Morgunblaðið - 05.12.2011, Blaðsíða 23
DAGBÓK 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 2011
Sudoku
Frumstig
2 9 6 1
5 9 7 2
1 5 8 7
2 4 8
8 1 7 6 5
7 2
4 8
4 9 6
9 7
5 8 7 9
6 7 3
8 9
6 9 5
8 9 5 2 4
4 3 2 6 7
2 3
8 3 4
2
9 8
8 5 2 1 7
9 4 3 1 5
9
5 7 4
1 4 7
4 2 5 8
5 2 6 8 9 7 4 1 3
9 1 8 2 4 3 7 6 5
7 3 4 6 1 5 2 9 8
8 9 3 4 5 2 1 7 6
1 6 2 7 3 9 8 5 4
4 5 7 1 6 8 3 2 9
2 7 9 3 8 6 5 4 1
3 4 5 9 2 1 6 8 7
6 8 1 5 7 4 9 3 2
6 9 4 2 7 8 3 5 1
5 1 7 6 3 4 8 2 9
3 2 8 1 5 9 6 4 7
7 8 6 9 1 5 2 3 4
4 3 9 7 8 2 5 1 6
1 5 2 3 4 6 9 7 8
2 6 1 4 9 3 7 8 5
8 7 3 5 6 1 4 9 2
9 4 5 8 2 7 1 6 3
4 5 7 2 3 9 1 6 8
8 3 2 1 5 6 7 9 4
9 1 6 8 7 4 2 3 5
7 2 1 3 8 5 9 4 6
3 9 8 4 6 1 5 7 2
6 4 5 7 9 2 3 8 1
5 7 4 9 2 8 6 1 3
1 6 9 5 4 3 8 2 7
2 8 3 6 1 7 4 5 9
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er mánudagur 5. desember,
339. dagur ársins 2011
Orð dagsins: En sonurinn sagði við
hann: Faðir, ég hef syndgað móti
himninum og gegn þér. Ég er ekki
framar verður að heita sonur þinn.
(Lúk. 15, 21.)
Víkverji er einn þeirra sem þjást afvöðvabólgu og þeim þjáningum
fylgja jafnan mikill höfuðverkur og
jafnvel ógleði, ef höfuðverkurinn er af
verstu gerð. Því neyðist Víkverji til að
taka reglulega hið bólgueyðandi lyf
Íbúfen. Það getur því verið býsna
slæmt þegar birgðir í landinu af því
ágæta lyfi klárast, líkt og gerst hefur í
tvígang í ár, ef minni Víkverja svíkur
hann ekki. Reyndar er í boði að taka
annað lyf sambærilegt, Naproxen
Mylan, en það hefur ekki reynst Vík-
verja vel og lítið slegið á bólguna.
Í nóvembermánuði nýliðnum varð
síðast skortur á Íbúfeni í landinu, Vík-
verja til lítillar gleði, en nú er það
blessunarlega aftur komið í hillur
apóteka. Ástæðan fyrir skortinum
mun vera sú að hitastig við flutning
lyfsins var rangt. Lyfið er flutt til
landsins í hitastýrðum vörubílum og
gámum og einhver mistök voru gerð í
því að halda réttu hitastigi við flutn-
ingana. Þetta hefur s.s. gerst í tví-
gang, skv. samtali Víkverja við starfs-
mann apóteks í gær. Þykir Víkverja
það býsna merkilegt að mistökin hafi
endurtekið sig en við því er ekkert
hægt að gera. Nema auðvitað að gæta
þess næst að hitastigið sé rétt.
x x x
En það er fleira sem brennur áVíkverja en Íbúfen og það er
rúðupiss með frostvara. Það er bif-
reiðum nauðsynlegt í frosthörkum og
því þarf að fylla á rúðupissið þegar
þær eru miklar. Víkverji renndi ný-
verið inn á bensínstöð og bað starfs-
mann á plani að setja rúðupiss með
frostvara á bílinn. Það gerði starfs-
maður, hellti einum og hálfum lítra í
hólfið. Víkverji ætlaði ekki að trúa
eigin eyrum þegar starfsmaður á
kassa rukkaði hann um rúmar 1.800
krónur fyrir löginn. Einn og hálfur
lítri af rúðupissi á 1.800 krónur!
Hvernig gat það verið?! Jú, skýringin
var einföld, þetta væri nú bara verðið
á rúðupissi. Það er s.s. eitthvað í því
sem gerir það að verkum að hann
kostar þetta mikið, enda mikill örygg-
isvökvi. Maður verður nú að geta
horft út um framrúðuna.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 notandi, 8 búa til,
9 megnar, 10 ílát, 11 skrika
til, 13 hefur undan, 15 vel
verki farinn, 18 lítið, 21 um-
fram, 22 dreng, 23 eldstæði,
24 ímyndunarafl.
