Morgunblaðið - 03.12.2011, Side 4
4 FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2011
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Ríkisstjórnin vill að byggt verði 56
rýma fangelsi á Hólmsheiði en
nokkrir stjórnarþingmenn hafa efa-
semdir um framkvæmdina. Sigríður
Ingibjörg Ingadóttir, formaður fjár-
laganefndar, segir að verið sé að
finna farsæla lausn á málinu í fjár-
laganefnd. „Það gera sér allir grein
fyrir því að það er mikil þörf á að
byggja fangelsi, en sumir telja baga-
legt að ekki hafi farið fram meiri um-
ræða á þinginu um þessi mál,“ segir
Sigríður. „Ég held að við gerum okk-
ur öll grein fyrir því að mikilvægt sé
að þetta verði ekki dregið lengur.“
Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra tekur í sama streng. Ekki
verði lengur vikist undan fram-
kvæmdum. „Nú er komið að því að
framkvæma,“ sagði Ögmundur í
samtali við mbl sjónvarp í gær.
„Við erum að skapa atvinnu
með því að hefja þessa
framkvæmd.
Ögmundur sagði að
það væri fullkomn-
lega eðlilegt að
sveitarstjórnar-
menn og þing-
menn vildu ekki
láta hlunnfara sitt
kjördæmi. En ekki
mætti láta hags-
muni kjördæma
ráða för.
Mikilvægt að bygging fang-
elsis dragist ekki lengur
Ögmundur: Hagsmunir kjördæma mega ekki ráða för
Áframhald-
andi yfir-
heyrslur
Hæstiréttur stað-
festi í gær gæslu-
varðhaldsúrskurð
yfir þremur fyrr-
verandi starfs-
mönnum Glitnis
sem voru úr-
skurðaðir í
gæsluvarðhald
fyrr í vikunni að
beiðni embættis
sérstaks saksókn-
ara. Yfirheyrslur stóðu yfir fram á
kvöld í gær. Þær munu halda áfram í
dag og hugsanlega á morgun.
„Það fer eftir árangri,“ segir Ólaf-
ur Þór Hauksson, sérstakur sak-
sóknari. Hann segist ekki geta gefið
upp nöfn þeirra sem hafa verið yf-
irheyrðir vegna rannsóknarhags-
muna og ekki geta svarað hvort
Bjarni Ármannsson, fyrrverandi for-
stjóri Glitnis, hefði verið boðaður í
yfirheyrslur.
Ólafur segir að yfirheyrslur hafi
gengið vel. „Við erum óðum að kom-
ast yfir það sem var búið að teikna
upp áður en við hófumst handa. Við
höfum ekki lagt hald á nein gögn enn
sem komið er, við höfum lagt áherslu
á yfirheyrslurnar.“ annalilja@mbl.is
Glitnismenn áfram
yfirheyrðir í dag
Ólafur Þór
Hauksson
Andri Karl
andri@mbl.is
Útkall lögreglu höfuðborgarsvæðisins vegna manns sem ógnaði
starfsfólki á Sorpu í Kópavogi á fimmtudag vatt heldur betur
upp á sig. Maðurinn var á bak og burt þegar lögregla kom á
vettvang en haft var uppi á honum við verslun skammt hjá.
Maðurinn dró upp hníf, ógnaði lögreglumönnum og hljóp á eftir
þeim. Hann var yfirbugaður með varnarúða og færður í fanga-
geymslur. En þrátt fyrir ofbeldistilburði bjuggust lögreglu-
menn varla við að finna í íbúð hans í Breiðholti vopnabúr; skot-
vopn, sverð, hnífa og mikinn fjölda skothylkja. Vopnin fundust á
fimmtudag og tvö skotvopn til viðbótar hjá ættingjum mannsins
í gær.
Ástæða þess að starfsfólk Sorpu kallaði eftir lögreglu var
ósætti sem upp kom milli mannsins og starfsmanna vegna taln-
ingar á skilagjaldskyldum umbúðum. Taldi maðurinn sig hafa
komið með fleiri umbúðir en starfsmaðurinn taldi upp úr pokum
hans. Maðurinn var í mjög annarlegu ástandi.
Þrátt fyrir að maðurinn ógnaði og elti lögreglumenn með hníf
á lofti segir Þorvaldur J. Sigmarsson, varðstjóri svæðisstöðvar
lögreglu höfuðborgarsvæðisins í Kópavogi, málið frekar rann-
sakað sem brot gegn valdstjórninni en tilraun til manndráps.
Auk þess að leita í íbúð mannsins var leitað á fleiri stöðum, til
að mynda hjá ættingjum hans þar sem fundust tvær hagla-
byssur í eigu mannsins. Allt í allt fundust því níu skotvopn;
haglabyssur, rifflar og loftskammbyssa. Einnig sverð og fjórir
hnífar, m.a. stór veiðihnífur, fjaðurhnífur og svonefndur But-
terfly-hnífur. Þá fannst mikið magn skothylkja af ýmsum gerð-
um.
