Morgunblaðið - 29.11.2011, Blaðsíða 25
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 2011
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Gisting
AKUREYRI
Höfum til leigu 85 og 140 m²
sumarhús 5 km frá Akureyri, öll
með heitum potti og flottu útsýni yfir
Akureyri. Bjóðum einnig upp á íbúðir
á Akureyri. www.orlofshus.is,
Leó, sími 897 5300.
Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
Kaupi silfur
Vantar silfur til bræðslu og endur-
vinnslu.
Fannar verðlaunagripir.
Smiðjuvegi 6, rauð gata,
Kópavogi. fannar@fannar.is
s. 551-6488.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Málarar
Málarar Alhliðamálningarþjónusta.
Getum bætt við okkur verkefnum, til-
boð eða tímavinna. Vönduð vinnu-
brögð, hagstæð verð í boði og góðir
greiðsluskilmálar.
Sími 823 8547 og 659 9676.
Hjólbarðar
Kebek vetrardekk
Hönnuð og prófuð í Kanada.
Frábær dekk á góðu verði.
Kaldasel ehf. hjólbarðaverkstæði
Dalvegi 16 b, Kópavogi,
s. 544 4333.
Húsviðhald
Tek að mér
Sölumennsku, vörudreifingu,
innheimtu. Verklegar
framkvæmdir o.fl. o.fl.
Upplýsingar í síma 847 8704
eða manninn@hotmail.com.
Frændi, þú hef-
ur kvatt þessa ver-
öld aðeins 47 ára
gamall. Ekki get ég sagt að
dauði þinn hafi komið mér á
óvart. Þú valdir þér hlutskipti
óreglumannsins og varst háður
fíkniefnum í þrjá áratugi.
Mamma þín og systir mín
fékk rauða hunda þegar hún
gekk með þig og þú fæddist
heyrnarskertur. Sú fötlun virtist
lítt há þér og sextán ára varstu
skynsamur og glæsilegur piltur.
Á miðjum vetri komstu á mitt
heimili á Ytri-Sólheimum. Þá
var ég raungreina- og stærð-
fræðikennari við Skógaskóla.
Við frændur ókum yfir Sól-
heima- og Skógasand að morgni
og heim að kvöldi. Ætlunin var
að þú yrðir til vors og lykir
fyrsta árs námi í framhaldsskóla
frá Skógum.
Þú varst bráðnæmur og hafð-
ir góðan námsskilning, engu að
síður hélstu ekki áfram eftir
páska. Heima fórst þú með mér í
fjárhúsin og löngum stundum
sátum við og ræddum málin inni
í bæ. Oft hef ég leitt hugann til
þeirra stunda. Heyrnarskerð-
ingin háði þér en þú varst slung-
inn að lesa af vörum ef heyrn-
artækin dugðu ekki.
Þú varst heimilisprúður og
engin óregla þær vikur. Þér var
hugleikið að fá svar við hver
væri tilgangur lífsins. Það rædd-
um við oft. Trúlega sagði ég þér
jafnoft að við því fengjum við
Njáll Steinþórsson
✝ Njáll Stein-þórsson fædd-
ist í Reykjavík 4.
júní 1964. Hann lést
12. nóvember 2011.
Útför Njáls fór
fram frá Prest-
bakkakirkju á Síðu
19. nóvember 2011.
aldrei einhvern
endanlegan stóra-
sannleik. Við
manneskjur getum
leyft okkur þann
munað að hugleiða
allt mögulegt um
tilgang, en þó enn
frekar að lesa hug-
myndir helstu
hugsuða mann-
kynssögunnar um
tilgang eða til-
gangsleysi. Lestur og umræða
er þroskandi. Enginn getur þó
varið öllum sínum tíma í að leita
svara við tilgangi lífsins.
Líf þitt varð stefnulaust þótt
þú hefðir allt til að bera fyrir ut-
an heyrnarskerðinguna. Og
heyrnin dvínaði þegar árin liðu.