Lóðrétt | 2 víðan, 3 ífæra, 4
ganga hægt, 5 kvendýrið, 6
dálítið súr, 7 þrjóskur, 12
tölustafur, 14 tek, 15 jó, 16
ávöxt, 17 hund, 18 labbakút,
19 héldu, 20 verkfæri.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 grýla, 4 skæra, 7 lúinn, 8 örlar, 9 ill, 11 unnu, 13 frár,
14 gilda, 15 haug, 17 róma, 20 bak, 22 rabba, 23 íhald, 24 koðna,
25 aktar.
Lóðrétt: 1 guldu, 2 ýtinn, 3 asni, 4 spöl, 5 ætlar, 6 aðrar, 10 lilja,
12 ugg, 13 far, 15 horsk, 16 umboð, 18 ósatt, 19 andar, 20 bana,
21 kíma.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Skrúfstykki.
Norður
♠74
♥KG842
♦KG73
♣G5
Vestur Austur
♠Á863 ♠DG105
♥753 ♥D109
♦10852 ♦D964
♣92 ♣D8
Suður
♠K92
♥Á6
♦Á
♣ÁK107643
Suður spilar 6♣.
Fræg er bók Terence Reese, The
Expert Game (1957), þar sem hann
fjallar um og skilgreinir þvingunar-
afbrigðin „vice, winkle and the stepp-
ing-stone“ – skrúfstykki, uppvakningu
og stiklustein. Tíðnin á þessum „kreist-
um“ er því miður lítil, en einstaka sinn-
um rekur á fjörur bridshöfunda dæmi
úr raunverulegu móti. Barry Rigal
komst yfir fagurt skrúfstykki á síðustu
sumarleikum Bandaríkjamanna. Spilið
kom upp í Spingold-útslættinum og
sagnhafi heitir Roisin O’Hara.
Útspilið var tígull. O’Hara tók öll
trompin og skildi eftir í borði ♥KGx og
♦KG. Austur varð að valda rauðu
drottningarnar og henti því öllum
spöðunum – ♠DG10. Þau feitu afköst
fóru ekki framhjá O’Hara. Hann spilaði
♠K og bjó til tólfta slaginn á spaðaníu.
Skúfstykki í anda Reese.
5. desember 1796
Leikritið Slaður og trúgirni
eftir Sigurð Pétursson var
frumsýnt í Reykjavíkurskóla.
Síðar var það nefnt Hrólfur.
5. desember 1948
Fyrsti hluti Hallgrímskirkju í
Reykjavík var tekinn í notkun.
Þetta var neðri hluti kórbygg-
ingarinnar, en þar voru sæti
fyrir 250 manns.
5. desember 1954
Íslenska brúðuleikhúsið hóf
sýningar í Alþýðuhúsinu í
Reykjavík. Sýnd voru barna-
leikritin „Hans og Gréta“ og
„Rauðhetta“. Jón E. Guð-
mundsson hafði unnið að und-
irbúningi leikhússins í tvö ár.
5. desember 1954
Akureyrarflugvöllur var
formlega tekinn í notkun þeg-
ar Snæfaxi lenti þar. Morg-
unblaðið sagði þetta vera
merkan áfanga í flugmálum.
5. desember 1968
Jarðskjálfti fannst í Reykja-
vík. Hann átti upptök við
Kleifarvatn, mældist 6 stig og
var einn sá snarpasti síðan
1929. Morgunblaðið sagði að
fólk hefði hlaupið í skelfingu
út úr húsum og háar bygg-
ingar hefðu sveiflast mikið til.
5. desember 1998
Þrjú stór verkalýðsfélög sam-
einuðust, Starfsmannafélagið
Sókn, Félag starfsfólks í veit-
ingahúsum og Dagsbrún–
Framsókn. Nýja félagið hlaut
nafnið Efling. Félagsmenn
voru þá um þrettán þúsund.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
„Þetta er auðvitað merkisafmæli,“ segir eldhress
Eðvald Smári Ragnarsson sem fagnar sextíu ára
afmæli sínu í dag með fjölskyldunni, en hann og
kona hans, Hólmfríður Haukdal, eru svo rík að
eiga fjögur börn og tíu barnabörn. Afmælisveislan
verður svo haldin 10. desember á Hótel Framtíð á
Djúpavogi. „Þá ætlum við tveir saman, sem erum
kallaðir fermingarbræðurnir, að halda veislu.
Þangað mætir fólk sem vill þekkja mig,“ segir Eð-
vald Smári.
Hann er lærður vélstjóri og hefur mest unnið
við það í gegnum tíðina „en ég hef verið trillukarl
núna síðustu árin“. Hann rær frá Djúpavogi, í strandveiðikerfinu, en
segir það þó allt of stutt, aðeins fjóra mánuði á ári. Þar fyrir utan
vinnur hann við ýmis önnur störf.
