Morgunblaðið - 05.12.2011, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 05.12.2011, Blaðsíða 16
Ingibjörg Benediktsdóttir BAKSVIÐ Andri Karl andri@mbl.is Dómarar Hæstaréttar Ís-lands kusu sér fyrir helginýjan forseta réttarins oghefur kjörið vakið spurn- ingar. Þannig fór að Markús Sig- urbjörnsson verður forseti frá 1. jan- úar næstkomandi og Viðar Már Matthíasson varaforseti. Kjör- tímabilið verður að þessu sinni til 31. desember 2016 en það var lengt úr tveimur árum í fimm fyrr á þessu ári. Spurningarnar tengjast þó síður kjör- tímabilinu og lengd þess en heldur niðurstöðu kjörsins. Lengi hefur verið viðhöfð sú regla að forsetaembættið hefur geng- ið milli manna í réttinum í ágætu sam- komulagi. Eins og sjá má af meðfylgj- andi töflu hefði því að öllu eðlilegu Garðar Gíslason átt að taka við emb- ættinu um næstu áramót. Engar skýr- ingar hafa hins vegar fengist á því hvers vegna horfið hefur verið frá venjunni og Þorsteinn A. Jónsson, skrifstofustjóri Hæstaréttar, svaraði ekki fyrirspurn Morgunblaðsins um málið. Ljóst er þó að kjörið er í höndum dómaranna sjálfra og fer fram kosn- ing á fundi þeirra. Ætti því að ríkja samkomulag um breytinguna, að minnsta kosti meðal meirihluta dóm- ara. Lengt að ósk Hæstaréttar Hugsanlegt er þó að breytingin tengist að einhverju leyti því að kjör- tímabilið lengist úr tveimur árum í fimm. Var það gert með breytingum á lögum um dómstóla og frumvarp þess efnis samþykkt á Alþingi í febrúar sl. Var þá einnig samþykkt að fjölga dómurum Hæstaréttar. Raunar var þó ekki mælt fyrir um lengra kjörtímabil í upphaflegu frumvarpi en við meðferð málsins hjá allsherjarnefnd var ákvæðinu bætt inn í, að ósk Hæstaréttar. Í grein- argerð allsherjarnefndar með breyt- ingatillögunni segir að fulltrúi Hæsta- réttar hafi greint nefndinni frá því, að umfang embættisins muni aukast með fjölgun dómara og annars starfsfólks. Auk þess myndi lenging starfstíma forseta hafa í för með sér meiri festu í starfi viðkomandi forseta og meiri lík- ur á að hann gæti sinnt tímafrekari stjórnunarverkefnum. Ekki var einhugur um þessa breytingu meðal þingmanna og tveir þingmenn Sjálfstæðisflokks, Birgir Ármannsson og Sigurður Kári Krist- jánsson, höfðu sig nokkuð í frammi vegna hennar. „Ég verð satt að segja að játa að mér finnst algjörlega skorta á rökstuðning fyrir þessari breytingu. Hún var ekki í frumvarpi því sem lagt var fyrir á þingi og sent út til umsagnar, var ekki í tillögum starfshópsins sem vann á vegum ráðuneytisins á síðasta ári og var ekki í frumvarpi um breytingu á dóm- stólalögum sem lagt var fyrir þingið og fékk umfjöllun í fyrravetur þótt það yrði ekki að lögum,“ sagði Birgir og sagðist ekki sannfærður um rétt- mæti breytingarinnar. „Þarna er með einhverjum hætti verið að breyta því og gefa því meira vægi eða sterkari stöðu – ég veit ekki hvernig á að túlka það – án þess endilega að það sé rök- stutt sérstaklega.“ Róbert Marshall, þáverandi for- maður allsherjarnefndar, svaraði Birgi þó með því að eftir að hafa skoðað málið væri ekki annað hægt en að fallast á sjónarmið réttarins „[U]mfang þessa starfs er að taka miklum breytingum. Það er að verða meira að vöxtum og þess vegna er gripið til þessa. Það er að tillögu réttarins sjálfs að þetta er gert á þennan veg.“ Hæstiréttur bregður af venju í forsetakjöri Forsetar og varaforsetar Hæstaréttar Ár Forseti Hæstaréttar Varaforseti Hæstaréttar 1999 Pétur Kr. Hafstein Garðar Gíslason 2000 Garðar Gíslason Guðrún Erlendsdóttir 2001 Garðar Gíslason Guðrún Erlendsdóttir 2002 Guðrún Erlendsdóttir Markús Sigurbjörnsson 2003 Guðrún Erlendsdóttir Markús Sigurbjörnsson 2004 Markús Sigurbjörnsson Gunnlaugur Claessen 2005 Markús Sigurbjörnsson Gunnlaugur Claessen 2006 Gunnlaugur Claessen Hrafn Bragason 2007 Gunnlaugur Claessen Hrafn Bragason1) Árni Kolbeinsson2) 2008 Árni Kolbeinsson Ingibjörg Benediktsdóttir 2009 Árni Kobleinsson Ingibjörg Benediktsdóttir 2010 Ingibjörg Benediktsdóttir Garðar Gíslason 2011 Ingibjörg Benediktsdóttir Garðar Gíslason 2012 Markús Sigurbjörnsson Viðar Már Matthíasson 1) til 31. ágúst 2) frá 1. september til 31. desember. 