Morgunblaðið - 03.12.2011, Blaðsíða 32
32 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2011
Kauphöll Íslands hefur samþykkt
umsókn stjórnar Haga hf. um töku
hlutabréfa félagsins til viðskipa á
aðalmarkaði Kauphallarinnar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá
Kauphöllinni.
Þar segir að samþykkið sé háð
því að félagið uppfylli skilyrði
reglna fyrir útgefendur fjár-
málagerninga í NASDAQ OMX Ice-
land hf. um dreifingu hlutafjár fyr-
ir skráningardag. Gert er ráð fyrir
að fyrsti viðskiptadagur með hluti
Haga á markaði verði 15. desember
nk., en Kauphöllin mun tilkynna
fyrsta viðskiptadag með minnst
eins viðskiptadags fyrirvara. Eins
og fram hefur komið hér í Morg-
unblaðinu hefst útboð Haga á 20-
30% hlut í félaginu á mánudag og
er óskað eftir áskriftum á 11-13,5
krónur á hlut.
Kauphöllin samþykkir
viðskipti með Hagabréf
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Fyrirhugaðar breytingar á lögum
um innstæðutryggingar munu að
líkindum hafa þau áhrif að fjár-
munir, sem fram til þessa hafa
verið á innlánsreikningum banka-
stofnana, eiga í auknum mæli eft-
ir að leita til annarra fjárfest-
ingakosta – einkum
ríkisskuldabréfa og fasteigna.
Þetta kemur fram í skýrslu IFS
Greiningar um skuldabréfamark-
aðinn.
Til hefur staðið í nokkurn tíma
að ráðast í breytingar á innstæðu-
tryggingakerfinu, en efnahags- og
viðskiptaráðherra kynnti nýlega
efnhagsáætlun ráðuneytisins þar
sem fram kemur að stefnt sé að
lögleiðingu nýs innstæðutrygg-
ingakerfis fyrir lok þessa árs.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er hins vegar óvíst hvort
það muni takast fyrir þann tíma.
Í frumvarpi um innstæðutrygg-
ingar, sem lagt var fram í fyrra,
var lagaleg skilgreining á hugtak-
inu „innstæða“ þrengd frá núgild-
andi lögum. Heildsölu- og peninga-
markaðsinnlán eru ekki lengur
talin til innstæðna og sömuleiðis
innstæður fyrirtækja þar sem inn-
lánsstofnun fer með virkan eign-
arhlut.
Að sama skapi er fallið frá lág-
markstryggingu upp á 20.887 evrur
en í staðinn tekin upp hámarks-
trygging sem nemur 100.000 evr-
um.
Sigurður Örn Karlssson, hag-
fræðingur hjá IFS Greiningu, segir
í samtali við Morgunblaðið að verði
sambærilegt frumvarp að lögum sé
líklegt að stór fyrirtæki, sem hafi
tekist að byggja upp góða sjóðs-
stöðu á undanförnum misserum,
muni hafa meiri ástæðu en áður til
að leita annarra fjárfestingakosta
en innlánsreikninga.
Þetta ætti við um þau fyrirtæki
þar sem innstæður þeirra gætu
fallið utan við tryggingakerfið og
jafnframt innstæður fjárfesta, ein-
staklinga og fyrirtækja sem falla
innan tryggingakerfisins en væru
umfram 100 þúsund evra mörkin.
Svipaða sögu má segja um lífeyr-
issjóði, að sögn Sigurðar, en eigna-
staða þeirra í sjóðum og innstæðum
hefur aukist mikið eftir bankahrun-
ið 2008 vegna fárra fjárfestinga-
kosta og stóð hún fyrir skemmstu í
tæplega 160 milljörðum króna.
Ljóst er að lífeyrissjóðir þurfa
því að finna góðan farveg fyrir
þessar innstæður – ekki síst ef inn-
stæðutryggingakerfinu verður
breytt á næstunni.
Sigurður bendir á að auk fjár-
festingakosta á borð við ríkis-
skuldabréf – en IFS spáir að um-
framspurn eftir skuldabréfum 2012
muni nema 38 milljörðum – þá sé
líklegt að fyrirhuguð hlutafjárútboð
eigi eftir að trekkja að lífeyrissjóð-
ina.
Leita annarra fjárfestinga
Áform um nýtt innstæðutryggingakerfi myndu draga úr sókn í innlán
Lífeyrissjóðir þurfa að finna góðan farveg fyrir bankainnstæður
Bankainnstæður lífeyrissjóða
* M.v. 30. septemberHeimild: Seðlabanki Íslands og IFS Greining
180.000
160.000
140.000
120.000
100.000
80.000
60.000
40.000
20.000
0
19
98
19
99
20
00
20
01
20
02
20
03
20
04
20
05
20
06
20
07
20
08
20
09
20
10
20
11
*
Tölur eru í milljörðum króna
9.
0
94
10
.3
23
8.
80
5
11
.2
80
14
.3
31
18
.8
85
21
.9
40
28
.5
59
15
.0
37
44
.9
64
16
9.
03
2
16
2.
52
9
15
8.
64
4
15
8.
15
7
Actavis hefur eignast allt hlutafé í
PharmaPack International B.V.
Kaupverðið er ekki gefið upp.
