hér
og hlýhug allra vannstu er fengu að
kynnast þér.
Þín blessuð minning vakir og býr í vina-
hjörtum
á brautir okkar stráðir þú, yl og geislum
björtum.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Þínar systur,
Kristín og Áslaug.
Nú er komið að kveðjustund
okkar elskulegu móðursystur sem
ávallt hefur verið stór hluti af okk-
ar lífi.
Í okkar augum var Vigga
frænka eins og höfðingi ættarinn-
ar, full af fróðleik og visku. Hún
fræddi okkur um sögu ættarinnar
og lagði mikið upp úr því að kenna
okkur að tala rétt íslenskt mál, sem
hún var dugleg að leiðbeina okkur
unga fólkinu í og vildi að við héld-
um uppi. Hún kenndi okkur mikið
af ljóðum og vísum, og var hún afar
ánægð að heyra þegar við nýttum
okkur þá þekkingu.
Vigga var afar tignarleg og
glæsileg kona og laðaði að sér
jafnt unga sem aldna enda glaðleg
og skemmtileg. Hún var kjarna-
kona, mikil jafnréttis- og kvenrétt-
indakona. Í okkar augum var hún
einstök perla sem lifði lífinu lifandi
með kærleik og gleði sem hún um-
vafði alla sem á vegi hennar urðu.
Hún var fyrirmynd okkar, afar
hjartahlý og bar mikla virðingu
fyrir börnum sem hún setti ávallt í
fyrsta sæti.
Samband hennar við systur sín-
ar, Stínu og Áslaugu, var alveg
einstakt. Það ríkti mikill kærleikur
á milli þeirra og voru þær alltaf
svo hjálpsamar hver í garð ann-
arrar. Eru okkur svo minnisstæð-
ar allar stórveislur þar sem syst-
urnar hjálpuðust að við að slá upp
dýrindis veisluborðum. Og ekki
má gleyma Viggukökunum góðu
sem allir elska.
Við eigum svo margar góðar
minningar um þig, elsku Vigga
frænka, sumarbústaðaferðirnar
við Hafravatn, Drápuhlíðina og
Fornastekk þar sem við áttum
yndislegar stundir.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka
hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Vertu sæl og blessuð, elsku
Vigga, og hafðu þökk fyrir allan
þinn kærleika til okkar. Minning
þín lifir.
Þínar frænkur,
Guðrún og Elvur.
Fleiri minningargreinar
um Vigdísi Einarsdóttur bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
Núna hefur hann pabbi fengið
hvíldina og ég veit að Kristinn
bróðir og amma og afi hafa tekið
vel á móti honum. Hvíldu í friði,
elsku pabbi minn, og ég mun
sakna þín.
Þín dóttir,
Líney.
Það voru þung spor að fylgja
föður mínum eftir í erfiðum veik-
indum hans síðastliðna tvo mán-
uði en samt óendanlega dýrmæt-
ur tími. Á góðum degi gátum við
litið yfir farinn veg með honum.
Pabbi var ákaflega stoltur af
okkur systkinunum, mökum okk-
ar og öllum barnabörnunum, stór
og fallegur hópur. Hann hafði
mestar áhyggjur af mömmu og
bað okkur hvert og eitt aftur og
aftur um að passa vel upp á hana
og vera henni innan handar í
framtíðinni. Pabbi var vinnusam-
ur maður og kappsfullur. Þegar
hann tók að sér nýtt verkefni átti
það hug hans allan þar til því var
lokið. Þær voru ófáar stundirnar
sem hann kom til okkar í Króka-
mýrina til að hjálpa okkur við
byggingu á framtíðarheimili okk-
ar og handverk hans munu fylgja
okkur.
Faðir minn kvaddi sáttur.
Hann kvaðst hafa átt mjög gott
líf þrátt fyrir erfið áföll. Hann
var stoltur af okkur öllum og lét
það óspart í ljós síðustu vikurnar.
Megi ljúfar minnningar veita
okkur öllum huggun og styrk.
Valgerður og
fjölskylda.
Sveinn tengdapabbi minn er
látinn eftir erfið veikindi. Allt of
fljótt er góður maður genginn á
vit feðranna. Ég hélt að ég væri
að hitta Svein í fyrsta skipti þeg-
ar ég kom á heimili þeirra hjóna
snemma árs 1993, þá nýlega búin
að kynnast syni þeirra, Gunnari.
