Morgunblaðið - 03.12.2011, Síða 22

Morgunblaðið - 03.12.2011, Síða 22
FRÉTTASKÝRING Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Orkustofnun leggur áherslu á að ljúka útboði á Drekasvæðinu, en hefur jafnframt stutt rann- sóknir á Gammssvæðinu úti fyrir Skjálfanda og Eyjafirði. Þá hefur stofnunin óskað eftir fjármagni til sýnatöku á hafsbotni fyrir norðan land, en ekki fengið. Í þingsályktunartillögu sem samþykkt var á Alþingi í vor segir að nauðsynlegt sé að kanna til þrautar hvort olíu- væn setlög eða gas sé að finna á landgrunni Íslands. Kristinn Einarsson, yf- irverkefnisstjóri auðlinda- nýtingar hjá Orkustofnun, segir ekki ljóst hvort og í hvaða verkefni verði farið á Gammssvæðinu á næsta ári. Engan veginn sé búið að leggja Gamminn til hlið- ar þó svo að nú sé meiri áhersla lögð á Drekann. „Í fyrra var tekið saman fyrir okkur hvað gert hefur verið á svæðinu fyrir norðan fram að þessu og settar voru fram til- lögur um hver yrðu næstu skref,“ segir Krist- inn. Unnið að úrvinnslu gagna „Orkustofnun styður síðan MS verkefni Sigríðar Magnúsdóttur um jarðfræði á Gammssvæðinu, en það er unnið í Háskóla Ís- lands undir handleiðslu Bryndísar Brands- dóttur. Meðal annars er þar unnið að því að greina hljóðendurvarpsmælingar, sem gerðar voru á svæðinu á árunum 2000-2005 og er skýrsla um þá úrvinnslu væntanleg á næsta ári. Þegar niðurstöður liggja fyrir ættu þær að gefa okkur nánari upplýsingar um hvar ætti að taka sýni úr efstu metrunum á hafsbotni og senda til efnagreiningar. Þetta yrði þá í sam- ræmi við það sem gert var á Drekasvæðinu. Við höfum gert áætlun um kostnað og farið fram á 8-9 milljóna króna fjárveitingu, en ekki fengið framgang í þessum þrengingum sem nú eru,“ segir Kristinn. Ólíkt öllum þekktum olíusvæðum Í skýrslu Bjarna Richter og Karls Gunn- arssonar, sérfræðinga hjá Íslenskum orku- rannsóknum, ÍSOR, frá því í fyrravor er fjallað um þær rannsóknir sem gerðar hafa verið á Gammssvæðinu. Það er skilgreint sem olíu- leitarsvæði fyrir Norðurlandi, er tekur einkum til Tjörnesbrotabeltisins og nær frá Öxarfirði vestur fyrir Eyjafjarðarál, um 150 km löng spilda og um 50 km breið. Í íslensku ágripi skýrslunnar segir m.a: „Óvissa ríkir um hvort olíumyndandi jarðlög séu til staðar í verulegum mæli, og hvort þau hafi gefið frá sér kolvetni. Þetta eitt og sér nægir til að gera olíuleit á Gammssvæðinu mjög áhættusama. Þá skiptir einnig miklu máli hvort lífræna efnið sé af þeim toga sem mynd- ar fremur olíu en gas, því olíulind væri mun arðbærari en gaslind.“ Lagt er til að tekin verði sýni af botnseti í Skjálfanda og þau greind með tilliti til hugs- anlegs gass í porum, og það sé nú hæfilegur áfangi til að styrkja mat á olíulíkum Í niðurlagi ágripsins segir síðan: „Rétt er þó að leggja áherslu á það að jarðlagagerð og -aldur svæðisins er ólíkt öllum þeim olíu- svæðum sem þekkjast annars staðar í okkar heimshluta. Vegna þessa er erfitt að koma á eiginlegri olíuleit eða freista olíufyrirtækja til að hefja hér viðamiklar olíurannsóknir, nema sýnt sé fram á að fyrir hendi sé mögulega ný tegund af olíumyndunarkerfi, svo sem óvenju- legt uppsprettuberg.