Í tilkynningu frá Actavis kemur
fram að PharmaPack hafi aðsetur í
Zoetermeer í Hollandi og sérhæfi sig
í pökkun á hefðbundnum lyfjum og
líftæknilyfjum. Fyrirtækið hafi um-
talsverða reynslu í að uppfylla mis-
munandi kröfur fyrirtækja og landa
um pökkun og hafi sinnt pökkun fyr-
ir lyfjaiðnaðinn undanfarin 30 ár.
Afhendingartími
styttur um helming
„Ég hef þekkt til þessa góða félags
í langan tíma og er verulega stoltur
af því að forsvarsmenn þess ákváðu
að velja Actavis sem nýja eigendur,
því það var augljóst að þeim stóðu
fleiri kostir til boða,“ er haft eftir
Claudio Albrecht, forstjóra Actavis, í
tilkynningu félagsins.
Albrecht segir kaupin munu auka
til muna sveigjanleikann á útboðs-
mörkuðum og gera Actavis kleift að
sinna minni pöntunum á lágmarks-
magni fyrir smærri markaði.
Actavis kaupi umtalsvert magn af
lyfjum af öðrum framleiðendum.
Afhendingartíminn sé oft frá sex
mánuðum og upp í níu, sem sé allt of
langur tími. Með kaupunum á
PharmaPack International takist
fyrirtækinu að stytta afhendingar-
tímann um meira en helming.
agnes@mbl.is
Actavis kaupir
PharmaPack
Morgunblaðið/Kristinn
Ánægður Claudio Albrecht, forstjóri
Actavis, er ánægður með kaupin.
Sérhæfir sig í pökkun á hefðbundnum lyfjum
STUTTAR FRÉTTIR ...
Afgangur Viðskipti við útlönd hagstæð.
Viðskiptin hagstæð um
11,7 milljarða króna
● Viðskiptajöfnuður mældist hag-
stæður um 11,7 ma.kr. á þriðja ársfjórð-
ungi samanborið við 32,1 ma.kr. óhag-
stæðan jöfnuð fjórðunginn á undan.
Afgangur af vöruskiptum við útlönd var
33,5 ma.kr. og 27,3 ma.kr. á þjónustu-
viðskiptum. Jöfnuður þáttatekna var
hinsvegar neikvæður um 47,6 ma.kr,
skv. Seðlabankanum.
Halla á þáttatekjum má eins og áður
rekja til innlánsstofnana í slitameðferð.
● Gistinætur á hótelum í október síð-
astliðnum voru 117.000. Til sam-
anburðar voru þær 105.000 í október í
fyrra og fjölgaði því um 11% milli ára.
Erlendir gestir gistu langflestar nætur,
74% af öllum gistinóttum, og fjölgaði
um 13% frá október í fyrra. Gistinóttum
Íslendinga fjölgaði um 6%.
Gistinóttum fjölgaði
um 11% á milli ára
!"# $% " &'( )* '$*
++,-.+
+,/-0+
++1-11
.+-2.3
.4-2.3
+3-/+.
+.,-,.
+-/+3+
+,2-./
+/5-.3
++,-25
+,/-31
++3
.+-25
.4-2,3
+3-/10
+.5-+,
+-/.+/
+,2-,
+/5-3.
.+/-,/01
++,-33
+,1-.+
++3-02
.+-//0
.4-/23
+3-1+2
+.5-/2
+-/./5
+,/-0/
+14-+3
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Landfestar ehf. eru fasteignafélag í eigu Arion banka. Markmið félagsins er að þróa öflugt fyrirtæki á fasteignamarkaði. Félagið hefur til
umráða um hundrað og tíu þúsund fermetra af góðu húsnæði.
Stærsti hluti þess er skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Meðal helstu leigutaka félagsins eru bæði ríkisstofnanir og nokkur af stærri
fyrirtækjum landsins. Landfestar ehf. Sími 422 1400, www.landfestar.is
Upplýsingar veitir:
Jón Gretar Jónsson
rekstrarstjóri
s. 422 1400 / 856 1413
jon@landfestar.is
Borgartúnið býður afar lífvænleg skilyrði fyrir rekstur
kaffihúss. Þar iðar allt af mannlífi og gangandi umferð
hefur aukist verulega undanfarið.
Landfestar óska eftir rekstraraðila til að reka og leigja
kaffihúsið í anddyri Borgartúns 26.
Í húsinu starfa um 600 manns hjá 10 öflugum fyrirtækjum.
Kaffihús í B26
Til sölu
Verðbréfafyrirtæki - eignastýring og ráðgjöf
Bankastræti 5
101 Reykjavík
Arev verðbréfafyrirtæki hf. hefur samið við eigendur félagsins
A4 Skrifstofa og skóli ehf. um sölu á félaginu í opnu tilboðsferli.
A4 er í fararbroddi á sviði skrifstofu-, skóla-, föndur- og hannyrða-
vara. Hjá A4 er lögð áhersla á góða og trausta þjónustu við
viðskiptavini og vandað og gott vöruúrval.
Áhugasamir vinsamlega hafi samband við Sigurð Berntsson eða
Jón Scheving Thorsteinsson í síma 551-2500 eða sendið tölvupóst
á netfangið sb@arev.is eða jst@arev.is fyrir 11. desember 2011.