Morgunblaðið - 25.11.2011, Blaðsíða 34
34 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2011
Sudoku
Frumstig
7 3 9 5
1 9 4 8
8 5 6
7 3 1
3 5 4
8 6
4 3 9
5 9
4
4 2
5 1 7
9 1
2 6 4 5
9 6
1 9
5 4 9 3
3 7 5 4
7 2
2 4 9 5
9 3 7
8 4 6
5 4 2
8 3 2 6
7 5 4 9 3
3 7
2 6 5 3 1 9 8 7 4
4 9 1 5 8 7 3 2 6
7 3 8 2 4 6 9 1 5
5 7 2 6 3 1 4 9 8
9 1 6 4 2 8 7 5 3
3 8 4 9 7 5 2 6 1
1 5 3 7 9 4 6 8 2
6 2 7 8 5 3 1 4 9
8 4 9 1 6 2 5 3 7
8 2 4 6 1 3 7 5 9
7 3 1 9 5 8 6 4 2
5 9 6 7 4 2 1 3 8
9 4 8 1 3 6 5 2 7
3 6 7 2 9 5 4 8 1
2 1 5 8 7 4 9 6 3
4 5 9 3 8 7 2 1 6
1 8 2 4 6 9 3 7 5
6 7 3 5 2 1 8 9 4
7 5 2 6 1 9 8 3 4
1 8 4 3 2 5 7 9 6
6 9 3 7 4 8 1 2 5
2 3 5 1 8 7 6 4 9
9 1 7 4 3 6 2 5 8
8 4 6 9 5 2 3 7 1
5 2 1 8 9 3 4 6 7
4 7 9 2 6 1 5 8 3
3 6 8 5 7 4 9 1 2
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er föstudagur 25. nóvember,
329. dagur ársins 2011
Orð dagsins: Enginn er þinn líki, Drott-
inn! Mikill ert þú og mikið er nafn þitt
sakir máttar þíns. (Jeramía 10, 6.)
Skagfirðingar hafa orð á sér fyrirað vera jákvæðir, lífsglaðir og
skemmtilegir og bókin Skagfirskar
skemmtisögur, sem Björn Jóhann
Björnsson hefur tekið saman, dreg-
ur ekki úr því góða orðspori.
x x x
Víkverji er ekki Skagfirðingur enhann hefur reynt að temja sér
háttalag þeirra. Honum þykir t.d.
matur góður og á sumt sameiginlegt
með Bjarna Maronssyni, sem sagt
er frá í bókinni.
„Þegar Bjarni Maronsson hóf
störf hjá Landgræðslunni við gróð-
ureftirlit hafði hann aðsetur á Hól-
um í Hjaltadal. Sátu þeir oft saman í
matsalnum í hádeginu, Bjarni og
Gunnar Rögnvaldsson. Bjarni er af
gamla skólanum og ekki mjög nýj-
ungagjarn þegar kemur að mat.
Einn daginn bar svo við að ráðskon-
urnar buðu upp á dýrindis lasagna.
Gunnar fékk sér vel á diskinn og
settist hjá Bjarna. Tók hann þá eftir
því að Bjarni var einungis með eina
smurða brauðsneið á sínum diski.
„Hvað er þetta, Bjarni, ætlarðu ekki
að fá þér lasagna?“ spurði Gunnar í
forundran. Bjarni horfði á hrúguna á
diski Gunnars, ræskti sig ofurlítið og
svaraði: „Ómögulega, þakka þér fyr-
ir, ég er búinn að verka svo oft upp
eftir hundinn.“
x x x
Álftagerðisbræður eru sannirSkagfirðingar og gleðigjafar.
Nokkrar sögur eru um þá í bókinni,
sem Víkverji mælir með fyrir þá sem
vilja njóta lífsins, minnugur þess að
hláturinn lengir lífið.
„Álftagerðisbræður eru í fullu
fjöri en komnir vel yfir miðjan aldur.
Löngum hafa þeir verið aufúsugestir
á elliheimilum og eitt sinn voru þeir
að syngja á Hlíð á Akureyri. Að
loknu síðasta laginu urðu þeir að
hraða sér út til að komast á næsta
tónleikastað í tæka tíð. Sá þá starfs-
stúlka, sem var nýliði á Hlíð og hafði
ekki verið viðstödd sönginn, til
þeirra hraða sér út um aðaldyrnar
og síðastur í röðinni var elsti bróð-
irinn, Sigfús. Greip hún létt í öxlina á
honum og spurði: „Hvert ert þú nú
að fara góurinn?““ víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 gramur, 8 vísan, 9
mannsbragð, 10 sjávardýr,
11 hreinan, 13 rugga, 15
skæld, 18 jurt, 21 kraftur, 22
ekki djúp, 23 stétt, 24 órök-
stutt.
