Morgunblaðið - 03.12.2011, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2011
Þráinn Bertelsson tók í gær tilmáls á Alþingi undir liðnum
störf þingsins og gagnrýndi þing-
menn harðlega fyrir það hvernig
þeir ræddu málin
undir þeim lið og í
fyrirspurnatímum.
Taldi Þráinn að
þjóðinni væri ofboð-
ið að fylgjast með
orðbragði þing-
manna.
Til að leggjaáherslu á mikilvægi þess að
sýna háttvísi í ræðustól Alþingis
kallaði hann framgöngu þing-
manna „heimsku“ og sagði enn-
fremur að „hvaða fífl sem er“ sæi
að tilteknar spurningar þingmanna
væru ótækar.
Þeir sem ekki tóku til máls sér-staklega til að finna að orð-
bragði annarra þingmanna töluðu
hvorki um „heimsku“ né „fífl“ en
engu að síður tókst einstaka þing-
manni að koma með gagnlegar
ábendingar.
Birgir Ármannsson benti til aðmynda á að innanmein rík-
isstjórnarinnar stæðu starfi þings-
ins fyrir þrifum og að mál hefðu
komið afar seint til þingsins að
þessu sinni, sem setti þingstörfin í
uppnám.
Guðlaugur Þór Þórðarson vaktiathygli á að með stefnu sinni í
skattamálum væri ríkisstjórnin á
hættulegri leið. Hann benti til dæm-
is á að í tíð ríkisstjórnarinnar hefði
skattalögum verið breytt 140 sinn-
um með tilheyrandi flækjustigi fyr-
ir skattgreiðendur.
Taldi hann að skattamálin þyrftuað fá betri umfjöllun en auðvit-
að var athugasemd Þráins um
heimsku og fífl líklegri til að auka
virðingu þingsins.
Þráinn
Bertelsson
Fíflin, heimskan og
virðing Alþingis
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 2.12., kl. 18.00
Reykjavík -2 skýjað
Bolungarvík -1 snjókoma
Akureyri -5 alskýjað
Kirkjubæjarkl. 1 alskýjað
Vestmannaeyjar 0 skýjað
Nuuk -5 snjókoma
Þórshöfn 5 súld
Ósló -1 heiðskírt
Kaupmannahöfn 5 skýjað
Stokkhólmur 2 heiðskírt
Helsinki 2 skúrir
Lúxemborg 5 léttskýjað
Brussel 6 léttskýjað
Dublin 6 skýjað
Glasgow 7 skýjað
London 7 heiðskírt
París 7 skýjað
Amsterdam 7 léttskýjað
Hamborg 6 skýjað
Berlín 6 skýjað
Vín 0 frostrigning
Moskva -1 snjókoma
Algarve 16 léttskýjað
Madríd 8 léttskýjað
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 17 skýjað
Róm 13 léttskýjað
Aþena 12 léttskýjað
Winnipeg -2 alskýjað
Montreal 2 skúrir
New York 9 heiðskírt
Chicago 2 skýjað
Orlando 21 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
3. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:51 15:45
ÍSAFJÖRÐUR 11:27 15:18
SIGLUFJÖRÐUR 11:12 15:00
DJÚPIVOGUR 10:28 15:07
Í tilefni af 150 ára fæðing-
arafmæli Hannesar Haf-
stein, fyrsta ráðherra Ís-
lands, sunnudaginn 4.
desember, verður Ráð-
herrabústaðurinn við Tjarn-
argötu opinn almenningi.
Jafnframt verður dagskrá í
Þjóðmenningarhúsinu til-
einkuð minningu Hannesar.
Ráðherrabústaðurinn við
Tjarnargötu verður opinn almenningi
frá kl. 12-15, Guðjón Friðriksson
sagnfræðingur fræðir gesti
Dagskrá í Þjóðmenningarhúsi til-
einkuð minningu Hannesar Hafstein
hefst klukkan 15.
Jóhanna Sigurðardóttir
forsætisráðherra flytur
ávarp í upphafi.
Guðjón Friðriksson sagn-
fræðingur flytur erindi um
Hannes Hafstein, Arnar
Jónsson leikari flytur ljóð
eftir Hannes og Guðmundur
Andri Thorsson rithöfundur
fjallar um skáldið Hannes
Hafstein. Nemendur úr Listaháskóla
Íslands flytja lög við ljóð eftir Hannes
Hafstein.
Kynnir verður Þórunn Erna Clau-
sen leikkona.
Dagskrá í minningu
Hannesar Hafstein
Hannes Hafstein
Í aðdraganda hins ár-
lega bréfamaraþons
vekur Íslandsdeild Am-
nesty International at-
hygli á áhrifamætti
bréfa og póstkorta til
stjórnvalda sem brjóta
mannréttindi. Gestum í
Smáralind mun í dag
gefast kostur á að skrifa
undir stærsta póstkort
Íslands og þrýsta á stjórnvöld í
Mexíkó, sem ekki hafa dregið til
ábyrgðar hermenn er nauðguðu
tveimur konum árið
2002.
Ár hvert stendur
Amnesty International
fyrir bréfamaraþoni í
tengslum við mann-
réttindadag Sameinuðu
þjóðanna 10. desem-
ber. Þá kemur fólk
saman um heim allan,
skrifar kveðjur til þol-
enda mannréttindabrota og þrýst-
ir á stjórnvöld að virða mannrétt-
indi.
Skrifað undir stærsta
póstkort Íslands
Ritað undir póstkort.
Tökum á móti matvörum sem þið viljið gefa til
úthlutunar til þeirra sem minna mega sín fyrir jólin.
Móttaka alla virka daga kl. 9-17
að Eskihlíð 2-4 Reykjavík.
Fjölskylduhjálp Íslands, sjálfstætt starfandi hjálparsamtök.
Til fyrirtækja í landinu
frá Fjölskylduhjálp Íslands
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is