Morgunblaðið - 03.12.2011, Síða 43
UMRÆÐAN 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2011
Í starfi mínu sem
náms- og starfsráðgjafi
hjá Símennt-
unarmiðstöðinni á
Vesturlandi hef ég
veitt mörgum innflytj-
endum á svæðinu ráð-
gjöf. Ég hef komist að
þeirri niðurstöðu að
náms- og starfsráðgjöf
fyrir innflytjendur er
mikilvægur þáttur,
ekki bara fyrir þá persónulega held-
ur fyrir samfélagið í heild. Innflytj-
endur á Íslandi eru af ólíkum upp-
runa með mismunandi reynslu og
menntun, með fjölbreyttan mennt-
unarlegan bakgrunn í farteskinu.
Flestir stefna aftur til heimalands-
ins, þó að raunveruleikinn verði
gjarnan annar, en tíminn hefur leitt í
ljós að margir ílendast hér. Margir
fluttu hingað tímabundið vegna at-
vinnu, og gerðu ekki sérstaklega ráð
fyrir starfsframa, heldur tóku þau
störf sem buðust. Það er því algengt
að hitta fólk af erlendum uppruna
með háskólagráður eða aðra mennt-
un, sem starfar við ræstingar, ýmis
konar framleiðslustörf eða störf sem
Íslendingar kæra sig ekki um. Vinn-
an er stór hluti af lífinu, og því nauð-
synlegt að finna vinnu sem mætir
væntingum okkar og markmiðum.
Atvinna er ekki bara leið til að kom-
ast af, heldur er hún leið til fé-
lagslegar þátttöku, til að öðlast
stöðu, til að halda virkni, örvar vits-
muni og er dagleg áskorun. Að
starfa við eitthvað sem kemur ekki
til móts við þessar þarfir gerir lífið
erfiðara, leiðinlegra og getur valdið
ýmsum persónulegum og fé-
lagslegum vandamálum. Þegar svo
er ástatt er atvinnulífið líka að tapa,
það er ekki að nýta til fulls hæfni
vinnandi fólks, ekki menntun þess,
færni og þekkingu. Ég held því fram
að þarna sé verið að kasta mannauð
á glæ og að menntun, hæfni og
starfsreynsla innflytjenda sé van-
nýttur auður í íslensku atvinnulífi.
Hefur Ísland efni á því að hafa vel
menntað fólk í störfum sem krefjast
ekki fagmenntunar?
Náms- og starfsráðgjöf getur
gagnast innflytjendum að minnsta
kosti á þrjá vegu; menntunarlega,
starfslega og í persónulegum mál-
efnum. Til dæmis getur ráðgjöfin:
veitt skilning og aðstoð við að
takast á við menningarsjokk
ýtt undir skilning á mikilvægi
þess að læra íslensku
aðstoðað við að fá menntun og
starfsréttindi metin
aðstoðað við starfsleit, annars
vegar til að einstaklingur geti haldið
áfram á sínum starfsvettvangi eða
skapi sér nýjan
aðstoðað við að þekkja gildi,
áhuga, hæfni og styrkleika þegar
kemur að því að velja starf eða
menntun
aðstoðað við starfsleit og veitt
upplýsingar um mismunandi þætti
sem þarf að hafa í huga í atvinnulífi
útvíkkað hugmyndir og þekk-
ingu einstaklinga á íslensku atvinnu-
lífi og menntakerfi
aðstoðað við gerð ferilskrár á
íslensku
aðstoðað við starfsumsóknir og
undirbúning fyrir atvinnuviðtöl
dregið úr hættu á „lærðu hjálp-
arleysi“
dregið úr hættu á félagslegri
einangrun (sem svo aftur getur haft í
för með sér ýmislegt s.s. fordóma,
fátækt, kvíða og þunglyndi)
Innflytjendur á Íslandi eru hlut-
fallslega fleiri atvinnulausir en Ís-
lendingar og þess vegna er nauðsyn-
legt að veita þeim tækifæri á náms-
og starfsráðgjöf. Rannsóknir frá
öðrum löndum sýna að fólk í minni-
hlutahópum er ólíklegast til að
sækja sér ráðgjöf. Fjölmenningarleg
ráðgjöf er áskorun sem mun bara
aukast í framtíðinni. Ráðgjafinn þarf
að vera meðvitaður um eigin viðhorf
og gildi og ennfremur að skilja
heimsmynd ráðþegans til að getað
þróað viðeigandi inngrip og tækni
við ráðgjöfina. Með því að ná til inn-
flytjenda á þennan hátt
getur það t.d. gagnast
og haft áhrif á að mörg
mikilvæg markmið
Innflytjendaráðs náist
s.s. eins og í tvítyng-
iskennslu, kennslu í og
á móðurmáli, íslensku-
kennslu, félagsfærni,
starfsþjálfun og virkni
fyrir atvinnuleitendur.
Náms- og starfsráðgjöf
tekur einnig mið af sér
lykil-hæfniþáttum sem
ESB setur sem viðmið
um hvaða eiginleikum einstaklingar
þurfi að búa yfir í fjölmenning-
arsamfélagi til að ná persónulegri
ánægju og þroska, til að verða virkir
borgarar, félagslega virkir og með
atvinnu. Í áætlun Evrópusambands-
ins til ársins 2020 er lögð áhersla á
að fjárfesta í fólki með það að mark-
miði að leiða til aukins ávinnings
bæði fyrir einstaklinga sem og sam-
félagið í heild sinni. Markmið
menntaáætlunarinnar er m.a. að
auka færni og þátttöku einstaklinga,
nútímavæða menntakerfið með því
að leggja aukna áherslu á starfs-
menntun, háskólamenntun og hreyf-
anleika nemanda og kennara. Þarna
er náms- og starfsráðgjöf í lykilhlut-
verki og mikilvægt að gera ráðstaf-
anir til að nýta frumkvöðla- og ný-
sköpunarkraft innflytjenda.
Að lokum langar mig að segja
ykkur að ég hef hitt og eða fengið í
ráðgjöf til mín einstaklinga af er-
lendum uppruna sem allir eiga það
sameiginlegt að hafa verið eða vera
að vinna láglaunastörf, en í þessum
hópi eru t.d. verkfræðingur, meina-
tæknir, hjúkrunarfræðingur, leik-
skólakennari, grunnskólakennari,
ljósmóðir, mælingatæknifræðingur,
bridskennari, félagsráðgjafi, læknir,
menntaskólakennari, tollvörður, bif-
vélavirki, sjúkraþjálfari og við-
skiptafræðingur. Tímabært er að
plægja þennan akur, nýta mannauð-
inn og fagna fjölmenningunni.
(Þó að hér hafi sjónum verið beint
að fullorðnum einstaklingum er
náms- og starfsráðgjöf auðvitað jafn
mikilvæg fyrir börn innflytjenda.)
Mannauður innflytjenda
Eftir Guðrúnu Völu
Elísdóttur »Náms- og starfs-
ráðgjöf getur
gagnast innflytjendum
að minnsta kosti á þrjá
vegu; menntunarlega,
starfslega og í persónu-
legum málefnum.
Guðrún Vala Elísdóttir
Höfundur er náms- og starfsráðgjafi
hjá Símenntunarmiðstöðinni
á Vesturlandi