Morgunblaðið - 03.12.2011, Qupperneq 31
VIÐTAL
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjg@mbl.is
Breski tenórinn Paul Potts, sem sló
svo eftirminnilega í gegn í sjón-
varpsþáttunum Britain’s Got Talent
árið 2007, verður öðru sinni á meðal
þess tónlistarfólks sem kemur fram
á tónleikunum Jólagestir Björgvins
Halldórssonar sem fram fara klukk-
an 16 í dag í Laugadalshöll og síðan
aftur klukkan 21 í kvöld. Morgun-
blaðið tók Potts tali af því tilefni.
- Nú ertu staddur hér á Íslandi
öðru sinni. Áttu von á því að það
verði árlegur viðburður hjá þér að
heimsækja Ísland?
„Ég væri alveg til í það, það er
frábært að hafa komið hingað tvö ár
í röð. Það er mjög fallegt hérna og
ég mun örugglega koma aftur.“
- Þú hefur vafalaust verið
spurður ansi oft að þessu en áttirðu
einhvern tímann von á þeim frama
sem þú hefur notið?
„Nei, ég átti aldrei von á því að
starfa við það sem ég hef haft svo
mikla unun af. Ég leit alltaf svo á að
starf væri eitthvað sem maður yrði
að gera til þess að geta greitt reikn-
ingana sína. En þetta er vitaskuld
draumur sem rættist að starfa við
það sem ég hef unun af og ferðast til
frábærra staða eins og Íslands.“
- Það hlýtur að hafa verið frá-
bær upplifun þegar þú slóst í gegn í
Britain’s Got Talent?
„Þegar ég gekk út á sviðið átti
ég ekki von á öðru en í mesta lagi að
þetta væri fínt en þau hefðu samt
ekki áhuga á því. Ég taldi mig ekki
hafa rétta útlitið og ég söng ekki þá
tónlist sem nýtur mestra vinsælda.
Þannig að ég taldi mig ekki uppfylla
nein af skilyrðunum og því kom það
mér mjög á óvart að ná árangri í
þáttunum. Ég var mjög stressaður í
þáttunum og er reyndar alltaf
stressaður áður en ég fer á svið. Ég
held reyndar að það geti verið hjálp-
legt og það kemur líka í veg fyrir að
þú takir hlutunum sem gefnum.“
- Ætlarðu að ferðast eitthvað á
Íslandi í heimsókn þinni?
„Ég veit reyndar ekki hvað við
munum hafa mikinn tíma aflögu en
ég vona að við getum skoðað okkur
eitthvað um áður en við yfirgefum
landið.“
- Hvert er ferðinni heitið héð-
an?
„Það eru næst nokkrir tónleikar
í Varsjá og síðan í Sviss og Dan-
mörku og fleira til þess að halda mér
uppteknum. Ég kíki annars reglu-
lega í dagbókina mína vegna þess að
hún breytist oft hratt.“
- Að lokum, er þetta bransi sem
þú kannt vel við þig í?
„Ég held að það sé alltaf mjög
mikilvægt að vera maður sjálfur,
sama hvað þú tekur þér fyrir hend-
ur. Annars held ég að þú missir að
hluta til sjónar á því hver þú ert. Ég
hef þess vegna lagt áherslu á að
reyna að gera áfram það sem ég hef
alltaf gert og það hjálpar mér að
halda fótunum á jörðinni og hafa
stjórn á atburðarásinni.“
„Mikilvægt að vera
maður sjálfur“
Morgunblaðið/Ómar
Frægur Breski tenórinn Paul Potts í Laugardalshöll í gærkvöldi, áður en æfingar hófust fyrir tónleikana í dag.
Stórsöngvarinn Paul Potts kemur annað árið í röð fram á
jólatónleikum Björgvins í dag Morgunblaðið tók hann tali
Paul Potts
» Myndband af frumraun
Potts í Britain’s Got Talent á
YouTube, þar sem hann söng
aríuna Nessun Dorma, hefur
verið skoðað rúmlega 85 millj-
ón sinnum.
» Hann hefur selt milljónir
eintaka af plötum sínum og
komið fram á miklum fjölda
tónleika um allan heim síðan
hann sló í gegn.
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2011
Lögreglan á höf-
uðborgarsvæðinu
stöðvaði 320 öku-
menn í fyrra-
kvöld og -nótt í
sérstöku umferð-
areftirliti. Einn
ökumaður reynd-
ist ölvaður við
stýrið og annar
var undir áhrifum fíkniefna en báðir
eiga þeir ökuleyfissviptingu yfir
höfði sér. Fjórum til viðbótar var
gert að hætta akstri sökum þess að
þeir höfðu neytt áfengis en voru þó
undir leyfilegum mörkum. Sem fyrr
höfðu margir ökumenn ekki öku-
skírteini meðferðis en slíkt kæru-
leysi kostar viðkomandi 5.000 kr. Við
eftirlitið naut lögreglan aðstoðar fé-
laga sinna frá ríkislögreglustjóra.
320 ökumenn
stöðvaðir í sér-
stöku eftirliti
Á fundi sveitarstjórnar Skagafjarðar
í vikunni var samþykkt ályktun þar
sem tillögum um ráðstöfun veiði-
leyfagjalds frá starfshópi sjávarút-
vegsráðherra er fagnað. Þær feli í
sér viðurkenningu á þeirri miklu til-
færslu fjármagns sem við lýði sé frá
landsbyggðinni til höfuðborgar-
svæðisins og styðji þá viðleitni sem í
tillögunum er að finna til að tekjurn-
ar komi til baka, a.m.k. að hluta til. Í
tillögum starfshópsins er gert ráð
fyrir að tekjur af veiðigjaldi skiptist
þannig að 50% renni í ríkissjóð, 40%
til sjávarbyggða og 10% til þróunar-
og markaðsmála í sjávarútvegi.
Skagfirðingar vilja að veiðigjald
verði einn af lögmætum tekjustofn-
um sveitarfélaga. Ekki síst sé þetta
mikilvægt á tímum þar sem gríðar-
legur niðurskurður eigi sér stað víða
um land, m.a. í heilbrigðis- og sam-
göngumálum, „á sama tíma og at-
vinnulífið og ekki síst fyrirtæki á
landsbyggðinni eru látin bera æ
meiri skattbyrði,“ segir í ályktun
sveitarstjórnarinnar.
Fagna tillögum um
ráðstöfun veiðigjalds
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Skagafjörður Sveitarstjórnin fagn-
ar tillögum varðandi veiðigjald. útibúum okkar
... hann fær að velja
sjálfur hvað hann vill
... og k
og á ne
sem ke
Þú fær
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
1
1
-2
5
4
4
ortið gildir í verslunum um allan heim
tinu. Gjafakortið er góð og gagnleg gjöf
mur í fallegum umbúðum.
ð gjafakort Íslandsbanka í öllum