Morgunblaðið - 25.11.2011, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 25.11.2011, Qupperneq 35
DAGBÓK 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2011 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand SÓLIN, VINDURINN RIGNINGIN HEFURÐU FARIÐ ÚT ÚR HÚSI NÝLEGA? ÞETTA ERU ALLT ÁHUGAVERÐAR KENNINGAR ÉG SKIL EKKI AF HVERJU ÞÉR LÍKAR EKKI VIÐ MIG ÉG ER MEÐ FALLEGT HÁR, FALLEGT BROS, LJÚFT YFIRBRAGÐ OG HJARTA MITT ER FULLT AF ÁST EF ÉG LEGG ALLA ÞESSA KOSTI SAMAN ÞÁ FÆ ÉG ÚT FREKAR AÐLAÐANDI STELPU KANNSKI LAGÐIRÐU VITLAUST SAMAN GERIR ÞÚ VIÐ LEKA? JÁ, EN... ...ÞAÐ GÆTI SAMT BORGAÐ SIG AÐ KAUPA NÝJAN BÁT JÓNA, ÞÚ ERT FRÁBÆR STELPA EN ÉG HELD AÐ ÉG RÁÐI BARA EKKI VIÐ ÞAÐ AÐ VERA MEÐ FLUGFREYJU ÞANNIG AÐ ÞÚ ÆTLAR AÐ FARA FRÁ MÉR? ÉG ER HRÆDDUR UM ÞAÐ ÞÁ ÞAÐ... BLESS, BLESS, TAKK FYRIR AÐ FLJÚGA MEÐ OKKUR, BLESS, BLESS, FARÐU VARLEGA NIÐUR TRÖPPURNAR, TAKK FYRIR, BLESS, BLESS... KLARA FANN NÝTT SLAGORÐ FYRIR OKKUR JÁ? HVAÐ ER ÞAÐ? HVAÐ FINNST ÞÉR? „ÞEGAR HLUTIR ÞURFA AÐ KOMAST TIL SKILA”... HONUM FINNST ÞAÐ VERA FRÁBÆRT UM... FRÁIR Á FÆTI: ÞEGAR HLUTIR ÞURFA AÐ KOMAST TIL SKILA! ÉG TRÚI ÞVÍ VARLA AÐ TONY STARK SÉ UM BORÐ Í ÞESSARI VÉL HANN ER NÚ BARA ENN EIN OFURHETJAN M.J. ...MUNURINN ER BARA AÐ HANN HEFUR OPINBERAÐ HVER HANN ER HVERSDAGSLEGA PENINGAR...FRÆGÐ...GOTT ÚTLIT...OFURKRAFTAR... HANN HEFUR ALLT! EN ÉG Á ÞIG ÁSTIN MÍN SVO ÉG ER RÍKARI EN HANN Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9, bingó kl. 13.30. Árskógar 4 | Smíði/útskurður kl. 9. Stó- ladans kl. 10.30. Bingó kl. 13.30. Bólstaðarhlíð 43 | Kerti, söngstund með Sigrúnu Erlu kl. 13, Soffíuhópur með ljóðalestur og kynningu á lífsferli Theó- dóru Thoroddsen kl. 13.45. Bólstaðarhlíð 43 | Jólafagnaður fim. 8. des. kl. 18. Jólahugvekja sr. Pálmi Matt- híasson. Tónlistartríó leikur og syngur jólalög. Jólasaga. Jólahlaðborð frá Lárúsi Loftssyni. Skráning í s. 535-2760 f. mán. 5. des. Dalbraut 18-20 | Stóladans kl. 10.30, söngstund kl. 14. Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8. Lestur úr dagblöðum kl. 10, 2. hæð. Listamaður mánaðarins. Félag eldri borgara í Kópavogi | Gleði- gjafarnir í Gullsmára 13 syngja fös. 23. nóv. kl. 14. Sturla Guðbjarnason stjórnar og Guðni, Sigurður og Gunnlaugur spila undir á harmonikku. Félag eldri borgara, Reykjavík | Leik- félagið Snúður og Snælda æfing kl. 10. Dansleikur sun. kl. 20, Klassík leikur fyrir dansi. Félagsheimilið Gjábakki | Málm- og silfursmíði kl. 9.30/13, jóga kl. 10.50, fé- lagsvist kl. 20. Á morgun, 26. nóv., verð- ur laufabrauðsgerð og handverksmark- aður kl. 13, Karlakór Kópavogs syngur kl. 14, Samkórinn kl. 15 og skólahljómsv. flytur aðventulög kl. 16.15, súkkulaði með rjóma á boðstólum. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefn- aður kl. 9, jóga kl. 9.30, ganga kl. 10. Leikfimi kl. 10.30, Gleðigjafarnir kl. 14. Félagsstarf eldri bæjarbúa Seltjarn- arnesi | Kaffispjall í krók kl. 10.30. Jóga kl. 11. Spilað í krók kl. 13.30. Söngur kl. 14. Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur kl. 9. Prjónakaffi kl. 10, gestur Sigurður I. Jóhannsson alþingismaður. Kl. 10.30 stafganga og létt ganga. Hljómsveitin Hjónabandið kl. 11. Frá hád. spilasalur op- inn. Gerðubergskór fer kl. 13 í heimsón í Múlabæ, Seljahlíð og dagskrá í Mjódd. Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9, sölu- sýning á glermunum Huldu kl. 13. Hraunsel | Leikfimi Bjarkarhúsi kl. 11.30, brids kl. 13. Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 9/10. Vinnustofa kl. 9 án leiðbeinanda. Bingó kl. 13.30, kaffisala í hléi. Hæðargarður 31 | Við Hringborðið kl. 8.50. Thaichi kl. 9. Myndlist kl. 13. Gáfu- mannakaffi kl. 15. Hæðargarðsbíó kl. 16. ATH. Nýtum gömlu jólakortin og gerum ný næstu þrjá miðvikudaga, skráning stendur yfir. Sjá www.facebook.com/ haedargardur. Íþróttafélagið Glóð | Í Kópavogsskóla opið hús í línudansi kl. 14.40. Zumba- byrjendur kl. 16. Norðurbrún 1 | Myndlist/útskurður kl. 9. Bingó kl. 14. Vesturgata 7 | Setustofa kl. 9, enska kl. 10.15, tölvukennsla byrj. kl. 12.30, tölvu- kennsla framh kl. 14.10, sungið v/flygil kl. 13.30. Dansað í aðalsal kl. 14.30. Vitatorg, félagsmiðstöð | Jóla- og að- ventufagnaður fös. 2. des. kl. 18, jóla- hlaðborð og skemmtiatriði. Veislustjóri Ingibjörg Ólafsdóttir óperusöngkona. Uppl. og skráning í s. 4119450. Smiðja kl. 8.30, leirmótun og handav. kl. 9, morg- unstund kl. 9.30, leikfimi kl. 10.15, bingó kl. 13.30. Þórðarsveigur 3 | Bingó kl. 13.30. Ef tilsvar Guðrúnar „Þeim varég verst“ er þekktasta og rómantískasta svar Íslandssög- unnar, þá er svar Ólafar ríku „Eigi skal gráta Björn bónda“ númer tvö og mjög praktískt í daglegu lífi þegar menn þurfa að herða sig upp,“ skrifar Ólafur Stefánsson í hugleiðingum sem birtast í Vísna- horninu. „Ólöf Loftsdóttir hins ríka var mikill skörungur og það kom ekki síst í ljós þegar enskir voru búnir að drepa mann hennar Björn hirð- stjóra, en Englendingar óðu hér uppi á fimmtándu öld sérstaklega og stunduðu fiskveiðar og fisk- kaup. Þeir stálu líka fiski frá kóng- inum og var það heldur illa liðið af hans hágöfgi sem alltaf var í aura- hraki. Þegar Ólöf var orðin ekkja hélt hún sig ekki síður að höfðingja sið, stóð í stórdeilum um jarðeignir og erfðahluta og hélt hirðskáld, lík- lega ein kvenna, en það var Svart- ur Þórðarson kenndur við Hofstaði. Hann var gott skáld, gerði t.d. Skaufhalabálk, þar sem ljóðmæl- andinn er Refur í eiginlegri merk- ingu. Sem sagt gamall rebbi sem lýsir lífi sínu fram á dauðastund. Það ætti að gefa Skaufhalabálk út sem barnabók fyrir jólin og vel myndskreytta. Skíðaríma er einnig eftir hann og er vel kveðið frásagn- arkvæði. Um Ólöfu orti Svartur t.d. Lof- mansöng, og tók svo brímaheitt á hendingunum að húsfreyju þótti nóg um. „Ekki meir, Svartur,“ sagði hún þá, ekkjan. Var það ekki Fornólfur sem fann þarna yrkisefni, og er í þessi vísa? Nú eru slokknir allir eldar ellin hrukkar bleika kinn, líður að vetri, kólnar, kveldar, kveddu ei fleira Svartur minn.“ Sigurður Sigurðarson kastar fram jólavísu, en nýútkomin er ævi- saga hans, Sigurður dýralæknir: Veiti jól um veröld enn von og trú og gleði og breyti þeim í betri menn, sem breyskir eru í geði. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af Guðrúnu og Ólöfu ríku Dans dans dans Flott hæfileikakeppni er nú í gangi á RÚV. Þar kemur ungt hæfi- leikaríkt fólk og dans- ar okkur til skemmt- unar. Frábært að hafa hæfileikakeppni sem nær til allra fjöl- skyldumeðlima. Síð- asta laugardag settist ég niður og horfði á keppnina. Bein út- sending gerir kröfur til þeirra sem stjórna og við vitum að það er ekki hægt að klippa og yfirfara. Oft reynum við að vera fyndin og það án þess að gera okkur grein fyrir hvað við erum að segja. Það gerðist einmitt í síð- asta þætti. Ung, hæfileikarík stúlka hafði dansað og komið var að um- sögnum. Dómarar töldu að hún hefði ekki verið nógu lifandi í sínum flutn- ingi og semsagt ekki náð að sleppa af sér beislinu. Þá dettur út úr Ragnhildi Steinunni þáttastjórnanda að hún hefði átt að reykja eina jónu áður. Eina jónu? Heyrði ég rétt? Jú ég hafði heyrt rétt. Eiturlyf eru eitthvert mesta böl sem hægt er að hugsa sér og eyði- leggja líf fjölda ung- menna. Hugsum áður en við tölum. Sveinbjörg Björnsdóttir. Vinstri-kvartettinn Það hefði verið meira jafnrétti ef Egill hefði boðið Vigdísi Hauksdóttur frekar en Jóni Kaldal í Silfrið hinn 20.11. sl. þar sem fjórir vinstrimenn rifust við eina hægrikonu. Matta. Velvakandi Ást er… … að hafa eitthvað betra að gera en að horfa á rigninguna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.