Morgunblaðið - 03.12.2011, Page 60
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Eftir að ég hætti forystu fyrir
Kammersveit Reykjavíkur í árs-
byrjun 2010 fannst mér eins og
margir héldu að ég hefði hætt að
spila og jafnvel sest í helgan
stein. Til að leiðrétta þann mis-
skilning ákvað ég að gefa út þenn-
an disk með krefjandi en hugljúfri
tónlist. Ég er enn í fullu fjöri og
alls ekki hætt að spila, enda æfi
ég mig daglega,“ segir Rut Ing-
ólfsdóttir fiðluleikari og vísar þar
í diskinn Sónötukvöld þar sem
hún leikur sónötur eftir W.A.
Mozart og César Franck ásamt
Richard Simm píanóleikara.
„Þetta eru uppáhaldsverk sem ég
hef oft spilað áður og lengi langað
til þess að taka upp. Hver og einn
hefur sinn tón, ekki síst á
strengjahljóðfæri, og þarna má
heyra minn tón, sem vissulega
hefur breyst í tímans rás því mað-
ur breytist og þroskast með aldr-
inum, sem hefur áhrif á túlk-
unina.“
Með mörg járn í eldinum
Óhætt er að segja að Rut hafi
mörg járn í eldinum um þessar
mundir því auk Sónötukvölds hef-
ur hún veg og vanda af tveimur
öðrum diskum sem Smekkleysa
gefur út fyrir þessi jól. Fyrst ber
að nefna útgáfu á hljómsveit-
arsvítum J.S. Bachs sem Kamm-
ersveitin flutti á jólatónleikum
sínum á menningarborgarárinu
2000 og tók upp í kjölfarið. Jafn-
framt er að koma út diskurinn
Brautryðjandinn þar sem Kamm-
ersveitin leikur kammerverk eftir
Sveinbjörn Sveinbjörnsson, en
þessi diskur er í röð diska með
verkum íslenskra tónskálda sem
Kammersveitin hefur á und-
anförnum árum gefið út í sam-
vinnu við Smekkleysu, Íslenska
tónverkamiðstöð og Ríkisútvarpið.
Loks má nefna að Rut stendur
fyrir endurútgáfu á einleiksdiski
sínum, Íslensk tónlist fyrir ein-
leiksfiðlu. Diskurinn hefur verið
uppseldur í nokkur ár en Íslensk
tónverkamiðstöð gaf hann út í
fyrsta sinn árið 1998.
Sinnir útgáfumálum
Kammersveitarinnar
„Vissulega má spyrja sig hvers
vegna við séum að gefa út verk
sem eru til í óteljandi útgáfum.
Að mínu mati er mikilvægt fyrir
íslenska tónlistarunnendur að eiga
stórvirki á borð við hljómsveit-
arsvítur Bachs líka með okkar
fólki. Reynslan segir mér að
hlustað er öðruvísi þegar maður
þekkir tónlistarfólkið, hefur jafn-
vel verið á tónleikunum sem upp-
takan byggist á, veit hvernig flytj-
endur líta út og þekkir tón þeirra.
Ég lít svo á að það sé skylda
okkar sem Íslendinga að gefa út
íslenska tónlist, því aðrir munu
ekki gera það. Hins vegar er líka
skemmtilegt fyrir okkur tónlist-
arfólkið að spila tónlist erlendu
meistaranna,“ segir Rut og bendir
á að Kammersveitin hafi nú þegar
gefið út fimm diska með erlendri
tónlist og ellefu diska með verk-
um íslenskra tónskálda, en þeirra
á meðal eru Jón Leifs, Jón Nor-
dal, Þorkell Sigurbjörnsson, Atli
Heimir Sveinsson og Leifur Þór-
arinsson.
„Auk þess eigum við upptökur í
átta íslenska diska til viðbótar og
efni í fimm diska með erlendu
efni. Það verður mitt verkefni
næstu ár að stýra bæklingagerð,
eftirvinnslu og klippingum á þess-
um upptökum svo hægt verði að
gefa þær út,“ segir Rut og tekur
fram að bagalegt sé hins vegar
hversu þungur róðurinn sé við út-
gáfu klassískra diska hérlendis,
sérstaklega útgáfu á íslenskum
tónverkum. Bendir hún sem dæmi
á að Brautryðjandinn hafi beðið
fullfrágenginn í fjögur ár áður en
hægt reyndist að fjármagna fram-
leiðsluna.
