Morgunblaðið - 25.11.2011, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 25.11.2011, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2011 Hátíðarkörfur Ostabúðarinnar eftir þínu höfði OSTABÚÐIN SKÓLAVÖRÐUSTÍG Við erum byrjuð að taka á móti pöntunum í síma 562 2772 og á ostabudin.is Opið: Mán - Fim 11:00 - 18:00 Fös 10:00 - 18:30 & Lau 11:00 - 16:00 Texti: Hólmfríður Gísladóttir Ljósmyndir: Sigurgeir Sigurðsson Fólk á förnum vegi Fæstir eiga von á því að finna spjald- tölvu í jólapakkanum á aðfangadag Dómnefnd á vegum Rannsóknarseturs verslunarinnar komst að þeirri niðurstöðu í vikunni að spjaldtölva væri jólagjöf- in í ár en þær kosta allt frá 20 og upp í 200 þúsund krónur. Blaðamaður hitti fólk á förnum vegi, forvitnaðist um jóla- gjafaóskalistann og jólagjafainnkaupin og lagði upp með spurninguna: Átt þú von á því að fá spjaldtölvu í jólagjöf?    Mér finnst þetta nú svolít- ið dýr gjöf og er hlynntari lopapeysugjöfinni í fyrra, finnst hún bæði passa betur þjóðfélag- inu og bara meiri hug- ur á bak við hana. Mér finnst alveg rosalega gaman að fá bækur en svo finnst mér nú yfirleitt vænst um gjöfina frá syninum, því hann hefur mjög skemmtilegt ímyndunarafl og það er alltaf mest spennandi gjöfin á hverju ári. Svo skiptir það mestu máli að vera með fjölskyld- unni, það er stærsta jólagjöfin. Kristín Skjaldardóttir    Nei, ég á ekki von á því og það er ekki á óskalistanum. Mig langar í bíl í jóla- gjöf og vona að ég fái hann frá pabba. Svo langar mig í síma og fartölvu. Ég hlakka mest til að pakka inn jólagjöfum og gefa þær. Ég gef sjálf svona fimm gjafir og eyði á milli 20 og 30 þúsundum í þær. Sif Gunnarsdóttir    Nei, reyndar ekki. Ég veit ekki hvað mig langar í í jóla- gjöf, hef ekkert sérstakt í huga. Bara eitthvað fallegt. Það er svolítið mis- jafnt hvað ég eyði í jólagjafir en ég ætla að reyna að vera sparsöm í ár. Ætli ég gefi ekki sirka fimm jólagjafir. Harpa Finnsdóttir    Nei. Ég fæ engar jólagjafir, ég gef bara. Ég gef svona tíu jóla- gjafir og hlakka mest til þess. Það besta við jólin er að fólk kemur saman og nýtur þess að vera saman. Þetta er ekkert flókið. Haraldur Kristmundsson    Ég á spjaldtölvu, iPad. Mig langar í leiki og bíómynd- ir, blue-ray myndir, í jóla- gjöf. Ég er að safna þeim. Ég gef svona fimm jólagjafir og eyði svona um 60 þús- und krónum í gjafir, þá til fjölskyldunnar. Það skemmtilegasta við jólin er stemningin sem kemur svona viku fyrir jól, þá fer maður að hlakka til. Mér finnst margir byrja að- eins of snemma á þessu. Kristján Fannar Þorgrímsson    Nei, ég hef í rauninni ekkert við svoleiðis að gera. Ég veit ekki eftir hverju er farið en ég held að þetta hafi kannski átt við árið 2007, ekki í dag. Mig lang- ar í bækur og kon- fekt. Ég gef svona fimm jólagjafir, yf- irleitt eitthvað sem nýtist vel eða eitt- hvað sem ég veit að fólk vantar. Ég myndi segja að ég færi með svona 70-100 þúsund krónur í gjafir. Linda Hrafnkelsdóttir Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Þótt korni hafi verið sáð í jafn stórt land og mest hefur verið lítur út fyr- ir að heildaruppskeran verði mun minni en síðustu þrjú árin, eða 12-13 þúsund tonn. Byggi og fleiri tegundum var sáði í tæplega 4.800 hektara í vor, samkvæmt upplýsingum Borgars Páls Bragasonar, jarðrækt- arráðunautar Bændasamtaka Ís- lands. Akrarnir eru stærri en