En annað kom á daginn. Ég
kannaðist eitthvað svo við mann-
inn og fattaði löngu seinna að
hann og vinnufélagi hans til
margra ára komu reglulega við í
Fossnesti á Selfossi, þar sem ég
vann á árum áður; voru þeir fé-
lagarnir alltaf kallaðir Manns-
arnir en það voru Svenni og
Mannsi. Ég tók strax eftir því
hvað mér fannst þeir feðgar,
Sveinn og Gunnar, líkir í útliti og
hefur það oft verið sagt við
Gunnar minn nú á seinni árum
hvað hann sé að líkjast pabba
sínum meir og meir og er ekki
leiðum að líkjast. Ég kom í fjöl-
skylduna með heilmikinn
„pakka“, fráskilin með 3 börn, en
börnunum mínum var tekið opn-
um örmum af þeim hjónum báð-
um sem og fjölskyldunni allri.
Sveinn vann allan sinn starfs-
aldur við smíðar og var lengst af
verktaki hjá Landsvirkjun. Var
hann vel liðinn af öllum sem unnu
með honum og höfðu kynnst hon-
um. Þeir eru ófáir hér á svæðinu
sem þekktu Svein og bera honum
allir vel söguna. Sveinn var ólat-
ur við að aðstoða börnin sín þeg-
ar þess þurfti, smíðaði og lagaði
fyrir þau öll hvort sem það voru
húsgögn eða húsnæðið sjálft
enda með eindæmum handlaginn
maður. Þegar dóttir okkar Gunn-
ars, Guðfinna Rós, var lítil hafði
ég á orði við Svein hvort hann
gæti ekki smíðað smáskýli á eina
hliðina á sandkassanum hennar,
hann kvaðst ætla að skoða það.
Einn daginn birtist hann svo með
þennan líka flotta kofa sem hann
hafði smíðað, það var sko ekkert
skýli heldur kofi með gluggum og
hurð, borði og bekkjum inni og
meira að segja gardínuköppum.
Þannig var Sveinn, ef hann var
beðinn um eitthvað var ekki ver-
ið að kasta til höndunum. Sum-
arbústað sem þau hjón eignuðust
fyrir nokkrum árum tók hann all-
an í gegn og er mikill sómi að
þeim lagfæringum. Sveinn var
maður sem aldrei gat setið auð-
um höndum og þurfti helst að
vita af mörgum verkefnum fram-
undan. Með þessum fátæklegu
orðum kveð ég tengdaföður
minn.
Drottinn, gefðu látnum ró en
hinum líkn er lifa.
I. Eva Arnardóttir.
Smáauglýsingar
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Nauðungarsölur til slita á sameign
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Langahlíð / Árgerði 148662, einb. 01-0101 (214-8588) Akureyri, þingl.
eig. Helga Adolfsdóttir, Sigurlaug Anna Adólfsdóttir og Rosenberg
ehf. Gerðarþolar Helga Adólfsdóttir og Rosenberg ehf., gerðarbeið-
andi Sigurlaug Anna Adólfsdóttir, miðvikudaginn 23. nóvember 2011
kl. 13:10.
Óseyri 21, verbúð 01-0102 (215-0102) Akureyri, þingl. eig. Helga
Adolfsdóttir, Sigurlaug Anna Adólfsdóttir og Rosenberg ehf. Gerðar-
þolar Helga Adólfsdóttir og Rosenberg ehf., gerðarbeiðandi Sigurlaug
Anna Adólfsdóttir, miðvikudaginn 23. nóvember 2011 kl. 13:30.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
17. nóvember 2011.
Halla Einarsdóttir, ftr.
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Álmholt 15, 208-2566, Mosfellsbæ, þingl. eig. Kristófer Eiríkur Árna-
son og Sandra Ólafsdóttir, gerðarbeiðandi Vátryggingafélag Íslands
hf., þriðjudaginn 22. nóvember 2011 kl. 10:00.
Árvellir 125871, 208-5689, Reykjavík, þingl. eig. þb. HK húseignir ehf.,
gerðarbeiðandi Vátryggingafélag Íslands hf., þriðjudaginn 22. nóv-
ember 2011 kl. 11:30.
Esjugrund 72, 225-8407, 50% ehl., Reykjavík, þingl. eig. Anna Rósa
Guðmundsdóttir, gerðarbeiðandi Reykjavíkurborg, þriðjudaginn 22.
nóvember 2011 kl. 11:00.
