Morgunblaðið - 05.12.2011, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 05.12.2011, Blaðsíða 24
24 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 2011 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÉG ER SVO LEIÐUR HÆTTU AÐ VERA SVONA FÚLL KISI VEISTU AF HVERJU ÞAÐ ER SOKKUR Á ÞAKINU? HANN ÁTTI ÞAÐ SKILIÐ HVAÐ MEÐ AÐ FARA ÚT MEÐ RUSLIÐ FYRIR KONUNA ÞÍNA? ÉG ER HRÓLFUR HINN HRÆÐILEGI OG ÉG LÆT ENGAN SKIPA MÉR FYRIR! VÁ, ÉG VISSI EKKI AÐ KÁTI GRÆNI RISINN ÆTTI VIÐ SVONA MIKIÐ AF VANDAMÁLUM AÐ STRÍÐA ÞAÐ ER ORÐIÐ MJÖG ERFITT AÐ VERA VÖRUMERKI FYRIR ÞETTA NIÐURSUÐUFYRIRTÆKI. ÉG HEF EKKI VERIÐ KÁTUR Í MÖRG ÁR OG SVO ER ÉG EKKI EINU SINNI GRÆNN LENGUR ÉG ER ORÐINN HÁLF GRÁR EN ÉG NOTA PHOTOSHOP TVISVAR Á DAG VÁ, MÉR FINNST LITURINN SVO NÁTTÚRULEGUR ÉG VEIT EKKI HVAÐ ER AÐ MÉR, ÉG HEF ALLTAF HAFT SVO GAMAN AÐ VINNUNNI MINNI ÉG ER ALLT Í EINU BÚIN AÐ FÁ NÓG AF ÞVÍ AÐ HLUSTA Á VANDAMÁL FÓLKS KANNSKI ERTU BARA FARIN AÐ BRENNA ÚT, ÞÚ ÆTTIR AÐ LEITA ÞÉR RÁÐGJAFAR ÞAÐ ER ALVEG LJÓST AÐ ÞÚ ERT ALVEG ÚTBRUNNIN ÉG VERÐ AÐ KOMAST AÐ... ...BRYNJUNNI HVAÐA HÁVAÐI ER ÞETTA Á FYRSTA FARRÝMI SKIPTIR EKKI MÁLI, ÞAÐ KEMUR OKKUR EKKERT VIÐ TONY HVAÐ ER AÐ? ÞÚ MÁTT EKKI STANDA UPP NÚNA Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 8.45 og 9.25, vinnust. kl. 9, vatnsleikfimi kl. 10.50, í Vesturbæjarlaug, útsk. og mynd- list kl. 13. Óttar M. Norðfjörð les úr bók sinni kl. 14. Árskógar 4 | Handavinna, smíði og út- skurður kl. 9, félagsvist kl. 13.30 og myndlist kl. 16. Boðinn | Botsía kl. 11. Valþór m/tálgun kl. 13.30. Styrkur og þol, lokaður hópur. Bólstaðarhlíð 43 | Bútasaumur, handa- vinna. Kópakórinn og syngur kl. 15.20 á þriðjud., stjórn. Berglindar Björgúlfsd. Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8. Leikfimi kl. 9.15, upplestur á 2. hæð kl. 14. Jólakúlusýning mánaðarins. Félag eldri borgara í Kópavogi | Bók- menntakynning FEBK í Gullsmára, 6. des. kl. 20. Vilborg Davíðsdóttir ljóð- skáld og kennari segir frá ævi sinni og les upp. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13, kaffispjall kl. 13.30. Félagsheimilið Gjábakki | Leiðbeinandi í handavinnu við til hádegis, botsía kl. 9.15, gler- og postulínsmálun kl. 9.30, lomber kl. 13, canasta kl. 13.15, kóræfing kl. 16.30 og skapandi skrif kl. 20. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Postu- línsmálun kl. 9 ganga kl. 10, handavinna og brids kl. 13, félagsvist kl. 20. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Kvennaleikfimi kl. 9.15, 10 og 11, vatns- leikfimi kl. 12.15 og 14.15, málun kl. 14. Félagsstarf eldri bæjarbúa Seltjarn- arnesi | Gler/leir kl. 9, biljard kl. 10. kaffispjall kl. 10.30, ganga kl. 11.20, handavinna kl. 13, te og tónlist bóka- safninu kl. 17.30, vatnsleikfimi kl. 18.30. Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur opnar kl. 9-16.30, Ólafur Gunnarsson les úr nýrri bók sinni kl. 11. Frá hádegi er spilasalur opinn, kóræfing kl. 12. Hraunsel | Ganga frá Haukah. Ásv. kl. 10, kórinn syngur í Drafnarhúsinu kl. 11, glerbræðsla kl. 13, botsía og félagsvist kl. 13.30, biljard í Hraunseli kl. 9-16. Hæðargarður 31 | Við hringborðið kl. 8.50, fundur í Æðstaráði kl. 10, handav. og prjónah. kl. 9, saumur kl. 13, vist kl. 13.30, skapandi skrif kl. 16, bókmennta- hópur þriðjud. kl. 20. Miðar á Vín- arhljómleika á skrifstofu. Skráning í jóla- kortagerð á miðvikud. Íþróttafélagið Glóð | Ringó kl. 13.30 í Smáranum. Korpúlfar Grafarvogi | Ganga í Eg- islhöll kl. 10, sundleikfimi kl. 9.30 á morgun. Norðurbrún 1 | Botsía kl. 10, handa- vinna kl. 9, upplestur kl. 11, útskurður kl. 13, samverustund með djákna kl. 14. Vesturgata 7 | Setustofa og botsía kl. 9, handavinna kl. 9.15, leikfimi