16 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 2011 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Angela Mer-kel, kansl-ari Þýska- lands, varaði við því í ræðu á þýska þinginu á föstudag að ríki á evrusvæð- inu mundu þurfa að taka á sig skerðingu fullveldis. Merkel hefur hafnað skammtíma- lausnum á borð við þær að leyfa Seðlabanka Evrópu að grípa í stórum stíl inn í skulda- bréfamarkaðinn með kaupum á bréfum sem aðrir vilja ekki eiga, líkt og Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, hefur lagt til. Merkel telur að eina leiðin sé að færa fullveldi ríkja í verulegum mæli frá ríkjunum sjálfum og til leiðtoga Evrópu- sambandsins. Um þetta síð- astnefnda er raunar enginn ágreiningur meðal þeirra sem mest áhrif hafa á evrusvæð- inu, umræðan snýst aðallega um hvort, eða öllu heldur hversu miklar, skammtíma- aðgerðir eigi að fara fram áður en að afsali fullveldisins kem- ur, eða samhliða því afsali. Allir virðast líka orðnir sammála um að evran sé orðin slíkt vandamál að alls óvíst sé að unnt sé að bjarga henni, jafnvel þó að gripið verði til ýtrustu aðgerða. Fari svo eru vaxandi áhyggjur af afleiðing- unum. The Wall Street Journ- al skrifar til að mynda að ef til vill dugi aðgerðirnar ekki og fari svo sé talið fullvíst innan stjórnkerfisins í Þýskalandi að bylgja þjóðargjaldþrota fari yfir evrusvæðið, sem gæti hrundið Evrópu inn í kreppu og haft neikvæð áhrif á efna- hag heimsins. Í lok þessarar viku munu Merkel og Sarkozy reyna að ná fram breyt- ingum á stjórn- skipulagi evru- svæðisins í þeirri von að það verði til þess að markaðir á svæðinu fari að vinna eins og þeim er ætlað. Enginn veit hvernig fer en all- ir vita að niðurstaðan ræðst af því samkomulagi sem Merkel og Sarkozy ná. Önnur ríki skipta litlu sem engu máli í þessu sambandi og áhrif þeirra á gang mála eru, þegar á reynir, nánast engin. Þó er verið að fjalla um mögulegt þjóðargjaldþrot þessara ríkja, afsal þeirra á fullveldi sínu og líklega verulega skerðingu á lífskjörum íbúa margra þeirra. Ríkisstjórn Íslands hefur ekki enn gert neitt með það að innan Evrópusambandsins leikur allt á reiðiskjálfi og þá ekki síst á evrusvæðinu. Þang- að alla leið ætlar ríkisstjórnin með Ísland ef hún hefur styrk til og ef henni endist örendið. Og ríkisstjórnin lætur sér fátt um finnast þó að Evrópu- sambandið sé að gerbreytast frá því hún vélaði út samþykkt fyrir því að sækja um aðild og gerir ekkert með það þó að hún hafi enga heimild fengið til að sækja um aðild að því sambandsríki sem Evrópu- sambandið, eða í það minnsta evrusvæðið, virðist vera að breytast í. Umsóknarferlinu ætti að vera sjálfhætt þegar aðstæður hafa breyst svo mjög innan Evrópusambandsins, en af einhverjum ástæðum anar ríkisstjórnin áfram án þess að útskýra með hvaða rökum hún er að reyna að þröngva Íslandi inn í hið verðandi sam- bandsríki. Evrópusambandið færist nær sam- bandsríki, en hvers vegna eltir Ísland?} Ögurstund nálgast Í Bretlandi erhefð fyrir því að forsætisráð- herrann notfæri sér þingrofsheim- ildina og efni til kosninga á seinni hluta kjörtímabils, þegar sæmilega stendur í hans pólitíska ból. Kosningar fara þá fram þremur vikum síðar. Forsætisráðherra hefur sam- bærilegan rétt á Íslandi. En ekki hefur tíðkast að nota hann með sama hætti, þótt umræða um þingrof og kosn- ingar hafi vissulega átt sér stað innan samsteypustjórna hér á landi. Hefðin er önnur hér og líklegt að flokks- pólitískt þingrof myndi mæl- ast illa fyrir. Við bætist að nærri átta vikur tekur að koma kosningum á og margt breytist á svo löngum tíma. Kosningaþreyta er fljót að grípa um sig hér á landi. Það er umhugsunar- efni þegar horft er til Bandaríkjanna, þar sem baráttan fyrir forsetakosn- ingar stendur í tæp tvö ár. Og eins hitt hve þetta fjölmenna og þróttmikla lýðræðisríki nær lítilli þátttöku, þrátt fyrir langa og mikla kosningabar- áttu. Og eins hitt, hvað úrtak frambjóðenda er oft dapur- legt, úr svo miklu úrvali, eins og verður að segja um þann hóp sem repúblikanar hafa kynnt núna, einmitt þegar vinningslíkur þeirra virtust vænlegar. Íslendingar myndu engjast um af kosn- ingaleiða byggju þeir við bandarískan veruleika} Ólíkar kosningahefðir Þ essi bók er „fágæti“ segja sérfræð- ingarnir.