Morgunblaðið - 03.12.2011, Side 57
DAGBÓK 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2011
Sudoku
Frumstig
7
8
3 6 5 9
8
2 9 4
5 7
7 9 8 5
3 9 2 6
6 7 4 2
6 4 7 3
1 4 9
3 9 6 7
8 6 5
1
1 4 9 8
6 4
5 8 6
7 3 9 6
3 9 4
1 7 5
5 4
1 7
6 9 3
5 7 4 2
9
2 6
5 3 4 6 1 2 8 9 7
7 9 6 5 3 8 2 4 1
2 1 8 4 9 7 3 5 6
4 8 3 2 7 5 1 6 9
9 6 5 1 8 4 7 2 3
1 7 2 9 6 3 5 8 4
8 4 7 3 2 9 6 1 5
3 5 1 8 4 6 9 7 2
6 2 9 7 5 1 4 3 8
8 7 3 1 9 4 6 5 2
2 9 5 7 6 8 1 4 3
6 1 4 3 5 2 7 8 9
5 8 6 4 7 9 2 3 1
4 2 1 5 3 6 8 9 7
7 3 9 2 8 1 5 6 4
3 5 2 6 4 7 9 1 8
9 4 7 8 1 5 3 2 6
1 6 8 9 2 3 4 7 5
5 6 7 9 1 3 8 2 4
9 8 3 2 4 7 5 6 1
2 4 1 6 5 8 3 7 9
7 5 4 8 6 1 2 9 3
1 3 9 5 7 2 4 8 6
8 2 6 3 9 4 1 5 7
4 1 5 7 2 6 9 3 8
6 9 8 4 3 5 7 1 2
3 7 2 1 8 9 6 4 5
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er laugardagur 3. desember,
337. dagur ársins 2011
Orð dagsins: Jesús sagði við hann: Far
þú, trú þín hefur bjargað þér. Jafn-
skjótt fékk hann sjónina og fylgdi hon-
um á ferðinni. (Mark. 10,52.)
Víkverji dagsins hvetur fólk til aðgleyma ekki smáfuglunum nú
þegar veturinn er genginn í garð.
Þörfin er mikil um þessar mundir,
snjór yfir öllu, og lítið handa fugl-
unum að hafa ef mannfólkið leggur
ekkert af mörkum.
x x x
Reyndar skilur Víkverji ekki fólksem á garða en nýtir þá ekki til
að laða að fugla sem gleðja okkur
með flögri sínu, tísti og söng. Vík-
verji hefur mikla ánægju af því að
fylgjast með fuglunum sem sækja í
tré í garði hans, en það eru aðallega
auðnutittlingar, starar og þrestir.
Víkverji hefur miklar mætur á
auðnutittlingnum, sem er nettur og
fallegur fugl með rauðan blett á
enni. Starinn er líka stórskemmti-
legur og lífgar upp á tilveruna.
x x x
Víkverji vonast til þess að getalaðað fleiri tegundir að garð-
inum og reynir því að hafa matseð-
ilinn sem fjölbreyttastan.
x x x
Auðnutittlingarnir eru sólgnir ífinku- og gárafræ og sækja líka
í hirsisstöngla sem ætlaðir eru búr-
fuglum. Víkverja hefur gefist vel að
hengja fóðurbolta upp á trén, til að
mynda stóra og girnilega fitubolta
sem fást í nokkrum verslunum
borgarinnar.
Þrestir hafa góða lyst á eplum.
Þau eru líka tilvalin til að laða að
gráþresti, svartþresti eða jafnvel
silkitoppur þegar þær flækjast hing-
að til lands.
x x x
Fita er ein besta fæðan handafuglunum, enda þurfa þeir
mikla orku til að halda á sér hita í
frosthörkum. Þess vegna er tilvalið
að gefa þeim tólg, kjötsag, flot, mör,
kjötafganga, osta, hangiflot og ann-
að feitt lostæti.
Aðrir matarafgangar, til að
mynda brauð og kökur, eru líka vin-
sælir, sérstaklega hjá störum, sem
eru alætur eins og Víkverji.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 skessa, 4 bjarta,
7 þreyttur, 8 vottar fyrir, 9
vond, 11 elskuðu, 13 skjót-
ur, 14 svera, 15 hrúgu, 17
lofa, 20 hryggur, 22 spjalla,
23 fastheldni, 24 veslast
upp, 25 virðir.
