Morgunblaðið - 03.12.2011, Page 58
58 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2011
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÉG ER SÁTTUR
VIÐ LÍFIÐ GEISP! EÐA BARA ÞREYTTUR, EKKIÓSVIPAÐAR TILFINNINGAR
VEISTU
HVAÐ?
MAMMA LEYFÐI MÉR AÐ SETJA
UPP TJALD Í BAKGARÐINUM OG
SOFA Í ÞVÍ Í NÓTT
ÞAÐ ER
FRÁBÆRT
ÞAÐ GLEÐUR MIG AÐ
HANN SÉ ÁNÆGÐUR
ÞAÐ
TÓKST EKKI
ALVEG
ÉG HÉLT AÐ
ÞÚ HEFÐIR ÆTLAÐ
AÐ MÚTA
DÓMARANUM TIL AÐ
SLEPPA OKKUR
HVAÐ
ER AÐ
TONY?
MÉR FINNST EINS
OG EITTHVAÐ SÉ AÐ NÁ
TÖKUM Á MÉR...
ÉG
ÞARF AÐ
GERA
SVOLÍTIÐ
HERRA STARK ÞÚ
VERÐUR AÐ SETJAST
NIÐUR!
EKKI SNERTA MIG!
KONAN MÍN ER SÓÐI...
YFIRMAÐURMINN ER SAUÐUR...
KRAKKARNIR MÍNIR ERU LATIR
GETURÐU HJÁLPAÐ
MÉR LÆKNIR
ÞAÐ ERU
NOKKRIR HLUTIR
SEM VIÐ GETUM
UNNIÐ MEÐ
EN ENGINN
ER FULLKOMINN OG
ÉG VILDI AÐ ÞÚ
HÆTTIR BARA
AÐ VÆLA
EKKI EINU
SINNI ÉG.
ENDILEGA
HALTU BARA
ÁFRAM...
HVAÐ!
BJÓÐUM
NÚNA
VELKOMINN Í
HÓPINN NBC
PÁFUGLINN
TAKK FYRIR,
ÞETTA ER BÚIÐ
AÐ VERA ERFITT
ÁR HJÁ NBC,
ALLT VESENIÐ
MEÐ LENO OG
CONAN TÓK Á
OG NÚNA ERU ÞEIR
AÐ HÓTA AÐ SEGJA
FLEIRA FÓLKI UPP
VERTU
ALVEG RÓLEGUR,
ÞEIR GETA EKKI
SAGT ÞÉR UPP
BRA,BRA
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Karlinn á Laugaveginum varborginmannlegur og tímaritið
„Foreign Policy“ stóð upp úr úlpu-
vasanum: „Þeir segja að Jóhanna
Sigurðardóttir sé í hópi hundrað
mestu hugsuða heims, númer 87 í
röðinni, nákvæmt skal það vera,“
sagði hann hugsi. Og bætti svo við;
„Ég efast um að þeir kunni ís-
lensku!“
Þar sem þeir áður potta og pönnur
börðu
prílar hún himnastigann spor fyrir spor,
varast það sem aðrir áður gjörðu
illt eða gott, var rög eða sýndi þor.
Hún er ein af hundrað mestu á jörðu
af hugsuðum þeim sem lifa á meðal
vor.
Ég var að fletta Bragfræði
íslenzkra rímna að fornu og nýju
eftir síra Helga Sigurðsson og vel
úr þeim. Stuðlafall er skemmti-
legur háttur og lipur, – nokkuð
gamall segir síra Helgi, en lætur þó
ósagt um höfund þess og aldur. Úr
Þorsteins rímum uxafóts:
Dimmir nótt, en dagur skemmast tekur,
mæli ég við mána ljós
Mímis vinar kera ós.
Og úr ljóðabréfi Páls skálda:
Hissa kusi, hissa niptin prjóna,
hissa þeir sem horfðu á,
hissa varð ég sjálfur þá.
Úr Þórðar rímum hreðu:
Áður heiman en þeir báðir riðu
Þórð við talar þorna brú:
„Þú mátt Össur varast nú.“
Þessi er skemmtileg úr tíðavís-
um síra Jóns Hjaltalíns (1749-
1835):
Látum okkur líða, biðja og stríða,
gjörum það, sem gjöra ber,
guði annað felum vér.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Númer 87 í röðinni
Elskaðu
viðskiptavininn
Ég skrifa þessa grein
vegna þess að ég
lenti nýlega í því að
fá hræðilega þjón-
ustu í rafvörubúð í
Ármúla, Glóey. Ég
bað um ráðleggingar
við ljósabúnað í
lampa sem ég var að
smíða, en ég er í
hönnunarnámi. Ég
fékk lítil viðbrögð,
enginn áhugi á að að-
stoða mig og þegar
ég spurði hvort þeir
ættu eitthvað sem
gæti gagnast mér,
yppti maðurinn öxlum. Ég vil taka
fram að þeir selja nákvæmlega
eins búnað og ég var að leita að
enda selja þeir rafvirkjum flest-
allan búnað sem þarf til að tengja
ljós.