Sóleyjarimi 17, 227-6137, Reykjavík, þingl. eig. Axel Þór Guðmunds-
son, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., þriðjudaginn 22. nóvember 2011
kl. 14:30.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
17. nóvember 2011.
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Kaldbaksgata 6, geymsluhús 07-0101 (214-8075) Akureyri, þingl. eig.
þb. RA eignir ehf., gerðarbeiðandi Skjaldborg kröfuhafafélag 5 ehf.,
miðvikudaginn 23. nóvember 2011 kl. 10:45.
Kaldbaksgata 6, iðnaðarhús 02-0101 (214-8071) Akureyri, þingl. eig.
þb. RA eignir ehf., gerðarbeiðandi Skjaldborg kröfuhafafélag 5 ehf.,
miðvikudaginn 23. nóvember 2011 kl. 10:30.
Kaldbaksgata 6, iðnaðarhús 05-0101 (214-8073) Akureyri, þingl. eig.
þb. RA eignir ehf., gerðarbeiðandi Skjaldborg kröfuhafafélag 5 ehf.,
miðvikudaginn 23. nóvember 2011 kl. 10:35.
Kaldbaksgata 6, iðnaðarhús 08-0101 (214-8076) Akureyri, þingl. eig.
þb. RA eignir ehf., gerðarbeiðandi Skjaldborg kröfuhafafélag 5 ehf.,
miðvikudaginn 23. nóvember 2011 kl. 10:50.
Kaldbaksgata 6, iðnaðarhús 09-0101 (214-8077) Akureyri, þingl. eig.
þb. RA eignir ehf., gerðarbeiðandi Skjaldborg kröfuhafafélag 5 ehf.,
miðvikudaginn 23. nóvember 2011 kl. 10:55.
Kaldbaksgata 6, iðnaðarhús 12-0101 (214-8080) Akureyri, þingl. eig.
þb. RA eignir ehf., gerðarbeiðandi Skjaldborg kröfuhafafélag 5 ehf.,
miðvikudaginn 23. nóvember 2011 kl. 11:05.
Kaldbaksgata 6, trésmíðaverkstæði 10-0101 (214-8078) Akureyri, þingl.
eig. þb. RA eignir ehf., gerðarbeiðandi Skjaldborg kröfuhafafélag 5
ehf., miðvikudaginn 23. nóvember 2011 kl. 11:00.
Kaldbaksgata 6, vörugeymsla 06-0101 (214-8074) Akureyri, þingl. eig.
þb. RA eignir ehf., gerðarbeiðandi Skjaldborg kröfuhafafélag 5 ehf.,
miðvikudaginn 23. nóvember 2011 kl. 10:40.
Kaldbaksgata 8, iðnaðarhús 01-0101 (214-8081) Akureyri, þingl. eig.
þb. RA eignir ehf., gerðarbeiðandi Skjaldborg kröfuhafafélag 5 ehf.,
miðvikudaginn 23. nóvember 2011 kl. 11:10.
Skarðshlíð 11, íb. B 02-0101 (215-0252) Akureyri, þingl. eig. Dagný
Möller Friðbjörnsdóttir og Pétur Birgisson, gerðarbeiðandiTrygginga-
miðstöðin hf., miðvikudaginn 23. nóvember 2011 kl. 13:00.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
17. nóvember 2011.
Halla Einarsdóttir, ftr.
Uppboð
www.naudungarsolur.is
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Blikaás 15, 0201, (224-5675), Hafnarfirði, þingl. eig. Ásgeir Helgi Ás-
geirsson og Eva Lind Ágústsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður,
miðvikudaginn 23. nóvember 2011 kl. 11:00.
Blikanes 22, 0001, (224-6827), Garðabæ, þingl. eig. Kristjón Bene-
diktsson, gerðarbeiðendur Garðabær og NBI hf., fimmtudaginn 24.
nóvember 2011 kl. 11:00.
Blikanes 22, 0101, (206-9370), Garðabæ, þingl. eig. Kristjón Benedikts-
son, gerðarbeiðendur Garðabær og NBI hf., fimmtudaginn 24.
nóvember 2011 kl. 11:00.
