Morgunblaðið - 03.12.2011, Qupperneq 65

Morgunblaðið - 03.12.2011, Qupperneq 65
MENNING 65 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2011 Mér fannst ég strax hverfa aftur um nokkra ára-tugi við að hlusta á Olof Sings, ábreiðuplötuÓlafar Arnalds. Platan hafði þau notaleguhughrif á mig að mér fannst ég sitja í grænni brekku með blóm í hárinu. Já ég var stödd einhvers stað- ar undir lok sjöunda áratugarins og ólgublandin gleði lá í loftinu. Það er kannski ekki skrýtið að platan veki slík hughrif en á plöt- unni hefur Ólöf tekið upp á arma sína fimm þekkt lög sem öll eru í dálitlum „Woodstock- fíling“. Smæð plötunnar gerir hana sérstaka en meðal laganna er Bob Dylan- lagið „She belongs to me“ og „Solitary man“ með Neil Diamond. Ábreiðurnar sem Ólöf velur á plötuna hefur hún sungið á tónleikum í gegnum tíðina og það heyrist í gegnum flutn- inginn að Ólöfu þykir vænt um þessi lög. Ólöf og gítarinn eru í fyrirrúmi og hún flytur lögin af natni en rödd hennar hentar þessum dálítið angurværa og þægilega tónlistarstíl einkar vel. Ólöf sagði nýlega í viðtali við Morgunblaðið að þessi plata væri nokkurs konar brú yfir í breiðskífu hennar sem kemur út á næsta ári og verður á ensku. Það er ekki ann- að hægt að segja en þessi brú sé byggð á sterkum stoðum og lögð undurværri og fallegri skreytingu í meðförum Ólafar. Fallegt Ólöf flytur tökulögin á nýrri stuttskífu sinni af natni. Brú byggð á sterkum stoðum Geisladiskur Ólöf Arnalds - Olof Sings bbbmn MARÍA ÓLAFSDÓTTIR TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Bassaleikarinn Jakob Smári Magn- ússon sendi frá sér plötuna Bassajól árið 2003. Þar lék hann tólf þekkt jólalög á bassa eingöngu. Eitthvað sem hljómaði nett galið á pappír fékk síðan frábærar viðtökur og platan seldist upp. Jakob hafði látið pressa nokkur hundruð eintök en það að heyra vel kunn aðventulög í ljúfum bassameðförum höfðaði til mun fleiri en fjölskyldu- og kunn- ingjahóps bassaskáldsins. Í næstu viku kemur svo út fram- haldsplata, Annar í bassajólum. Á meðal laga eru „Jólakötturinn“, „Ó, Helga nótt“, „Marýs boy child“, „Er líða fer að jólum“, „Joy to the world“ og eitt frumsamið, „Dimmrauð jól“ sem var framlag Jakobs í jólalaga- keppni Rásar 2 fyrir nokkrum árum. „Ég sit hérna með bassann í fang- inu,“ segir Jakob, ekki svo djúpri röddu, er ég slæ á hann. „Þannig að þetta er vel við hæfi,“ bætir hann glaðvær við. Jakob segir að átta ár séu liðin frá síðustu plötu og því sé viðeigandi að ný plata komi út nú, þar sem það tók átta ár að koma fyrstu plötunni af hugmynd- astiginu og yfir á band. „Ástæðan fyrir framhaldinu er tví- þætt, bæði voru lög afgangs frá fyrra verki og svo voru nýjar hug- myndir að fæðast,“ útskýrir Jakob. „Ég ætlaði upprunalega að hafa þessa poppaðri en síðustu en hætti við. Það hæfir bassanum betur að vera á hátíðlegum nótum þannig að ég leitaði upp hátíðlegri lög, sálma og slíkt. Fólk talaði um hvað hin platan hefði róað það mikið niður og sefað og ég ákvað að vera áfram í þeim gírnum, koma með eitthvert mótvægi við brjálæðið.“ Jakob segist hafa orðið hissa á þeim góðu viðtökum sem fyrri platan fékk. „Ég hélt að vinir, fjölskylda og bass- anördar væru eini hópurinn sem myndi nenna að hlusta á þetta. Útkoman kom líka sjálfum mér pínulítið á óvart. Þetta kom betur út en ég þorði að vona. Ég vandaði mig þá aðeins betur við þessa, hin var unn- in mjög hratt og var t.d. ekki masteruð. Það gaf henni reyndar skemmtilegan hrá- leika. En þessi er semsagt masteruð, við er- um að passa að smáatriðin komi í gegn, þetta sé ekki bara ein löng druna.