Ég gekk yfir götuna í Rafkaup
og fékk þar frábæra þjónustu í
alla staði, þar eignuðust þeir
framtíðarviðskiptavin! Með þess-
ari grein vil ég biðja alla þá sem
eru í þjónustustarfi að hugsa sig
aðeins um áður en næsti vinnu-
dagur byrjar og ákveða hvernig
þjónustu þeir ætla að veita. Það
kostar ekkert að sýna áhuga, vera
liðlegur og brosa, en það getur
kostað fyrirtækið marga við-
skiptavini ef þjónustan er léleg og
jafnvel kostað suma
vinnuna ef þeir veita
lélega þjónustu. Ég
vel hvar ég versla,
þitt viðhorf getur
haft áhrif á það.
Ása Lára Þór-
isdóttir.
Faðirvorið
Faðirvorið er er eina
bænin sem Jesús
kenndi okkur. Mín
skoðun er að það sé
okkur til gæfu að
halda okkur við fað-
irvorið.
Óla.
Að tala of hratt
Margir sem koma fram í fjöl-
miðlum tala svo hratt og ógreini-
lega að eldra fólk á erfitt með að
skilja hvað um er að ræða. Má þar
t.d. taka einn af þeim sem flytja
veðurfréttir. En undantekning frá
þessu er Sigrún Davíðsdóttir, hún
talar alveg sérstaklega skýrt og
skilmerkilega, talar líka gott mál
og kemur öllu vel til skila.
Eldri borgari.
Velvakandi
Ást er…
… að taka mikilvægar
ákvarðanir saman.
Drengja-
nöfn
Stúlku-
nöfn
Örn Arnarson orti: „Oft er vissí sinni sök, sá er ekkert skil-
ur.“ Ef til vill er þetta ofmælt, en
hitt hefur ósjaldan gerst, að þeir,
sem vissastir eru í sinni sök, hafi
reynst jafnskeikulir og við hin.
Frægt var, þegar Þórbergur
Þórðarson átti tal við dr. Guð-
mund Finnbogason lands-
bókavörð á Hótel Borg 13. sept-
ember 1939. Stalín hafði þá
nýlega gert griðasáttmála við
Hitler, sem taldi sér eftir það
óhætt að ráðast á Pólland úr
vestri, en það hleypti af stað
stríði við Breta og Frakka. Guð-
mundur sagði þess ekki langt að
bíða, að Stalín færi í stríðið með
Hitler.
Þórbergur mælti þá (að eigin
sögn): „Ef Rússar fara í stríð með
nasistum, þá hengi ég mig.“ Aðrir
kváðu hann hafa sagt: „Ef Rússar
ráðast með herafla á Póllandi, þá
hengi ég mig.“ Fjórum dögum
síðar réðst Stalín á Pólland úr
austri. Var þá ort:
Er Þórbergur lífs eða liðinn?
Var lykkjan af hálsinum sniðin?
Hér lagðist smátt fyrir halinn
að hengja sig fyrir Stalin.
Sem betur fer hengdi Þórberg-
ur sig ekki, enda átti hann marg-
ar góðar bækur eftir óskrifaðar.
Annað dæmi um þá seinheppni,
sem mætti líka nefna kokhreysti,
var, þegar Halldór Kiljan Laxness
hlaut vorið 1955 bókmenntaverð-
laun danskra kommúnista. Skrif-
aði einn kommúnistinn, Hans
Kirk, 26. júní í blað þeirra, Land
og folk: „Til eru önnur bók-
menntaverðlaun, sem Gorkíj fékk
aldrei og því síður Martin And-
ersen Nexø og Laxness á senni-
lega ekki heldur eftir að hljóta.
Þetta eru Nóbelsverðlaunin, sem
veitt eru af nokkrum ellisljóum,
smáborgaralegum, jafnvel nas-
ískum herramönnum í þeim græn-
metissalasöfnuði, sem kallast
„Sænska lærdómslistafélagið“.“
Nokkrum mánuðum síðar hlaut
Laxness Nóbelsverðlaunin.
Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar
Hannes H. Gissurarson
hannesgi@hi.is
Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð
Seinheppni og kokhreysti