Morgunblaðið - 25.11.2011, Blaðsíða 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2011
Sveitin gaf sem
kunnugt er út nýja
plötu í haust, Svik, harmur
og dauði 39
»
Just Julian 4 er yfirskrift tónleika
sem haldnir verða í Listasafni Sig-
urjóns Ólafssonar sunnudaginn 27.
nóvember kl. 17. Þar verða flutt
verk eftir tónskáldið Julian Michael
Hewlett, sem hefur búið og starfað
hérlendis sl. 23 ár sem píanóleikari,
organisti, tónlistarkennari og kór-
stjóri, fyrst á Skagaströnd, svo á
Egilsstöðum og undanfarin tíu ár í
Reykjavík. Hann býr sem stendur í
Devon á Englandi þar sem hann
einbeitir sér að tónsmíðum.
Flytjendur á tónleikunum eru
Julian M. Hewlett sem leikur á pí-
anó, Kristín R. Sigurðardóttir sópr-
an, Hólmfríður Jóhannesdóttir
mezzósópran og Ian Wilkinson
bassasöngvari sem leikur einnig á
euphonium-horn og básúnu. Þau
munu leika píanóverk, einsöngslög
og dúetta sem og ljóðaflokk sem
nefnist East and West og er í kín-
verskum anda. Auk þess munu þau
frumflytja Vocalisu í þremur köfl-
um fyrir sópran og píanó sem er
undir sterkum djassáhrifum og
verk fyrir annars vegar euphonium
og píanó og hins vegar básúnu og
píanó.
Að sögn Kristínar eru tónleik-
arnir hluti af tónleikaröð þar sem
flutt eru ný og eldri verk eftir Juli-
an, en næstu tónleikar í röðinni
verða sennilega snemma á næsta
ári. Segir hún tónskáldið stefna á
upptökur tónverka sinna fljótlega,
enda úr miklu efni að moða.
Frumflytja ný tónverk í
bland við eldri tónsmíðar
Tónleikar með verkum Julians á sunnudag kl. 17
Tónleikaröð Kristín R. Sigurðardóttir, Hólmfríður Jóhannesdóttir, Ian
Wilkinson og Julian M. Hewlett flytja verk eftir þann síðastnefnda.
Hljóðfærasmiðja LornaLAB verður
haldin í Hafnarhúsinu á laugardag
frá kl. 13 til 17. Tónskáldin Áki Ás-
geirsson, Magnús Jensson og Jesp-
er Pedersen leiða smiðjuna. Hljóð-
færasmiðjan hefst klukkan 13 með
kynningum og síðan tekur við fönd-
urtími og kaffispjall. Gestir eru
hvattir til að koma með rafdót og
smátæki sem gefa frá sér hljóð og
hægt er að taka í sundur og breyta.
Smiðjan er sjálfstætt framhald
hljóðfærasmiðju sem haldin var í
október, þar sem lagt var upp með
að kynna ólíkar aðferðir við smíði
hljóðfæra og tilraunir þeim tengd-
ar. Áhersla er annars vegar lögð á
tölvustýringar fyrir órafmögnuð
hljóðfæri, tónlistarvélmenni, raf-
segla og stjórnun á kunnuglegum
eða framandi hljóðfærum og hins
vegar á „circuit bending“ sem felst
í að breyta raftækjaleikföngum í
hljóðfæri.
LornaLAB stendur fyrir reglu-
legum smiðjum í samstarfi við
Listasafn Reykjavíkur en þetta
verður síðasta smiðjan á þessu ári.
Viðburðurinn er ókeypis og öllum
opinn.
Hljóðfærasmiðja
LornaLAB
Hljóðfærasmiðja í Hafnarhúsinu
Þekking Frá hljóðfærasmiðju
LornaLAB í Hafnarhúsinu.
Fyrstu aðventutónleikar Karlakórs
Reykjavíkur verða haldnir á morg-
un, 26. nóvember, í Skálholtsdóm-
kirkju. Tónleikarnir hefjast kl. 20.
Einsöngvari á tónleikunum verður
Sveinn Dúa Hjörleifsson tenór.
Tveimur vikum síðar heldur kór-
inn svo ferna aðventutónleika í Hall-
grímskirkju, 10. og 11. desember, kl.
17 og 20 báða daga. Á þeim verður
mezzósópransöngkonan Guðrún Jó-
hanna Ólafsdóttir gestur kórsins.
Sveinn Dúa hóf söngferil sinn í
Karlakór Reykjavíkur og stundaði
tónlistarnám við Söngskóla Sigurðar
Demetz í Reykjavík og við óperu-
deild Tónlistarháskólans í Vínar-
borg. Sveinn hefur sungið ýmis
óperuhlutverk í námi og starfi.
Guðrún Jóhanna hefur búið og
starfað á Spáni og hefur komið þar
fram á tónleikum, sungið í óperum
og tekið þátt í keppnum.
Nokkrir fastagestir koma fram
með karlakórnum á aðventu-
tónleikum, orgelleikarinn Lenka
Mateova, trompetleikararnir Ásgeir
H. Steingrímsson og Eiríkur Örn
Pálsson og Eggert Pálsson páku-
leikari. Stjórnandi Karlakórsins er
Friðrik S. Kristinsson.
Gestur Sveinn Dúa Hjörleifsson
syngur með Karlakór Reykjavíkur.