“ Þannig hljóðaði kveðjan sem fylgdi bókinni Nútíma mann- líf og kvæðin eftir Guðmund Har- aldsson frá árinu 1974. Forvitnilegt er að virða fyrir sér höfundinn á forsíðu bókarinnar. Það leynir sér ekki að manninum liggur mikið á hjarta, hann horfir hvössu og einbeittu augnaráði framhjá lesand- anum og að því er virðist út í myrkrið. Sex- pensarinn, yfirvaraskeggið og bindisnælan allt til marks um að hann ræktar sína sérvisku. Bragi Kristjónsson bóksali gerir honum skil í minningargrein í Morgunblaðinu árið 1995, sem birt er í nýútkominni bók með greinasafni hans Sómamenn og fleira fólk, en þar stendur: „Hann var alla ævi sína örsnauður alþýðumað- ur, eignaðist ekki svo mikið sem kaffikönnu um dagana og vann framundir fimmtugt sem bygging- arverkamaður, togarasjómaður í Hvítahafinu, teppabank- ari og eyrarkarl.“ Guðmundur var sannarlega merkilegur karl enda frá Merkisteini á Eyrarbakka. Það segir sína sögu að hann tók ofan hatt sinn þegar hann mætti eldri konum á göngu og var „alla tíð dálítið hneigður fyrir kvenfólk“, að því er fram kemur í viðtali Guðmundar Daníelssonar í upphafi bókarinnar, „ekki síst búlduleitar stúlkur, dökkhærðar“. Óhætt er að fullyrða um Guðmund að hann kunni sig. Það sést glöggt á þessu safni greina og ljóða úr ýmsum smábókum, sem Guðmundur sendi frá sér um dagana, til að mynda ljóðinu „Ort fyrir prentara“ frá árinu 1972: Gaman er að herrum þeim, sem prenta góðar bækur, sem ritlingana – þess – gefur oft góðan kostinn, handa þeim mörgu lesendum. Skáldskapur Guðmundar er lofsamlegur um menn og málefni og stíllinn áreynslulaus prósi eða atómkveðskapur, „stórhreinlegur naív- ismi“ eins og Bragi orðar það, en svo eru þar líka ádrepur eins og Skattavísan 1972: Margt er það sem heyrir manninum til með skattafargani sínu … En skemmtilegast þykir mér að lesa rann- sóknir Guðmundar á mannlífinu, sem skráðar eru af undanbragðalausri nákvæmni og stæla- laust, hvort sem hann tekur fyrir lífstykkja- saumastofu eða niðulagningariðjur á Vest- fjörðum: „Já, t.d. humarinn og rækjurnar, sem er svo rómað ofan á brauðsneiðar, bæði á kaffistofum, sem og í afmælum, og er þessi iðnaður búinn að starfa í um 20 ár eða svo og er engin skömm að því arna.“ Í lok minningargreinar Braga stendur: „Líf Guðmundar Haraldssonar sagnahöfundar leið um dal og hól án þess að hann nokkru sinni léti illt af sér leiða. Þegar hann kvaddi viðmælendur á mannamótum eða gatnamótum, mælti hann jafnan: „A-allt í haginn.““ Ekki þarf alltaf að ganga mikið á í lífinu til þess að skrif- að sé um það. Bókin um Guðmund er fágæt eins og mað- urinn sjálfur – og kveðjan heyrist varla lengur: A-allt í haginn. pebl@mbl.is Pétur Blöndal Pistill A-allt í haginn STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Samkvæmt 2. mgr. 5. gr. dóm- stólalaga fer forseti með yfir- stjórn Hæstaréttar. Hann stýrir meðal annars þeirri starfsemi Hæstaréttar sem er ekki hluti af meðferð máls fyrir dómi, skiptir verkum milli dómara og annarra starfsmanna og fer með agavald yfir þeim. Forseti Hæstaréttar ber ábyrgð á rekstri réttarins og fjár- reiðum og kemur fram af hálfu dómstólsins út á við, auk þess að gegna þeim sérstöku störfum sem mælt er fyrir um í öðrum lögum. Þá sinnir hann dóm- störfum jafnt og aðrir dómarar þrátt fyrir að sinna einnig starfi for- seta réttarins. Núverandi forseti Hæstaréttar er Ingi- björg Benediktsdóttir. Forseti fer með agavald STARF FORSETANS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.