kl. 10.30, kóræfing kl. 13. Jólafagnaður 9. des. kl. 17. Veislustjóri Þorvaldur Halldórsson, Sigurgeir v/ flygilinn. Jólahlaðborð. Söngfuglarnir syngja undir stjórn Gróu Hreinsd. Danssýning frá danssk. Jóns Péturs og Köru. Jólahugvekja, Guð- mundur Haukur leikur fyrir dansi, skrán- ing í s. 535-2740. Í laugardagsblaðinu rifjaði ég upp nokkur stuðlaföll. Hér koma fleiri hvert úr sinni áttinni: Ef ég væri orðinn fær að skapa forlög manna hér í heim, hefði ég annan taum á þeim. Þessi neftóbaksvísa hafði Jóhann Sveinsson frá Flögu heyrt að væri eftir Sigurð Guðmundsson frá Kol- grímsstöðum í Eyjafirði, sem kallaði sig Kolsted: Pontan mín var prýdd með Rínar ljóma. Utan gljáir á ’ana; innan fáir sjá ’ana. Ísleifur Gíslason kaupmaður á Sauðárkróki orti: Lýðskrum, rógur, last og Gróu-sögur, ekkert hamlar útsölu og allt á gamla verðinu. Sigurður Breiðfjörð orti í 17. mansöng Númarímu: Fel ég mig í flokki rímaranna, því ætíð get ég, eins og þeir arnar saman hnoðað leir. Í ljóðinu Búmannsefni segir Jó- hannes úr Kötlum: Fram til dala fór ég smali ungur, – blárra sala breið um göng bar ég malinn einn og söng. Drífa Viðar yrkir í mansöng í rím- unni af Maggó og Stapadraugnum: Skartar voð en skellur boði á kinnung. Stefnir gnoð á mávamið marglit roð að bjástra við. Einar Jónsson fiskifræðingur sendi mér bréf á netinu fyrir viku rúmri, svohljóðandi: „Tilefnið er skógarhögg höfðingj- ans í Ráðhúsi Reykjavíkur sem mörgum hér innanhúss hefur mjög mislíkað. Sagan segir að borgar- stjóri hafi verið að efna gamalt kosn- ingaloforð en þau hefur hann mörg hver svikið svo hann hefði vel getað látið þetta eiga sig. Áratuga gamlar aspir, allt að 10 metrar á hæð, voru allar stráfelldar og það „á snöggu augabragði (afskorið verður fljótt)“. Hér hefði mátt standa öðru vísi að verki og nota sögina til að snyrta ræturnar sem ekkert skaðast af því auk þess sem það er vel þekkt er- lendis að kringum stór tré verður stöðugt að vera að laga gangstétt- arhellur; það er óhjákvæmilegt og á ekki bara við um aspir. Sem sé, fávís fljótfærni hjá Gnarr og í sumar mun Ráðhúsið standa reytt sínum feg- urstu skrautfjöðrum þótt einhverjar hríslur verði sjálfsagt settar í stað- inn en það tekur tíma fyrir tré að vaxa og hananú! Eftir að Jón Gnarr (asparbani) lét fella allar aspirnar í kringum Ráð- húsið: Ráðhúsið rúið viðum af ráðsmönnum vits-andvana. Seint mun með þannig siðum sómi af asparbana.“ Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Asparbani og ráðhúsið Spurningar um jól- in Sannleikurinn er sá að það er oft beinlínis dapurlegt að hlusta á fréttamenn spyrja blessuð börnin út í jól- in. Það er spurt hvort þau hlakki til jólanna. Það er spurt hvað þau haldi að þau fái í jóla- gjöf. Það er spurt hvort það verði gam- an. Og það er spurt hvaða jólasveinn sé skemmtilegastur. En fáum dettur í hug að spyrja ung- dóminn hvers vegna við höldum jól. Og hvort þau haldi að öllum líði vel á jólunum. Eða hvað við getum gert til að gleðja aðra á þeirri hátíð. Eða jafnvel hvort þau haldi að einhver fari í jólaköttinn. Í sömu mund eru sýndar fréttamyndir af hrikalegri hung- ursneyð í Afríku. Vit- anlega er nauðsynlegt að tala við unga fólkið á léttu nótunum. En hvar er kærleikurinn? Þarf þetta alltaf að vera eitthvert rugl um Barbie-dúkkur? Líklega væri miklu heppilegra að börnin væru látin spyrja fréttamennina hvað þeir haldi um jólin. Það yrðu ábyggilega gáfulegri spurningar sem frá þeim kæmu. Börn eru nefnilega stórbrotið fólk eins og hún Herdís okkar Egilsdóttir segir. Hallgrímur Sveinsson. Velvakandi Ást er… … að fara út í öfgar til að sýna heiminum hvað þið eruð ástfangin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.