Morgunblaðið - 13.12.2011, Page 1

Morgunblaðið - 13.12.2011, Page 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 3. D E S E M B E R 2 0 1 1  Stofnað 1913  292. tölublað  99. árgangur  SKÍÐAGANGA ER VAXANDI ÍÞRÓTTAGREIN GÁFU TÓNINN Á HM FROSTRÓSIR KLASSÍK TÓNLEIKARNIR STELPURNAR OKKAR ÍÞRÓTTIR HÁTÍÐLEG STUND 32ULLUR Á GÖNGUSKÍÐUM 10 Stúfur kemur í kvöld www.jolamjolk.is dagar til jóla 11 „Það er verið að auka álögur á at- vinnulífið, sem kemur í veg fyrir að hægt verði að minnka atvinnuleysið. Það kemur líka verulega á óvart að norræn velferðarstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur ætli að skerða raun- gildi bóta almannatrygginga aldr- aðra og öryrkja á næsta ári,“ sagði Birkir Jón Jónsson, varaformaður Framsóknarflokksins, sem á sæti í efnahags- og viðskiptanefnd Alþing- is, að loknum fundi í gærkvöldi. Nefndin samþykkti þá tillögur meirihlutans um breytingar á „band- orminum“, frumvarpi um ráðstafanir í ríkisfjármálum. Þar má nefna skattþrep tekjuskatts, séreignar- sparnað, auðlegðarskatt og fjár- sýsluskatt. Nefndin hélt tvo fundi í gær. Helgi Hjörvar, formaður nefndarinnar, kvaðst vonast til þess að önnur umræða um frumvarpið gæti hafist á Alþingi í dag og sú þriðja þegar liði á vikuna. „Það var verið að vinna tillögur upp á margra milljarða skattlagn- ingu á hlaupum frammi á gangi með- an verið var að fresta fundum. Þetta er náttúrlega óhæfa,“ sagði Tryggvi Þór Herbertsson, fulltrúi Sjálfstæð- isflokksins. Hann sagði eftir að meta áhrifin af breytingatillögum til fjár og því hefði hvorki meirihluti né minnihluti vitað hver þau yrðu. Fjárhagsleg áhrif óljós  Bandormurinn afgreiddur til 2. umræðu úr efnahags- og viðskiptanefnd  Minnihluti gagnrýnir afgreiðsluna og segir tillögur unnar á hlaupum MBandormi breytt í nefnd 2 Tekist á um tillögur » Minnihluti efnahags- og við- skiptanefndar fékk tvær breyt- ingartillögur teknar út í gær. » Leggja á skatt á hagnað fjár- sýslufyrirtækja sem er umfram einn milljarð króna. Lúsíuhátíð Sænska félagsins verður haldin í Seltjarnarneskirkju í kvöld kl. 18.30 en 13. desember er Lúsíudagurinn. Urður Björg Gísladóttir, 15 ára, er Lúsía ársins 2011 og leiðir Lúsíukórinn. Sungið er um heilaga Lúsíu við kertaljós en fyrirsögnin er tekin úr þýðingu Elsu E. Guðjónsson á ljóðinu. „Birtir af kertum brátt, blíð mærin eyðir nátt“ Morgunblaðið/Ómar  Hópar stofn- fjárhafa í fölln- um sparisjóðum eru að kanna lagalega stöðu sína í kjölfar dóms Hæsta- réttar sem leiddi til þess að Íslandsbanki felldi niður eftirstöðvar lána sem veitt höfðu verið vegna aukn- ingar stofnfjár í Byr sparisjóði. Dómurinn nær ekki til þeirra sem gert höfðu upp lánin, með eða án fyrirvara, áður en dómur féll, þótt lánin séu þau sömu. Hæstaréttarlögmaður telur að þeir sem greiddu með fyrirvara, að minnsta kosti, geti krafist end- urgreiðslu. Þeir sem notuðu sparifé til að auka stofnfé eða tóku lán annars staðar eru í annarri stöðu. Þeir eru að íhuga möguleika á skaða- bótamáli vegna útgáfu Byrs á auknu