Morgunblaðið - 13.12.2011, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 2011
Í stuttu á
jólum
Pils
verð frá
7.900 kr
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is
Póstsendum
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Glæsilegur
undirfatnaður
frá París
Opið alla daga til jóla
Hæðasmára 4
– Í sama húsi og Bílaapótek fyrir ofan Smáralind
Sími 555 7355 • www.selena.is
• Náttföt
• Sloppar
• Undirföt
Nýtt kortatímabil
Glæsilegt
úrval jólagjafa
Þúsundir fjölskyldna þurfa mataraðstoð fyrir jólin.
Vörumóttaka alla virka daga kl. 9-17
að Eskihlíð 2-4, 105 Reykjavík.
Söfnunarreikningur 546-26-6609
Kt. 660903-2590
Fjölskylduhjálp Íslands
Getur þitt fyrirtæki
hjálpað fjölskyldum í neyð?
BORÐSTOFUHÚSGÖN, SÓFASETT, KOMMÓÐUR, NÁTTBORÐ, GLERSKÁPAR
SJÓNV. SKÁPAR OFL.OFL. Á FÍNU VERÐI.
Reykjavíkurveg 66 220 Hafnarfirði sími 5654100
Borðstofuhúsgögn teg. Parigi Tína 3 – 1 – 1
Teg. 109
Teg. 139
Teg. 83
Teg. 97
Teg. 83
Teg. 77
Teg. 18
Teg. 2104
Teg. 75
Teg. Camilla
Reykjavíkurvegi 66, 220 Hafnarfjörður, sími 565 4100, www.nyform.is
Gæðabuxur Klassískar svartar, (ullarblanda)
Gallabuxur, mörg snið
Peysuúrval (jakkapeysur, rúllukragapeysur)
Glæsilegar franskar blússur, bolaúrval
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Skoðið sýnishornin á laxdal.is
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
varar eigendur og umráðamenn
ökutækja við því að skilja verð-
mæti eftir í bílum. Nokkuð er um
innbrot í bíla á höfuðborgarsvæð-
inu en þjófum er ekkert heilagt og
þeir stela jafnvel jólagjöfum ef því
er að skipta, segir á vef lögregl-
unnar. Annars eru það einkum
GPS-tæki, myndavélar og tölvur
sem freista þjófa en þetta verða
eigendur eða umráðamenn öku-
tækja að hafa hugfast og muna að
skilja ekki nein verðmæti eftir í
bílum. Sé það óumflýjanlegt er
mikilvægt að slíkir hlutir séu ekki
í augsýn.
Sömuleiðis bendir lögreglan á
mikilvægi þess að skilja bíla frek-
ar eftir á upplýstum bílastæðum,
ef þess er nokkur kostur. Þjófum
finnst nefnilega fátt betra en að
athafna sig í myrkrinu þar sem
ekki sést til þeirra.
Þjófum ekk-
ert heilagt
Dr. Riad Malki, utanríkisráðherra
Palestínu, heimsækir Ísland dag-
ana 14. til 16. desember í boði Öss-
urar Skarphéðinssonar utanrík-
isráðherra. Meðan á dvölinni
stendur mun ráðherrann eiga fundi
með forsætisráðherra og utanrík-
isráðherra. Þá mun hann heim-
sækja Alþingi, funda með utanrík-
ismálanefnd og hitta Jón Gnarr
borgarstjóra.
Fimmtudaginn 15. desember kl.
14:45 heldur ráðherrann opinn fyr-
irlestur á vegum Alþjóðamálastofn-
unar Háskóla Íslands í Norræna
húsinu.
Utanríkisráðherra Palestínu í heimsókn
„Þetta er alveg þvert á þann anda
sem menn voru að vinna að í samn-
ingunum og gengur þvert á yfirlýs-
ingar ríkisstjórnarinnar um að jafna
lífeyrisréttindin,“ segir Björn Snæ-
björnsson, formaður Starfsgreina-
sambands Íslands, um fyrirhugaða
skattlagningu á hreinni eign lífeyr-
issjóðanna en framkvæmdastjórn
sambandsins sendi frá sér ályktun
um málið í gær undir yfirskriftinni
„Stjórnvöld svíkja almennt launa-
fólk.“
Björn segir að við gerð kjara-
samninganna í maí síðastliðnum hafi
stjórnvöld skrifað undir það að veita
fjármunum í almennu lífeyrissjóðina
til að jafna réttindi sjóðsfélaga
þeirra á við félaga í opinberu sjóð-
unum. „En þetta mun alveg virka öf-
ugt ef þetta verður til þess að rétt-
indin verða skert,“ segir hann.
Framkvæmdastjórnin mótmælir
einnig harðlega
„áformum ríkis-
stjórnarinnar um
að hækka bætur
almanna- og at-
vinnuleysistrygg-
inga helmingi
minna en lægstu
laun hækka, þrátt
fyrir loforð um að
lífeyrisþegar og
atvinnulausir
skuli njóta hliðstæðra kjarabóta,“
eins og segir í tilkynningu.
Björn segir fráleitt að miða hækk-
un atvinnuleysisbóta við þá 3,5%
hækkun sem meðaltekjufólk og
hærra launaðir hjá ASÍ fái, á meðan
launataxtar láglaunafólks hækki um
11 þúsund krónur 1. febrúar.
Skattlagning þvert
á gefin loforð
Mótmæla helmingi lakari kjarabótum
Björn
Snæbjörnsson
Umhverfisstofnun hefur ákveðið að
loka tímabundið gönguleið sem
liggur frá neðra bílastæði að brún
Gullfoss.
Að vetrarlagi geta skapast
hættulegar aðstæður vegna hálku
og snjóalaga. Því er stígnum lokað í
öryggisskyni þar til aðstæður verða
betri, segir á heimasíðu stofnunar-
innar. Skilti á fjórum tungumálum
hafa verið sett upp til upplýsinga
um að stígurinn sé lokaður vegna
hættu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í vetrarbúningi Gönguleiðir geta
verið varasamar við Gullfoss.
Gönguleið
lokað við
Gullfoss