Morgunblaðið - 13.12.2011, Side 12

Morgunblaðið - 13.12.2011, Side 12
SVIÐSLJÓS Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Íslensk stjórnvöld hafa um langa hríð barist fyrir því að í samningum um aðgerðir í loftslagsmálum sé tek- ið tillit til kolefnisbindingar vegna skógræktar, landgræðslu og endur- heimtar votlendis. Þessir þættir eru nú teknir með í reikninginn í heild- arbókhaldi yfir útblástur frá ein- stökum ríkjum í tengslum við Kýótó- bókunina en þeir eru á hinn bóginn ekki hluti af þeim markaði sem er að verða til með útblástursheimildir á vettvangi Evrópusambandsins. Hag- ræna hvata fyrir því að endurheimta landgæði í þeim tilgangi að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda hefur því vantað og loftslagsráð- stefnan í Durban í Suður-Afríku sem lauk um helgina breytti engu þar um. Hugi Ólafsson, skrifstofustjóri í umhverfisráðuneytinu og formaður samninganefndar Íslands á fundin- um í Durban, segir ekki útilokað að svo verði síðar. Enginn undirbúning- ur sé þó hafinn að því. Í ljósi þess að Íslendingar hafa ræst fram langstærstan hluta af vot- lendi á láglendi hafa þeir töluvert svigrúm til að endurheimta þetta sama votlendi. Ísland verður hluti af evrópskum markaði með losunarheimildir um áramótin. Hugi segist reikna með að það muni taka töluverðan tíma að bæta vísindin í kringum bindingu kolefnis með endurheimt landgæða til að hægt sé að setja ávinninginn á markað. „En ég reikna með að þetta geti skipt máli fyrir okkur í framtíð- inni,“ segir Hugi. Það sé þó mikil- vægt að tillaga Íslands um að tekið verði tillit til landgræðslu og endur- heimtar votlendis hafi náð fram að ganga og þar með séu forsendur til að koma þessum þáttum inn í við- skiptakerfi með losunarheimildir. Hann bendir einnig á að ýmislegt fleira sé ekki inni í viðskiptakerfum með losunarheimildir, s.s. útblástur frá einkabílum. Samdráttur í slíkum útblæstri hjálpi þó til við að standast Kýótó-skuldbindingarnar. Kýótó-kerfið hrundi ekki Í Durban náðist samkomulag um að hefja vinnu við nýtt lagalega bind- andi samkomulag um samdrátt í út- blæstri. Samningum á að ljúka 2015 og það á að taka gildi 2020. Hugi seg- ir ljóst að samkomulagið í Durban gangi ekki nógu langt. Á hinn bóginn sé mikilvægt að í Durban hafi verið komið í veg fyrir að það kerfi sem þó væri við lýði, þ.e. sem tengist Kýótó- bókuninni, hryndi. Þótt ekki sé til lagalega bindandi kerfi á heimsvísu um losun gróður- húsalofttegunda hafa ríki sett sér einhliða markmið og tilkynnt þau til Sameinuðu þjóðanna. Ef ríkin standa við markmiðin er talið, af sér- fræðingum SÞ, að það muni leiða til þess að meðalhiti verði 3°C hærri en fyrir iðnbyltinguna en í þess- um fræðum er jafnan mið- að við að meiri en 2°C hlýnun leiði til stórfelldra og óaftur- kræfra hörmunga. Telur í bókhaldi en ekki á markaði  Samkomulagið sem tókst í Durban gengur ekki nógu langt Morgunblaðið/ÞÖK Stenst Samkvæmt spá umhverfisráðuneytisins mun Ísland uppfylla markmið Kýótó-bókunarinnar. Um 44% af út- blæstri eru vegna iðnaðar og efnanotkunar, um 20% frá samgöngum, 14% frá útgerðinni og 12% frá landbúnaði. 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 2011 Í gær, 12. desember, voru 300 ár liðin frá fæðingu Skúla Magn- ússonar landfógeta. Af því tilefni var opnuð sýningin „Hinar nýju innréttingar. Skúli Magnússon og Reykjavík 18. aldar“ á Minjasafni Reykjavíkur – Landnámssýning- unni, Aðalstræti 16. Skúli Magnússon fæddist í Keldu- nesi í Norður-Þingeyjarsýslu 12. desember 1711. Hann lést 9. nóv- ember 1794. Hann er jafnan nefnd- ur Skúli fógeti enda var hann land- fógeti Íslands í rúmlega 40 ár. Hann var einn helsti drifkrafturinn á bak við stofnun Innréttinganna í Reykjavík. Skúli hefur stundum verið nefndur faðir Reykjavíkur. Þá var hann einn helsti boðberi upplýsingarinnar á Íslandi. Stofnað var til Innréttinganna árið 1751. Starfsemin varð fjölþætt, tók til jarðræktartilrauna, brenni- steinsvinnslu, ullarvefsmiðju, lit- unar, kaðlagerðar, skinnaverk- unar, skipasmíða og útgerðar svo það helsta sé nefnt. Starfsemin fór fram víða um land, en miðstöð framkvæmdanna var í Reykjavík. Skúli fékk Viðey til ábúðar og var Viðeyjarstofa reist sem emb- ættisbústaður á árunum 1753-55. Hann lét af embætti landfógeta 1793 og lést ári síðar í Viðey. Sýning opnuð í tilefni 300 ára afmælis Skúla Magnússonar landfógeta Morgunblaðið/Ómar