Ætlaði ekki að valda neinum skaða
Maðurinn hefur áður komist í kast við lögin vegna fíkniefna-
lagabrota en aldrei ofbeldis. Ómar Smári Ármannsson, stöðv-
arstjóri á svæðisstöðinni í Kópavogi, segir það liggja fyrir að
maðurinn hafi ekki ætlað að valda neinum skaða með vopn-
unum, frekar virðist hann vera einhvers konar byssusafnari.
Maðurinn var skráður fyrir hluta skotvopnanna en ekki öllum.
Öflugasta skotvopnið var alsjálfvirk haglabyssa.
Málið telst að mestu upplýst, þó enn eigi eftir að rannsaka
byssurnar betur og fá úr því skorið hvað skráð er og hvað ekki.
Og þá hvort hinar séu þýfi. Ekki verður krafist gæsluvarðhalds
yfir manninum en í samráði við ættingja verður hann vistaður á
viðeigandi stofnun.
Með fjölda skotvopna í íbúð sinni
Karlmaður sem ógnaði lögreglumönnum með hnífi var með vopnabúr í íbúð sinni í Breiðholti
Byssusafnari með skráð og óskráð vopn, meðal annars alsjálfvirka haglabyssu og loftskammbyssu
Morgunblaðið/Júlíus
Vopnin Maðurinn var með alls kyns skotvopn, skothylki, hnífa
og sverð. Sumt af því sem fannst var komið vel til ára sinna.
Karl á þrítugsaldri hefur á grund-
velli rannsóknarhagsmuna verið
úrskurðaður í áframhaldandi
gæsluvarðhald til 8. desember að
kröfu lögreglunnar á höfuðborg-
arsvæðinu í tengslum við rannsókn
hennar á skotárás í austurborginni
föstudaginn 18. nóvember sl.
Maðurinn neitaði við skýrslutöku
hjá lögreglu allri aðild að málinu.
Hann gat ekki gert grein fyrir ferð-
um sínum 18. nóvember með öðrum
hætti en að hann hefði verið á
„þvælingi“. Lögreglan hefur hann
grunaðan um aðild að tilraun til
manndráps.
Skotmaður
áfram í varðhaldi
Jónas Jónasson útvarpsmaður var jarðsunginn frá
Hallgrímskirkju í gær. Organisti við útförina var Jón
Stefánsson og Hlín Stefánsdóttir Behrens flutti lag sem
Jónas samdi þegar hann var 12 ára. Kistu hans báru
þau Sigurlaug Margrét Jónasdóttir, Skúli Eggert Þórð-
arson, Þórir Steingrímsson, Jónas Baldur Hallsson,
Torfi Rafn Hermannsson, Ævar Kjartansson, Sævar
Örn Hallsson og Freyr Torfason.
Morgunblaðið/Kristinn
Útför Jónasar Jónassonar
Stefán B. Gunnlaugsson, lektor við
viðskiptadeild Háskólans á Akur-
eyri, segir í greinargerð til efna-
hags- og viðskiptaráðherra að stóra
frumvarpið svonefnda til heildar-
endurskoðunar á lögum um stjórn
fiskveiða hafi margvísleg og mjög
neikvæð áhrif á rekstur og efnahag
íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja.
Hækkun veiðigjalds, flutningur
kvóta í potta, algjört bann við veð-
setningu og fleiri atriði frumvarps-
ins dragi mjög úr hagkvæmni sjáv-
arútvegsfyrirtækja. Fyrirtækin séu
mörg skuldug og megi mörg ekki
við verulega verra rekstrar-
umhverfi. Þetta eigi sérstaklega við
um fyrirtæki í krókaaflamarki.
Neikvæð áhrif á
rekstur og efnahag
Fangavarðafélag Íslands styð-
ur hugmyndir um nýtt
fangelsi á Hólmsheiði.
„Það er komið nóg af
töfum á þessu brýna
verkefni og er varað við
því að Alþingi leggi stein
í götu þessa framfara-
máls eins og ráða má af
fréttum,“ segir í ályktun
frá félaginu. „Hólmsheið-
ina strax.“
Lausn strax
FANGAVERÐIR ÁLYKTA
Ögmundur
Jónasson
Nánari upplýsingar
á expressferdir.is
eða í síma 5 900 100
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Borgarferð
84.900 kr.
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum,
gisting á 4* hóteli í þrjár nætur ásamt
morgunverði. Íslensk fararstjórn.
30. des.–2. jan. 2012
Áramótaferð til Berlínar
Fararstjóri: Eirik Sördal
Verð á mann í tvíbýli