Lóðrétt | 1 borguðu, 2
ágengur, 3 fífl, 4 stutta
leið, 5 hyggur, 6 hinar, 10
jurt, 12 ótta, 13 skip, 15
vitur, 16 heimild, 18 logið,
19 verur, 20 drepa, 21
brosa.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 gjörvuleg, 8 hendi, 9 tylft, 10 púa, 11 flani, 13
narra, 15 stutt, 18 órögu, 21 arg, 22 lamið, 23 ellin, 24 glaðn-
ings.
Lóðrétt: 2 jánka, 3 reipi, 4 urtan, 5 eflir, 6 óhóf, 7 átta, 12
nyt, 14 aur, 15 súld, 16 urmul, 17 taðið, 18 ógeði, 19 öflug, 20
unna.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Lesið í spilin. N-Enginn.
Norður
♠KD105
♥G10
♦ÁKD2
♣765
Vestur Austur
♠Á4 ♠G982
♥K4 ♥752
♦108764 ♦5
♣K1042 ♣DG983
Suður
♠763
♥ÁD9863
♦G93
♣Á
Suður spilar 4♥.
Bandaríski höfundurinn Frank
Stewart hefur skrifað „handbók“ um
þá list að draga upp mynd af hönd-
um mótherjanna. „Hvernig sér mað-
ur allar hendur án þess að kíkja?“
spyr Stewart. Fyrst og fremst með
því að setja sig í spor andstæðing-
anna.
Lítum á vörn vesturs í tvímenn-
ingi. Sagnir eru einfaldar: Norður
opnar á grandi og suður stekkur í
4♥. Vestur kemur út með lauf og
sagnhafi spilar blindum inn á tígul í
öðrum slag til að svína í trompi.
Vestur lendir inni á ♥K og hefur nú
allar forsendur til að spila tígli og
gefa makker stungu – og þá ♦10 til
að biðja um spaða til baka.
Ástæðan er þessi: Sagnhafi reyndi
ekki að henda niður tapspili í hátígul
og á því væntanlega þrílit.
3. desember 1981
Menntamálaráðuneytið stað-
festi ákvörðun Náttúruvernd-
arráðs um að friðlýsa Þjórs-
árver við Hofsjökul.
3. desember 1992
Georgíumaðurinn Grigol Mat-
sjavariani kom til landsins í
boði ríkisstjórnarinnar, en
hann var sjálfmenntaður í ís-
lensku. „Ég er meira en glaður,
fremur agndofa,“ sagði hann í
viðtali við Morgunblaðið. Gri-
gol dvaldi hér í hálft ár við
fræðistörf. Hann lést í bílslysi
árið 1996.
3. desember 1998
Hæstiréttur kvað upp þann
dóm að fimmta grein laga um
stjórn fiskveiða væri í andstöðu
við jafnræðisreglu stjórn-
arskrárinnar. Morgunblaðið
sagði að „líklega hafi ekki ver-
ið kveðinn upp jafn óvæntur og
jafn afdrifaríkur dómur í 78
ára sögu Hæstaréttar“.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist…
„Ég er mikið afmælisbarn og finnst þetta óskaplega
gaman. Mér finnst öll afmæli vera stórafmæli og
held alltaf upp á það,“ segir Ólöf Nordal, þingmað-
ur Sjálfstæðisflokksins, sem er 45 ára í dag.
Af undanförnum 44. afmælisdögum segir hún
þann tuttugasta sérstaklega eftirminnilegan, en
með öfugum formerkjum þó. „Af því ég hélt ekkert
upp á það heldur var að fara í mjög erfitt próf í lög-
fræði daginn eftir og mér fannst eiginlega enginn
taka eftir því að ég ætti afmæli. Mér fannst þetta al-
veg ómögulegt,“ segir Ólöf sem hefur margbætt
upp fyrir þetta síðan, síðast á fertugsafmælinu þeg-
ar slegið var upp stórveislu. Í ár verður minna um veisluhöld en Ólöf
ætlar samt að nýta tilefnið til að eiga samverustund með fjölskyldunni.
„Ég hef haft þann sið undanfarin ár að bjóða þeim í hádegismat á Jóm-
frúnni. Ég á nú oft afmæli á aðventunni, þannig að þetta er alltaf voða-
lega jólalegt hjá mér.“ Hún segist líka vera mikið jólabarn í sér og er
komin af stað með jólaundirbúninginn þrátt fyrir annríki á Alþingi.
