Morgunblaðið - 03.12.2011, Qupperneq 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2011
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Það er ákveðinn léttir að vera bú-
inn með þetta mikla verk. Seinni
bókin varð stærri en upphaflega var
áætlunin. Spennan hefur verið mikil
síðustu vikurnar en núna er hundr-
að ára mjög söguleg saga Íslands-
mótsins komin á öruggan stað,“ seg-
ir Sigmundur Ó. Steinarsson
blaðamaður en seinna bindið af sögu
Íslandsmótsins í knattspyrnu kom út
í gær. Seinna bindið nær yfir tíma-
bilið 1966 til dagsins í dag, telur 512
síður, en fyrra bindið var 384 síður
og fjallaði um upphaf knattspyrn-
unnar á Íslandi fram að fyrsta Ís-
landsmótinu sem fór fram 1912 og
sagan síðan rakin til 1965. Alls eru
þetta því orðnar nærri 900 þéttar
blaðsíður í máli, myndum og grafík
af sögu knattspyrnunnar. Bækurnar
samanlagt ein fimm kíló að þyngd.
Yfir fjögur þúsund nöfn
Yfir fjögur þúsund nöfn eru í
nafnaskrá í verkinu, en í því er að
finna umfjöllun um öll mótin, liðin,
leikmenn, þjálfara og flest það sem
viðkemur þessari vinsælustu íþrótt
þjóðarinnar. Frásagnir eru af atvik-
um innan vallar sem utan. „Menn
eru ekkert hættir að spila þó að þeir
hafi lagt skóna á hilluna, þeir halda
áfram að spila á síðum bókarinnar,“
segir Sigmundur en myndir eru af
flestum Íslandsmeisturum gegnum
tíðina, allt frá þeim fyrstu í KR árið
1912 til sama félags í sumar þegar
titlinum var hampað í Vestur-
bænum. „KR-ingar loka því hringn-
um,“ segir Sigmundur.
Hann segir bækurnar vera þjóð-
arspegil fyrri tíma og höfða ekki
eingöngu til knattspyrnuáhuga-
manna. „Þetta er saga um þjóðfé-
lagið eins og það hefur þróast. Á ár-
um áður var Melavöllurinn hjarta
félagslífs í Reykjavík, þar hittist
fólkið og þaðan fóru fyrstu útvarps-
lýsingar frá íþróttaviðburði á Ís-
landi. Fyrstu ár fótboltans komu
menn utan af landi til Reykjavíkur
til að læra galdra knattspyrnunnar,
leikreglur og annað, og fóru síðan
heim til sín að boða fagnaðar-
erindið.“ Sigmundur byrjaði á verk-
inu af fullum krafti árið 2008 en
segja má að hann hafi óbeint verið í
því að safna efni um fótboltann allt
frá því að hann var smápolli. Þá
safnaði hann úrklippum um boltann
og hélt saman margskonar tölfræði.
Frá árinu 1971, eða í 40 ár, hefur
hann starfað sem íþróttafréttamað-
ur og viðað að sér ýmsum fróðleik.
„Það hefur mikill tími farið í að leita
uppi gömul gögn og myndir. Þó að
stafræna tæknin í ljósmyndun sé af
hinu góða þá halda menn ekki eins
vel utan um myndirnar og áður og
því getur oft verið djúpt á þeim. En
verkefnið hefur verið mjög
skemmtilegt og ég vona að vel hafi
tekist til og lesendur eigi eftir að
njóta um ókomna framtíð,“ segir
Sigmundur, sem sagðist þó ekki
vera búinn að taka síðustu spyrnuna
á vellinum!
KR-ingar lokuðu hringnum
Seinna bindið um sögu Íslandsmótsins í knattspyrnu í 100 ár komið út Léttir að þetta er búið,
segir höfundurinn Sigmundur Ó. Steinarsson Bækurnar samanlagt ein fimm kíló að þyngd
Morgunblaðið/RAX
Útgáfuhóf Sigursteinn Gíslason (t.v.) og Gunnar Guðmannsson með bækurnar ásamt Geir Þorsteinssyni, formanni
KSÍ, og Sigmundi Ó. Steinarssyni rithöfundi. Fyrstu eintökin voru afhent á blaðamannafundi hjá KSÍ í gær.
Það var sannkölluð meist-
arastemning á Laugardalsvell-
inum í gær þegar stór hópur af
gömlum meisturum mætti á
völlinn til að fagna því að saga
Íslandsmótsins er komin út.
Fyrstu eintök fengu þeir Gunnar
Guðmannsson og Sigursteinn
Gíslason, sem báðir hömpuðu
titlinum níu sinnum á glæsi-
legum knattspyrnuferli sínum.
Gunnar varð Íslandsmeistari
með KR, fyrst árið 1948 og síð-
ast árið 1965. Sigursteinn varð
meistari með Skagamönnum
fimm sinnum í röð, árin 1992-
1996, og síðan fjórum sinnum
með KR árin 1999-2003, að
2001 undanskildu.
Margfaldir
meistarar
BÓKINNI FAGNAÐ
Sigrún Eldjárn, rithöfundur og
myndlistarmaður, hlaut í gær Ís-
lensku bjartsýnisverðlaunin 2011.
Frú Vigdís Finnbogadóttir, formað-
ur dómnefndar, kynnti verðlauna-
hafann við hátíðlega athöfn í Iðnó og
arftaki hennar á Bessastöðum, Ólaf-
ur Ragnar Grímsson, afhenti Sig-
rúnu áletraðan verðlaunagrip úr áli
og verðlaunafé upp á eina milljón
króna. Íslensku bjartsýnisverðlaun-
in voru fyrst afhent árið 1981 og
voru þá kennd við upphafsmann
sinn, danska athafnamanninn Peter
Bröste. Þegar Bröste dró sig í hlé
skoraði hann á íslensk fyrirtæki að
halda verðlaununum við og hefur
Alcan á Íslandi hf. verið bakhjarl
þeirra frá árinu 2000.
Sigrún Eldjárn hefur hlotið fjölda
viðurkenninga fyrir verk sín gegn-
um tíðina; myndskreytingar og
barnabækur, m.a. Barnabókaverð-
laun Reykjavíkurborgar.
Sigrún fékk bjartsýnisverðlaunin
Ljósmynd/Alcan
Bjartsýnisverðlaun Sigrún Eldjárn með verðlaunin, ásamt Rannveigu Rist,
forstjóra Alcan á Íslandi, og Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands.
Lágmúla - Laugavegi - Garðatorgi - Smáralind - Smáratorgi - Borgarnesi - Grundarfirði - Stykkishólmi - Búðardal - Patreksfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Blönduósi - Hvammstanga
Skagaströnd - Sauðárkróki - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Egilsstöðum - Seyðisfirði - Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Fáskrúðsfirði - Höfn - Laugarási - Selfossi - Grindavík - Keflavík
– Lifið heil
www.lyfja.is
Jólin eru tími til að gefa.
Í Lyfju finnur þú úrval af gjafavöru í pakkana til þeirra
sem þér þykir vænt um. Við erum aldrei langt undan.
Mundu eftir jólahandbók Lyfju.
Kannski er jólagjöfin í Lyfju
MEISTARAVERK!
holabok.is/holar@holabok.is
Örlög og afdrif
skipalestanna sem
fóru frá Hvalfirði á
stríðsárunum með
vopn og vistir til
Rússlands.
Mögnuð lesning
um mannraunir
og hetjudáðir.