Morgunblaðið - 03.12.2011, Side 28

Morgunblaðið - 03.12.2011, Side 28
ÚR BÆJARLÍFINU Björn Björnsson Sauðárkrókur Eftir gott haust hefur nú brugðið til verri tíðar og kom norðlensk stór- hríð í vikubyrjun en á miðvikudag birti með kulda og stillu. Eins og oft áður voru vegfarendur ekki nógu gætnir og víða sáust uppfenntir bílar í vegköntum eða utan vega eftir veðrið. Sem betur fer er ekki vitað um nein slys. Náttúran getur alltaf valdið okkur erfiðleikum, það er vit- að, en verra er þegar erfiðleikarnir sem á dynja eru manngerðir.    Stjórnvöld boða enn eitt árið stóran niðurskurð við heilbrigð- isstofnun hér og draga svo aðeins í land og fá heimamenn til að fagna því að sparkið er ekki alveg eins þjösnalegt og til stóð fyrst. Ljóst er þó að fjölmörg störf glatast, þjón- usta hverfur og íbúar verða að taka á sig aukin óþægindi og kostnað til að sækja þjónustu úr héraði.    Þá hefur, líklega til að gera þetta allt léttara verið ákveðið að hætta öllu flugi til Sauðárkróks um næstu áramót, og nú verður eingöngu treyst á landveginn, en á fjárlögum næsta árs er nánast ekkert ætlað til úrbóta í vegamálum á Nv.landi.    Líka hefur ríkisendurskoðun spurt hvort Háskólinn á Hólum sé rekstrareining sem unnt sé að reka og er þá væntanlega stutt í að þessi stofnun verði annað tveggja lögð niður eða færð undir forræði stofn- unar sunnan heiða.    Stjórn sveitarfélagsins hefur enn ekki getað lagt fram fjárhags- áætlun 2012 þar sem ekki liggur fyr- ir framlag úr Jöfnunarsjóði, og jafn- vel hefur verið boðað að um niðurskurð verði þar að ræða og hafa því fulltrúarnir frekar lítið til að byggja áætlanirnar á.    Óvandaðir menn hafa oft sagt að í Skagafirði sé bruggað ótæpi- lega, sem er auðvitað fráleitt, en nú hafa skagfirskir eignast sitt eigið brugghús sem framleiðir eðalbjór undir nafninu Gæðingur og fer vel á því.    Fyrsti hvellur vetrar er farinn, en hátíð jóla nálgast og senn fer dag að lengja, jólahlaðborð eru í bæ og héraði aðventukvöld eru í flestum kirkjum, litlujól og helgileikir í öll- um skólum, enda hefur enginn bannað skagfirskum börnum að fara með eitthvað fallegt í aðdraganda jóla. Vetur, við upphaf aðventu Morgunblaðið/Björn Björnsson Sauðárkrókur Vetur konungur bankaði uppá á Króknum í vikubyrjun með norðan stórhríð en síðan stytti upp. 28 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2011 Morgunblaðið birtir fram til jóla upplýsingar um einhverja þeirra viðburða sem eru á dagskrá vítt og breitt um landið. 21 dagur til jóla Laugardaginn 3. desember verður mikið um að vera á Sólheimum. Dagurinn byrjar klukkan 11.00 með jólastund Kirkjuskólans í Sól- heimakirkju, jólasveinar koma í heimsókn og heilsa upp á börn og fullorðna. Klukkan 14.00 verða tónleikar Breiðfirðingakórsins í Sólheima- kirkju og mun kórinn syngja jóla- lög, létt og skemmtileg dagskrá en líka hátíðleg. Klukkan 15.30 tekur Bógómil Font við keflinu og heldur uppi jólastemningu í kaffihúsinu Grænu könnunni og flytur nokkur erlend og innlend dægurlög ásamt undirleikara. Aðgangur er ókeypis á alla viðburði dagsins. Samsýning vinnustofa er í Ingustofu, verslunin Vala og kaffihúsið Græna kannan eru opin frá 14-18. Allir eru hjart- anlega velkomnir. Aðventudagar á Sólheimum Sólheimar Jólasveinarnir vekja ætíð mikla lukku hjá yngstu kynslóðinni. Handverkssala Ljóssins verður haldin laugardag- inn 