“ Samverkamenn Jakobs í þessum hljóm- fræðum voru þeir Hrafn Thoroddsen, Arn- þór Örlygsson, eða Addi 800 og Finnur Hákonarson. Þess má geta að lokum að eingöngu var stuðst við fjögurra strengja bassa við gerð plötunnar. „Ég er prinsipp-maður í þeim efnum,“ segir Jakob. „Það er líka mun meiri áskorun að gera þetta þannig.“ Höfum það djúpt um jólin Bassaskáld Jakob Smári Magnússon.  Jakob Smári Magnússon gefur út Annar í Bassajólum Stórstjörnurnar Kristen Stewart, Robert Pattinson og Taylor Lautner eru mætt í vinsælustu myndinni í heiminum í dag ! KLIKKAÐASTA G RÍNMYND ÁRSINS á allar sýningar merktar með appelsínuguluBÍÓ 750 kr. A GOOD OLD FASHIONED ORGY kl. 8 - 10:10 2D 16 TRESPASS kl. 5:50 - 8 - 10:10 2D 16 HAPPY FEET 2 Íslenskt tal kl. 1 - 3:30 - 5:30 3D L HAPPY FEET 2 Íslenskt tal kl. 1 - 3:30 2D L TWILIGHT: BREAKING DAWN kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 2D 12 TWILIGHT: BREAKING DAWN kl. 9:20 2D VIP THE HELP kl. 8 2D L THE HELP kl. 3 - 6 2D VIP TOWER HEIST kl. 1 - 3:20 - 5:40 - 8 - 10:20 2D 12 THE INBETWEENERS kl. 5:40 - 10:45 2D 16 FOOTLOOSE kl. 1 - 3:20 2D 10 J0HNNY ENGLISH REBORN kl. 1 2D 7 HAROLD & KUMAR kl. 10:30 2D 16 A GOOD OLD FASHIONED ORGY kl. 1 - 3:20 - 5:40 - 8 - 10:10 2D 16 HAPPY FEET 2 Íslenskt tal kl. 12:30 - 3 - 5:30 3D L HAPPY FEET 2 Íslenskt tal kl. 1 - 3:20 - 5:40 2D L TWILIGHT: BREAKING DAWN kl. 12:30 - 3 - 5:30 - 8 - 10:30 2D 12 SEEKING JUSTICE kl. 8 - 10:20 2D 16 A GOOD OLD FASHIONED ORGY kl. 5 - 10 2D 16 TRESPASS kl. 10:20 2D 16 HAPPY FEET 2 Íslenskt tal kl. 1:30 - 3:40 3D L TWILIGHT: BREAKING DAWN kl. 5:40 - 8 2D 12 THE HELP kl. 7 2D L BANGSÍMON kl. 2 - 3:30 2D L / AKUREYRI A GOOD OLD FASHIONED ORGY kl. 6 - 8 2D 16 TRESPASS kl. 10:20 2D 16 HAPPY FEET 2 Íslenskt tal kl. 2 - 4 3D L TWILIGHT: BREAKING DAWN kl. 5:40 - 8 2D 12 SEEKING JUSTICE kl. 10:20 2D 16 BANGSÍMON kl. 2 - 4 2D L HAPPY FEET 2 Íslenskt tal kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 3D L WHAT´S YOUR NUMBER kl. 5:40 - 8 2D 12 SEEKING JUSTICE kl. 10:10 2D 16 THE IDES OF MARCH kl. 8 2D 14 THE THREE MUSKETEERS kl. 2 - 10:10 2D 16 / KEFLAVÍK / SELFOSSI / KRINGLUNNI / EGILSHÖLL / ÁLFABAKKA Handel´s RODELINDA - Ópera í beinni útsendingu - laugardag kl. 5:30 L TRESPASS kl. 8 - 10:10 2D 16 HAPPY FEET 2 Íslenskt tal kl. 12:30 - 3 (Sun 12:30 - 3 - 5:30) 3D L HAPPY FEET 2 Enskt tal / ótextuð kl. 5:40 3D L HAPPY FEET 2 Íslenskt tal kl. 12:30 - 3 2D L TWILIGHT: BREAKING DAWN kl. 8 - 10:30 (Sun 2:30 - 8 - 10:30) 2D 12 SEEKING JUSTICE kl. 10:20 (Sun 8 - 10:20) 2D 16 THE HELP kl. 5:10 2D L BANGSÍMON Íslenskt tal sunnudag kl. 12:30 2D L FORSÝNING -ENTERTAINMENT WEEKLY HHHH SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK SÝND Í ÁLFABAKKA „BESTA KVIKMYND ÁRSINS“ - CBS TV HHHH SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI „HAPPY FEET 2 ER JAFNVEL BETRI EN FYRRI MYNDIN!“ „HIN FULLKOMNA HELGIDAGASKEMMTUN“ - MARA REINSTEIN / US WEEKLY HHHH SÝND Í ÁLFABAKKARINGLUNNI OG KEFLAVÍK SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSISÝND Í EGILSHÖLL Kimmidoll á Íslandi Ai „Femininity“ My spirit is unique and diverse Ármúla 38 | Sími 588 5011
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.