stofnfé. Stofnfjárhafar í sparisjóðum víða um land eru einnig að kanna lagalega stöðu sína og undirbúa málaferli. » 18 Stofnfjárhafar kanna stöðu sína Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Við reyndum hvað við gátum fram á síðustu stundu að koma í veg fyrir þetta,“ segir Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, og vísar þar til áforma stjórnvalda um breytingar á greiðslu atvinnuleys- isbóta. Um áramótin á að taka gildi sú breyting að þeir sem hafa verið 42 mánuði samfellt á at- vinnuleysisbótum detta út af skrá í þrjá mánuði og verða á þeim tíma að reiða sig á fjárhagsaðstoð sveit- arfélaganna. Gert er ráð fyrir þessari breyt- ingu í fjárlögum en frumvarp til breytinga um almannatryggingar er til meðferðar hjá velferðarnefnd Alþingis fyrir 2. umræðu. Sveitarfélögin eru mjög ósátt við þessi áform en þau fá enga sér- staka greiðslu frá ríkinu vegna þessa. Talið er að viðbótarútgjöld sveitarfélaganna geti numið um 1,5 milljörðum króna. Halldór ótt- ast að sum sveitarfélög eigi mjög erfitt með að taka á sig auknar byrðar. Ljóst sé að einhver önnur þjónusta geti þurft að víkja. Að sögn Halldórs er talið að þessi breyting geti í upphafi snert um 1.000 manns, flesta í vor þar sem viðmiðunartíminn var lengdur úr 36 í 42 mánuði, en á næsta ári geti sveitarfélögin fengið 4-5 þús- und manns af langtímaatvinnu- leysisskrá. Í frumvarpi velferðarráðherra segir að á næsta ári muni ríflega 2.100 manns hafa verið lengur á atvinnuleysisbótum en 42 mánuði en sveitarfélögin telja þennan hóp stærri. Atvinnuleysið hefur verið langmest á Suðurnesjum til þessa, eða rúm 12% í nóvember sl. Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, segir þessar breyt- ingar geta haft alvarlegar afleið- ingar í för með sér fyrir sveitarfé- lagið, en hann gerir sér engu að síður vonir um að þetta verði leið- rétt. Sveitarfélög taka á sig 1,5 milljarða  Fjárhagsaðstoð sveitarfélaga tekur við langtímaatvinnu- lausum í þrjá mánuði á næsta ári  Engin greiðsla fylgir með MErum gapandi hissa »4 Skráð atvinnuleysi í nóvember var 7,1% en að meðaltali voru 11.348 atvinnulausir í nóvember og fjölgaði um 430 að meðaltali frá október eða um 0,3 pró- sentustig, skv. yfirliti Vinnu- málastofnunar. Þeir sem hafa verið atvinnu- lausir lengur en sex mánuði eru nú 6.734 talsins og hefur fjölgað um 68 frá lokum október og eru um 55% þeirra sem eru á at- vinnuleysisskrá í lok nóvember. Þeim sem verið hafa atvinnu- lausir í meira en eitt ár fjölgar úr 4.491 í lok október í 4.549 í lok nóvember. »16 Fleiri án vinnu 7,1% ATVINNULEYSI  Hljóðtækni- nám Tækni- skólans og Stúdíós Sýr- lands er vinsælt og komast færri að en vilja í þriggja anna námið. Fjórði árgang- ur námsins byrjar í janúar og sóttu 64 um að þessu sinni en 16 eru tekn- ir inn hverju sinni. Mjög erfitt er að velja úr hópi umsækjenda, að sögn Valdemars G. Valdemarssonar, skólastjóra Raf- tækniskólans. »14 Færri komast að en vilja í hljóðtækninám

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.