Skúli fógeti Minnisvarði um Skúla Magn- ússon er í fógetagarðinum í Reykjavík. Jólakötturinn 2011 var valinn um helgina í Fjölskyldu- og hús- dýragarðinum á kattakynningu Kynjakatta en það voru gestir garðsins sem kusu. Kynntir voru 13 kettir af nokkrum tegundum. Kötturinn sem hreppti nafnbótina Jólakötturinn 2011 var persneski kötturinn Max en hann er hvítur og grár á litinn með mikinn og fallegan feld sem er vel við haldið af eigand- anum Önnu Maríu Moestrup. Max minnir lítið á jólaköttinn sem flestir kannast við og hefur lifað í manna minnum í kvæðum Jóhannesar úr Kötlum. Max er nefnilega mjög vandlátur á mat og drykk og drekk- ur til að mynda vatn einungis úr hvítvínsglasi að sögn Önnu Maríu. Jólaköttur ársins drekkur einungis vatn úr hvítvínsglasi Leikskólakennarar og Félag stjórn- enda í leikskólum telja þörf á að grípa til aðgerða til að draga úr há- vaða í leikskólum. Komið hefur fram í rannsóknum að hávaði í leikskólum mælist víða yfir hættumörkum. „Það er algjörlega óviðunandi að börn og kennarar búi við skaðlegar vinnuaðstæður sem geta haft alvar- legar og langvarandi afleiðingar á heilsu þeirra,“ segir í ályktun félag- anna. „Leikskólakennarar og stjórn- endur eru tilbúnir til þess hér eftir sem hingað til að að leita lausna á hávaða í leikskólum og krefjast þess að rekstraraðilar og skólayfirvöld axli sína ábyrgð strax.“ Hávaði á leikskólum Tvö hundruð og fjörutíu ökumenn voru stöðvaðir á höfuðborgarsvæð- inu um helgina í sérstöku umferð- areftirliti lögreglu. Þrír ökumenn reyndust ölvaðir og eiga þeir öku- leyfissviptingu yfir höfði sér. Þrem- ur til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir leyfi- legum mörkum. Margir ökumenn höfðu ekki ökuskírteini meðferðis en slíkt kostar viðkomandi 5.000 kr. Þrír voru ölvaðir STUTT Hjálpræðisherinn í Reykjavík verð- ur ekki með jólaaðstoð í ár eins og síðastliðin ár. Að sögn Sigurðar H. Ingimarssonar, forstöðumanns Hjálpræðishersins, er það vegna erfiðrar fjárhagsstöðu sem þessi ákvörðun var tekin. „Síðasta ár var erfitt að mæta allri þörfinni, þar sem útdeilt var matargjöfum allt árið sem að lokum tæmdi sjóðinn sem ætlaður var til hjálpar,“ segir Sigurður. Í staðinn hefur Hjálpræðisherinn ákveðið að vinna í samstarfi við aðra sem sinna hjálparstörfum og styrkja önnur hjálparsamtök með ýmsum hætti. Um 200 manns í jólamat Eitt af stóru verkefnum Hjálp- ræðishersins um jólin er jólamat- urinn á aðfangadag og verður höf- uðáhersla lögð á hann. Klukkan 18 á aðfangadag koma yfirleitt um 200 manns í mat til Hjálpræðishersins og koma þar margir sjálfboðaliðar við sögu að sögn Sigurðar. „Við erum þakklát öllum þeim fyrirtækjum sem styrkja okkur í þessu, en samt erum við á mörgum stöðum í bænum með svokallaða jólapotta.“ Í pottana er safnað framlögum og er allt sem þannig safnast eyrnamerkt velferðarstarfi Hjálpræðishersins, sem snýst ein- göngu um að gefa mat. „Draumastaðan okkar er að sjálf- sögðu að þurfa ekki að hafa áhyggj- ur af því að hafa ekki næga peninga til að geta hjálpað til,“ segir Sig- urður. „Aðaltakmark okkar er að geta veitt alhliða umhyggju, sem er okkar slagorð.“ Ekki með jólaaðstoð  Erfið fjárhagsstaða hjá Hjálpræðishernum í Reykjavík Ríkiskaup mun sjá um uppboð á þeim losunarheimildum sem Ís- landi verður úthlutað í við- skiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir gróð- urhúsalofttegunda. Ísland tekur þátt frá og með 2012 en kerfið mun fyrst í stað einungis taka til flugstarfsemi. Tvö íslensk flugfélög munu falla undir viðskiptakerfið, þ.e. Icelandair og Flugfélag Íslands. Önnur flugfélög eru ýmist of lít- il eða eru með meginhluta starf- semi sinnar utan EES en það á við um Atlanta og Bluebird Cargo. Gert er ráð fyrir að fram til ársins 2020 verði 85% los- unarheimilda í bandalaginu út- hlutað endurgjaldslaust til flug- rekenda en 15% boðnar upp. Frá 2013 nær viðskiptakerfið einnig til staðbundins iðnaðar.s. ál-, járnblendi- og steinullar- og fiskimjölsframleiðslu. Flugið fellt inn í kerfið UPPBOÐ ÁRIÐ 2012 Matarsendingar til útlanda Láttu okkur sjá um alla fyrirhöfnina – útvega vottorð, pakka og senda. Evrópa: 19. desember USA og Kanada: 19. desember Önnur lönd: 19. desember Síðustu dagar til að senda jólamat til útlanda fyrir jól KL AS SÍS KT Á JÓLUNUM B R E G ST A L D R E I M E Ð N Ó AT Ú N I www.noatun.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.