Morgunblaðið - 25.11.2011, Blaðsíða 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2011
Hljómsveitin Todmobilehefur sent frá sér plöt-una 7 sem er einmitt sjö-unda hljóðversplata
sveitarinnar. Þá er þetta jafnframt
fyrsta platan frá árinu 2006 sem
Todmobile sendir frá sér þar sem
eingöngu er að finna nýtt frumsamið
efni.
Það er óþarfi að hafa mörg orð um
Todmobile sem hefur verið ein vin-
sælasta hljómsveit landsins um ára-
bil, en það fer að nálgast aldarfjórð-
ung frá því hljómsveitin var stofnuð
árið 1988.
Þau Þorvaldur
Bjarni Þorvalds-
son, Andrea
Gylfadóttir og
Eyþór Arnalds
hafa verið kjarn-
inn í sveitinni frá
upphafi, eða þar til nú. Á 7 er Eyþór
Arnalds fjarri góðu gamni en nafni
hans, söngvarinn Eyþór Ingi Gunn-
laugsson, hefur gengið til liðs við
þau Andreu og Þorvald Bjarna.
Kalla gárunganir nýja liðsmanninn
Eyþór „yngri“, en það vill svo
skemmtilega til að hann fæddist árið
1989 sem er sama ár og fyrsta plata
Todmobile kom út.
Líkt og Andrea, sem er fyrir
löngu búin að sýna sig og sanna, er
Eyþór Ingi kraftmikill söngvari og á
plötunni sýnir hann oft mikla takta,
sem minna um margt á sígildar
rokkhetjur. Í laginu „Alla leið“ sér
maður Eyþór Inga nánast fyrir sér á
fjallstoppi með vindinn í fangið að
kallast á við náttúruöflin. Slík er
dramatíkin og er af nægu að taka.
Alls eru 12 lög á skífunni og sem-
ur Þorvaldur Bjarni 11 þeirra en
Andrea eitt. Hún sér jafnframt um
textasmíði. Það sem einkennir 7 er
mikill söngleikja- og jafnvel Evr-
óvisjónbragur, en á þeim vettvangi
er Þorvaldur Bjarni reyndar öllum
hnútum kunnugur. Nefna má lög á
borð við „Hafmey“, „Svo margt í
mörgu“ og „Ég er bara ég“ sem
dæmi.
Todmobile-poppslagarar eru að
sjálfsögðu á sínum stað, t.d. upp-
hafslagið „Sjúklegt sjóv“, „Hér og
nú“ og „Draumar og dægurlög“.
Besta lagið á plötunni að mati und-
irritaðs er hins vegar hið draum-
kennda og dulúðuga „Gleym mér ei“.
Mér er til efs að hljómsveitinni
hafi leiðst við upptökur á 7 en það er
mikil orka í Todmobile og liðsmenn-
irnir allir í fantaformi. Sem fyrr
plokkar Eiður Arnarsson bassann,
Kjartan Valdemarsson leikur á
hljómborð og þeir Ólafur Hólm og
Benedikt Brynleifsson sjá um slag-
verk og trommur. Fagmennskan er í
fyrirrúmi hvað varðar allan hljóð-
færaleik og þá hefur Eyþór Ingi án
efa komið inn í sveitina sem ferskur
blær.
Þegar maður hlustar á 7 verður
maður áþreifanlega var við áhrif úr
ýmsum áttum. Til dæmis frá Queen,
Muse og ýmsum proggrokksveitum
sjöunda og áttunda áratugarins. Er
nánast öllu hellt í blandarann í mini-
rokkóperunni „Ég veit og ég sé“.
Þetta á þó til að verða fulltilgerð-
arlegt á köflum og lagasmíðarnar
eru misáhugaverðar.
Platan ætti hins vegar að hitta
unnendur Todmobile beint í hjarta-
stað og ég trúi ekki öðru en að
hljómsveitin eigi eftir að standa fyrir
mörgum „sjúkum sjóvum“ þar sem
tónlistin mun njóta sín til fulls.
Sjöunda „sjóv“ Todmobile
Geisladiskur
Todmobile – 7 bbbnn
JÓN PÉTUR
JÓNSSON
TÓNLIST
Ljósmynd/Ingólfur Bjargmundsson
7 Andrea og Eyþór Ingi á tónleikum Todmobile í Eldborg, 18. nóvember sl.
Ein af skemmtilegustu –nei, bestu – plötum síð-asta árs var hiklaust No-Lo-Fi með Nolo, plata
sem virtist falla af himnum ofan.
Ekki bara að maður vissi ekkert
hvaða drengir þetta væru sem
stæðu að sveitinni heldur kom tón-
listin sjálf líkt og þruma úr heið-
skíru lofti, eða kannski öllu heldur
eins og einhver dularfull sending úr
geimnum; torkennilegar seg-
ulbylgjur frá áður ókannaðri reiki-
stjörnu. Tónlistin
var svo yndislega
furðuleg, svo ein-
angruð frá öllu
því sem var að
gerast þá í ís-
lenskri tónlist.
Við nánari skoð-
un kom svo í ljós að dúettinn var
búinn að dæla efni linnulítið inn á
gogoyoko-vefinn, tugum laga. Þetta
hispursleysi, saman með dásamlegu
þekkingarleysi á því sem má og
ekki má í bransanum er styrkur
Nolo og til allrar hamingju sáu
Kimamenn að best væri að koma
tónlistinni út sem víðast en No-Lo-
Fi kom út á snilldarmerkinu Braki
sem er undirútgáfa Kima.