Sárt að missa starfið hjá
Sinfóníunni eftir 40 ára feril
Aðspurð segist Rut oft sakna
alls umstangsins sem fylgdi því að
vera í forsvari fyrir Kammersveit-
ina, þótt hún leiki enn með sveit-
inni á tónleikum. „Og ég sakna
þess að koma ekki eins mikið
fram og áður,“ segir Rut og vísar
þar m.a. til starfsmissis síns hjá
Sinfóníuhljómsveit Íslands fyrir
tæpum þremur árum. Eftir fjöru-
tíu ára farsælt starf hjá Sinfóní-
unni í hlutastarfi var Rut með
tölvupósti tilkynnt að samningur
hennar yrði ekki endurnýjaður og
samdrætti í kjölfar efnahags-
hrunsins borið við.
„Ég sýndi því auðvitað skilning
á sínum tíma, en mér þykir mjög
sárt að fá ekki að koma aftur til
starfa nú þegar tekið er til við að
ráða hljóðfæraleikara til starfa á
ný,“ segir Rut og tekur fram að
fyrir sér snúist málið um að fá að
ljúka starfsferlinum með sæmd.
„Ætli ég hætti ekki þessari bar-
áttu og einbeiti mér í staðinn að
uppbyggilegri málum eins og út-
gáfumálunum og sjálfstæðu tón-
leikahaldi,“ segir Rut að lokum.
„Ég er enn í fullu fjöri“
Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari gefur út einleiksdisk með verkum eftir W.A. Mozart og César Franck
Hefur jafnframt veg og vanda af tveimur diskum með upptökum Kammersveitar Reykjavíkur
Morgunblaðið/Golli
Uppáhaldsverk „Hver og einn hefur sinn tón, ekki síst á strengjahljóðfæri
og þarna má heyra minn tón,“ segir Rut um nýjasta einleiksdiskinn sinn.
„Útgáfa Kammersveitarinnar á
Hljómsveitarsvítum J.S. Bachs
undir listrænni stjórn Rein-
hards Goebels er þriðji og síð-
asti hlutinn í nokkurs konar
trílógíu með verkum Bachs.
Hinir tveir geisladiskarnir eru
Fiðlukonsertarnir frá árinu
2009 og Brandenborgarkons-
ertarnir frá árinu 2000 þar
sem Jaap Schröder leiddi
Kammersveitina,“ segir Rut
Ingólfsdóttir, en þess má geta
að Kammersveitin hlaut Ís-
lensku tónlistarverðlaunin ár-
ið 2003 fyrir geisladiska sína
með Brandenborgarkonsertum
Bachs.
„Það var mikill fengur fyrir
okkur að fá þessa tvo heims-
þekktu fiðluleikara og stjórn-
endur til samstarfs við okkur.
Schröder fékk okkur til að
spila Brandenborgarkonsert-
ana á skemmtilegan barokk-
hátt þótt við spiluðum á nú-
tímahljóðfæri. Goebel var
mjög kröfuharður, en hann er
þekktur fyrir hressileg tempó,
sem virka mjög vel að mínu
mati,“ segir Rut og tekur
fram að það sé á við nám-
skeið að fá að vinna með
svona miklum meisturum
hvort sem er í barokktónlist
eða í nýrri tónlist.
Síðasti hluti
Bach-trílógíu
VALDI HRESSILEGT TEMPÓ
60 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2011
KORTIÐ GILDIR TIL
31.01.2012
MOGGAKLÚBBURINN
– MEIRA FYRIR ÁSKRIFENDUR
Allir fastir áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa félagar í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða.
Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á mbl.is/moggaklubburinn.
Hafðu samband í síma 569 1122 hafi Moggaklúbbskortið ekki borist þér.
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á MBL.IS/ASKRIFT
EÐA Í SÍMA 569 1122
SÖNGLEIKIR MEÐ MARGRÉTI EIR OG
KVÖLDVERÐUR FRÁ FRIÐRIKI V!
Í sýningunni „Söngleikir með Margrét Eir“ mun Margrét að syngja lög úr
nýjum, gömlum, þekktum og óþekktum söngleikum. Maturinn kemur frá
hinum þekkta kokki Friðriki V sem er þekktur fyrir gæði í mat og þjónustu.
Almennt verð á sýningu með mat: 5.400 kr.
MOGGAKLÚBBSVERÐ 4.400 kr.
MOGGAKLÚBBSTILBOÐ Sýningin er 10. des.
Húsið opnað kl. 18:30 og matur-
inn er borinn fram um kl. 19:00.
Sýningin hefst kl. 20:00
Miðasala Tjarnarbíó er opin alla
virka daga frá kl. 13:00 til 15:00
og klukkutíma fyrir viðburði.
Símanúmer 527 2102.
Einnig má senda póst
á midasala@tjarnarbio.is