Eðvald Smári situr ekki aðgerðalaus í frístundum sínum en hann er
bæði í karlakór og kirkjukór auk þess að taka þátt í starfi með Lions.
Hann segist hafa gaman af því að vera innan um fólk, sama á hvaða
aldri það er. „Svo er ég afi. Það er heilmikið starf,“ segir Eðvald
Smári, sem situr og horfir á Póstinn Pál með þriggja ára afabarni
sínu meðan á samtalinu stendur. sigrunrosa@mbl.is
Eðvald Smári Ragnarsson sextugur
Heilmikið starf að vera afi
Flóðogfjara
5. desember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 2.38 3,1 8.58 1,4 15.03 3,1 21.17 1,3 10.56 15.42
Ísafjörður 4.51 1,6 11.11 0,8 17.07 1,6 23.24 0,6 11.34 15.13
Siglufjörður 0.27 0,4 6.50 1,0 13.02 0,4 19.14 1,0 11.18 14.55
Djúpivogur 6.03 0,8 12.06 1,4 18.09 0,7 10.33 15.03
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú er ánægður með félagslífið og lað-
ast að nýjum vinum og hugsanlega ástvini, ef
það á við. Einhver sem þú þekkir gerir ekki
eins og þú vilt.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Það er óðs manns æði að leggja út í
vandasamar samningaviðræður án þess að
kynna sér málin fyrst ofan í kjölinn.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú ættir að verja deginum með vin-
um þínum ef þú mögulega getur. Það er ekk-
ert gaman að keppa við einhvern sem maður
getur unnið auðveldlega.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Í dag er þér sérstaklega annt um
frelsi og velferð annarra. Eitthvað sem þú
býst við, annaðhvort í símtali eða pósti, fyllir
þig krafti.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Velgengni í fjármálum og ástarmálum
kemur og fer. Kveddu þér hljóðs og talaðu
skýrt svo allir megi skilja þinn boðskap.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Dagurinn í dag er upplagður fyrir
reikningsskil. Leitaðu ráða hjá traustum að-
ila, því ekki er allt gull sem glóir. Vertu því
snöggur að taka ákvarðanir.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Til að forðast það að brenna út í náinni
framtíð skaltu koma reglu á orkuna þína.
Láttu ekki kæruleysið ná tökum á þér, þá er
verr farið en heima setið.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú hefur mikið til þíns máls og
fólk hlustar á þig. Glaðværð er vanmetin
þessa dagana, en ekki í huga þínum.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það er ekki laust við að þú náir að
draga að þér athyglina í dag. Aðrir munu
bregðast fljótt við athugasemdum þínum.
Ekki taka neinu sem gefnu.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Vandaðu mál þitt svo enginn mis-
skilningur komi upp varðandi það sem fyrir
þér vakir. Kannaðu alla málavexti áður en þú
dæmir.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Það er eins og þú náir engu sam-
bandi við foreldra þína, yfirmenn og aðra yf-
irboðara í dag. Láttu þér hvergi bregða held-
ur haltu þínu striki.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú gerir meiri kröfur til þín en skyn-
samlegt er. Gríptu gæsina á meðan hún gefst
og ekki láta tækifærin framhjá þér fara.
Stjörnuspá
1. e4 c5 2. c3 Rf6 3. e5 Rd5 4. d4 cxd4 5.
Rf3 e6 6. cxd4 d6 7. a3 Bd7 8. Bd3 Bc6
9. O-O Rd7 10. He1 Be7 11. b4 a6 12.
Rbd2 dxe5 13. dxe5 a5 14. bxa5 Rc5 15.
Bf1 Ba4 16. De2 Rf4 17. Dc4 Rfd3 18.
He3 Rxc1 19. Hxc1 O-O 20. a6 Hxa6 21.
Dg4 Ha8 22. Hc4 Bc6 23. Hd4 Ha4 24.
Hxa4 Bxa4 25. h4 Bc2 26. h5 Bf5 27.
Dc4 h6 28. Rd4
Staðan kom upp í Evrópukeppni
taflfélaga sem lauk fyrir nokkru í Ro-
gaska Slatina í Slóveníu. Danski stór-
meistarinn Peter Heine Nielsen (2687)
hafði svart gegn Hristo Velchev (2320)
frá Búlgaríu. 28… b5! 29. Dc3 Ra4! 30.
Da1 Bg5! hvítur getur nú ekki varist
liðstapi. 31. Bxb5 Bxe3 32. fxe3 Rc5
33. Dc1 Re4 34. R2f3 Rg5 35. Rd2 Bg4
36. a4 Bxh5 37. Dc3 Bg6 38. Bc6 f6 39.
a5 fxe5 40. R4f3 Rxf3+ 41. Rxf3 Dd1+
42. Kh2 e4 43. Rd2 Hf5 44. Rxe4 Dh5+
45. Kg1 Hxa5 og hvítur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is