Brattakinn 14, 0101, (204-3710) Hafnarfirði, þingl. eigandi Mosalind
ehf. Gerðarbeiðendur Vátryggingafélag Íslands, Kaupthing Mortages
Fund, Hafnarfjarðarbær og Íslandsbanki hf. miðvikudaginn 23.
nóvember kl. 11:30.
Einivellir 7, 0103, (228-0530), Hafnarfirði, þingl. eig. Karen Magnús-
dóttir, gerðarbeiðendur Einivellir 7, húsfélag, Hafnarfjarðarbær og Vá-
tryggingafélag Íslands hf, miðvikudaginn 23. nóvember 2011 kl. 10:00.
Eskivellir 3, 0202, (227-7774), Hafnarfirði, þingl. eig. Örn Jónsson,
gerðarbeiðendur Hafnarfjarðarbær, Íbúðalánasjóður ogTrygginga-
miðstöðin hf., miðvikudaginn 23. nóvember 2011 kl. 10:30.
Frjóakur 5, (231-1008), Garðabæ, þingl. eig. Iðnmeistarinn ehf., gerð-
arbeiðendur Garðabær, NBI hf. og Sjóvá-Almennar tryggingar hf.,
fimmtudaginn 24. nóvember 2011 kl. 10:30.
Holtsbúð 19, 0101, (207-0517), Garðabæ, þingl. eig. Edda Hrund Hall-
dórsdóttir, gerðarbeiðandi Garðabær, fimmtudaginn 24. nóvember
2011 kl. 10:00.
N-Eyvindarstaðir-íbúð, (199381), Álftanesi, þingl. eig. Kirkjubrú-
Íbúðasvæði ehf., gerðarbeiðendur Landsbankinn hf. og Sveitarfélagið
Álftanes, fimmtudaginn 24. nóvember 2011 kl. 14:00.
Suðurgata 17, 0202, (207-9698), Hafnarfirði, þingl. eig. Ólafur Ólafs-
son, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 23. nóvember
2011 kl. 12:00.
Suðurgata 18, 0101, (207-9699), Hafnarfirði, þingl. eig. Prentsmiðja
Hafnarfjarðar ehf., gerðarbeiðandi Hafnarfjarðarbær, miðvikudaginn
23. nóvember 2011 kl. 12:15.
Túngata 6, (208-1794), Álftanesi, þingl. eig. Vilborg Gunnarsdóttir,
gerðarbeiðendur Sveitarfélagið Álftanes og Sýslumaðurinn í Hafnar-
firði, fimmtudaginn 24. nóvember 2011 kl. 14:30.
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði,
17. nóvember 2011.
Félagslíf
Kaffi Amen, föstudagur
kl. 21
Lifandi tónlist. Allir velkomnir.
Samkoma sunnudag kl. 20
Erna Varðardóttir talar.
Heimilasamband mánudag
kl. 15
Konur koma saman til að eiga
ánægjulega stund með Guði.
Söngstund og morgunbæn -
alla daga kl. 10.30.
Nytjamarkaður á Eyjarslóð 7
og fatabúð í Garðastræti 6,
opin alla virka daga kl. 13-18.
I.O.O.F. 12 19211188½ E.T.II
Sumarhús
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Tómstundir
Jólagjöf golfarans
Putt-leikur á skrifstofuna.
Verð 8.900 kr.
www.pingpong.is
Suðurlandsbraut 10 (2. h.),
Sími 568 3920/897 1715.
Fáðu þér módel fyrir
helgina. Tilboð á
plastmódelum, málningu,
lími og penslum á
föstudögum og laugar-
dögum
Tómstundahúsið,
Nethyl 2, sími 587 0600.
www.tomstundahusid.is
Finnið okkur á facebook.
Dýrahald
Fallegur hvolpur (tík) gefins
10 vikna gömul. Róleg og ákveðin.
Mamman hreinræktuð íslensk og
pabbinn blandaður scheffer og
golden. Fæst á gott framtíðarheimili.
Upplýsingar í 698-7353.
Frábært poolborð frá RILEY 6 fet
Með rennum. Kúlur – kjuðar –
þríhyrningur – krít fylgir með.
Verð kr. 76.400.
www.billiard.is
Suðurlandsbraut 10 (2. h.),
108 Reykjavík, s. 568 3920.
Eigum poolkjuða í úrvali
Frábær verð.
www.billiard.is
Suðurlandsbraut 10 (2. h.),
s. 568 3920 / 897 1715.
- nýr auglýsingamiðill
569-1100
finnur@mbl.is