En eigum við að gera tilraun til
að lýsa því sem er í gangi hér? Jú,
þetta er einhvers konar skrítipopp,
eigum við að segja lágfitlandi (e.
„lo-fi“) einlægir svefnherberg-
issálmar? Ef það ætti að finna ein-
hvern samanburð erlendis frá væri
það helst Ariel Pink en Nolo er á
svipaðri fegurðarlínu hvað hljóm og
frágang varðar. Sem sagt, lög sem
eru skökk, skæld og hljóma „illa“ –
miðað við það sem almennt er talið
gott – hljóma þvert á móti vel.
Þetta heilnæma skeytingarleysi
gagnvart viðteknum fegurð-
arstöðlum í popptónlist er styrkur
Nolo, það sem byggir undir gald-
urinn. Á þann veg hugsa sannir
snillingar/sannir brautryðjendur og
uppskera jafnan lof og last í sama
mæli.
Þannig rúlla lögin fjórtán áfram
samkvæmt fyrirfram skilgreindum
lögmálum Nolo-heimsins sem er
ekki fyrir okkur dauðlega að rýna í.
Ódýr trommuheili, bjagaður (nánast
bjánalegur) gítarleikur og skemmti-
legur samsöngur piltanna sem dú-
ettinn skipa hjálpast að við að búa
til algerlega einstakan hljóðheim.
Og hér er meira að segja útvarps-
slagari, „Beautiful Way“. Hafið
þökk fyrir áræðið, strákar, í tónlist-
inni er nefnilega allt hægt.
Jörð kallar …
Geisladiskur
Nolo – Nology
bbbbn
ARNAR EGGERT
THORODDSEN
TÓNLIST
Nolobræður Ívar og Jón.
á allaBÍÓ 750 kr. sýningar merktar með appelsínugulur
SEEKING JUSTICE kl. 8 - 10:20 2D 16
HAPPY FEET 2 Íslenskt tal kl. 3 - 5:30 3D L
HAPPY FEET 2 Íslenskt tal kl. 3 2D L
HAPPY FEET 2 Enskt tal/ótextuð kl. 5:30 3D L
TWILIGHT: BREAKING DAWN kl. 5:30 - 8 - 10:30 2D 12
TWILIGHT: BREAKING DAWN kl. 8 - 10:30 2D VIP
TOWER HEIST kl. 3:20 - 5:40 - 8 - 10:20 2D 12
THE INBETWEENERS kl. 5:50 - 8 - 10:45 2D 16
THE HELP kl. 5 - 8 - 10:10 2D L
FOOTLOOSE kl. 3 2D L
ALGJÖR SVEPPI kl. 3 2D L
SEEKING JUSTICE kl. 8 - 10:30 2D 16
HAPPY FEET 2 Íslenskt tal kl. 5:30 3D L
HAPPY FEET 2 Íslenskt tal kl. 5:30 2D L
TWILIGHT: BREAKING DAWN kl. 5:30 - 8 - 10:40 2D 12
THE IDES OF MARCH kl. 8 - 10:20 2D 14
THE INBETWEENERS kl. 8:20 - 10:30 2D 16
THE HELP kl. 5:30 2D L
SEEKING JUSTICE kl. 10:20 2D 16
HAPPY FEET 2 Íslenskt tal kl. 5:50 3D L
TWILIGHT: BREAKING DAWN kl. 8 2D 12
THE IDES OF MARCH kl. 10:10 2D 14
THE INBETWEENERS kl. 8 2D 16
ALGJÖR SVEPPI kl. 6 2D L
/ AKUREYRI
SEEKING JUSTICE kl. 10:20 2D 16
HAPPY FEET 2 Íslenskt tal kl. 6 3D L
TWILIGHT: BREAKING DAWN kl. 8 2D 12
THE IDES OF MARCH kl. 8 2D 14
THE INBETWEENERS kl. 10:20 2D 16
THE SKIN I LIVE IN kl. 6 2D 16
HAPPY FEET 2 Íslenskt tal kl. 5:30 3D L
TWILIGHT: BREAKING DAWN kl. 8 - 10:30 2D 12
THE INBETWEENERS kl. 10:20 2D 16
THREE MUSKETEERS kl. 5:40 - 8 2D 12
/ KEFLAVÍK
/ SELFOSSI
/ KRINGLUNNI
/ EGILSHÖLL
/ ÁLFABAKKA
HAPPY FEET 2 Íslenskt tal kl. 3 - 5:30 3D L
HAPPY FEET 2 Enskt tal/ótextuð kl. 8 3D L
TWILIGHT: BREAKING DAWN kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 2D 12
THE IDES OF MARCH kl. 10:20 2D 14
THE INBETWEENERS kl. 10:40 2D 16
THE HELP kl. 5:10 - 8 2D L
BANGSÍMON Ísl. tal kl. 3:40 2D L
VIP
TÖFRANDI FJÖLSKYLDUSTUND
FRÁ DISNEY
SVIKRÁÐ
100/100
PHILADELPHIA
INQUIRER
91/100
ENTERTAINMENT
WEEKLY
„MÖGNUÐ OG VEL
GERÐ MYND“
-H.V.A. - FBL
HHHH
-ENTERTAINMENT
WEEKLY
HHHH
ÍSLENSK TAL
SÝND Á SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI,
AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA
HHHH
- A.E.T
MORGUNBLAÐIÐ
- K.I. PRESSAN.IS
HHH
SÝND Í KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK
BELLA ER Í LÍFSHÆTTU
OG EDWARD OG JACOB
ÞURFAAÐ SAMEINA
KRAFTA SÍNA EF ÞEIR
ÆTLA BJARGA
LÍFI HENNAR