Líklega hefur líf útigangs-
mannsins í kulda og óþrifnaði
með heyrnartækin haft sín
áhrif.
Síðustu árin varst þú sam-
bandslítill nema það sem þú
gast lesið af vörum. Lengi fram-
anaf hélstu þig við sveitina og
dvaldir m.a. í mörg ár hjá góðu
fólki í Nýjabæ í Landbroti.
Vafalaust gekkstu þar til verka
með Þorsteini bónda. Nokkrum
sinnum hitti ég þig þar og alltaf
varst þú að lesa góðar bækur
þegar ég kom. Á haustin
vannstu í sláturhúsinu á Kirkju-
bæjarklaustri. Steingrímur í
Hörgslandskoti sagði mér að þú
hafir verið bæði hraustmenni til
verka og laginn svo af bar.
Sorg aldraðra foreldra og
sómakærra systra, yfir lífs-
hlaupi þínu, spannar áratugi.
Mér hefur orðið tíðrætt um
tilgangsleit og fíkniefni. Hvort
tveggja er dauðans alvara.
Gréta, Steini, Sólborg og Sif,
við Sigrún sendum ykkur kærar
kveðjur.
Tómas Ísleifsson.
Ég vil votta Njáli þakklæti
fyrir stundirnar við áttum sam-
an; nú er góður drengur fallinn
frá. Leiðir okkar Njáls lágu
saman fyrir um tveimur árum
þegar við vorum sambýlingar á
sambýli Samhjálpar á Miklu-
braut 20. Oft áttum við þar góð-
ir stundir en ég minnist Njáls
sem skemmtilegs manns og ein-
staks snyrtimennis.
Njáll missti heyrnina ungur
að árum og háði það honum tals-
vert en aldrei lét hann fötlunina
buga sig enda með eindæmum
lífsglaður maður. Hann var góð-
ur skákmaður og listfengur og
áttum við margar stundirnar
þar sem við tefldum og ræddum
um listir. Vegna heyrnarleysis
Njáls voru samtöl okkar óhefð-
bundin en ég þurfti að skrifa
niður það sem ég sagði og hann
las það en sjálfum gekk mér
bærilega að skilja talað mál
Njáls. Þrátt fyrir þessa ann-
marka voru samskipti okkar
með þeim ánægjulegustu sem
ég hef átt.
Njalli, eins og hann var oftast
kallaður, hafði ýmsa kosti svo
sem djúpan húmor og mikla lífs-
hamingju og mun hann alltaf
búa í minningu minni sem góður
drengur sem vert var að kynn-
ast og vil ég minnast hans með
bæninni sem sameinar svo
marga okkar:
„Guð gefi mér æðruleysi til að sætta
mig við það sem ég fæ ekki breytt,
kjark til að breyta því sem ég get
breytt og vit til að greina þar á milli.“
Jónas Bjarki Gunnarsson.
Enn einu sinni erum við
minntar á hvað lífið er hverfult.
Sú fjórða úr hópnum okkar fall-
in frá. Eftir sitjum við hnípnar
og hugsum, hvað er þetta? Við
bekkjarsystur Bjargar úr
Fóstruskóla Sumargjafar vilj-
um þakka henni góða samveru
Björg Arndís
Baldvinsdóttir
✝ Björg ArndísBaldvinsdóttir
fæddist á Seljalandi
undir Vestur-
Eyjafjöllum 22.
september 1947.
Hún lést á Land-
spítalanum við
Hringbraut 29.
september 2011.
Útför Bjargar
fór fram í kyrrþey.
veturna tvo 1968-
1970. Fjölskyldu
hennar sendum við
innilegar samúðar-
kveðjur.
Ég sendi þér kæra
kveðju
nú komin er lífsins
nótt,
þig umvefji blessun
og bænir
ég bið að þú sofir
rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
F.h. bekkjarsystra úr
Fóstruskóla Sumargjafar,
Ráðhildur Stefánsdóttir.