Aðventu-
tónleikar í
Skálholti
Tónleikar Karla-
kórs Reykjavíkur
Dagskrá til að minnast tón-
skáldsins, ljóðskáldsins og
myndlistarmannsins Péturs
Pálssonar verður haldin á
sunnudag á Gallery Bar 46 á
Hverfisgötu 46 og hefst kl. 17.
Pétur Pálsson fæddist árið
1931 og lést árið 1979. Hann
samdi mikið af lögum við eigin
ljóð og annarra, en þekktastur
er hann fyrir lög sín við Sól-
eyjarkvæði eftir Jóhannes úr
Kötlum.
Samkoman á sunnudag er á vegum gamalla
vina Péturs og vandamanna og listamanna. Flutt
verða valin lög hans.
Tón-, ljóð- og myndlist
Péturs Pálssonar
minnst á Bar 46
Trérista af Pétri
Pálssyni.
Selkórinn heldur tvenna tón-
leika í Seltjarnarneskirkju
næstkomandi laugardag, þá
fyrri kl. 14 og síðari kl. 17.
Á efnisskrá tónleikanna er
meðal annars verk þar sem
hefðbundnum messuköflum er
raðað saman úr ýmsum mess-
um svo úr verður messa sem
kórfélagar kalla Jónsmessu
eftir kórstjóranum Jóni Karli
Einarssyni. Einsöngvarar eru
Ingibjörg Guðjónsdóttir og Davíð Ólafsson en
undirleikari er Dagný Björgvinsdóttir. Með kórn-
um leikur rythmasveit Kjartans Valdemarssonar
píanóleikara.
Tónlist
Selkórinn í Sel-
tjarnarneskirkju
Jón Karl
Einarsson
Íslenska óperan mun setja upp
óperuna La Bohème eftir Gia-
como Puccini á vormisseri en
um hlutverkaskipan og aðra
aðstandendur sýningarinnar
verður tilkynnt síðar, að því er
fram kemur í tilkynningu.
Frumsýning verður um miðjan
mars og hefst miðasala í des-
ember. La Bohème samdi Ítal-
inn Giacomo Puccini og var
hún frumsýnd í Turin á Ítalíu
árið 1896. Hún var síðast sett upp í Íslensku óp-
erunni árið 2001. Í óperunni segir af ungu fólki í
París um miðja 19. öld, ástum rithöfundarins Ru-
dolfo og saumakonunnar Mímí.
Tónlist
La Bohéme í Ís-
lensku óperunni
Giacomo
Puccini
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Litli föstudagur nefnist einkasýning
Helga Þórssonar sem opnuð verður í
Nýlistasafninu á morgun kl. 17. Sýn-
ingin er haldin í tilefni þess að í des-
ember mun Helgi færa safninu verk
að gjöf, en safneign Nýlistasafnsins
telur nú um tvö þúsund verk.
Að sögn Helga verður mikill fjöldi
verka á sýningunni, aðallega mál-
verk en einnig skúlptúrar í bland.
„Ég ætlaði fyrst bara að vera með
ný verk, en svo er sýningarrýmið
svo stórt og þar sem ég hef ekki
haldið einkasýningu í langan tíma
ákvað ég að blanda saman nýrri og
eldri verkum. Þetta verður því eins
og sprengja, en ekki settlegt.“
Í sýningum sínum teflir Helgi
gjarnan saman margskonar efniviði,
fundnum hlutum sem taka breyt-
ingum í meðförum hans, málverkum,
höggmyndum og hljóði og nær með
því að umbreyta sýningarrýminu. Í
fréttatilkynningu frá Nýlistasafninu
kemur fram að verk Helga fjalli um
hið fjarstæðukennda, hann hafi ein-
staka, undurfurðulega og um leið
heimilislega og afslappaða nálgun í
verkum sínum. Verk hans einkenn-
ist gjarnan af glaðlegri skreytiblæti
og tónum þar sem mörk á milli ein-
stakra verka eru óljós og samsetn-
ing þeirra rennur í eina heild. „Fólki
finnst verkin mín mjög litaglöð, en
ég er ekkert endilega að nota skæra
liti heldur nota oft jarðliti. Ég held
bara að margir séu orðnir óvanir lit-
um í myndlist þar sem áhersla síð-
ustu ára hefur verið á hið mínímal-
íska svo jaðrar við að vera sterílt,“
segir Helgi og tekur fram að sjálfur
sæki hann sér innblástur í gömlu
málarana.
Sem lið í sýningunni hyggst Helgi
standa fyrir jólabasar í Nýlistasafn-
inu síðustu sýningarvikuna, en henni
lýkur á Þorláksmessu, þar sem fjöl-
margir listamenn munu bjóða verk
sín til sölu. „Ég tók þátt í svona jóla-
basar ásamt fleiri listamönnum fyrir
nokkrum árum og það gafst svona
líka vel. Það skapaði góða stemningu
auk þess sem maður fékk smápening
í vasann til að kaupa jólagjafir fyrir.
Við ætlum því að endurtaka leikinn.“
„Eins og sprengja“
Helgi Þórsson
með einkasýningu
í Nýlistasafninu
Morgunblaðið/Ómar
Skreytiblæti Helgi Þórsson heldur einkasýningu sem nefnist Litli föstudagur í Nýlistasafninu.