Morgunblaðið - 25.11.2011, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 25.11.2011, Blaðsíða 16
FRÉTTASKÝRING Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Forsvarsmenn atvinnulífsins eru afar ósáttir við áform stjórnvalda um hækkun kolefnisgjalds af jarðefna- eldsneyti og upptöku gjalds af jarð- efnum í föstu formi, m.a. rafskautum í stóriðju. Telja þeir að um tvísköttun sé að ræða, auk þess sem skattlagn- ingin sé brot á fjárfestingarsamning- um og samkomulagi sem fjármálaráð- herra og iðnaðarráðherra gerðu við SA og stóriðjufyrirtækin í desember árið 2009. Þessu hafnar talsmaður fjármálaráðuneytisins alfarið, en nán- ari viðbrögð fengust ekki í gær. Ríkissjóður gerir ráð fyrir að fá 800 milljónir króna í viðbótartekjur árið 2012 af hækkun kolefnisgjalds á jarð- efnaeldsneyti. Í dag er kolefnisgjaldið 75% af verði losunarheimilda á svo- nefndum viðskiptamarkaði Evrópu- sambandsins, ETS, með losunar- heimildir, en í frumvarpi fjármála- ráðherra um ráðstafanir í ríkis- fjármálum, bandorminum svokallaða, er lagt til að kolefnisgjaldið fari í 100% af viðmiðunarverði. Á þessu ári býst ráðuneytið við því að gjaldið skili um 1,6 milljörðum kr. í ríkissjóð. Það er varlega áætlað ef miðað er t.d. við upplýsingar frá LÍU, sem gerir ráð fyrir að fiskiskipaflotinn sé að greiða um 1,1 milljarð í ár vegna gjaldsins og það muni fara í rúma 1,4 milljarða á næsta ári. Er þá ótalið gjald sem fyr- irtæki í iðnaði og samgöngum þurfa að greiða, t.d. flugfélögin, en þær fjár- hæðir skipta hundruðum milljóna. En fjármálaráðherra hyggst ná í frekari tekjur af kolefnisgjaldi og þar telur atvinnulífið að um tvísköttun sé að ræða. Nær sú gjaldlagning m.a. til stóriðjufyrirtækja frá 1. janúar 2013 sem atvinnulífið telur hvergi annars staðar tíðkast. Frá ársbyrjun 2013 fara stóriðjufyrirtæki undir ETS-við- skiptakerfið með losunarheimildir og í því kerfi er almennt ekki gert ráð fyrir skattlagningu á kolefnisgjaldi. „Breikka gjaldstofninn“ Í bandorminum er talað um að „breikka gjaldstofninn“ frá ársbyrjun 2012 þannig að hann nái einnig til los- unar kolefnis af jarðefnauppruna í föstu formi. Þannig mun gjaldið ná til brennslu kola og koks og einnig til rafskauta og skyldra vara úr kolefni af jarðefnauppruna. Í frumvarpinu segir að fjárhæð gjaldsins sé reiknuð með sama hætti og gert hefur verið með fljótandi jarðefnaeldsneyti. Mið- að er við að skattlagning kolefna í föstu formi verði 50% af viðmiðunar- verði losunarheimilda árið 2013 en hækki síðan í 75% árið 2014 og 100% á árunum 2014 og 2015. Er miðað við að verð á losunarheimildum sé 8 kr. fyrir hvert kíló kolefnis. Með 50% af því, eða 4 kr. á hvert kíló, telur ríkissjóður að 1,5 milljarða króna viðbótartekjur fáist árið 2013. Þessi tekjuáætlun ríkisins er einnig varfærin ef miðað er við tölur sem koma frá Samtökum álframleiðenda. Þau hafa reiknað út að samanlagt muni greiðslur Alcoa, Norðuráls, Rio Tinto Alcan í Straumsvík og Elkem á Grundartanga vegna kolefnisgjalds- ins fara úr 0 kr. á næsta ári í 1.830 milljónir kr. árið 2013. Er þá ekki miðað við endurgreiðslur vegna ETS- viðskiptakerfisins með losunarheim- ildir. (Sjá töflu.) Samtökin telja