Morgunblaðið - 03.12.2011, Side 1
Reykjavíkurborg opnaði í gær tvær skíðalyftur
innan borgarmarkanna; í Grafarvogi og Árbæj-
arbrekkunni, þar sem myndin var tekin síðdegis.
Stefnt er að því að opna Breiðholtslyftuna á
mánudag. Engin hætta er á að snjóinn taki upp,
miðað við kuldalega veðurspá, og eru mörg
skíðasvæði landsins að opnast þessa helgina,
m.a. Hlíðarfjall við Akureyri, Böggvisstaðafjall á
Dalvík og í Skarðsdal í Siglufirði.
Morgunblaðið/Ómar
„Á skíðum skemmti ég mér“
Skíðabrekkur innan borgarmarkanna og mörg skíðasvæði landsins að opnast
L A U G A R D A G U R 3. D E S E M B E R 2 0 1 1
Stofnað 1913 284. tölublað 99. árgangur
ÞVOTTABRETTA-
GLERIÐ VARÐ AÐ
SUSHI-SETTI
FRÁ SÓLBÖKUÐU
RÍKI DAUÐANS TIL
NORÐURPÓLSINS
JÓLATÓNLEIKAR
MEÐ DÁLITLU
DISNEY-ÍVAFI
SUNNUDAGSMOGGINN GESTIR BJÖRGVINS 63SIGRÚN GLERLISTAKONA 10
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Hugmyndir eru á borðinu um að leggja niður efna-
hags- og viðskiptaráðuneytið og færa valdsviðið
undir fjármálaráðherra. Það yrði liður í ráðherra-
kapli Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra
og Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra.
Árni Páll Árnason viki þá til hliðar og einnig Jón
Bjarnason, en þetta er þó háð því að Steingrími
takist að vinna málinu nægan stuðning í bakland-
inu og í þingflokki VG.
Hollendingar og Bretar fái kostnaðinn greiddan
vegna neyðarlaganna og sú niðurstaða sé Íslend-
ingum alls ekki að kostnaðarlausu.“
Ólafur segir ljóst af ummælum Steingríms J.
Sigfússonar síðustu mánuði og því að hann hafi
ekki tekið undir sjónarmið efnahags- og viðskipta-
ráðherra, að hann fylgi stefnunni ekki af heilum
hug og virðist vilja að málið fari fyrir dómstóla.
„Það verður því ansi freistandi að draga þá ályktun
að siðferðisvandi Steingríms sé slíkur að hann sé
algjörlega vanhæfur til að hafa þetta mál á sinni
könnu.“
Eins og fram kemur í fréttaskýringu í Sunnu-
dagsmogganum er ólga í Samfylkingunni vegna
málsins. Sumum líst illa á að Icesave fari aftur und-
ir forræði fjármálaráðherra. Og gagnrýni á það
heyrist víðar, m.a. hjá Ólafi Elíassyni, einum for-
vígismanna InDefence-hópsins. „Það er náttúrlega
augljóst að þarna er til staðar mikill siðferðis-
vandi,“ segir hann. InDefence fundar um málið um
helgina, en Ólafur segist fyrir sitt leyti telja að
efnahags- og viðskiptaráðherra hafi stýrt málinu
skynsamlega. „Hann hefur bent eftirlitsstofnunum
á að engin ástæða sé til að fara lengra með málið,
Ólga vegna ráðherraskipta
Hugmyndir um að leggja niður efnahags- og viðskiptaráðuneytið og færa undir fjár-
málaráðherra Órói í Samfylkingunni Forvígismaður InDefence gagnrýninn
Af hálfu iðnaðar-
ráðuneytisins er
ráðgert að óska
eftir 15-17 millj-
óna króna fjár-
veitingu á fjárlög-
um ársins 2013
vegna rannsókna
á Gammssvæð-
inu, olíuleitar-
svæði úti fyrir
Norðurlandi,
samkvæmt upplýsingum frá Katrínu
Júlíusdóttur iðnaðarráðherra. Þar
kemur fram að næst liggi fyrir að
taka kjarnasýni af efstu botnlögum
og senda í efnagreiningu til að kanna
magn og samsetningu þess gass og
olíu sem þar kann að finnast. Orku-
stofnun hefur sinnt olíu- og gasleit-
arrannsóknum á Gammssvæðinu á
Norðurlandi eftir föngum. Mest
áhersla hefur hins vegar verið lögð á
að undirbúa útboð sérleyfa á Dreka-
svæðinu við Jan Mayen-hrygg. »22
Sýnataka
á olíuleit-
arsvæði
Katrín
Júlíusdóttir
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Gangi áætlanir laxeldisfyrirtækj-
anna Fjarðalax og Arnarlax um stór-
fellt laxeldi í fjörðunum á sunnan-
verðum Vestfjörðum eftir skapast
hundruð starfa við fiskeldi, vinnslu
og þjónustu.
Nokkrir tugir starfa eru nú þegar
við þær fiskeldisstöðvar sem starf-
andi eru á sunnanverðum Vestfjörð-
um, einkum í Tálknafirði, þar sem
löng hefð er fyrir fiskeldi og reynslu-
miklir starfsmenn og þjónustufyrir-
tæki. Flestir starfa hjá Fjarðalaxi en
fyrirtækið er með sjókvíaeldi í þrem-
ur fjörðum og vinnslu á Patreksfirði.
Arnarlax áformar uppbyggingu lax-
eldis í Arnarfirði og bíða forsvars-
menn fyrirtækisins óþolinmóðir eftir
leyfum. Laxinn verður unninn í verk-
smiðju á Bíldudal. Á bak við bæði fyr-
irtækin standa fyrirtæki og einstak-
lingar sem hafa reynslu af fiskeldi og
aðgang að mikilvægum mörkuðum.
Atvinnulíf er einhæft á þessum
litlu stöðum og kærkomið að fá ný
störf og valmöguleika um vinnustað.
Gangi áform Fjarðalax og Arnar-
lax að fullu eftir má búast við að bein
störf við fiskeldi verði hátt í 200 eftir
fimm til tíu ár. Reikna má með að eitt
afleitt starf eða meira fylgi hverju
starfi í eldisfyrirtækjunum þannig að
nokkur hundruð ný störf geta orðið
til vegna uppbyggingar fiskeldis í
fjörðunum á suðurhluta Vestfjarða.
»18
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Pökkun Laxi pakkað í vinnslu
Fjarðalax, fyrir útflutning.
Hundruð starfa í eldi
Áform um stórfellda uppbyggingu laxeldis í þremur fjörð-
um Vestfjarða Fjórar stöðvar eru starfandi í Tálknafirði
dagur til jóla
Af samtölum við raftækjaverslanir
má ráða að markaður sé að glæðast
á ný með margskonar munaðarvörur
eins og snjallsíma, spjaldtölvur og
stóra flatskjái. Talsmenn símafyr-
irtækjanna segja dýra síma seljast
mjög vel. Þannig eru snjallsímar nú
orðnir um 55% af heildarsölu Símans
á símtækjum. „Við sjáum verulega
breytingu á milli ára í því hvers kon-
ar tæki fólk kaupir,“ segir talsmaður
Vodafone. Starfsmenn raftækja-
verslana segja neytendur þó hafa
betri verðvitund en áður og ódýrari
tæki seljist einnig mun betur en áð-
ur. »30
Markaður
fyrir munað