✝
Okkar elskulegi
JÓNAS JÓNASSON
útvarpsmaður
sem lést í faðmi fjölskyldu sinnar á líknar-
deild Landspítalans í Kópavogi þriðjudaginn
22. nóvember, verður jarðsunginn frá
Hallgrímskirkju föstudaginn 2. desember
kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á styrktar- og líknarsjóð
Oddfellowreglunnar á Íslandi.
Sigrún Sigurðardóttir,
Sigurlaug Margrét Jónasdóttir, Torfi Rafn Hjálmarsson,
Hjördís Rut Jónasdóttir, Hallur Mar Elison Olsen,
Berglind Björk Jónasdóttir, Jón Haukur Jensson
og fjölskyldur.
✝
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og
afi,
FJÖLNIR STEFÁNSSON
tónskáld,
Lækjasmára 6,
lést á heimili sínu fimmtudaginn 24. nóv-
ember.
Arndís Guðmundsdóttir,
Ingibjörg Fjölnisdóttir, Brynjar Kvaran,
Þorbera Fjölnisdóttir, Karl Sesar Karlsson,
Brynhildur Fjölnisdóttir, Grétar Pétur Geirsson,
Hlíf, Fjölnir, Stefán Björn, Arnhildur,
Hrafnkell og Arndís Anna.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐRÚN HJÁLMARSDÓTTIR WAAGE,
hjúkrunarheimilinu Eir,
áður til heimilis
Laugarásvegi 28,
Reykjavík,
sem lést laugardaginn 19. nóvember, verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 30. nóvember kl. 13.00.
Sigurður S. Waage,
Kristín Helga Waage, Knútur Signarsson,
Sigrún Waage, Franz Ploder,
Hendrikka Guðrún Waage,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ANNA EINARSDÓTTIR,
Hæðargarði 29,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir mánudaginn
21. nóvember.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
1. desember kl. 13.00.
Hendrik Skúlason, Íris Sigurjónsdóttir,
Þórður Skúlason, Elín Agnarsdóttir,
Davíð Davíðsson, Embla Valberg,
Einar Orri Davíðsson, Helga Alfreðsdóttir,
Jóhannes Ingi Davíðsson, Helga Jóhannesdóttir,
Ragnar Davíðsson, Ingibjörg Vilhjálmsdóttir,
Jón Halldór Davíðsson, Petrea Tómasdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐRÚN JÓHANNA
VALDIMARSDÓTTIR,
áður til heimilis að Haðalandi 15,
Reykjavík,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði mánudaginn
21. nóvember.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju, Reykjavík, miðviku-
daginn 30. nóvember kl. 13.00.
Sigurbjörg Edda Agnarsdóttir, Benóný Eiríksson,
Svanhildur Agnarsdóttir, Hafliði Sigtryggur Magnússon,
Agnar Rúnar Agnarsson, Guðlaug Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar ástkæri
ODDUR BJÖRNSSON
rithöfundur
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni
miðvikudaginn 30. nóvember kl. 15.00.
Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði.
Bergljót Gunnarsdóttir,
Hilmar Oddsson, Þórey Sigþórsdóttir,
Elísabet Álfheiður Oddsdóttir, Ómar Jóhannsson,
Gunnar Stefánsson, Arna Kristín Garðarsdóttir,
Hrefna Stefánsdóttir, Arnar Guðmundsson,
Hanna Stefánsdóttir, Hjörtur Gísli Sigurðsson,
Elín Jónína Ólafsdóttir, Rúnar Sigurbjörnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang-
afi,
GUÐNI ÓLAFSSON
frá Súgandafirði,
verður jarðsunginn frá Digraneskirkju
miðvikudaginn 30. nóvember kl. 13.00.
Halldór Guðnason, Svanhildur Guðmundsdóttir,
Ingveldur Guðnadóttir, Jón G. Kristinsson,
Guðfinna Guðnadóttir, Jóel Sverrisson,
Matthildur Guðnadóttir, Hjörtur Jóhannsson,
Friðbjörg Ingimarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.