Morgunblaðið - 03.12.2011, Side 42
Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2011
Óvenjumikið grjót-
hrun í Oddskarðs-
göngunum sem innan-
ríkisráðherra og
nokkrir siðblindir
starfsmenn Vegagerð-
arinnar þræta fyrir
komst í fréttirnar sl.
vor við litla hrifningu
íbúa Fjarðabyggðar.
Meirihluti heima-
manna á suðurfjörð-
unum, Mið-Austur-
landi og norðan Fagradals telur að
allar fullyrðingar um gott ástand í
einbreiðu slysagildrunni sem er á
snjóflóðasvæði í 620 m hæð séu
ótrúverðugar. Þær eru fyrst og
fremst settar fram í formi rökleys-
unnar í þeim tilgangi að réttlæta
tilefnislausar árásir á Norðfirðinga
og samgöngumál Fjarðabyggðar
sem heimamenn, stjórnendur Al-
coa og allir þingmenn Norðaust-
urkjördæmis áttu að mótmæla.
Nú festast Norðfirðingar og
Seyðfirðingar í klóm svikahrappa
sem bjóða þeim birginn og gera
misheppnaða tilraun til að fjár-
magna Vaðlaheiðargöng í formi
vegtolla þegar þingmenn
Norðausturkjördæmis sitja á svik-
ráðum gagnvart Austfirðingum.
Það var tilgangurinn með kjör-
dæmabreytingunni sem Alþingi
var blekkt til að samþykkja. Í einn
klukkutíma og 20 mínútur hef ég
lokast inni á milli tveggja flutn-
ingabifreiða sem ekið var úr gagn-
stæðum áttum inn í tvær ein-
breiðar slysagildrur norður á
Tröllaskaga og eina sem stendur í
620 m hæð milli Eskifjarðar og
Norðfjarðar.
Fyrri hluta maí-
mánaðar bárust frétt-
ir af því að tveir 100
kg þungir steinar
hefðu losnað inni í
Oddskarðsgöngunum
þó að forstöðumaður
Vegagerðarinnar á
Ísafirði sem vill vera í
vitorði með Ögmundi
Jónassyni haldi fram
hinu gagnstæða. Báðir
þessir stuðningsmenn
Vaðlaheiðarganga sem
eru úr tengslum við
raunveruleikann taka
engar ákvarðanir um hvort það
eigi að afskrifa fyrirhuguð Norð-
fjarðargöng endanlega eða ekki.
Til þess er hönnunarferlið alltof
langt komið. Í gegnum Oddskarðs-
göngin hefur umferð stóraukist
allt árið um kring eftir að sveit-
arfélögin á Mið-Austurlandi sam-
einuðust án þess að ráðist væri í
meiriháttar viðhald á þessari
dauðagildru sem felst í því að
klæða hana að innan. Að loknum
frosthörkum alla vetrarmánuðina
eykst hættan á miklu grjóthruni í
þessari slysagildru á vorin sem
forstöðumaður Vegagerðarinnar á
Ísafirði getur alltaf þrætt fyrir.
Hvað eftir annað hafa stuðnings-
menn Vaðlaheiðarganga í þessum
árásum á Austfirðinga spilað sömu
þvæluna upp í honum. Greinilegt
er að hann tapar algerlega öllum
áttum án þess að honum sé það
ljóst hvort hann hafi áður lokast
inni í einbreiðu flöskuhálsunum á
norðanverðum Vestfjörðum eða
setið fastur í 620 m hæð austur á
fjörðum.
Þessum forstöðumanni sam-
göngumála á Vestfjörðum og
starfsbræðrum hans er ljúft að af-
skræma allar staðreyndir um
grjóthrunið í slysagildrunni milli
Eskifjarðar og Norðfjarðar þegar
þeir sjá þingmenn Norðaust-
urkjördæmis halda uppi árásum á
samgöngumál Fjarðabyggðar og
þá Norðfirðinga sem telja miklu
öruggara fyrir sig að flytja lög-
heimili sitt til Reyðarfjarðar eftir
að þeir fengu vinnu í álverinu hjá
Alcoa. Egilsstaðabúar, Héraðsbúar
og Seyðfirðingar sem þar starfa
hafa neyðst til að flytja lögheimili
sitt úr sinni heimabyggð til Reyð-
arfjarðar vegna þess að þeir telja
leiðirnar á Fagradal og Fjarð-
arheiði alltof illviðrasamar og snjó-
þungar. Sömu fréttir berast líka
frá Norðfirðingum sem fullyrða að
of mikil veðurhæð komi í veg fyrir
að þeir geti treyst báðum leiðunum
upp að Oddskarðsgöngunum. Þetta
veldur því að heimamenn búsettir
utan Norðfjarðar geta ekki treyst
á stóra Fjórðungssjúkrahúsið í
Neskaupstað þegar starfsmenn
Vegagerðarinnar verða hvað eftir
annað að hætta snjómokstri á
Fagradal og Fjarðarheiði vegna
snjóþyngsla og veðurhæðar sem
hefur náð meira en 30 metrum á
sekúndu. Ein forsendan fyrir því
að allir Austfirðingar geti treyst á
stóra Fjórðungssjúkrahúsið næstu
áratugina er að ákvörðun um tví-
breið jarðgöng í stað gömlu Odd-
skarðsganganna liggi fyrir á þessu
kjörtímabili.