“ Vilja frekari rannsóknir Í þingsályktunartillögu sex þingmanna Sjálfstæðisflokksins frá 1996 segir að Alþingi álykti að fela ríkisstjórninni að stuðla að því að nú þegar verði hafnar markvissar rannsóknir á því hvort olía eða gas finnist á landgrunni Ís- lands. Fyrsti flutningsmaður var Guðmundur Hallvarðsson. Síðastliðið vor var samþykkt þingsálykt- un sama efnis frá sex þingmönnum Sjálfstæð- isflokksins. Kristján Þór Júlíusson var fyrsti flutningsmaður, en hann hafði áður lagt fram þingsályktunartillögu sama efnis og barist fyr- ir frekari rannsóknum á landgrunninu undan Norðausturlandi. Áhersla á Dreka, Gammurinn bíður  Óskað eftir fjármagni til sýnatöku á hafsbotni fyrir Norðurlandi  „Óvissa ríkir um hvort olíu- myndandi jarðlög séu til staðar í verulegum mæli“  Í þingsályktun er hvatt til markvissra rannsókna Ljósmynd/www.mats.is Flatey 1982 Þykk setlög á svæðinu frá Skjálfanda, vestur í suðurenda Eyjafjarðaráls og norður undir Grímsey kalla á frekari rannsóknir. Kristinn Einarsson 22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2011 Það er ekki ýkja flókið að tengja olíu- leitarsvæðið austur og norðaustur af land- inu við dreka. Það er að segja þegar einhver allt annar maður hefur fengið hugmyndina að nafninu. Landvættirnar eru lykillinn að nöfnum á mögulegum olíusvæðum Ís- lendinga og heiðurinn af þessum nöfnum á Kristinn Einarsson, sem starfar einmitt við auðlinda- nýtingu hjá Orkustofnun. Ekki skemmir fyrir að nöfnin fann hann uppi á vegg í iðnaðarráðuneytinu! „Þetta var á upphafs- tímum undirbúnings að olíuleit á Jan Ma- yen-svæðinu, líklega ár- ið 2006,“ segir Kristinn. „Á fundi í ráðuneytinu fannst fundarmönnum óheppilegt að nota í sí- fellu örnefni sem vísuðu til yfirráða annarra ríkja, í þessu tilviki Jan Mayen. Þar sem ég sat þarna horfði ég á skjaldarmerki Íslands uppi á vegg og lausn- in blasti við. Mér datt í hug að landvættirnar væru gott auðkenni fyrir þessi þrjú mögu- legu olíusvæði Íslendinga. Ýmis kerfi eru notuð við að gefa olíusvæðum heiti og landvættirnar falla vel að þeim. Þannig varð úr að drekinn er notaður fyrir aust- ursvæðið, gammurinn fyrir Tjörnes- eða norð- ursvæðið og bergrisinn fyrir þann hluta Hatton Rockall-svæðisins suður af landinu, sem Íslend- ingar gera tilkall til. Þá vantar aðeins mögulegt olíusvæði fyrir Vest- urlandi og Vestfjörðum svo við getum notað grið- unginn,“ segir Kristinn. Landvættirnar voru lykillinn LAUSNIN BLASTI VIÐ Á VEGGNUM Í RÁÐUNEYTINU - nýr auglýsingamiðill  569-1100finnur@mbl.is Jólasöfnun Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur er hafin Það hefur sýnt sig að á erfiðum tímum stendur íslenska þjóðin saman og sýnir stuðning, hver og einn eftir bestu getu. Hægt er að leggja framlög inn á reikning nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119 Einnig er opið fyrir síma á skrifstofutíma s. 551 4349, netfang: maedur@simnet.is Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu mánudaginn 5. desember, kl. 18, í Galleríi Fold, á Rauðarárstíg G unnlaugurScheving G unnlaugurScheving Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna svo og fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna. Verkin verða sýnd laugardag 11–17, sunnudag 12–17, mánudag 10–17 Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is Jólauppboð í Galleríi Fold

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.