Lóðrétt | 2 huglaus, 3 út, 4
lýkur, 5 ótti, 6 viðauki, 7
vaxa, 12 umfram, 14 snák,
15 dúkur, 16 skakka, 17
rannsaka, 18 skjögra, 19
púkans, 20 slæmt.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 kímni, 4 þófta, 7 kíkja, 8 ólíft, 9 nár, 11 ræða, 13 gata,
14 skóli, 15 brek, 17 Lofn, 20 kal, 22 tukta, 23 ætlar, 24 rýran,
25 aðför.
Lóðrétt: 1 kíkir, 2 mokað, 3 iðan, 4 þjór, 5 flíka, 6 aftra, 10
ámóta, 12 ask, 13 gil, 15 bútur, 16 eykur, 18 orlof, 19 nárar, 20
kaun, 21 læða.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Svarti Pétur. V-AV.
Norður
♠54
♥ÁG54
♦D6
♣DG643
Vestur Austur
♠Á7 ♠9
♥1083 ♥KD72
♦K1098753 ♦G4
♣7 ♣ÁK10985
Suður
♠KDG108632
♥96
♦Á2
♣2
Suður spilar 6♠ doblaða.
Bas Drijver sat uppi með Svarta
Pétur og gat engum nema sjálfum sér
um kennt. Vestur og norður sögðu
pass, austur opnaði á Standard-laufi og
Drijver stökk í 4♠ á áttlitinn. Allt í
góðu lagi með það, en sögnum var ekki
lokið.
Þetta var í úrslitaleik Ítala og Hol-
lendinga um Evrópubikarinn. Í vestur
var Guido Ferraro, sem gjarnan er
dreginn á flot sem „fimmti maður“ í
minni mótum til að hvíla Duboin. Trúr
þeim ítalska sagnaranda að nota helst
ekki hindranir passaði Ferraro í byrj-
un og aftur við 4♠. En þegar Antonio
Sementa í austur doblaði til úttektar
hafði Ferraro haldið nógu lengi í sér og
stökk í 6♦. Nú hefðu allir átt að segja
pass, en Drijver treysti þeim bláu allt-
of vel og „fórnaði“ einhliða í 6♠. Og
uppskar Svarta Pétur.
25. nóvember 1940
Breska herstjórnin á Íslandi
lýsti allt hafsvæðið milli
Vestfjarða og Grænlands
hættusvæði. Gjöfulum fiski-
miðum var þá lokað fyrir
sjómönnum þar til hættu-
svæðið var minnkað í janúar
1941.
25. nóvember 1961
Sundlaug Vesturbæjar í
Reykjavík var vígð. Hún var
talin vegleg og vönduð og
standast samanburð við slík
mannvirki erlendis. „Steyptu
sér fyrst fjórar stúlkur út í
til sunds en síðan fjórir pilt-
ar,“ sagði Morgunblaðið.
25. nóvember 1966
Bókin Landið þitt eftir Þor-
stein Jósepsson kom út í
fyrsta sinn. Hún hefur selst í
tugþúsundum eintaka.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
„Ég starfa enn af fullum krafti og finnst ég ekkert
vera orðinn gamall,“ sagði Jón Sæmundur Sig-
urjónsson, sérfræðingur í velferðarráðuneytinu
og fyrrverandi alþingismaður, sem er sjötugur í
dag. Hann ætlar að fagna afmælinu með fjölskyldu
sinni en hefur nú þegar haldið upp á afmælið að
nokkru leyti.
„Ég bjó 16 ár í Þýskalandi og vinir mínir þar
buðu mér út og héldu mér veislu. Við hjónin fórum
þar um og drógum andann djúpt í fortíðarþránni,“
sagði Jón Sæmundur. Hann bjó bæði í Bonn og
Köln á sínum tíma en það voru vinir hans í Bonn
sem buðu honum út. „Við vorum saman í knattspyrnufélagi,“ sagði
Jón Sæmundur. Þeir fóru ekki í fótbolta að þessu sinni enda orðnir dá-
lítið stirðir. Hann sagðist vera minntur á knattspyrnuárin þegar hann
gengi niður fjöll – þá létu hnén vita af sér.
Jón Sæmundur starfar í velferðarráðuneytinu að sérstöku verkefni.
„Ísland er eina ríkið á Norðurlöndum sem er enn með þá gamaldags
reglu að menn eigi að hætta að vinna sjötugir. Í hinum löndunum þyk-
ir aldur ekki vera ástæða til uppsagnar. Um 1% notar sér það að vinna
áfram, aðrir flýta sér á eftirlaun,“ sagði Jón Sæmundur. gudni@mbl.is
Jón Sæmundur Sigurjónsson er 70 ára í dag
Starfar enn af fullum krafti
Hlutavelta
Hannes Snævar Sigmundsson,
Birgir Orri Ásgrímsson, Geirfinn-
ur Brynjar Brynjarsson, Hafdís
Jóna Kolbrúnardóttir, Örn Þór-
arinsson, Óskar Þórarinsson,
Haukur Eldjárn Kristjánsson og
Agnes Inga Kristjánsdóttir héldu
tombólu í hverfinu sínu á Ak-
ureyri. Þau söfnuðu 4.636 kr. sem
þau færðu Rauða krossinum. Á
myndinni eru Hannes, Birgir og
Kári vinur þeirra.