Starfandi læknar í Neskaupstað
ættu að standa saman og svara því
hvort þeir vilji beina þeirri spurn-
ingu til þingmanna Norðaustur-
kjördæmis að skoðaðir verði
möguleikar á jarðgöngum undir
Eskifjarðarheiði. Fyrr geta heima-
menn norðan Fagradals aldrei
treyst á stóra Fjórðungssjúkra-
húsið.
Árás Vegagerðarinnar
á Norðfirðinga
Eftir Guðmund
Karl Jónsson » Að loknum frost-
hörkum alla vetr-
armánuðina eykst hætt-
an á miklu grjóthruni í
þessari slysagildru á
vorin sem forstöðumað-
ur Vegagerðarinnar á
Ísafirði getur alltaf
þrætt fyrir.
Guðmundur
Karl Jónsson
Höfundur er farandverkamaður.
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið birtir alla útgáfu-
daga aðsendar umræðugreinar frá
lesendum. Blaðið áskilur sér rétt til
að hafna greinum, stytta texta í sam-
ráði við höfunda og ákveða hvort
grein birtist í umræðunni eða í bréf-
um til blaðsins.
Blaðið birtir ekki greinar, sem eru
skrifaðar fyrst og fremst til að
kynna starfsemi einstakra stofnana,
fyrirtækja eða samtaka eða til að
kynna viðburði, svo sem fundi og
ráðstefnur.
Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðs-
ins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi lið-
ur, „Senda inn minningargrein“, val-
inn úr felliglugganum. Ekki er leng-
ur tekið við greinum sem sendar eru
í tölvupósti og greinar sem sendar
eru á aðra miðla eru ekki birtar.
Í fyrsta skipti sem formið er notað
þarf notandinn að nýskrá sig inn í
kerfið, en næst þegar kerfið er notað
er nóg að slá inn netfang og lykilorð
og er þá notandasvæðið virkt.
Sími 588 9090 • Síðumúla 21 • 108 Reykjavík
www.eignamidlun.is • Sverrir Kristinsson, lögg. fasteignasali
Reykjavík
Eignir óskast
2ja herbergja íbúðir óskast
Fjársterkur kaupandi óskar eftir nokkrum 2ja herbergja
íbúðum í lyftuhúsum á Höfuðborgarsvæðinu.
Íbúðirnar verða staðgreiddar ef um semst.
Allar nánari uppl. veitir Magnús Geir Pálsson
sölumaður á Eignamiðlun.
Einbýlishús í Þingholtunum óskast
- staðgreiðsla
Óskum eftir 250-400 fm einbýli í Þingholtunum.
Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson.
Raðhús í Fossvogi óskast
Höfum kaupanda að raðhúsi í Fossvogi.
Góðar greiðslur í boði.
Allar nánari uppl veitir Kjartan Hallgeirsson í síma 824-9093
Einbýlishús í Vesturborginni óskast
Æskileg stærð 300-400 fm. Traustur kaupandi óskar eftir
einbýlishúsi í Vesturborginni. Góðar greiðslur í boði.
Nánari upplýsingar veitir
Sverrir Kristinsson í síma 861-8514
Húseign í nágrenni Landakotstúns
óskast - staðgreiðsla
Óskum eftir 300-400 fm húseign sem næst
Landakotstúni, staðgreiðsla í boði.
Sölumenn veita allar nánari upplýsingar.
800-1200 fm atvinnuhúsnæði óskast -
staðgreiðsla
Óskum eftir 800 - 1200 fm atvinnuhúsnæði, helst á einni
hæð með góðri lofthæð. Æskileg staðsetning eru Hvörfin í
Kópavogi eða Hálsarnir í Árbænum. Mosfellsbær kemur
einnig til greina. Aðeins kemur til greina heil húseign. Stað-
greiðsla í boði.
Allar nánari upplýsingar veitir
Magnús Geir Pálsson á Eignamiðlun
2-4 þús. fm húsnæði í Örfisey óskast
Óskum eftir fyrir fjársterkan aðila 2-4þús. fm húsnæði í Örfisey.
Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson.
Sérhæð í Vesturborginni eða í
Hlíðunum óskast
Traustur kaupandi óskar eftir 120 - 150 fm sérhæð í Vestur-
borginni eða í Hlíðunum. Góðar greiðslur í boði.
Sölumenn veita allar nánari upplýsingar.
Óskum eftir 2ja herbergja
Fjársterkur kaupandi óskar eftir þremur 2ja herb. íbúðum,
helst í sama húsi, miðsvæðis í Reykjavík. Staðgreiðsla í boði.
Sölumenn veita allar nánari upplýsingar.
Vantar - Vantar - Vantar
Vegna mikillar sölu undanfarið vantar okkur á
söluskrá allar stærðir og gerðir af íbúðarhúsnæði.
Allar nánari upplýsingar veita sölumenn Eignamiðlunar.
holabok.is/holar@holabok.is
Glæsilegt
ættfræðirit.
Ómissandi fyrir
þá sem eru af
Engeyjarætt
sem og áhuga-
menn um ætt-
fræði og þjóð-
legan fróðleik.
ENGEYJARÆTT
Mami „True Beauty“
My spirit is abundant
and free
Kimmidoll
á Íslandi
Ármúla 38 | Sími 588 5011