„Það er búið að biðja mig um að baka piparkökur og það er svo jólalegt
um að litast núna. Maður má ekki gleyma sér alveg í vinnunni heldur
verður líka að líta upp og rækta garðinn sinn.“ una@mbl.is
Ólöf Nordal alþingismaður 45 ára
Mikið jóla- og afmælisbarn
Flóðogfjara
3. desember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 0.20 3,0 6.29 1,5 12.51 3,1 19.12 1,4 10.51 15.45
Ísafjörður 2.29 1,5 8.40 0,8 15.00 1,6 21.25 0,7 11.27 15.18
Siglufjörður 4.57 0,9 10.54 0,5 17.14 1,0 23.27 0,4 11.12 15.00
Djúpivogur 3.22 0,7 9.47 1,6 16.02 0,8 22.20 1,6 10.28 15.07
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Lausnirnar sem leiða til betra lífs
eru augljósar, svo augljósar að þú gætir
hafa misst af þeim. Ef tækifæri til ferða-
laga gefst skaltu grípa það fegins hendi.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Fólk með mikla útgeislun laðar þig
að sér. Reyndu ekki að sporna á móti til-
finningum þínum. Þú munt fá uppreisn
æru.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Símtölin og tölvupósturinn get-
ur beðið á meðan þú einbeitir þér að því
sem skiptir verulega máli. Vertu vakandi í
umferðinni.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Fyrr en seinna munt þú átta þig á
að einfalt líf er best. Losaðu þig við
óþarfa og fáðu til þess hjálp.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú ættir að huga að fjármálunum í
dag. Nú þarftu á einveru að halda til að
hugsa málin í ró og næði.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Gefðu þér tíma til að sinna þér og
þínum nánustu. Mundu að leyna engum
staðreyndum sem skipta máli.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Hripaðu niður hugmyndir, hugsanir,
drauma. Þú átt auðvelt með að stilla til
friðar.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Stundum hrífa athafnir
meira en orð og þá áttu hiklaust að grípa
til þinna ráða. Þú ert gædd/ur ýmsum
hæfileikum sem þú ættir að dusta rykið
af.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Ábyrgð tengd börnum íþyngir
þér nokkuð í dag. Hver segir að ástin sé
ekki þyrnótt? Vertu viss um að þú þekkir
alla málavöxtu.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Fólk sem ýtir undir vellíðan
þína er uppáhalds félagsskapurinn þinn.
Þú átt á brattann að sækja heima fyrir.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú tekur verkefni tengd börn-
um, rómantík eða listsköpun af vaxandi
alvöru. Þér finnst eitthvað mjög svo
spennandi við mótlæti.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Hættu við áætlun sem veldur þér
streitu og byrjaðu upp á nýtt. Leyfið öðr-
um að njóta glaðværðar ykkar.
Stjörnuspá
Jón Boði
Björnsson, mat-
reiðslumeistari
og bryti frá Sjón-
arhóli í Hafn-
arfirði, nú í
Löngufit 24 í
Garðabæ, er átt-
ræður á morgun,
4. desember. Það mun gleðja hann
að sjá sem flesta samferðamenn,
vini og fjölskyldumeðlimi gefa sér
tíma til þess að samgleðjast honum
í Sjónarhóli á Kaplakrika frá kl. 15
til 18 á afmælisdaginn. Boði af-
þakkar blóm og gjafir en spari-
baukurinn hans verður á staðnum.
80 ára
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. Rf3
Bg7 5. Bf4 O-O 6. e3 c5 7. dxc5 Da5
8. Hc1 dxc4 9. Bxc4 Dxc5 10. Bb3
Rc6 11. O-O Da5 12. h3 Bf5 13. De2
Re4 14. g4 Rxc3 15. bxc3 Bd7 16.
Hfd1 Had8 17. Hd5 Da3 18. Hcd1
Be6 19. Hxd8 Rxd8 20. Db5 Bxb3
21. axb3 Bxc3 22. Hd7 Db4 23. Dd5
Rc6 24. Rg5 Da5 25. Dxa5 Rxa5 26.
Hxe7 Bb4 27. Hd7 Rxb3 28. Hxb7
a5 29. Re4 f5
Staðan kom upp í Evrópukeppni
taflfélaga sem lauk fyrir nokkru í
Rogaska Slatina í Slóveníu.
Rússneski stórmeistarinn Maxim
Matlakov (2630) hafði hvítt gegn
Svíanum Sebastian Nilsson (2362).
30. Be5! Hf7 31. Rf6+ Kg7 32.
Rxh7+! Kg8 33. Hb8+ Kxh7 34.
Hh8#.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is