Flóðogfjara
25. nóvember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 5.55 4,4 12.14 0,2 18.15 4,1 10.28 16.03
Ísafjörður 1.44 0,1 7.54 2,4 14.21 0,1 20.09 2,2 10.58 15.42
Siglufjörður 3.51 0,1 10.04 1,4 16.18 -0,1 22.42 1,2 10.42 15.24
Djúpivogur 3.02 2,4 9.22 0,2 15.20 2,0 21.25 0,2 10.03 15.26
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Nærðu sköpunargáfuna með því að
gefa henni rými til að anda. Mundu að seinna
kann þig að vanta svör við einhverju svo
taktu spyrjendunum vel.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þér líður eins og þú gætir ekki tapað –
jafnvel þótt þú reyndir. Einbeittu þér að fram-
haldinu þannig að allt takist.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Einhver missir stjórn á sér vegna
vanlíðunar eða of mikillar vinnu eða áhyggna.
En málið er að þú einn veist hvað er rétt í
stöðunni. Gefðu þér því nægan tíma.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Til er fólk sem alltaf hefur skoðanir
sem sjaldnast koma þér að gagni á þinni veg-
ferð. Gefðu sjálfum þér frí frá því að pæla í
hvað aðrir eru að gera.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Nú ert það þú sem átt að taka frum-
kvæðið og laða svo aðra til samstarfs við þig.
Það er gott að hafa áætlun í bakhöndinni.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Einbeittu þér að því sem þú ert að
fást við og leyfðu engum að trufla þig á með-
an. Meyja skilar sínu.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það getur enginn beðið um meira en að
þú gerir þitt besta. Viljirðu sjálfur njóta sann-
mælis ættu aðrir að njóta þess líka.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Það er gott að vita hvert stefnt
er og þú átt hrós skilið fyrir að hafa gefið þér
tíma til þess að hugleiða þau mál. Börn eru
einkar einlæg og samband við þau er gef-
andi.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Reyndu að komast að niðurstöðu
varðandi skiptingu eigna og ábyrgðar. Láttu
samt ekki á neinu bera því viðkomandi þarf á
öllum þínum stuðningi að halda.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Draumar gefa þér hugmyndir en
vekja einnig hjá þér þrá. Hlutirnir ganga vel
og fólk hugsar jákvætt um þig.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Það er einhver feluleikur í gangi –
enginn segir þér hvar tækifærin liggja. Ef þú
missir ekki sjónar á heiðarleikanum muntu
sigrast á erfiðleikunum.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Notaðu daginn til þess að gera lang-
tímaáætlanir tengdar útgáfu eða menntun í
dag. Vertu þakklátur og mundu að sönn vin-
átta snýst um það að gefa og þiggja.
Stjörnuspá
Hjónin Ingibjörg Hafliðadóttir og
Sævar Brynjólfsson eiga fimmtíu
ára brúðkaupsafmæli í dag, 25.
nóvember, á afmælisdegi Ingi-
bjargar. Þau ætla að fagna þessum
tímamótum í faðmi fjölskyldunnar.
Gullbrúðkaup
Eiríkur Ell-
ertsson rafverk-
taki er áttræður í
dag, 25. nóv-
ember. Eiríkur
og eiginkona
hans Ólafía Lár-
usdóttir taka á
móti gestum á
heimili sínu, Sæviðarsundi 8, frá kl.
15 í dag og fram eftir kvöldi.
80 ára
1. Rf3 d5 2. g3 c5 3. Bg2 Rc6 4. O-O e5
5. d3 Rf6 6. Rbd2 Be7 7. e4 O-O 8. exd5
Rxd5 9. Rc4 f6 10. a4 Rdb4 11. De2
Bg4 12. c3 Dxd3 13. Dxd3 Rxd3 14. Re3
Be6 15. Hd1 Had8 16. Bf1 e4 17. Bxd3
exd3 18. Re1 c4 19. a5 Re5 20. f4 Rg4
21. R1g2 Bc5 22. h3
Staðan kom upp í Evrópukeppni
taflfélaga sem lauk fyrir nokkru í Ro-
gaska Slatina í Slóveníu. Hin áttræða
goðsögn, Viktor Kortsnoj (2556), hafði
svart gegn Jochen Bruch (2190). 22…
d2! 23. Bxd2 Hxd2 24. Hxd2 Rxe3 25.
Kh2 Rxg2 26. Kxg2 Hc8 svartur er nú
með unnið tafl. 27. Had1 Be7 28. g4 g6
29. Kg3 Kf7 30. He2 Hc6 31. Hed2 Ha6
32. Ha1 Bd6 33. Kf3 Bc7 34. Hd4 f5 35.
gxf5 gxf5 36. h4 Bxa5 37. Hdd1 h5 38.
Ha3 Bc7 39. Hxa6 bxa6 40. Hd2 a5 og
svartur innbyrti vinninginn nokkru
síðar.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.