3. desember kl. 13-17 í dag, laugardag, í Þrótt- arheimilinu við Engjateig í Laugardal. Hún er orð- in árlegur viðburður fyrir jólin þar sem hægt er að kaupa fallegar vörur á góðu verði, segir í tilkynn- ingu. Um 50 sjálfboðaliðar koma að sölunni, bæði á handverksdaginn sjálfan en eins hefur verið stór hópur af krabbameinsgreindum búið til hand- verkið, saumað, prjónað, málað og smíðað. Í dag má m.a. sjá nýja hönnun í peysum, kjólum og tösk- um. Þá má ekki gleyma öllum aðstandendunum sem gefa líka á söluna. Einnig verður selt vöfflukaffi á staðnum. Um 300 einstaklingar sækja Ljósið heim í hverjum mánuði. Starfsemin hefur vaxið ár frá ári í þau sex ár sem Ljósið hefur starfað. Nær öll starf- semin er enn rekin fyrir styrktarfé. Nýlega festi Ljósið kaup á fasteign við Langholtsveg. Handverkssala Ljóssins í Þróttarheimilinu Hinn árlegi jólabasar Kristniboðs- félags kvenna verður haldinn laug- ardaginn 3. desember frá kl. 14 í Kristniboðssalnum á Háaleitisbraut 58-60. Á boðstólum verða kökur, ýmsir munir, jólakort, skyndihappdrætti o.fl. Einnig verður hægt að fá keypt kaffi, heitt súkkulaði og nýbakaðar vöfflur. Allur ágóði rennur til starfsins í Austur-Afríku. Jólabasar til styrkt- ar kristniboðsstarfi Aðventuhátíð Bergmáls verður haldin í Háteigskirkju sunnudaginn 4. des. kl. 16.00. Þarna munu gestir eiga notalega samverustund, sungnir verða jóla- sálmar, hugvekja flutt og Ágúst Ólafsson baritón syngur nokkur lög. Allir velunnarar Bergmáls eru velkomnir með fjölskyldum sínum og aðgangur er ókeypis. Bergmál er vina- og líknarfélag krabbameinssjúkra sem hefur byggt Bergheima á Sólheimum. Aðventuhátíð Berg- máls í Háteigskirkju Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi, fjármagnar starfsemi sína að langmestu leyti með sjálfsaflafé. Þar gegnir sala jólakorta veigamiklu hlutverki. Í ár verður gefið út nýtt jólakort og merkispjald með myndinni „Aðfall jóla“ eftir listamanninn Þóru Einarsdóttur en hún vann myndina sérstaklega fyrir félagið og gaf til birtingar á kortunum. Jólakortin eru seld 8 saman í pakka ásamt um- slögum á 1.400 kr. Merkispjöldin eru 8 saman í pakka og eru seld á 400 kr. Hægt er að nálgast kortin hjá Blindrafélaginu, Hamrahlíð 17, eða senda tölvupóst á netfangið blind@blind.is. Sölumenn frá Blindrafélaginu munu ganga í hús í desember og bjóða kortin til sölu. Jólakort Blindrafélagsins komin út Árlegt jólakaffi Hringsins verður haldið á Broadway á morgun, sunnudaginn 4. desember, kl. 13:30. Miðasala hefst kl. 13. Boðið er upp á kaffihlaðborð að hætti Hrings- kvenna og margir listamenn koma fram með hljóðfæraleik, söng, dansi og glensi fyrir unga sem aldna. Allir gefa þeir vinnu sína. Þá verður happdrætti með góð- um vinningum sem ýmis fyrirtæki hafa gefið. Allur ágóði rennur til veikra barna á Íslandi. Jólakaffi Hringsins Laugardag- inn 3. desem- ber kl. 11-16 verður hinn árlegi jóla- basar hald- inn í Katt- holti, Stangarhyl 2, Reykjavík. Á boð- stólum verð- ur ýmislegt tengt jóla- haldi s.s. jólakort, merkimiðar og jólaskraut. Einnig kisuleikföng, kisuólar, ýmis smá- varningur s.s. kisustyttur, skart, úr, skrautmunir, bækur, geisla- diskar, smákökur og fleira. Sýndar verða nokkrar kisur í heimilisleit. Gestum verður boðið upp á kaffi, kakó og piparkökur. Heimilislausar kisur til sýnis á jólabasar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.