þess- ar tölur mjög varlega áætlaðar og geti vel orðið tvöfalt hærri fyrsta árið sem þessi lög taka gildi. „Ekki frekari skattar“ Sem fyrr segir telja talsmenn at- vinnulífsins að kolefnisgjaldið sé brot á fjárfestingarsamningum og sam- komulagi sem gert var í desember 2009. Með samkomulaginu, sem gilda átti út árið 2012, var m.a. reiknað með að stóriðjufyrirtækin greiddu fyrir- fram tekjuskatta fyrir tímabilið 2013- 2018 til að létta undir með ríkissjóði. Einnig var talað um kolefnisgjald vegna fljótandi eldsneytis en það myndi falla niður í árslok 2012, þegar Ísland gerðist væntanlega aðlili að ETS-kerfinu með losunarheimildir. „Markmiðið er að slík skattheimta feli almennt ekki í sér lakari starfsskil- yrði fyrir fyrirtæki sem reka starf- semi sína hér á landi samanborið við önnur Evrópuríki og erlenda sam- keppnisaðila á sama markaði,“ sagði m.a. í samkomulaginu. Í bréfi sem Steingrímur J. Sigfús- son fjármálaráðherra ritaði forstjóra Rio Tinto-Alcan í Straumsvík í ágúst árið 2010 segir m.a. að ekki séu uppi áform um annað en að virða ákvæði fyrrnefnds samkomulags. „Það felur í sér að ekki verða lagðir frekari skatt- ar á stórnotendur raforku sem slíka á gildistíma samkomulagsins. Ekki eru heldur uppi af hálfu ráðuneytisins önnur áform um sértækar skatt- breytingar sem tengjast myndu stór- iðjufyrirtækjum einum saman þannig að raskað gæti forsendum fjárfest- inga þeirra,“ segir Steingrímur m.a. í bréfinu. Morgunblaðið/Samsett mynd Karpað um kolefnisgjald  Kolefnisgjald fær atvinnulífið til að reyta hár sitt  Gjaldinu ætlað að skila millj- örðum í ríkissjóð  Ráðherra hét engum frekari sérsköttum á stóriðjufyrirtækin Kolefnisgjald á stóriðjufyrirtækin án greiðslna vegna ETS-viðskiptakerfis með losunarheimildir 1200 1000 800 600 400 200 0 2013 2014 2015 Samtals: 1.830 Heimild: Samtök álframleiðenda 2.745 3.660 Alcoa-Fjarðaál Norðurál RioTinto-Alcan Straumsvík Elkem Grundartanga Tölur eru í milljónum króna. 600 900 1.200 475 715 950 325 485 650 430 645 860 16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2011 „Þessi tvískatt- lagning tíðkast hvergi. Þar að auki er Evrópu- sambandið að endurskoða reglugerð sína sem snýr að sam- ræmdri skatt- lagningu á orku- gjafa. Þar er beinlínis lagt blátt bann við svona tvískattlagn- ingu, og segir skýrum stöfum í drög- um að þeirri reglugerð, að slík skatt- lagning þjóni engum umhverfis- legum tilgangi. Hún dragi ekki úr losun og sé aðeins til þess fallin að auka kostnað fyrirtækjanna við los- un og auka hættuna á því að fyrir- tæki í svonefndum kolefnislekaiðn- aði fari eitthvað annað,“ segir Þorsteinn Víglundsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka álframleið- enda, um kolefnisgjald á stóriðjufyr- irtækin. Hann segir skattlagninguna einnig skýrt brot á fjárfestingar- samningi stóriðjufyrirtækjanna. „Það er í okkar huga langalvarleg- asti hlutur málsins þegar ekki er hægt að treysta því að stjórnvöld standi við fjárfestingarsamninga. Þá er áhætta fyrir erlenda fjárfesta orðin verulega mikil. Svona samn- ingar eru gerðir til að stjórnvöld komi ekki í bakið á mönnum á seinni stigum, þegar þeir eru búnir að koma sér fyrir og hefja starfsemi, og skattpíni þá til helvítis.