þekkst hefur áður, að árinu 2009 und- anskildu þegar sáð var í jafn marga hektara. Uppskeran er hins vegar lakari að meðaltali en lengi hefur verið. Veðurfar var óhagstætt í vor og framan af sumri og hafði það slæm áhrif á kornvöxt á norðurhluta landsins. Engin uppskera fékkst af hluta akranna sem voru þá slegnir sem grænfóður til að gefa skepnum. Þá var víða léleg uppskera. Helmingur kornræktarinnar er á Suðurland og telur Jónatan Her- mannsson, tilraunastjóri á Korpu, að uppskeran þar verði nálægt lands- meðaltali undanfarin ár þótt hún standi metuppskerunni í fyrra langt að baki. Uppskerutölur hafa ekki verið teknar saman en Jónatan slær á það að uppskeran sé 12-13 þúsund tonn yfir landið, eða um 2,6 tonn á hekt- ara að meðaltali yfir allt landið. Ef það reynist rétt mat er þetta slak- asta kornuppskera í mörg herrans ár. Heildaruppskeran stendur einn- ig síðustu þremur árum nokkuð að baki því 14-16 þúsund tonn hafa komið í kornhlöður bænda. Orðnir sjóaðir „Kornbændur eru orðnir sjóað- ir og átta sig á því að eitt gott ár þýð- ir ekki endilega að öll ár verði góð og eitt slæmt ár sé ekki endalok alls. Ég dáist að hvað kornbændur eru orðnir vel að sér og miklir fagmenn,“ segir Jónatan. Lakasta kornuppskeran Korn Sáð var í 4800 ha lands en upp- skeran er minni en vonast var til.  Vantar fjögur þúsund tonn af byggi í kornhlöður Tveir stofnfjáreigendur í Sparisjóði Norðlend- inga voru í gær sýknaðir í Hæstarétti í inn- heimtumálum sem Íslandsbanki höfðaði gegn þeim vegna deilna um lántöku. Sparisjóðurinn sameinaðist Byr sparisjóði árið 2008 og stofn- féð varð síðan verðlaust þegar Fjármálaeft- irlitið yfirtók Byr á síðasta ári. Þá hefur Hæstiréttur einnig sýknað stofn- fjáreiganda í Byr af kröfu Íslandsbanka vegna hlutafjáraukningar í Byr. Í öllum málunum staðfestir Hæstiréttur dóma Héraðsdóms Reykjavíkur. Hæstiréttur segir að Glitnir hafi átt frum- kvæði að stofnfjáraukningunni. „Hefðu þessi áform eflaust getað haft í för með sér töluverðan hagnað fyrir stofnfjáreig- endur ef forsendur um hagfelldan rekstur sparisjóðanna og ríflegar arðgreiðslur hefðu staðist. Þau kölluðu hins vegar einnig á um- fangsmikla skuldsetningu af hálfu stefnda til að fjármagna kaupin á stofnfénu og því mik- ilvægt að honum væri gerð skýr grein fyrir þeirri áhættu sem í því fælist,“ segir í dóm- inum. kjon@mbl.is Sýknuðu stofnfjár- eigendur Morgunblaðið/Kristinn Niðurstaða Íslandsbanki við Sæbraut. „Jú, jú, mér er létt. Það er ágætt að vera búinn að fá tilkynningu um að maður sé ekki búinn að tapa aleigunni,“ segir Guð- mundur Víkingsson, bóndi á Garðshorni á Þelamörk. Hann er í hópi þeirra mörgu stofnfjáreig- enda í Sparisjóði Norðlendinga sem tóku lán til kaupa á stofnfé í sparisjóðnum. „Við ákváðum þegar þetta mál kom upp að sjá aðeins til og halda áfram búskap. Það var þá öruggt að maður hefði eitthvað að borða ef illa færi,“ sagði Guðmundur í gær í samtali við mbl.is. Hann og kona hans tóku bæði lán til að auka stofnfé í sparisjóðnum í samræmi við ráðgjöf sérfræðinga þar um. Hann sagðist telja að lánin sem þau hjónin tóku væru nú komin upp í 70-80 milljónir króna með áföllnum vöxtum. Hann og allir sem hann vissi um hefðu tekið lánin í eigin nafni en ekki í nafni eignarhaldsfélaga. Ágætt að vera „ekki búinn að tapa aleigunni“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.