“ Tvísköttun sem tíðkast hvergi  Gjaldið brot á fjár- festingarsamningum Þorsteinn Víglundsson Samtök iðnaðarins sendu frá sér ályktun í gær þar sem áformum stjórnvalda um kolefnisgjaldið er harðlega mótmælt. Fjárfestingar- áform margra fyrirtækja séu sett í uppnám og tilverugrunni starfandi fyrirtækja ógnað. Í húfi séu þús- undir starfa um allt land. „Kolefn- isskattur brýtur gróflega í bága við fjárfestingasamninga margra fyrirtækja og verði af áformunum eru miklar líkur á að stjórnvöld séu bótaskyld. Komi til slíkra mála- ferla dregur það enn frekar undan trúverðugleika íslenskra stjórn- valda,“ segir m.a. á ályktuninni. Stjórnvöld bótaskyld? Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra segir ekki standa til að tvískatta stóriðjufyrirtækin og horfa þurfi til þess að þau verði aðilar að við- skiptakerfi ESB með losunarheim- ildir árið 2013. Segist Katrín vera sannfærð um að það náist farsæl niðurstaða um kolefnisgjaldið. „Það eru breytingatímar núna vegna þess að við erum að fara inn í viðskiptakerfi Evrópusambandsins og ég tel að þarna höfum við farið aðeins fram úr okkur, það sem er verið að skattleggja í þessum efnum í föstum kolefnum úti í Evrópu er á almenna notkun, ekki þá aðila sem falla undir viðskiptakerfið,“ segir Katrín og bætir við að engin áform eða núverandi fyrirtæki verði skatt- lögð hér á landi með þessum hætti. Atvinnuveganefnd Alþingis ræddi kolefnisgjaldið á fundi sínum í gær og fékk m.a. fulltrúa iðnfyrirtækja á fundinn til að ræða áhrif gjaldsins á kísiliðnaðinn. Að sögn Jóns Gunn- arssonar, þingmanns Sjálfstæðis- flokksins og eins nefndarmanna, kom fram að ekkert yrði af fyr- irhuguðum verkefnum kísilfyrir- tækja á Norðurlandi og Suðurnesj- um næðu áform stjórnvalda um hækkun kolefnisgjalds fram að ganga. Jón sagði að menn hefðu velt því fyrir sér á fundinum hvort um væri að ræða einhvern misskilning hjá fjármálaráðuneytinu í nálgun sinni í málinu. Sjálfur taldi Jón að svo væri ekki. Ef raunverulega væri um að ræða misskilning af hálfu fjármála- ráðherra þá væri hann ekki starfi sínu vaxinn og ætti að láta af emb- ætti. Jón sagði það hafa komið fram hjá fyrirtækjunum að þetta mál væri gríðarlega alvarlegt. „Þeir segja í fyrsta lagi að þá verði ekkert af þessum verkefnum sem eru í pípunum ef þessu [kolefn- isgjaldinu] verður haldið til streitu,“ sagði Jón. skulih@mbl.is „Þarna höfum við farið aðeins fram úr okkur“  Iðnaðarráðherra segir tvísköttun ekki standa fyrir dyrum Morgunblaðið/Eggert Ráðherrar Katrín Júlíusdóttir ásamt Svandísi Svavarsdóttur. Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? Hitablásarar Reykjavík - Reykjanesbæ Akureyri - Húsavík Vestmannaeyjum Rafmagnshita- blásari 2Kw 1 fasa 6.590 Rafmagnshita- blásari 3Kw 1 fasa 7.990 Rafmagnshita- blásari 5Kw 3 fasa 11.990 Rafmagnshita- blásari 2Kw 1.999 Kapalkefli 10 mtr 2.990 15 metra rafmagnssnúra 2.995Kapalkefli 15 mtr 4.290 M ar ga rg er ði r Kolefnisgjald Atvinnugreinar eins og útgerðin, iðnfyrirtæki, samgöngufyrirtæki og stóriðjan munu á næstu árum greiða stórar fjárhæðir í kolefnisgjald.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.